Nýr Stormur


Nýr Stormur - 27.05.1966, Blaðsíða 12

Nýr Stormur - 27.05.1966, Blaðsíða 12
12 "ÍfeMfim FÖSTUDAGTJR 27. msá 1966 Eg hygg að fáir eða engir kjnmist eins einkahögum manna, skaplyndi þeirra og tilfinningum sem læknar og lögmenn, þó með misjöfnum hætti sé. Þessar tvær stéttir hafa um langan aldur verið bundnar þagnarheiti, sem sjálfsagt stafar af því hve nauðsynlegt er talið, að þeim sé sýndur fullur trúnaður, og af hálfu hins opinbera hefur jafnan verið lögð á það rik áherzla, að veita þessum stétt um sem allra bezta menntun, þannig að störfin gætu farið vel úr hendi. í lögum um málflytjendur nr. 61/1942, er fortakslaust ákvæði um, að héraðsdóms- og hæstaréttarlögmenn séu opinberir sýslunarmenn og hafi skyldur og réttindi sam kv. þvi, m. a. þagnarskyldu um það, er aðili trúir þeim fyrir í starfa þeirra. í þessum lögum er svo fyrir mælt, að héraðsdóms- og hæstaréttarlögmenn skuli hafa með sér félag, og að stjórn þess komi fram fyrir þeirra hönd gagnvart dóm- urum og stjórnarvöldum í málum, er stéttina varða. Stjóm félags héraðsdóms- og hæstaréttarlögmanna ber að hafa eftirlit með, að félags- menn fari að lögum í starfi sínu og ræki skyldur sínar með trúnaði og samvizku- semi. Stjórn félagsins hefur úrskurðarvald um þóknun fyrir málflutningsstörf, ef á- greiningur er borinn undir hana. Brjóti félagsmaður gegn skyldum sínum getur félags- stjórn veltt honum áminn- ingu og gert honum á hendur sekt fyrir framferði 1 starfa, er telja má stéttinni ósam- boðið. Stjóm þessa félags, sem nefnist Lögmannafélag fs- lands, hefur kveðið upp marga úrskurði um sam- skipti lögmanna og um þókn- un fyrir störf þeirra. Þessir úrskurðir verða ekki gerðir hér að sérstöku umtalsefni, en rétt er þó að taka fram, að stjórn Lögmannafélagsins hefur jafnan beitt sér fyrir því, að sem bezt samvinna sé með lögmönnum, og að menn geri sér ekki leik að því að torvelda öðrum störf- in. Lögmenn verða að vísu að sæta því, að þeir séu kærðir til refsingar fyrir brot i starfi sem aðrir opinberir sýslunar- menn. Hins vegar hefir stjórn Lögmannafélagsins lagt á það rika áherzlu, að lögmenn væru ekki kærðir til refsing- ar fyrir yfirvöldum, nema þvi aðeins, að félagsstjórn hefði áður borizt tilkynning um brotið, og að kæra væri fyrirhuguð, þannig að stjórn in hefði möguleika á því að skerast i málið og jafnvel leiða það til lykta án þess að til opinberrar kæru kæmi. Ef ég væri um það spurð- ur, hvaða kosti ég teldi lög- mönnum nauðsynlegasta, myndi ég hiklaust svara drengskapur og samvizku- semi. Góðar gáfur og mikil þekking koma lögmönnum eins og öðrum að sjálfsögðu að miklu haldi í lífinu, en þetta tvennt dugir þó engan veginn ef drengskapinn eða samvizkusemina skortlr. Er óhætt að fullyrða, að fá störf skapa jafnmikla möguleika til óheiðarlegs hagnaðar sem lög mannsstörf. Þess vegna verð- ur það aldrei um of brýnt fyrir þeim mönnum, er þessl Pramh. á bls. 4. il pi Mlkla athygli vakti g fylgistap Sjálfstæðis- g flokksins í Keflavík og Hafnarfirði. — í Hafnar g firði mun framboð ó- háðra borgara hafa vald >' ið mestu og sýnir hið mikla fylgi þess lista for kjósenda á stjórnmála- S mannanna. — í Kefla- | vík mun hins vegar vega | skatturinn hafa valdið P mestu um og vlst er að g hann er mörgum þung- I; ur í skauti. Eitt dæmi veit blaðið um að bíl- stjóri hætti atvinnu sinni vegna þess að hon um var gert að greiða samtals 70 þúsund kr. í vegaskatt, en hann ók I i stórum vörubíl. P dæmingu pí skollaleik Daginn fyrir kosning- E ar brá ibúum Ljósheima í brún er þeir sáu menn | koma frá borginni og |<1 taka til að setja upp ról || ur og önnur tæki fyrir | börn á leikvelli fyrir || framan húsið. Hér er um stór fjölbýlishús að ræða og mun borgarstjóri | hafa ætlað að sýna dugnað sinn í verki, eins og menn urðu lika viða varir við rétt fyrir kosn a Lœhnar tala um skort á tœhjum. — Hér er | ein lausnin fyrir Borgarsjúkrahúsið! ingar. íbúar Ljósheima brostu góðlátlega og ekki virðist borgarstjóri hafa fengið mikla aukn- ingu atkvæða í því fjöl- menna hverfi. Fegurðarsamkeppnin Dyravörðurinn i há fjallahótelinu, við hjón- In, sem voru komin til að vera þar á sklðum i jólafriinu: —Viljið þér gera svo vel að skrifa nöfnin yð- ar hér, og einnig nöfn og 1 heimilisfang yðar ná- kominna œttingja. Hún var svo ofsareið að hún komst varla fyrir við stýrið. — Ökuskirteinið mitt? hvæsti hún framan i lög regluþjóninn. — Þér tók uð það af mér i sumart ★ Skáldið Eugene Field var einu sinni kominn upp i 1000 króna skuld i veitingahúsinu. þar sem hann var venjulega fastagestur. Þegar hann gat ekki borgað. hœtti hann að koma þar, — veitingamanninum til hins mesta ergelsis, þvi skáldið hafði verkað eins og segull á aðra við skiptamenn. Nokkrum dögum seinna kallaði veitingamaðurinn hann inn á veitingahúsið og afhenti honum reikning inn, sem nú var stimpl- aður GREITT. — Field stakk reikningnum við- stöðulaust i vasann og sagði svo: —Segið mér eitt: Er ekki venjulegt að bjóða viðskiptamönnum snafs þegar þeir eru búnir að borgall Margt er skrítið í.... I ÁHRIF KOSJV0CMM Byltir þjóö í svetni sér, sem á glóðum valdstjórn er, ógnahljóð að eyram ber, eldi og blóði rigna fer. trsfltrsÝiirsrltrSfl írSílfrSflrrSíltrS'íl Cm

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.