Nýr Stormur


Nýr Stormur - 19.08.1966, Blaðsíða 3

Nýr Stormur - 19.08.1966, Blaðsíða 3
Föstudagurinn 19. ágúst 1966 "ÍIWMItt heldur áfram, og það er á kostnað borgaranna. Nýr Stormur skorar á les- endur slna að aðstoða blaðið við að reyna að koma í veg fyrir afbrot þau er framin eru gagnvart þeim og meðbræðr- um þeirra, þótt lögleg eigi að heita. Sú aðstoð verður bezt gefin meff því að gefa blað- inu upplýsingar. Þær upplýsingar munu verða birtar á ábyrgð blaðs- ins, svo framarlega að þær séu réttar. Þríkanturinn — Framh. af bls. 1. ráðhús" á þurru landi — fyrir seðlaútgáfuna. Á síðkvöldum munu þeir félagarnir Haraldur og Nordal = Sól og Máni — íslands, reika um svalir þessarar hallar og minnast verðbólgunnar, sem þeim tókst að sexfalda á sex ár- um. Þetta nýja Norðdals- hús mun nú spegla sig í þeirri tjörn, þar sem nafni bankastjórans og afi lét höggva ís með hökum og flytja í hestvögnum i hið gamla góða Norðdalsíshús. Shellportið mun nú ekki verða notað fyrir seðla- banka — en það er seðla verð á lóð ekki undir 20 milljónum króna. Kratar eiga gömlu Iðnó, sem þeir eignuðust á heið- arlegan hátt. — Sú saga er ekki óskild söguni Um lamb fátæka mannsins. — Krataforingjarnir eru á hangandi á víxlum fyrir A1 þýðublaðið í öllum bönkum. Nú vilja þeir skipta á Iðnó og Shellportinu við Lækj- argötu og losa sig úr öllum ábyrgðum. Verðbólgan mun þannig að lokum létta af herðum kratabroddanna þungum áhyggjum. Þjóffgarðurinn — Framh. af bls. 1. umsóknar fyrir „almenn- ing“. Þingvellir eru einn feg- ursti staður landsins auk þess að hafa sína miklu sögu. Þetta er helgur þjóð arreitur og það er ótvíræð krafa þjóðarinnar að Þing staðurinn við Öxará sé var inn sem ósnortin þjóðar- eign um alla framtið. Þjóðin mun rísa upp gegn því að umhverfi Þing valla sé breitt í villuhverfi fyrir snobbara og flokks- gæðinga. Dauðadansinn — Framh. af bls. 1. bræðraþjóðum okkar á Norð- urlöndum. Við játum það í öðru orðinu, að kennsla og uppeldismál séu mikils varð- andi. Kennararnir okkar eru yfirleitt eins konar lands- hornamenn, menn, sem lifa á hrakningi við kennzlu i nokkur ár, og gefast upp sið- an. Kennarastéttin er niður- setningurinn á þjóðfélagsbú- inu, uppkreistingur hrakin úr einum stað í annan og mið- lungi vel virt. I allri viðleitni hennar verður kyrkingurinn samur og í henni sjálfri. Ert í fræðslumálunum liggur miklu meira við fyrir þjóðina, heldur en fyrir kennarastétt- ina. Hún er yfirleitt ekki mpð hálfan hugann við kennsluna hvort sem er og getur ekki verið það. Og af henni má ekki vaénta mikilla afreka til umbóta. í marzmánuði 1918 skýrir blaðið frá því, áð Ágúst H. Bjarnason, prófessor hafi gert siðfræðiskennsluna að um- talsefni í vetur í fyrirlestrum, sem hann hélt fyrir almenn- ing. Prófessorinn hefir trú á því, að sérstök kennsla í sið- fræði myndi bæta barnaskóla vora og göfga þjóðina, er tím ar liðu. Hyggur hann ekki muni af veita. Fannst honum að æskulýður vor og þjóð lítt bera þess merki, að lögð væri áherzla á siðferðisuppeldi hér. Um langan aldur hefur kennarastéttin verið illa laun uð og lítið tillit til hennar tekið. Hefur það flæmt marg an góðan manninn frá þvi að sinna sllkum störfum. Á seinni árum hefur bygging- um skóla fleygt mikið fram, en þrátt íyrir mikið bætta að- stöðu hafa skólarnir ekki sinnt hlutverki sínu sém skyldi. Allt íslenzka skóla- kerfið þarf að taka til endur- skoðunar, alveg frá grunni. Forustumenn fræðslumál- anna virðast taka lífinu með ró þrátt fyrir stórum bætta aðstöðu og engan eða lítinn áhuga hafa á að sinna þess- um þýðingarmiklu málum. Nú ættu þeir að leita aðstoð- ar þess opinbera, ef í þeim væri einhver töggur og ef sú aðstoð sem þeir teldu sig þurfa væri ekki veitt, þá að bregðast hart við eins og aðr- ar stéttir og hafa sig eitthvað í frammi, en í þeim herbúðum rikir dauðaþögn. Vonandl eru ennþá til menn í þessari stétt sem geta látið til sín heyra og þora að láta álit sitt 1 ljósi um þessi mál. Eldri kynslóðin verður að gera sér það ljóst áður en það er um seinan, að unglinga vandamálið er henni sjálfri að kenna. Hún verður að breyta um starfshætti í upp- eldismálum sínum og taka þau föstum tökum. Eínnig ber henni að finna leiðir til þess, að unga fólkið fái tækifæri til að skemmta sér, við þess hæfi. Því séu ætlaðir skemmtistaðir og jafnframt séð um, að um- gengni verði slík að öllum verði til sóma. Þetta á að vera framkvæmanlegt ennþá, því af öllum þeim hópi er ekki nema lítill hluti sém hegðar sér éins og skríll og setur sirin svip á alt umhverf ið. Ef ekki verður hægt að siða þennan lýð með góðu, verður að breyta um starfsaðferðir til þess að kippa þessu í lag. Drykkjuveizlur þjóðarleið- toganna verður að stöðva. Til þess þarf auðvitað sterkt al- menningsálit. Ástandið er orð ið þannig, að varla halda nein samtök ársfund sinn án þess að þangað sé boðinn sá ráð- herra, sem slík mál heyra und ir og síðan býður ráðherrann eða borgarstjórinn í Reykja- vík til kokkteilsboðs að fund- arstörfum loknum. Minna þessi veizluhöld helzt á for- vígismenn þjóðarinnar hér áð ur fyr, þegar tekið var fram, að embættismaðurinn hefði undirritað lagafyrirmæli eða annað ófullur. Þjóðarleiðtog- arnir verða að finna einhverja aðra leið til þess að halda fylg ismönnum sínum saman til þess að sýna dýrð sína og veldi ef ekki á illa að fara, því þeir mega vita, að Yfirmönnunum er því vænt, undirsátarnir hnýsa grant eftir því, sem fyrir augun ber, auðnæmast þó hið vonda er; hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það. STEFKRÓKUR Rétt og rangt Að víxla réttu og röngu er furðu létt sú reynd er góð — og þykir éngum mikið, —\ og fróðir telja að rangt sé alltaf rétt, hið rétta vitlaust, óhagrœnt og svikið. í hrœrigraut hið ranga og rétta hyllt því réttarhugsýn vor er sanrúeiksfyllt! „Álum-Ar Fjandans tál er alum-ál, œpir mál í kjafti, eins og káli illheitt bál anda í sálarhafti. Æra-Tobbi álabál áður fyrrum kveikti, — nú er kveikt í ála-ál sem annar Tobbi hreykti. Háskólaborgarar byggja sinn ál og blessa og kynauka fórnbúans mál, með œxlandi frjóvi og elda í sál í álinn þeir steypast sem bélja í kál. Grímur Orðskviðir Synja ei góðs, þeim, er þarfnast þess, ef það er á þínu valdi að gjöra það. Seg þú ekki við náunga þinn: „Far og kom afturli á morgun skal ég gefa þér“ — ef þú þá átt það til. Brugga ei illt gegn náunga þínum, þegar hann býr öruggur hjá þér. Deil ei við neinn að ástæðulausu, ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein. Orðskviðir Salómons Fllistear — Framh. af bls. 12. millibilsástandi. „Það myndi bæta aðstöðu mína mjög mik- ið,“ sagði kunninginn og leit niður fyrir sig. Síðan leit hann upp á unga manninn, og sagði eins og við sjálfan sig: „Heldurðu að það komi að sök þó ég fái peningana, sem þú ert með, láriaða — í svo sem tíu daga?“ — Ungi maðurinn virtist hug- leiða spurninguna stundarkorn og svaraði síðan: „Ef það kæmi sér vel fyrir þig, þá held ég varla, að það sakaði neinn, þó S. (skuldar- eigandi)) fengi ekki peningana tafárlaust — og auk þess átti hann ekki von á þeim núnal ______________________________3 Þetta gæti svo sem allt verið i lági, fyrst P. (kunninginn) þyrfti ekki að hafa peningana að láni, nema nokkra daga — oh sei sei,“ Dagarnir liðu, en það hafði orðið úr, að ungí maðuríriA gustukaði sig yfir kunningia sinn, sem hann taldi vera í nokkrum vanda, og þess vegna hafði svo um samist milli þeirra að kunninginn fengi peningana lánaða þessa fáu daga. Sam komulag var og með þeim, að minnast ekki á málið að til- efnislausu, enda lítil hætta á að skuldareigandi myndi hafa samband við húsbónda unga mannsins, þar éð hann færi 1 kaupstaðarferð til Reykjavíkur sama, eða næsta dag, og myndi dvelja þar a. m. k. um tveggja vikna til þriggja vikna skeið. Og nú var kominn hinn tíundi dagur frá því ungi maðurinn afhenti kunningjanum pening- ana, en ekkert hafði heyrzt frá honum, eftir að þeir skildu um- rætt sinn. Þegar fullar tvær vik- ur voru liðnar og ekki hafði enn spurzt af ferðum kunningj- ans, þá fór ungi maðurinn að ókyrrast, og reyna að ná sam- bandi við kunningjann. Heldur gekk þetta treglega, en þó fór svo, að þegar tæpar þrjár vikur voru liðnar frá skilnaði þeirra forðum, hittust þeir óvænt á skemmtun, ungi maðurinn og kunninginn! Þeir tóku tal sam- an og þótti unga manninum sem nokkurs áhugaléysis gætti hjá kunningjanum í sambandi við endurgreiðsluna. Vildi ungi maðurinn fá tafarlaus endalok málsins og krafðist greiðslunn- ar, þar eð húsbóndinn væri væntanlegur heim hvern dag Mætti þá búast við því, að hús- bóndinn og skuldareigandinn ræddust við, og peningagreiðsl- an myndi vafalaust bera þá á góma. — Nú skeði það, að kunn inginn brást hinn versti við, og kvaðst ekkert greiða af fénu fyrr en sér sýndist, enda hefði ungi maðurinn enga kvittun handbæra frá sér. Skildu þeir félagar í styttingi og varð fátt um kveðjur. — Nokkrir dagar liðu og ekki heyrðist neitt frá kunningjanum og þegar þar kom leitaði ungi maðurinn á- sjár manns nokkurs, sem gutlaði víð málflutning, enda þótt hann hefði ekki embættis- próf í lögum. Sá „lögfróði" kvað ekki gott í efni en tók samt að sér að reyna að fá mál- efnum unga mannsins borgið. Allt kom samt fyrir ekki — og við það situr enn f dagl Málalok urðu þau, að ungi maðurinn varð sér úti um lán til að greiða skuldina fyrir hús- bóndann — en „sá lögfróði", hjálpari hans, krafði unga mann inn hinsvegar um kr. 700.00 greiðslu fyrir „lagalegar" leið- Framh. á Bls. e.

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.