Nýr Stormur - 15.12.1967, Side 5
R&SæUDAGUR 15. DES. 1967.
0
yýp
iTORMUR
Útgefandl: Samtök óháðra borgara.
RíteÉ$ióKar: Gurmar Hall sími 15104 og Páll Pinnbogason, ábm s
Ritstj. og afgr. Laugav. 30 - Simi 11658.
Augiýsinga- og áskriftarsími 24510.
Vikublað - Útgáfudagur: föstudagur.
Lausasöluverð kr. 10.00. Áskriftarverð kr. 450.00.
Prentsmiðjan Edda h.f.
HtmiimHtMmumiiMiiiMiiHMiMHiuNMiiiniiiimMiimiUHinniiiitNiniititiuiitiMiiiiiM
Köld hitaveita
Að því h'Iaut að koma, að
borgaryfirvöWin viðurkenndu
heítavatnsskortinn. Nokkuð
þarfti þó til, kulda og kröm
nokkra vetur í röð í gömln
hverfunum, svo ráðamenn
hitaveiturmar viðurkenndu
sitt úrræðaleysi og vanefndir.
Meðal armars þá glópsku, að
rniða hámarksálag við sex
gráðu frost. Hvað mundi verða
ef ámóta kulda gerði og vetur-
inn 1918, þegar frostið var um
og yfir 20 stig dögum og vik-
um saman; og víkur allar og
voga lagði út til eyja? Hvaðan
koma mennimir? Hafa þeir
enga hugmynd um vetrarfar,
. enga reynslu af ísl. veðurfari?
, Spyr.sá,sem ekjú veit......
Vafalaust hefur borgarstjóri
áhuga á því, að allir búi við
sæmilegan hita í húsum sín-
um og eins á vinnustöðum og
verður því ekki sakfelldur
nema fyrir það helzt, að vera
um of talhlýðinn og afskipta-
lítill gagnvart þeim mönnum,
er sjá. um og ákveða meirihátt
„Máríá mild . . .
FramhaH af bls. 1.
á markaðinn eftlr áramót,
með nýju „lágu“ tollunum.
„Sannleikurinn mun gera
yðtrr frjálsa“ og Páll postuli
sagði líka annað: „Hvað er
sannleikur?"
Hvemig væri að kristnir
verzlunarmenn og kristnir
■ rfkisstjórnarmenn notuðu
stórhátíðina sem í vændum
er og Páll postuii átti svo
ríkan þátt í að skapa, tii að
j hugleiða þessar tvær spak-
legu setningar postulans
mikla.
Kannske við fengjum að
heyra niðurstöðurnar í byrj
un nýs árs — viðreisnarárs,
sem snýr nú aftur til for-
tfðarinnar. Til „Framsókn-
arúrræðanna — vinstri-
stjórnarævintýrisins“.
Ætlj það verði þá ekki
einhver til að taka sér í
munn orð postulans: „Hvað
^er sannleikur?“
ar framkvæmdir hitaveiturm-
ar. Ákveða t. d. að taka inn á
hítaveitukerfið ný og ný íbúð-
arhverfí, og valda við það of
mikhx álagi, miðað við borhol-
ur og vatnsmagn þeirra, svo
allir koma til með að búa við
takmarkað heitt vatn til upp-
hítunar og annara heimilis-
nota. Nýjar dælur geta lítið
bætt um, þó í það sé látið
skína, því hver borhola fyrir
sig skilar ákveðnu vatnsmagni
með ákveðnu hitastigi á á-
kveðnum tíma.
Borgarstjóri sagði nýlega,
að í bæjarhverfum húskuld-
ans byggju aðeins 5 af hundr-
aði bæjarbúa. Sé þetta rétt, og
■skaj, það.;ekki rerigt^h^tuí;
borgarstjóri að eiga við íbúð-
arhverfin, heimilin, þar sem
menn nærast og sofa. En hvað
um alla þá er stunda vinnu á
hinum köldu svæðum hita-
veitunnar, í miðborginni og
næsta nágpenni? Á þessum
svæðum varð að aflýsa
kennslu í skólum vegna kuld-
ans og nemendum vísað heim,
svo að eitt sé nefnt. Líklegt er
að hrollur hafi verið í fleirum
en nemendum og kennurum,
þá kaldast var.
Hitaveitugjöldin hafa verið
hækkuð um 18% og eins og
venjulega sú skýring látin
fylgja, að hækkunin sé nauð-
synleg vegna nýrra fram-
kvæmda hitaveitunnar, þ. e.
frekari útþenslu fyrirtækisins
svo blessun heita vatnsins nái
til sem flestra. Enginn mælir
gegn þessari félagshyggju. Þó
mun viturlegt að hafa hér hóf
á og fulla gætni, og aldrei má
spenna bogann svo í notkun
hitans, að fram úr farf afköst
um hitagjafans. En á því leik-
ur nokkur grunur og eins þvi,
að ekki fari allar hækkanir
hitaveitugjalda til verklegra
framkvæmda hjá hitaveit-
unni, heldur muni stór hluti
hinna árlegu hækkana fara til
greiðslu vaxta og afborgana,
eða alls um 50 millj. kr. á ári
að því er borgarstjóri upplýsti
nýverið.
Eru það nýjar fréttir og
merkar.
I
I
P
I
, .HUGSJONALAUST OG
NEIKVÆTT NÖLDUR“
Orðið hugsjón er fagurt
orð og á sér djúpar rætur í
sögu mannkynsins. Pæstir
hugsjónamenn hafa náð
miklum árangri í lifanda
llfi, þótt mikilsháttar und-
antekningar séu fyrir
hendi.
Hugsjónir þeirra hafa oft
ast verið kæfðar af þeim,
sem þær hafa beinst gegn,
en þeir hafa oftast verið
hin ráðandi öfl — bæði ver-
aldleg og andleg.
íslendingar hafa átt
nokkra hugsjónamenn,
þótt þeim fari fækkandi og
lítið fari fyrir þeim nú orð-
ið. Hugsjónir íslenzku þjóð-
arinnar nú orðið eru flestar
miðaðar við munn og maga
og orð eins og frelsi og sjálf
stæði eru aðeins í tízku í
gleðskap fyrirmanna yfir
glasi p.f víni, þegar enginn
^elfcUF-annaiuaLvaricga—.
Ekki mun þó örgrannt að
einhverjir stjórnmála-
manna okkar kunni að búa
yfir pinhverri hugsjón, þótt
þeir! fari vel með. Að
minnsta kosti virðast sum-
ir þeirra kunna skil á þvi
orði, eða svo er að sjá á
Reykjavikurbréfi síðastlið-
inn sunnudag.
Þar birtast „hugsanir“
Bjarna formanns að jafn-
aði vikulega og flokksmenn
hans drekka í.sig hvert orð,
likt og á „Torgi hins himn-
eska friðar“. Hér eins og
þar, eiga efasemdir ekki
heima, enda eiga flokks-
menn Bjarna, sem slikt
kynnu að voga, ekknupp á
pallborðið, fremur en hjá
Mao formanni, hinum kín-
verska.
Vafalaust hafa frelsishug
sjónir hinnar finnsku þjóð-
ar, sem vill búa ein og óháð
í sínu þúsund vatna landi,
borið á góma í reisu for-
mannsins. Hann hefir vafa
laust í því sambandi rifjað
upp orð leiðtoga síns, Ólafs
Thors, á sínum tima, sem
yljuðu hinu unga hjarta
hans um rætur, er Ólafur
synjaði erlendu herveidi
um þumlung lands, um ald-
ur og ævi.
í þeim eldi hafa „hugsan
ir“ þeSsa mikla manns mót
ast og herzt svo, að nú fyll-
ist hann vandlætingu yfir
„hugsjónalausu nöldri“
Sigurðar A. Magnússonar
og annara stúdenta, sem
misst hafa „vöku“ sína.
Sigurður A. Magnússon
starfaði eitt sinn við Morg-
.uhblaðiöv Hugsanir. Bjarna
formanns voru og eru hug-
sjónir þess blaðs. Sigurður
drýgði þá höfuðsynd, að
neita að verða einn af
„varðliðum“ formannsins
og hlaut því að vikja.
Nú hlýtur hann þá refs-
ingu, að vera kallaður
„þröngsýnn úrtölumaður“
af þessum höfuðsmið ís-
lenzkra „hugsjóna" á miðri
tuttugustu öld.
„Úrtölunöldur“ Sigurðar
„túlkaði ekki hug íslenzku
þjóðarinnar, og var ekki
mælt úr hennar hjarta“.
Þessi hjartfólgni ást-
mögur íslenzku þjóðarinn-
ar þekkir auðvitað þau
heimkynni betur en nokkur
annar og verða því orð hans
og „hugsanir“ ekki vé-
fengd, fremur en fyrri dag-
inn.
Aumingja Sigurður situr
nú eftir með sárt ennið.
Hann talaði um ísienzku
þjóðina og til hennar, en
gleymdi því, að hjarta henn
ar tilheyrði öðrum — hún
er frátekin fyrii- Bjarna
formann og „hugsanir“
hans eru hennar boðorð.
ÞEGAR FINNAR KUSU
SÉR KÓNG
í Morgunblaðinu 10. des.
er sagt frá grein er Fager-
holm fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pinna ritaði í
tímarit Norræna ríkisins í
i
Danmörku og segir frá því
að við lok borgarastyrjald-
arinnar á Finnlandi og
stofnun hins nýja ríkis,
hafi sigurvegararnir úr
styrjöldinni, hvítliðarnir,
ætlað sér að fylgia hinni
norrænu stefnu, og því til
fulltingis kosið sér þýzkan
prins fyrir kóng.
Sá þýzki þorði þó ekki á
vettvang og finnskir sósíal-
demókratar, sem komu
sterkir út úr þingkosning-
unum, munu hafa ráðið því
að landið varð lýðveldi —
eitt Norðurlandanna.
Um það gat þjóðin sam-
einast og friður var saminn
við Rússa.
Æðsti maður íslenzku
þjóðarinnar f raun, bírtir
þessa frásögn og verða
menn að leiða getum að því
hvað fyrir honum vakir.
Framhald á bls. 6.
Skófatnaður á alla fjölskylduna
MJÖG GLÆSILEGT ÚRVAL
Rúmgóð verzlunri
nýju húsnæði
Kvenskór.
Barnaskór.
Herraskór.
Skóverzlun
PÉTURS ANDRÉSSONAR
Laugavegi 96.
(Við hliðina á Stjörnubíó).
Laugavegi 17 - Framnesvegi 2
GERIÐ SVO VEL OG LÍTIÐ INN.
r
%
i