Nýr Stormur


Nýr Stormur - 15.12.1967, Síða 7

Nýr Stormur - 15.12.1967, Síða 7
FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967. 'llORNUR „EF ÆSKANN VILL... “ Blaðinu hefur borizt jólablað Æskunnar og gefur það tilefni til nokkurra hugleiðinga um þessa starfsemi Stórustúku ís- lands. Menn eru ekki á einu máli um árangur af starfi Stór- stúkunnar í bindindismálum hin síðari ár. Það fer þó ekki á milli mála um göfgi hugsjón- ar þeirrar, sem þessi alþjóða- félagsskapur byggir á. í hinni félagslegu upplausn síðustu áratuga hefur starf stúknanna verið erfiðara og ekki eins afgerandi og áður var. Stúkurnar voru áður fyrr snar þáttur i félagslifi landsmanna, en hafa horfið æ meir í skugg- ann í umróti eftirstríðsáranna síðari. Aðrir aðilar hafa og komið til liðs við málefnið með allgóð um árangri og skilningur manna á því, að ofdrykkja er sjúkdómur, sem venjulega lækn ast ekki án verulegrar læknis- hjálpar, hefur vaxið, þótt nokkrar undantekningar séu á, að sterkur vilji ög félagsleg hjálp hafi nægt og komið að fullum notum. Æliulýðsstarf Stórstúkunnar er hinsvégar ómetanlegt og for- ráðamenn hennar verða að skilja, að á þeim vettvangi er mesta árangurs að vænta. 1. O. G. T. hefur misst hin sterku tök, er reglan hafði áður fyrr í félagslífi hinna fullorðnu, eins og áður er sagt. En verkefnin eru vaxandi og þeim mun mikilsverðari meðal æskunnar og starf ungtemplara er ekki metið að verðleikum — ekki af þessari rótlausu þjóð. Einn hluti af þessu starfi er utgáfa barnablaðsins Æskan, sem hvert mannsbarn þekkir frá æskuárum sínum, því að það hefur nú komið út í 68 ár. „Æskan“ hefur ávallt átt miklum vinsældum að fagna meðal barna og ungmenna og verið útbreitt blað á íslenzka vísu. Menn hafa að vonum alið á- hyggjur af æskulýðnum í dag og vissulega er sá heimur, sem hinir fullorðnu fá honum í hendur, ekki til að státa af að mörgu leyti. Efnishyggjan er allsráðandi bæði í lífi einstakl- inganna og í félagsmálum. Menn hefðu því gjarnan get- að búist við því, að blað eins og „Æskan“ ætti ekki vaxandi vinsældum að fagna, en það er öðru nær. Á örfáum árum hef- ur áskrifendatala „Æskunnar" fjölgað úr 6 þús. i 15.000 og er „Æskan" þar með orðin út- breiddasta timarit landsins. Þennan frábæra árangur ber að sjálfsögðu að þakka ritstjóra „Æskunnar", Grimi Engilberts. sem hefur tekizt að vinna hug og hjarta hinna ungu lesenda og framtiðar islenzku þjóðar- innar. Það fer ekki framhjá þeim, er fletta „Æskunni", að þar fer saman frábær smekkvfsi í efn- isvali og furðpleg fjölbrevtni, svo að fullorðið fólk stendur sjálft sig að því að vera komið á kaf í lestur þessa frábæra blaðs. Sá, er þessar línur ritar, trúði ekki ummælum margra, er þetta, höfðu fullyrt, fyrr en hann sjálfur reyndi. Það er góður vitnisburður um efniviðinn í næstu kvnslóð fullorðinna á fslandi, að hann skuli kunna svo vel að meta þetta mjög svo fróðlega og skemmtilega efni. Það er líka full ástæða til að þakka Stórstúkunni fyrir þetta mikilsverða og vel unna fram- lag til æskulýðsstarfs í landinu. Það er full ástæða til að skora á foreldra, sem ekki hafa „Æsk- una“ á heimili sínu, að bæta úr því hið bráðasta. Þetta vand- aða blað er hollari skemmtun börnum þeirra en byssuleikir í sjónvarpinu, og þeir sjálfir myndu síður en svo bíða skaða af að hverfa á vit '„Æskunnar“ smástund við og við. BÍLA- VIÐGERÐIR Réttingar Boddýviðgerðir Almenn Viðgerðarþjónusta Pantiff tíma í síma 37260 Bifreiðaverkstæði VAGNS GUNNARSSONAR Síðumúla 13 "=g»J Lager föt, vönduð Sérsniðin föt. Öll snið Ultíma Kjörgarði. I l l l l | MM nnr ínnnn HJl JS. jllHU JÓLIN OG LJÖSIÐ Kertaljósin eru frjgur, en þau geta einnig verið hœttuleg. — Foreldrar, leiðbeinið börnum yð- ar um meðferð á óbirgðu Ijósi. Um leið og vér beinum þessum tilmœlum til yðar, óskum vér yð- ur öllum GLEÐILEGRA JÓLA BRUNABÓTAFÉLAG fSLANDS LAUGAVEGI 103, SÍMI 24425 V

x

Nýr Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.