Framsóknarblaðið - 14.09.1938, Blaðsíða 3

Framsóknarblaðið - 14.09.1938, Blaðsíða 3
FRANSÓKN ARBLAÐIÐ 3 xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx . Drvalsritgerðir Jánasar Jémsnar Fyrsta bindi ritgerðasafnsins kemur út í liaust. Gerist áskrifendur. Áskriftalisti liggur frammi á afgreiðslu blaðsins, Vestmannabraut 10. Bókin kostar fyrir áskrifeudur 5 kr. óbundin, en 7,50 í bandi. X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X x Þetti verða besttu bðkalriup ársins. x xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx x x x Orðsending. Brunabótafélag Islands vill vekja atbygli gjaldenda, sem eiga ó- greidd iðgjöld til vor er féllu í gjaldaga 15. okt. 1937, og eldri, á, að iðgjöldin hafa verið afhent bæjarfógeta til innheimtu og verða krafin með lögtaki, ef þau verða ekki greidd þegar í stað. Skrifstofa umboðsins verður fyrst um sinn opin alla virka daga frá kl. 5—7 og 8—9 e. h. Vestmannaeyja-timboð Brtmabótaféíags íslands. Bjarni G. Magnússon Vestmannabraut 10, sími 159. Skiptafundur í dánarbúi Árna heitins Oddssonar verður hald- inn liér á skrifstofunni 3. október n. k. kl. 10. Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum 12. september 1938. Kr. Linneh kennaranna, heldur en þörf þeirra sjálfra (foreldranna) fyr- ir vinnu unglinganna. Ég veit dæmi til þess, að for- eldrar hér hafa unnið til þess að taka vertíðarstúlku, svo að dóttirin gæti stundað nám í gagnfræðaskólanum. Slíkt er virðingar- og þakklætisvert. Og mörg móðirin verður að vinna baki brotnu við heimilisatörfin annatimann mikla einmitt vegna þess, að dóttirin eða dæturnar fá að halda áfram námi, þegar þær eru orðnar liðtækar við heimilisstörfin. Sama má- segja um feðurna og drengina. Það væri ánægjulegt, ef unglingarn- ir lærðu að meta þá fórn og gjalda sem vert er. Gagnfræðaskólinn hér færist í aukana ár frá ári, þó hægt fari. Þegar syrtir í , álana á milii, megum við kennararnir minnast þess og trúa þvi, sem einn merkasti skólamaður lands- ins hafði orð á fyrir nokkrum árum síðan, að í engum kaup- stað landsins mundi örðugra að skapa öflugan unglingaskóla en einmitt hér vegna vertíðarinnar fyrst og fremst. Fyrstu 11 árin hafði skólinn húsnæði í barnaskólahúsinu. Þar voru starfsskilyrði slæm og að- búnaður leiðinlegur, svo ekki só fastara að orði komist. Þó viðurkenni ég einlæglega, að öðruví8i gat það naumast verið eftir ástæðum, þar sem barna- skólinn hafði fulla þörf íyrir allt sitt og meira en það, Skól- arnir voru hver öðrum plága, þótt sambúð okkar kennaranna og samstarf væri gott. tíiðuslu fjögur áiin lieíir skól- inn starfað í húsi iðnaðarmanna, Breiðabliki. Þar eru starfsskil- yrði að mörgu leyti góð, en hús- rúmið nú orðið of lítið. Það stendur því til, að skól- inn fái aukið húsnæði fyrir at- beina velviljaðra manna, sem trúa því, að starf okkar kenn- aranna megi verða bæjarbúum til góðs. Með auknu húsnæði fær skól- inn aukin og betri starfsskilyrði. Ég vænti þess fastlega, að vald- hafar bæjarins hamli því ekki, að svo megi verða. S. 1. ár var starfrækt við gagnfræðaskólann hér mat- sveinanámskeið fyrir þá, sem stunda vilja matargerð á útilegu- bátum. Sú kennsla er bráð- nauðsynleg atvínnulífinu hér. Sóttu námskeiðið 10 piltar. Þá var einnig starfræktur vinnuskóli við gagnfræðaskól- ann s. 1. vor fyrir atvinnulausa drengi 13—17 ára. Nemendur voru 19. Þannig hafa s. 1. ár 92 ung- menni hér stundað nám í Gagn- fræðaskólanum eða á námskeið- um hans. Á þessum tímamótum er mér síst í huga að minnast erfiðleika og aðsóknar, tortryggni og mis- skilnings, heldur hins, að ég liefi átt því láni að fagna þessi 11 ár, sem ég hefi starfað hér, að eiga velviljaða oggóðamenn að í starfinu, bæði meðal ráð- andi manna bæjarfélagsins og utan þeirra. Þeir hafa jafnan stutt skól- ann „utan þings og innan“ og og reynst honutn drengir góðir í hvívetna og haukar í horni, þegar á hefir reynt. Ég get hér sérstaklega síra Sigurjóns Árna- sonar sóknarprests, sem nú er á förum héðan, og Páls Kolka læknis, sem flutti héðan fyrir nokkrum árum. En fleiri eiga hér óskiptan hlut að, þótt ég nefni ekki nöfn þeirra aðþessu sinni. Ég er öllum stuðnings- mönnum skólans hjartanlega þákklátur og rainnist þeirra af hlýjum liug. Við kennarar skólans erum bjartsýnir og eigum ekki aðra ósk heitari, en að geta í starfi okkar orðið æskulýðnum hér að sem mestu gagni, og mega vinna með foreldrum og fyrir þá að velferð og gengi hinnar táp- miklu æsKu hér í Eyjum. Ve8tmannaeyium 10. sept. 1938. Þorsteinn IJ. Yíglundsson. Frá iMNdlaatiaai. Það er ánægjulegt að vita, að aðsókn að Sundlauginni hefir verið með mesta móti í sumar. Virðist það benda á aukin á- huga fyrir þessari hollu og fögru íþrótt, sundinu. í sumar munu hafa verið hald- in 3 mót fyrir atbeina hins á- gæta og áhugasama sundkenn- ara hr. Friðriks Jesaonar. S. 1. laugardagskvöld var háð sund- mót, og voru þátttakendur um 50, piltar og stúlkur frá 9 ára aldri. Má fullyrða að um mikla og ánægjulega framför var að ræða hjá þátttakendum frá því í vor, ekki aðeins í hraða, held- ur öllu fremur í fegurri og þjáll- aðri hreyfingum. En það er tak- mark allra íþróttaiðkana, fegurð og aukin hreysti líkamlega og andlega. Mesta athygli á þessu sundmóti vakti nýtt met er Erla ísleifsdóttir sundmær setti í 100 m. fr. Synti hún vegalengdina á 1. .18 min., en staðfest met mun vera 1.22 mín. Við Erlu eru bundnar miklar vonir um, að hún eigi eftir að verða Eyjunni og land- inu til sóma fyrir óunnin afrek á þessu sviði. Mörg fieiri ung- menni hér gefa vonir um slíkt hið sama, Það á að vera metn- aðarmál allra góðra borgara hér, að Vestmannaeyingar verði öðr- um samlöndum fremri í þessari íþrótt. Það fer líka vel á því, því að hér var fyrst tekin upp sundkennsla sem skyldunáms- grein við Barnaskólann. Það mun standa til, að loka sundlauginni bráðlega. Mun þar mestu valda um, að veðrátta er farin að kólna, og meðan bún- ingsklefar eru óupphitaðir verð- ur aðsóknin þar af leiðandi lítil. En það er áhugamál allra sund- manna og annara, að klefarnir verði upphitaðir hið fyrsta, svo hægt sé að hafa laugina opna fram eftir á haustin. Gulrófur hæfilega stórar. 7 krónur pokinn Kartöflur góðar. 11 krónur pokinn. Helgi Benediktssoa Á fjárhagsáætlun þ. á. eru veittar kr. 4000,00 til leiðslu á heitu vatni frá Rafstöðinni hér til upphitunar á klefum. Að vísu

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.