Morgunblaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 2
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8
2 | MORGUNBLAÐIÐ
18.06.2010
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskyldugarðurinn Lena Margrét Pálsdóttir, Rúnar Bjarki Elvarsson og Birgitta Rós grilla pylsur í Laugardalnum. Sóldís Emma Ottesen bíður líka eftir matnum.
Vinsælasta pylsugrillið er í Laugardalnum
Vinsælasta pylsugrill landsins er í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal.
Þ
etta er mest notaða og vinsælasta grill landsins,“ segir
Tómas Ó. Guðjónsson, forstöðumaður garðsins, um pyl-
sugrillið á svæðinu. Húdýragarðurinn var opnaður 1990
og fjölskyldugarðurinn með grillinu þremur árum síðar.
Tómas segir að grillið hafi verið vinsælt frá byrjun og notkun
þess aukist frá ári til árs. Hann bendir á að um 1.000 manns komi
í garðinn að meðaltali á dag og í maí sl. hafi verið um 43.000 gest-
ir. Mikið sé um heimsóknir hópa eins og skólahópa og starfs-
mannahópa og þeir noti grillið mikið.
Grillið samanstendur af átta rafmagnsgrillum undir þaki og
eru þau fyrst og fremst heppileg til þess að grilla pylsur. Tómas
segir að hugmyndin með öllu í garðinum sé að sjá, læra, vera og
gera og því hafi verið sett upp rafmagnsgrill svo fólk geti grillað
pylsur með börnunum frekar en að kaupa þær tilbúnar. Fólk geti
bæði komið með hráefnið með sér eða keypt það á staðnum og nú
sé auk þess líka hægt að kaupa heitar pylsur eins og í venjulegum
pylsuvögnum.
Tómas segir að sú breyting hafi orðið undanfarin tvö ár að fólk
vilji líka nota grillið á veturna. Auk þess geta hópar leigt gasgrill
standi hugur til þess að grilla eitthvað annað og meira en pylsur.
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Blaðamenn
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Auglýsingar
Kolbrún D. Ragnarsdóttir
kolla@mbl.is
Forsíðumyndirn tók Ómar
Óskarsson á Argentínu
steikhúsi.
4
Flestir eiga grill
og jafnvel fleiri
en eitt en sumir
vilja ekkert
nema Weber.
11
Grænmeti er hollt og gott á
grillið og það má útfæra á
ýmsan hátt.
8
Allt sem þarf á
grillið fæst í Mela-
búðinni og þar á
meðal grillspjót.
6
Grillaður humar er
lostæti og hafður
jöfnum höndum í
forrétt sem aðalrétt.
12
Nóatún býður upp á marga
valkosti í tilbúnum grillveislum
sem kaupendur síðan útbúa.