Framsóknarblaðið - 20.06.1956, Side 2
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Við sýnum það við
kjörborðið.
Á öðrum stað hér í blaðinu er
birt greinargerð um muninn á
aflafleytum stórgróðakerfisins
og einstaklingshyggjunnar, liluta
félögunum, og félögum fólksins
í landinu, kaupfélögunum. Lófi
peningavaldsins íslenzka er í
Reykjavík, en fingurnir teygja
sig út um alit land, og ekki sízt
hingað til \?estmannaeyja. Sam-
vinnufélögin í landinu vinna
fyrir fólkið og hamla á móti
skefjalausri gróðagræðgi pen-
ingavaldsins í Reykjavík. Þetta
skilur liver kjósandi, sem vill
skilja það. Aðeins tuttugu menn
og félög hér í Eyjnm eiga sam-
leið með peningavaldi höfuð-
borgarinnar og foringjum, eða
kjarna Sjálfstæðisflokksins þar.
Allir hinir Eyjabúar eiga sam-
leið með fólkinu í landinu, sem
m. a. styðst við samvinnufélögin
í lífsbaráttunni. Það er því óeðli
legt hverjum óbreyttum kjós-
anda til lands og sjávar að veita
s tórgróða va Idinu bra u targeng i
við þingkosningar. — Við þessar
kosningar mun það líka korna
berlega í ljós, að mikill liópur
Eyjabúa vill hætta þeim óeðii-
lega stuðningi og veita samtök-
um sjálfs fólksins lið með atkv.
sínu við þessar kosningar. — Við
Eyjabúar erurn engir „snobbar-
ar“, og við skiljum því okkar
vitjunartíma.
Við kjósum fulltrúa urnbóta-
flokkanna, Ólaf Þ. Kristjánsson,
á þing, til þess m. a. að styðja
samtök fólksins sjálfs í landinu.
Skilningur okkar og þroski í fé-
lagsmálum fer vaxandi. Það sýn-
um við í verkinu, — við kjör-
borðið.
Fjórmól ríkisins.
Landsbankinn gefur út árbók,
Framsóknar- j
blaðið j
) RITSTJÓRI OG (
( ÁBYRGÐARMAÐUR: )
) ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON (
) AFGREIÐSLU ANNAST: (
( SVEINN GUÐMUNDSSON. )
( GJALDKERI BLAÐSINS: )
) SIGURGEIR KRISTJÁNSSON (
) AUGLÝSINGAR ANNAST: )
j SVEINBJ. GUÐLAUGSSON. )
sem ekki er í margra liöndum.
Þess vegna kýs Framsóknarblað-
ið að birta liér svolítinn kafla
úr árbók bankans um fjármál
ríkisins. Þar segir m. a.:
„Ennþá liggja ekki fyrir end-
anlegir ríkisreikningar, en ljóst
er, að afkoma ríkissjóðs var
mjög góð á árinu 1955. Allt út-
lit er fyrir, að rekstrarafgangur
ríkissjóðs liali ekki orðið minni
en árið 1954, en þá nam hann
98,5 millj. króna. Mikill hluti
rekstrarafgangs fór Lil þess að
greiða halla á eignahreyfinga-
reikningi, en 55 millj. kr. af
honum var ráðstafað með lögum
til Ræktunarsjóðs, Fiskveiða-
sjóðs, íbúðalána og fleiri nota
— —Svo sem kunnugt er, þá
er það Framsóknarmaður, sem
fer með fjármál ríkissjóðs.
Gjaldeyrismálin.
Um þau segir í árbók Lands-
bankans m .a.:
„Gjaldeýrisstaðan versnaði
mjög mikið á árinu 1955, enda
varð verzlunarhallinn meiri en
dæmi eru til áður, eða alls 416
millj. króna“.
Öllum er það kunnugt, að það
er ráðherra úr Sjálfstæðisflokkn-
um, sem fer með gjaldeyrismál-
in. —
Dró íslenzka sjómanna-
stéftin af sér?
Skyldi hin neikvæða gjaldeyr-
isstaða íslenzku þjóðarinnar ár-
ið 1955 stafa af því, að íslenzka
sjómannastéttin hafi dregið af
sér við framleiðslustörfin á fyrra
ári? Ónei, síður en svo. Hún afi-
aði 5,5% meira magn en árið
áður (i954).En því meir sem
aflast af gjaldeyri, þeim mun
meir vex innflutningurinn á
skraninu.
ALÞINGISKOSNINGAR.
Kosningar til Alþingis á þingmanni fyrir Vestmannaeyjar fara
fram 24. þ. m. og hefjast kl. 10 árdegis.
Kosið verður í tveimur kjördeildum þannig:
1. kjördeild: Ákógeshúsið.
Þar greiða þeir atkvæði, sem heima eiga ,i bæjum og í liúsum,
sem eigi eru talin við götur og ennfremur þeir, sem búa við götur,
sem heita nöfnum, sem byrja á bókstöíunum A—H, að báðum
þeim bókstöfum meðtöldum.
2. kjördeild: Hús K. F. U. M.
Þar greiða þeir atkvæði, sem búa við götur, sem lieita nöfn-
um, sem byrja á bókstaf síðar í stafrófinu. Einn'ig þeir, sem eru
á aukakjörskrá.
Yfirkjörstjórn.
mmmíi
s
Lögtaksúrskurður!
Lögtak má fara fram til tryggingar ógreiddum, gjaldföllnum
útsvarshlutum til bæjarsjóðs Vestmannaeyja upþ í útsvör 1956,
sem svarar helmingi álagðs útsvars 1955, ásamt dráttarvöxtum og
kostnaði, að liðnum átta dögurn frá lögbirtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógétinn í Vestmannaeyjum, 19. júní 1956.
FR. ÞORSTEINSSON
ftr.
(sign. L. S.)
T i 1 s ö 1 u!
.þýzkur barnavagri. — Uppíýsingar að Reykjum. Sími 225.
mmmmmmmmmmsm
X Úlafur Þ. Kristjánsson
ANNÁLL.
Skólpið.
Ein hin mestaðkallandi nauð-
syn hér í bæ er að stemma stigu
fyrir því, að skólpið úr bænum
renni í höfnina. — Það veldur
margvíslegum óþægindum og
skaða. Þar um hafa fæst orð
minnsta ábyrgð.
rillaga okkar Framsóknar-
manna er sú, að nú þegar verði
hafizt handa um að leggja aðal-
veitu úr vesturbænum fram
með Hlíðarbrekkum norður á
Eiði. í þá aðalveitu mætti leiða
skólppipur úr öllu Hásteins-
hverfi og ef til vill vesturhluta
Brekastígs, Hásveinsvegar, Vest-
mannabrautar og Faxastígs.
Þessar framkvæmdir þola enga
bið héðan af.
Aflinn.
Nokkrir stórir bátar stunda nú
veiðar með handfæri. í fyrri
viku fengu þeir nokkurn afla.
Um miðja vikuna komu þeir að
með 1800—2400 fiska eftir 2
sólarhringa útiveru. Aflinn er
mest einvörðungu ufsi. Á bátun-
um eru 4—6 menn.
Afli á opna báta er tregur,
enda sækja jreir aðeins á
grynnstu heimamið, en stóru
bátarnir fá aflan á svæðinu frá
Pétursey austur uridir Dyrhóla-
ey. Nokkrir bátar stunda veiðar
með dragnót og liafa fengið góð-
an afla.
Lendur
Gagnfræðaskólans.
Unnið hefur verið að Jiví
öðru livoru, Jiað sem af er Jiess-
um mánuði, að jafna og laga
land Gagnfræðaskólans norðan
byggingarinnar. — Rigningar
hamla verkinu. Þarna er um að
ræða mikinn tilflutning á mold,
og ógerningur að inna það verk
af liendi með ýtu, nema moldin
sé þúrr.
Verkamannabústað-
irnir.
I ráði hefur verið lengi að
hefja byggingu á fjórum verka-
mannabústöðum hér á þessu
sumri. Von er að menn spyrji,
hvað líði undirbúningi þeirra
framkvæmda. Samið hefur ver-
ið um kaup á lóðum undir hús-
in í túni Hofs við Landagötu.
Þá hefur nú loks náðst sam-
komulag við stjórn Byggingar-
sjóðs verkamanna í Reykjavík
um stærð íbúðanna. Lán til í-
búðanna eru afráðin og láns-
kjör.
Miklar vonir standa til þess að
byggingarframkvæmdir geti haf-
izt upp úr miðju sumri, ef skipu
lagsstjóri lætur ekki á sér standa.