Morgunblaðið - 01.07.2010, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.07.2010, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 4 Viðskipti FRÉTTASKÝRING Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is Ótti er nú vaxandi innan evrópska fjármálakerfisins um að stöðugleiki þess sé í hættu og að bankar séu það illa staddir að hætta sé á því að ein- hverjir þeirra fari í þrot, sem hefði ófyrirsjáanlega keðjuverkun. Spænskir bankar eru taldir standa hvað tæpast, en samkvæmt frétt Financial Times berjast þeir nú um á hæl og hnakka við að reyna að sann- færa Evrópubankann um að auka fyrirgreiðslu til þeirra. Sérstök fyrirgreiðslu- og fjár- mögnunaráætlun evrópska seðla- bankans upp á 442 milljarða evra rennur út í dag og hyggst bankinn ekki framlengja áætlunina, sem fel- ur í sér lánveitingar til eins árs. Í staðinn hyggst bankinn lána bönk- um til þriggja mánaða í senn. Hefur Financial Times eftir einum hátt- settum spænskum bankamanni að sú ákvörðun sé „út í hött“. „Öllum seðlabönkum ber að tryggja lausafé. En það er ekki stefna evrópska seðlabankans. Það er út í hött,“ segir hann. Annar þarlendur bankamaður segir: „Stefna Evrópubankans er að lána ekki til lengri tíma en þriggja mánaða. En hann verður að laga sig [að aðstæðum].“ Geta illa fjármagnað sig á markaði Bönkum á evrusvæðinu, og þá sér í lagi á Spáni, hefur reynst erfitt að fjármagna sig á markaði að undan- förnu. Því hafa þeir leitað til Evrópu- bankans, sem veitt hefur þeim lán til eins árs á eins prósents vöxtum. Sem fyrr segir hættir bankinn að veita slík lán í dag, en lánveitingarnar voru hluti af sérstakri 442 milljarða evra áætlun, sem sett var í fram- kvæmd fyrir ári. Bönkunum verður boðin sérstök fjármögnun næstu sex daga, til að brúa gatið fram að næstu sjö daga fjármögnun. Þá býðst bönkum þriggja mánaða fjármögnun og mun sú fjármögnun tryggja þeim fjár- magn út þetta ár. „Kerfið virkar einfaldlega ekki,“ segir Simon Samuels, fjármálagrein- andi hjá Barclays Capital í London. „Nú eru að verða þrjú ár síðan Evr- ópubankinn fór að veita lausafjár- aðstoð og enn eru engin merki þess að bankar geti staðið einir og óstuddir á markaði.“ Barclays Capi- tal áætlar að að minnsta kosti 150 milljarðar evra af fjármögn- unarpakka evrópska seðlabankans, sem koma á gjalddaga nú, verði ekki framlengdir með þriggja mán- aða lánveitingum. Því muni bankar neyðast til að draga úr eigin lánveitingum. Óttinn um framtíð bankakerfis Evrópu birtist á þriðjudaginn í því að vextir á milli- bankamarkaði náðu níu mánaða hámarki. Var það rakið til þess að teikn væru á lofti um að fyrrnefnd ákvörðun Evrópubank- ans um að minnka fyrirgreiðslu væri ótímabær. Don Smith, hag- fræðingur hjá Icap, segir að ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af kerfisáhættu, þar sem aðgangur margra banka að markaðs- fjármögnun sé takmarkaður, sem fyrr segir. „Evrópubankinn er í raun að venja bankana af gervi- stuðningnum – og það er áhyggju- efni.“ Eiginfjárvandi frekar en lausafjárvandi? Áhyggjur annarra rista þó dýpra og lúta að grundvallarheilsu evrópskra bankakerfisins. Þannig má setja spurningarmerki við fullyrðingar um að einungis sé um lausa- fjárvanda að ræða – hér sé frekar um að ræða ofurskuldsett net fjár- málastofnana, sem hver sé annarri háð og geti því fallið eins og spila- borg, með dómínóáhrifum, ef einn banki lendir í vandræðum. Skort á lausafé megi rekja til þess að bank- ar þori einfaldlega ekki að lána öðr- um bönkum, af ótta við að fá ekki endurgreitt. Má í því samhengi benda á nærtækt dæmi, af íslenska bankakerfinu fyrir hrun, en for- ráðamenn þess héldu því statt og stöðugt fram að aðeins þyrfti aukna fyrirgreiðslu hjá Seðlabanka Ís- lands, en eins og seinna hefur komið í ljós var um djúpstæðan eiginfjár- og skuldavanda að ræða, fremur en að aðeins hafi skort lausafé. Evrópskir bankar í öndunarvél Reuters Takmarkað bankakerfi Óttast er að evrópskir bankar séu illa staddir.  Evrópskir bankar eiga margir í miklum erfiðleikum með að fjármagna sig á markaði og þurfa að reiða sig á fyrirgreiðslu Evrópubankans  Spænskir bankar taldir standa sérstaklega tæpt  Sérstakri fyrirgreiðslu Evrópubankans, með lánveitingum til eins árs, lýkur í dag Bank for International Settle- ments (BIS), sem seðlabankar heimsins eiga aðild að, segir í ársskýrslu sinni að bankar beggja vegna Atlantsála séu „af- ar skuldsettir og [virðist] enn vera í öndunarvél. Hinu mik- ilvæga verkefni að draga úr skuldsetningu og lagfæra efna- hagsreikninga er einfaldlega ekki lokið. Gríska þjóðar- skuldakreppan sýnir hversu við- kvæmt fjármálakerfið er enn,“ segir í skýrslunni. Þá segir BIS að tap á efna- hagsreikningum evrópskra banka muni væntanlega hlaðast upp á næstu árum. Sumir bankar velti á undan sér útlánum í stað þess að ganga að þeim og fresti því þannig að láta tapið birtast í bókum sínum. BIS telur að lágir vextir og eyðsla hins opinbera geri illt verra og skapi freistnivanda, þar sem bankar taki áhættu á kostnað annarra. Hætta sé á því að bankakerfið verði líkt og í Japan á tíunda áratugnum – haldið á lífi með peningaprentun og ófært um lánveitingar. Mikið dulið útlánatap BIS UM BANKANA FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Útlit er fyrir að frumvarp um starf- semi fjármálafyrirtækja í Banda- ríkjunum hljóti ekki samþykki beggja deilda þingsins, líkt og reikn- að hafði verið með. Scott Brown, öld- ungadeildarþingmaðurinn sem tók við sæti Edwards Kennedys í Massachusetts, hefur sett sig upp á móti ákvæðum sem bætt hafði verið við frumvarpið á síðustu stundu. Ákvæðin mæla fyrir um það að bankarnir sjálfir greiða kostnaðinn sem af frumvarpinu hlýst. Við þetta er meirihlutinn, sem verið hafði fyrir því að samþykkja lögin, fallinn. Lík- legt er að frumvarpið fari nú aftur í nefnd og málamiðlunar leitað. Áfall fyrir Obama Umbætur á fjármálakerfinu eru meðal stærstu málaflokka sem Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti ætlar að setja mark sitt á á kjörtímabilinu. Fyrirhugað hafði verið að áðurnefnt frumvarp yrði klárt nú í vikunni, og að Obama myndi staðfesta það sem lög næstkomandi mánudag, á sjálfan þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Nú er nánast útilokað að af því verði. Frumvarpið er kennt við þingmenn- ina Christopher Dodd og Barney Frank, sem hafa borið hitann og þungann af smíði þess. Markmiðið með fyrirhugaðri lagasetningu er fyrst og fremst að koma í veg fyrir það að fjármálakerfið geti hrunið, líkt og gerðist síðla árs 2008. Jafn- framt er ætlunin að styrkja stöðu neytenda með því að koma á fót rík- isstofnunum sem einbeita sér að neytendamálum er snúa að fjár- málastarfsemi, s.s. greiðslukorta- samningum, húsnæðislánum og pen- ingamarkaðssjóðum. Aukin samþjöppun banka Stórum fjármálastofnunum á borð við Bank of America og Goldman Sachs verður gert óheimilt að eiga í viðskiptum fyrir eigið fé, og beinum fjárfestingum þeirra í vogunar- og einkafjárfestingarsjóðum settar þröngar skorður. Skilgreining þess sem telja má til eigin fjár verður þrengd. Eftirlitsheimildir seðla- bankans aukast til muna, og mun hann meðal annars eiga aðild að svo- kölluðu „áhætturáði“, sem er ætlað að fylgjast með kerfisáhættu og meta það hvenær stórum fyr- irtækjum er gert að selja eignir. Þeir bankar sem haft hafa að- gang að neyðarlánaglugga seðla- bankans þurfa að draga verulega úr viðskiptum sínum með afleiður, ell- egar eiga það á hættu að missa að- gang sinni að lánaglugganum. Í ljósi þess að efnahagur margra þeirra hefur batnað til mikilla muna, og sumir hverjir endurgreitt stóran hluta lána sinna, er óljóst hvorn kostinn þeir velja. Það verður enn óljósara sé haft í huga að þeir njóta að öllum líkindum ríkisábyrgðar. Af- leiðingar kreppunnar hafa meðal annars verið þær að nú eru fjármála- fyrirtækin færri og stærri, sem gerir þau enn mikilvægari kerfinu í heild. Rökin fyrir björgunaraðgerðum stjórnvalda á sínum tíma voru ein- mitt kerfislegt mikilvægi fjármála- fyrirtækja, og þar sem þau hafa stækkað síðan þá verður ekki annað séð en þau rök eigi ennþá við. Frumvarp um endurbætur á fjármálakerfi steytir á skeri Reuters Ábúðarfullir Mikið hefur mætt á þeim Frank og Dodd við að berja saman ný lög um fjármálafyrirtæki vestra.  Meirihluti fyrir samþykkt nýrra laga um starfsemi fjármálafyrirtækja í Bandaríkjunum féll á síðustu stundu Jón Steindór Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, hefur sagt starfi sínu lausu. Upp- sögnin tekur gildi í dag. Jón Stein- dór hefur starfað fyrir Samtök iðn- aðarins, og áður Félag íslenskra iðnrekenda, í samtals 22 ár, lengst af sem aðstoðarframkvæmdastjóri en síðustu árin sem framkvæmdastjóri. „Starf mitt í þágu iðnaðarins hef- ur verið ákaflega skemmtilegt og gefandi. Verkefnin hafa verið fjöl- breytt og krefjandi og á þessum tíma hefur orðið bylting í atvinnu- málum Íslendinga. Ég hef notið þess að leggja mitt af mörkum og búa í haginn fyrir iðnaðinn frá degi til dags en ekki síður að tryggja honum nauðsynleg starfskilyrði innan Evr- ópu og skapa svigrúm fyrir vöxt nýrra greina sem skapa vinnu og velferð,“ segir Jón Steindór. Helgi Magnússon, formaður SI, segir að nýr framkvæmdastjóri sé fundinn og tilkynnt verði um ráðn- ingu hans innan skamms. Morgunblaðið/Heiddi Jón Steindór Hefur starfað fyrir SI og forvera samtakanna í 22 ár. Jón Stein- dór hættur hjá SI  Tilkynnt um ráðningu eftirmanns innan skamms

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.