Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 6 Viðskipti tíð er engin ástæða til að ætla að skuldir þess lendi á ríkissjóði. Ástandið hjá Íbúðalánasjóði er hins vegar annað og verra. Vissulega ætti tekjuflæði hans að vera sæmi- lega tryggt og hann er með veð fyrir stærstum hluta útlána sinna ef ekki öllum. Tap varð hins vegar á rekstri sjóðsins í fyrra og nam það 3,2 millj- örðum króna. Þegar haft er í huga að eigið fé sjóðsins er ekki nema rúmir tíu milljarðar er alls ekki úti- lokað að ríkið muni að minnsta kosti þurfa að hlaupa undir bagga með sjóðnum ef taprekstur heldur áfram. Lágt eiginfjárhlutfall sjóðsins – 1,3 prósent – undirstrikar líka það hve illa hann er staddur til að bregð- ast við ófyrirséðum áföllum. Verði meiri vanskil á íbúðalánum frá sjóðnum en nú er gert ráð fyrir gæti hann þurft á aðstoð að halda. Bæði Landsvirkjun og Íbúða- lánasjóður nutu góðs af hárri láns- hæfiseinkunn íslenska ríkisins ein- mitt vegna ríkisábyrgðarinnar, en sú tenging virkar einnig í hina áttina. Síendurteknar lækkanir á lánshæf- iseinkunn íslenska ríkisins hafa leitt til þess að lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs hafa lækkað. Mun það gera endur- fjármögnun þeirra erfiðari og dýrari en ella, en Landsvirkjun hefur hins vegar mun meira svigrúm en sjóð- urinn til að mæta þessum aukna kostnaði. Hallarekstur hjá sveitarfélögum Ríkið ber einnig ákveðna ábyrgð á sveitarfélögum og fyrirtækjum þeirra og reiknast Lánasýslunni svo til að ábyrgð vegna þessa liðar nemi nú um 1,1 milljarði króna. Afar erfitt er að meta hvort og með hvaða hætti skuldir og skuldbindingar sveitarfé- laganna gætu lent á ríkissjóði, en vart verður framhjá því horft að á heildina litið gæti staða sveitarfélag- anna verið betri. Skuldir sveitarfélaganna sam- tals eru um 235 milljarðar króna og nam halli á rekstri þeirra 16,8 millj- örðum. Þegar fyrirtæki sveitarfé- laganna eru skoðuð sést að þau voru í heildina rekin með halla árið 2008, mismiklum þó. Orkuveitur hafa í þessu sambandi ákveðna sér- stöðu einfaldlega vegna stærðar þeirra, en orkuveitur sveitarfélag- anna voru í heildina reknar með 76,3 milljarða króna halla árið 2008. Skuldir orkuveitnanna voru í lok þess árs 222,3 milljarðar króna og eignir umfram skuldir námu 48,2 milljörðum. Þetta þýðir að hafi rekstrarniðurstaða orkuveitnanna verið sambærileg árið 2009 og 2008 er eigið fé þeirra neikvætt núna. Neikvætt eigið fé Þá vekur það athygli að tveir flokk- ar fyrirtækja í eigu sveitarfélaga voru þegar í árslok 2008 með nei- kvætt eigið fé og það voru fráveitur og félagslegt íbúðarhúsnæði. Skuldir umfram eignir hjá fráveit- unum voru 3,5 milljarðar króna og hjá félagslega íbúðarhúsnæðinu var það neikvætt um 6,9 milljarða. Í báðum tilvikum var rekstrarnið- urstaða einnig neikvæð, sem þýðir að nema þeim hafi tekist að snúa við blaðinu í fyrra er skuldastaðan væntanlega enn verri nú. Líkt og með aðrar ábyrgðir ríkissjóðs gildir þó um skuldir og skuldbindingar sveitarfélaga að nær útilokað er að þær lendi allar á ríkinu. Hins vegar er alls ekki úr myndinni að ríkið neyðist með ein- um eða öðrum hætti til að koma einstökum sveitarfélögum til að- stoðar. Eins og áður segir hafa lífeyr- isskuldbindingar ríkisins verið taldar til skulda en ekki ábyrgða, en það er samt upplýsandi að skoða hve miklar þær eru og hvernig þær koma til. Lögbundin réttindi Lífeyrisréttindi opinberra starfs- manna greinast í grófum dráttum í A og B-deild. Árið 1996 var lokað fyrir nýja sjóðfélaga í B-deild Líf- eyrissjóðs starfsmanna ríkisins en við stofnun hinnar nýju deildar, A- deildar, var gengið út frá þeirri for- sendu að réttindi skyldu vera jafn- verðmæt og þau höfðu verið fram til þessa. Eins og Viðskiptaráð Íslands benti á í apríl síðastliðnum eru líf- eyrisréttindi starfsmanna ríkisins skilgreind í lögum og til að standa undir lífeyrisskuldbindingum var reiknað með að lögbundið iðgjald þyrfti að vera 15,5% af heild- arlaunum. Þar sem starfsmenn greiða 4% í lífeyrissjóð er mótframlag ríksins 11,5% eða nærri helmingi hærra en gengur og gerist á almennum vinnu- markaði. „Ríkið þarf að standa við fyr- irfram skilgreindar lífeyrisgreiðslur, hvort sem ávöxtun LSR reynist já- kvæð eða neikvæð. Þetta er öfugt við sjóði almenna lífeyriskerfisins þar Staða ríkisábyrgða 2001-2010 (í milljónum króna) 1.000.000 900.000 800.000 700.000 600.000 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 * *= Fyrsti ársfjórðungur Aukning frá 2007 til 1. ársfj. 2010 = 35,3% – Lánastofnanir – (Þar af Íbúðalánasjóður) – Ríkisfyrirtæki – – Sameignar- og hlutafélög – ( 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 * Aukning frá 2007 til 1. ársfj. 2010 = 34,1% 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 * 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 * Aukning frá 2007 til 1. ársfj. 2010 = 97,2% 20 01 20 02 Aukni 37 8. 0 80 46 0. 77 9 50 1. 60 5 56 4. 92 3 54 2. 0 59 59 4. 12 2 66 7. 56 6 83 6. 14 4 90 1. 38 2 90 3. 07 8 35 3. 41 9 43 4. 25 3 47 3. 29 8 53 6. 56 2 53 1. 35 7 58 2. 65 4 65 6. 47 0 81 4. 24 7 87 8. 55 2 88 0. 58 1 6. 72 5 7.0 28 7. 35 9 7.0 28 7.6 33 3. 46 7 0 0 0 0 56 .7 80 54 .7 4 8 47 .1 24 52 .3 07 56 .0 21 90 .9 30 19 6. 73 6 37 5. 15 7 40 4. 89 4 38 8. 0 52 36 .2 17 33 73 8 300.000.000 250.000.000 200.000.000 150.000.000 100.000.000 50.000.000 0 -50.000.000 -100.000.000 Staða B-fyrirtækja sveitarfélaga í árslok 2008 (í þúsundum króna) – Hafnarsjóðir – – Vatnsveitur – – Hitaveit R E F S R E F S R E R= -1 .6 54 .1 75 27 .4 70 .3 88 12 .5 28 .8 91 14 .9 41 .4 98 -3 36 .6 96 8. 67 0. 66 8 1. 78 4. 82 6 7.0 38 .0 20 -4 35 .3 09 4. 22 6. 27 0 Innstæður í bankakerfinu í mars 2010 (Í milljónum króna) Heimild Seðlabanki Íslands Samtals 1.558.235 milljónir Veltiinnlán 432.272 Gengisbundin veltiinnlán 33.205 Peningamarkaðs- reikningar 182.614 Óbundið sparifé 358.114 Verðtryggð innlán 227.715 Orlofsreikningar 9.105 Viðbótarlífeyrissparnaður 77.336 Annað bundið sparifé 108.806 Innlendir gjaldeyris- reikningar 129.068 Ábyrgðir ríkisins nema þús  Ríkisábyrgðir, að meðtöldum innstæðum í bönkum, nema alls um 2.900 millj- örðum króna  Eru þær enn hærri þegar teknar eru með lífeyrisskuldbindingar Ríkisábyrgðir Ábyrgðir ríkisins vegna Íbúðalánasjóðs nema um 880 milljörðum og v FRÉTTASKÝRING Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Ábyrgðir ríkissjóðs, þegar teknar eru með innstæður á bankareikn- ingum, nema alls um 2.900 millj- örðum króna. Er hér horft framhjá þeim fjárhæðum sem um er deilt í Icesave-málinu, en ef þær bætast við nema ábyrgðir ríkisins um 3.600 milljörðum. Í þessum tölum eru ekki ábyrgðir vegna tryggingafræðilegs halla á opinberum lífeyrissjóðum, en þær hafa verið taldar til skulda rík- issjóðs en ekki ábyrgða. Neikvæð tryggingafræðileg staða sjóða með ábyrgð opinberra aðila er um 500 milljarðar króna. Nettóskuldir ríkissjóðs eru um 1.550 milljarðar króna. Það er fé sem við vitum að ríkið mun þurfa að greiða fyrr eða síðar, en öðru máli gegnir um ríkisábyrgðirnar. Rétt er að hafa í huga að margt má fara úrskeiðis áður en nokkur þessara ábyrgða lendir á ríkissjóði, en það er upplýsandi að fara yfir hverjar ríkisábyrgðirnar eru og hvaðan þær eru til komnar. Staða Landsvirkjunar sterkari Ríkisábyrgðir að undanskildum inn- stæðum og lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt tölum Lánasýsl- unnar 1.336,5 milljörðum króna. Langstærstu þættirnir eru annars vegar Landsvirkjun og hins vegar Íbúðalánasjóður. Ábyrgðir vegna þessara tveggja þátta nema samtals 1.255 milljörðum króna. Staða Landsvirkjunar er af þessum tveimur stofnunum umtals- vert sterkari en lánasjóðsins. Hagn- aður Landsvirkjunar á síðasta ári nam 24,7 milljörðum króna á núvirði og eiginfjárstaða fyrirtækisins er mjög sterk. Takist fyrirtækinu að endurfjármagna skuldir sínar í tæka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.