Morgunblaðið - 08.07.2010, Page 4

Morgunblaðið - 08.07.2010, Page 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2010 Stórleikur 11. umferðar úrvals- deildar karla í fótboltanum í kvöld er án efa viðureign ÍBV og Kefla- víkur. Liðin eru í 2. og 3. sæti deild- arinnar og mætast á Hásteinsvell- inum. Þetta eru tvö sterkustu varnarlið deildarinnar, ÍBV hefur aðeins fengið á sig átta mörk í sumar og Keflavík níu, og þar af fengu Kefl- víkingar á sig fjögur mörk í eina tapleiknum, gegn Stjörnunni. Þá eru Eyjamenn það lið sem oftast hefur skotið á mark mót- herjanna í sumar, 130 sinnum í 10 leikjum eða 13 sinnum að meðaltali í leik. Með leiknum í kvöld hefst óvenjuleg heimaleikjahrina ÍBV sem spilar nú fimm leiki í röð í deildinni á Há- steinsvelli. Það kemur til vegna þess að leikjum liðsins við Val var víxlað í vor þegar Hásteins- völlur var ekki leikfær vegna ösku úr Eyjafjallajökli. ÍBV leikur sem sagt við Keflavík í kvöld, síðan koma Fram og Valur í heimsókn til Eyja seinna í þessum mánuði, og svo FH og Haukar með þriggja daga millibili í fyrstu vik- unni í ágúst. Breiðablik, sem nú trónir á toppi deildarinnar í fyrsta sinn í 28 ár, tekur á móti Stjörnunni á Kópa- vogsvelli. Þar fara tvö af líflegustu liðum deildarinnar í ár og líkurnar á markalausu jafntefli verða að teljast með minnsta móti. FH og Fram eigast við í Kapla- krika en bæði lið þurfa á sigri að halda til að missa ekki efstu liðin of langt fram úr sér. Grindavík og Selfoss eigast við í fallslag í Grindavík en eitt stig skilur að liðin í 10. og 11. sætinu. Loks mætast Valur og Haukar á sameiginlegum heimavelli sínum á Hlíðarenda. Leik Fylkis og KR var frestað til 22. júlí þar sem bæði lið spila í Evrópudeild UEFA í kvöld. Stórleikur kvöldsins er í Eyjum Þessir eru með flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Leikmenn Steinþór F. Þorsteinsson, Stjörnunni . 11 Bjarni Guðjónsson, KR......................... 10 Albert Sævarsson, ÍBV........................... 9 Alfreð Finnbogason, Breiðabliki............ 9 Kristján Hauksson, Fram ...................... 9 Arnar Sveinn Geirsson, Val ................... 8 Daði Lárusson, Haukum......................... 8 James Hurst, ÍBV................................... 8 Andri Ólafsson, ÍBV ............................... 7 Daníel Laxdal, Stjörnunni...................... 7 Gilles Mbang Ondo, Grindavík............... 7 Hannes Þór Halldórsson, Fram............. 7 Ingvar Þór Kale, Breiðabliki ................. 7 Jón Guðni Fjóluson, Fram ..................... 7 Matthías Vilhjálmsson, FH .................... 7 Ólafur Páll Snorrason, FH..................... 7 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV................... 7 Albert B. Ingason, Fylki ........................ 6 Alen Sutej, Keflavík................................ 6 Baldvin Sturluson, Stjörnunni ............... 6 Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV .......... 6 Gunnleifur Gunnleifsson, FH................. 6 Haraldur F. Guðmundsson, Keflavík .... 6 Kristinn Jónsson, Breiðabliki ................ 6 Kristinn Steindórsson, Breiðabliki ........ 6 Arnar Gunnlaugsson, Haukum .............. 5 Atli Guðnason, FH .................................. 5 Baldur Sigurðsson, KR........................... 5 Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Keflavík .... 5 Finnur Ólafsson, ÍBV ............................. 5 Guðmundur R. Gunnarsson, KR............ 5 Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni ...... 5 Hjörtur Logi Valgarðsson, FH.............. 5 Ian Jeffs, Val ........................................... 5 Jóhann Ólafur Sigurðsson, Selfossi....... 5 Samuel Tillen, Fram ............................... 5 Sævar Þór Gíslason, Selfossi ................. 5 Lið ÍBV ......................................................... 59 Stjarnan.................................................. 54 Breiðablik............................................... 53 FH........................................................... 51 Fram....................................................... 48 Valur ....................................................... 47 KR........................................................... 46 Keflavík .................................................. 44 Fylkir...................................................... 37 Haukar ................................................... 37 Selfoss .................................................... 34 Grindavík................................................ 32 Einkunnagjöfin Gul Rauð Stig Breiðablik................................. 12 0 12 Keflavík .................................... 17 0 17 Haukar...................................... 24 0 24 Fram ......................................... 17 2 25 Valur ......................................... 28 0 28 KR............................................. 25 1 29 Grindavík.................................. 19 3 31 Selfoss....................................... 23 2 31 Stjarnan.................................... 27 1 31 Fylkir........................................ 22 3 34 FH............................................. 23 3 35 ÍBV............................................ 30 2 38  Gefið er eitt refsistig fyrir gult spjald og fjögur fyrir rautt spjald. Spjöldin II KR (6) ....................................... 10983 1831FH (4) ........................................ 6326 1582 Fylkir (4) .................................... 6027 1507 Breiðablik (5) ............................. 6825 1365 Keflavík (5) ................................ 6421 1284 Valur (6) ..................................... 6854 1142 Selfoss (6) .................................. 6501 1084 Haukar (5) ................................. 4881 976 ÍBV (3) ....................................... 2889 963 Fram (6) ..................................... 5690 948 Grindavík (4) ............................. 3632 908 Stjarnan (6) ............................... 5295 883 Samtals: 72.324. Meðaltal: 1.205.  Fjöldi heimaleikja í svigum. Fremri tal- an er heildarfjöldi áhorfenda á heima- leikjum viðkomandi liðs en aftari talan er meðaltal á hvern heimaleik. Aðsóknin Hér má sjá markskot liðanna, skot sem hitta á mark innan sviga og síðan mörk skoruð: ÍBV......................................... 130 (77) 16 Breiðablik .............................. 129 (78) 22 KR .......................................... 128 (69) 14 FH .......................................... 126 (72) 16 Valur....................................... 123 (71) 17 Keflavík.................................. 119 (65) 11 Stjarnan ................................. 116 (65) 20 Fram ...................................... 112 (63) 17 Fylkir ..................................... 102 (57) 18 Haukar..................................... 95 (55) 10 Grindavík ................................. 86 (50) 10 Selfoss ...................................... 81 (41) 12 Markskotin Albert B. Ingason, Fylki............................. 7 Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni .......... 6 Kristinn Steindórsson, Breiðabliki............ 6 Alfreð Finnbogason, Breiðabliki ............... 5 Danni König, Val ......................................... 5 Gilles Mbang Ondo, Grindavík................... 5 Ívar Björnsson, Fram................................. 5 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV ...................... 5 Atli Viðar Björnsson, FH ........................... 4 Björgólfur Takefusa, KR............................ 4 Jóhann Þórhallsson, Fylki.......................... 4 Denis Sytnik, ÍBV ....................................... 3 Guðmundur Pétursson, Breiðabliki........... 3 Hilmar Geir Eiðsson, Haukum .................. 3 Hjálmar Þórarinsson, Fram ...................... 3 Jón Guðbrandsson, Selfossi ....................... 3 Matthías Vilhjálmsson, FH........................ 3 Ólafur Páll Snorrason, FH ......................... 3 Steinþór F. Þorsteinsson, Stjörnunni ....... 3 Markahæstir VIÐTAL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Kristinn Steindórsson er einn af ungu leik- mönnunum í liði Breiðabliks sem hefur sprung- ið út í sumar. Þessi tvítugi snaggaralegi sókn- armaður hefur skorað sex mörk í 10 leikjum Blika í Pepsideildinni og átti stóran þátt í að skjóta Kópavogsliðinu á toppinn í fyrsta sinn í 28 ár þegar hann skoraði tvö mörk í 3:1-sigri á Selfyssingum í vikunni. „Það er gaman að vera á toppnum en við er- um komnir niður á jörðina og byrjaðir að búa okkur undir leikinn við Stjörnuna,“ sagði Krist- inn við Morgunblaðið en Blikarnir taka á móti grönnum sínum í Stjörnunni í kvöld. Erum í þessu til að vinna Nú þegar deildin er að verða hálfnuð og þið á toppnum er þá nokkuð annað í spilunum en að stefna á Íslandsmeistaratitilinn? „Ég sé ekkert annað í stöðunni. Við erum í þessu til að vinna og ég held að við séum alveg með lið til að gera góða hluti,“ sagði Kristinn en Kópavogsliðið hefur aldrei hampað Íslands- meistaratitlinum. Blikar unnu hins vegar sinn fyrsta stóra titil í fyrra þegar þeir lögðu Fram í bikarúrslitum. Kristinn hefur verið skæður í framlínu Breiðabliksliðsins. Hann er markahæsti leik- maður liðsins með sex mörk og hefur lagt nokkur upp fyrir félaga sína. „Ég er sáttur við mína frammistöðu og það er alltaf gaman að skora. Ég ætti þó að vera kominn með fleiri, en á meðan liðið vinnur leik- ina er ég ánægður,“ sagði Kristinn. Spurður hvort hann hafi sett sér markmið varðandi markaskorun í sumar sagði Kristinn: „Ég setti markmiðin niður á blað fyrir tímabilið en ég ætla halda þeim fyrir mig og síðan kemur í ljós eftir tímabil hvernig til hefur tekist. Ég stefni á að gera betur en í fyrra,“ sagði Kristinn, sem skoraði átta mörk í 22 leikjum Blika í deildinni í fyrra og lagði upp sjö mörk. Megum ekki slaka á Kristinn er uppalinn hjá Breiðabliki og hefur eins og margir samherjar hans verið sigursæll í yngri flokkunum. „Ég held að ég hafi unnið Ís- landsmeistaratitilinn í öllum yngri flokkunum frá því ég var polli. Við þekkjum því svo sem alveg hvernig er að vinna. Þótt við séum á toppnum í dag gerum við okkur grein fyrir því að það er mikið eftir af mótinu og við megum alls ekkert slaka á.“ Kristinn segist vera duglegur yfir vetrartímann að taka aukaæfingar og hann segir enga vafa á að þær hafi skilað sér. „Maður lyftir og hleypur aukalega og síðan hafa verið morgunæfingar hjá Óla þar sem áhersla hefur verið lögð á boltaæfingar. Yfir sumartímann tekur mað- ur ekki jafnmikið af aukaæfingum þar sem álagið er mikið en ég reyni þó oftast að gera eitthvað eftir æfing- arnar. Menn verða bara betri fyrir vikið.“ Í sömu sporum og pabbinn Síðast þegar Breiðablik var í toppbaráttu í efstu deild, tímabilið 1991, var Steindór nokkur Elíson í svipuðum sporum og Kristinn er í Blikaliðinu í dag en Steindór er faðir Kristins. Hann var mikill „refur“ í vítateig andstæðinganna og afar lunkinn markaskorari en Steindór varð markahæstur Blikanna sum- arið 1991 með níu mörk. En skyldi Kristinn þiggja einhver ráð frá karli föður sínum? „Jú, jú. Hann veit alveg hvað hann syngur og hefur hjálpað mér í gegnum tíðina. Það er alltaf gott að leita til hans og ég geri það þegar ég þarf. Hann var seigur að skora mörk og var víst ótrúlega oft réttur maður á réttum stað.“ Kristinn, sem hefur spilað með öllum yngri landsliðunum, hefur eins og fleiri ungir og efnilegir leikmenn farið út til reynslu hjá út- lendum félögum og í vetur var hann við æfing- ar hjá þýska liðinu Werder Bremen. Spurður hvort það blundi í honum að verða atvinnumað- ur í framtíðinni sagði Kristinn: „Að sjálfsögðu stefnir maður að því. Það er langtíma- draumurinn. Eins og staðan er í dag einbeiti ég mér hins vegar bara að Breiðabliki og reyni að gera eins vel og ég get. Svo lengi sem maður stendur sig þá er möguleiki fyrir hendi að kom- ast út. Draumurinn er líka að fá tækifæri með A-landsliðinu og ég væri ekki í þessu nema ætla að ná einhverjum árangri,“ sagði Kristinn, sem hefur spilað þrjá leiki með U21 árs liðinu og hefur í þeim skorað eitt mark. Kristinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi í vor en ætlar að taka sér hlé frá námi í vetur. Í sumar vinnur hann á Kópavogsvelli þar sem hann þekkir hverja þúfu. Aukaæfingarnar hafa skilað sér  Kristinn Steindórsson skaut Blikum á toppinn í fyrsta sinn í 28 ár  Pabbinn var markahæstur þegar Blikar voru í toppbaráttu 1991  Stefna óhikað að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sumar Morgunblaðið/Ómar Marksækinn Kristinn Steindórsson er í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar í sumar með sex mörk. Lið 10. umferðar í Pepsi-deild karla 5-4-1 Hannes Þór Halldórsson Fram James Hurst ÍBV Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV Kristján Ómar Björnsson Haukum Alen Sutej Keflavík Ólafur Páll Snorrason FH Bjarni Guðjónsson KR Albert Brynjar Ingason Fylki Kristinn Steindórsson Breiðabliki 2 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Kristinn Jónsson Breiðabliki Haukur Páll Sigurðsson Val 2 3 3 3 22 2 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.