Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 „Ég veit það ekki. Þetta gerðist bara ósjálfrátt. Þetta var á 94. mínútu eða eitthvað svoleiðis þannig að það var ekkert annað að gera en að láta vaða,“ sagði varnarmaðurinn efnilegi, Eið- ur Aron Sigurbjörnsson, um sigurmark sitt í uppbótartíma í gærkvöldi. Hann er á því að hann sé hinn fínasti sóknarmaður. „Ég er bara búinn að vera varnarmaður í tvö ár, var alltaf framherji og skoraði m.a. í úrslita- leik Shellmótsins á sínum tíma. Þannig að ég veit alveg hvar markið er. En ég skal viður- kenna það að þetta var flott mark, líklega mark sumarsins. Maður gerir ekki svona oft, kannski einu sinni á ári,“ sagði Eiður kokhraustur. En varstu sáttur við leikinn? „Nei, ég var það eiginlega ekki. Við byrj- uðum ágætlega og vorum betri í fyrri hálfleik en vorum farnir að detta fullmikið aftur á völl- inn – sem er kannski eðlilegt þegar menn eru yfir. En svo fengum við á okkur þetta jöfn- unarmark og þetta var bara erfitt eftir það. En ég fann það alltaf á mér að við myndum vinna og ekkert verra að ég skyldi skora sigur- markið,“ sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson. Gamli góði karakterinn „Þetta var gamli góði karakterinn,“ sagði Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmundsson. „Seinni hálfleikurinn var mjög erfiður, Keflvíkingar eru mjög agaðir og tókst ágætlega að drepa tempóið í leiknum. Við vor- um komnir niður á sama tempó og þeir en við töluðum um það í hálfleik að þetta væri þolinmæðisvinna. Við þurftum bara að bíða og bíða eftir markinu og biðum al- deilis eftir sigurmarkinu. En Eiður Aron er gamall sókn- armaður og hefur greinilega engu gleymt, þvílíkt sigur- mark. Þetta var toppslagur og við höfum oft spilað betur en í kvöld en hverjum er ekki sama þegar sigurinn er í höfn.“ „Ekkert að gera nema að láta vaða“ Eiður Aron Sigurbjörnsson „Leikurinn tap- ast og við áttum undir högg að sækja í fyrri hálf- leik en bættum okkar leik veru- lega í seinni hálf- leik og spiluðum mjög vel. Hér tókust bara á tvö jöfn lið og mér fannst eftir því sem leið á leikinn að við myndum taka þetta. En svo hefst þessi farsi undir lokin og ég held að það sé best að maður tjái sig ekkert um hann. Kannski best að láta fjölmiðla um það að fjalla um málið. Ég hef auðvitað fulla skoðun á málinu en tel best að tjá mig ekki um það,“ sagði Willum þjálfari Keflavíkur. En þér fannst hallað á þitt lið í dómgæslunni? „Af hverju ætti ég að tjá mig um það þegar þú veist hvernig mér líð- ur? Ég vil bara sjá hvað fjölmiðlar og eftirlitsmaður KSÍ segja um þennan farsa í lokin.“ Burt séð frá úrslitunum og fars- anum, varstu sáttur við leik þinna manna? „Hér var auðvitað mjög fjörugur fótboltaleikur. Þeir náðu að opna á okkur í fyrri hálfleik en við náðum að loka á það í seinni hálfleik. Við áttum nokkur fín færi í seinni hálf- leik til að klára þetta en svo skora Eyjamenn þetta frábæra mark. Góður sigur fyrir Eyjamenn en að sama skapi mjög súrt fyrir okkur. En nýting færanna hefur ekki verið nógu góð og það truflar okkur.“ „Þetta var farsakenndur lokakafli“ Willum Þór Þórsson Á VELLINUM Júlíus G. Ingason sport@mbl.is Varnarmaðurinn bráðefnilegi, Eiður Aron Sigurbjörnsson, tryggði í gær- kvöldi ÍBV sigur á Keflvíkingum með sannkölluðu draumamarki og það þegar tæpar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leik- tíma. Fram að því hafði leikurinn verið jafn og ef eitthvað var, voru Keflvíkingar sterkari í síðari hálf- leik. En það er ekki spurt að því í leikslok. Eyjamenn unnu 2:1 og halda í við topplið Breiðablik á með- an Keflvíkingar fjarlægjast toppinn. Það var mikil eftirvænting fyrir leik ÍBV og Keflvíkinga í gærkvöldi, enda áttust þar við liðin sem sitja í 2. og 3. sæti deildarinnar og fyrir leik- inn munaði aðeins einu stigi á lið- unum. Bæði lið höfðu fengið á sig fá mörk í sumar, Keflvíkingar höfðu fyrir leikinn fengið á sig níu mörk í tíu leikjum en ÍBV aðeins átta. Það var því búist við leik hinna sterku varna og á margan hátt varð raunin sú. Keflvíkingar ætluðu sér greini- lega að spila fast gegn léttleikandi liði Eyjamanna og gerðu það svo sannarlega. Fyrsta hálftímann voru leikmenn Keflavíkur iðnir við að brjóta á leikmönnum ÍBV, yfirleitt ekki illa en nóg til að stöðva leik þeirra. Áætlunin gekk þó ekki full- komlega upp því Eyjamenn voru sterkari í fyrri hálfleik. En í síðari hálfleik gekk taktíkin upp. Keflvík- ingum tókst að hægja mjög á spili Eyjamanna, sem virtust ráðalausir á tímabili á meðan Keflvíkingar voru mun ákveðnari, bæði í vörn og sókn. En ef einhver átti von á dramatík í toppslagnum, þá fékk hinn sami dramatík fyrir allan peninginn. Und- ir lok leiksins virtust hreinlega allar flóðgáttir opnast, Keflvíkingar skutu í stöng, Eyjamenn í slá, rautt spjald fór á loft, eitt glæsilegasta mark sumarsins leit dagsins ljós og allt þetta á aðeins nokkrum mínútum. Leikurinn leystist nánast upp á lokakaflanum en undirritaður treystir sér ekki til að dæma um hvort seinna gula spjaldið sem Guð- jón Á. Antoníusson fékk í blálokin hafi verið verðskuldað. Atvikið átti sér stað hinum megin á vellinum og erfitt að sjá hvað gerðist en Keflvík- ingar voru vægast sagt mjög ósáttir og lá við að upp úr syði í uppbót- artímanum. En ellefu Keflvíkingar hefðu ekki getað komið í veg fyrir mark Eiðs Arons, slíkt var skotið að undirritaður hefur sjaldan séð annað eins og Eyjamenn hreinlega ærðust í fagnaðarlátunum. Keflvíkingar virtust hins vegar frá upphafi hafa allt á hornum sér, mót- mæltu dómgæslu nánast frá fyrstu mínútu og meira að segja þegar Willum Þór, þjálfari þeirra, þurfti einu sinni sem oftar að fara í vesti utan yfir æfingagallann, þá voru þeir ósáttir. Keflvíkingar eru með það gott lið að þeir þurfa ekki að vera að kvarta yfir dómgæslu. Auðvitað komu upp atvik þar sem þeir höfðu fulla ástæðu til að mótmæla. En það höfðu Eyjamenn líka. Þeir létu hins vegar slík atvik ekki trufla sig á meðan Keflvíkingum óx aðeins ás- megin í mótmælunum. Þar lá mun- urinn fyrst og fremst í gær, í hug- arfarinu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Barátta Þórarinn Ingi Valdimarsson Eyjamaður og Guðjón Árni Antoníusson Keflvíkingur í kröppum dansi á Hásteinsvellinum í gærkvöld. Drama og umdeild atvik  Stórkostlegt sigurmark Eiðs Arons í uppbótartíma tryggði ÍBV 2:1 sigur á Keflavík í Eyjum  ÍBV heldur í við Breiðablik á toppnum í deildinni Hásteinsvöllur, Vestmannaeyjum, Pepsi-deild karla, 11. umferð, fimmtudag 8. júlí 2010. Skilyrði: Sól og blíða, hiti um 16 gráður og hægur andvari. Hásteins- völlur fallegur á að líta. Skot: ÍBV 11 (6) – Keflavík 9 (5). Horn: ÍBV 5 – Keflavík 6. Lið ÍBV: (4-3-3) Mark: Albert Sæv- arsson. Vörn: James Hurst, Eiður Ar- on Sigurbjörnsson, Rasmus Christi- ansen, Matt Garner. Miðja: Tommy Mawejje, Finnur Ólafsson (Danien J. Warlem 88.), Þórarinn Ingi Valdi- marsson. Sókn: Denis Sytnik (Eyþór H. Birgisson 63.), Andri Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson (Yngvi M. Borgþórsson 90.) Lið Keflavíkur: (4-5-1) Mark: Ómar Jóhannsson. Vörn: Guðjón Á. Anton- íusson, Haraldur F. Guðmundsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Alen Su- tej. Miðja: Einar O. Einarsson, Hólm- ar Örn Rúnarsson, Paul McShane (Hörður Sveinsson 73.), Guðmundur Steinarsson, Magnús S. Þor- steinsson. Sókn: Magnús Þ. Matt- híasson (Brynjar Guðmundsson 90.) Dómari: Gunnar Jarl Jónsson – 3. Áhorfendur: 846. ÍBV – Keflavík 2:11:0 32. Tryggvi Guðmundssontók hornspyrnu, sendi á nærstöng þar sem Andri Ólafsson reis hæst og skallaði upp í sam- skeytin nær. 1:1 45. Keflvíkingar fengu inn-kast við vítateigshorn Eyja- manna, boltinn barst á markteigs- hornið þar sem Magnús Þór Matthíasson vippaði boltanum aftur fyrir sig, yfir Albert Sævarsson og inn við fjærstöng. 2:1 90. Boltinn barst út fyrirvítateiginn eftir þunga sókn Eyjamanna og miðvörðurinn ungi Eiður Aron Sigurbjörnsson tók boltann á lofti utan vítateigs og negldi honum í netið. Klárlega lík- legt sem mark sumarsins. I Gul spjöld:Einar Orri (Keflavík) 6. (brot), Liðsstjórn (Keflavík) 33. (mótmæli), Magnús Þórir (Kefla- vík) 56. (truflaði útspark), Guðjón (Keflavík) 62. (brot), Andri (ÍBV) 70. (brot), Hólmar (Keflavík) 70. (brot), Sutej (Keflavík) 75. (brot), Magnús Sverrir (Keflavík) 90. (leik- araskapur). I Rauð spjöld: Guðjón (Keflavík) 90. (hrinding). MMM Enginn. MM Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) M Matt Garner (ÍBV) Rasmus Christiansen (ÍBV) Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) Andri Ólafsson (ÍBV) Denis Sytnik (ÍBV) Haraldur F. Guðmundss. (Keflavík) Magnús Þ. Matthíasson (Keflavík) Bjarni Hólm Aðalsteinss. (Keflavík) Hólmar Örn Rúnarsson (Keflavík)  Eyjamenn tefldu fram nýjum leikmanni, Danien Justin Warlem sem kemur frá Suður-Afríku. War- len hefur verið til reynslu hjá ÍBV í nokkrar vikur og kom inn á undir lok leiksins. Þetta gerðist á Hásteinsvelli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.