Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Á VELLINUM
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Segja má að leikurinn við Stjörnuna
á Kópavogsvelli í gærkvöld hafi ver-
ið ákveðin prófraun fyrir Blika. Í
síðustu umferð náðu þeir toppsæt-
inu í fyrsta skipti í nærri þrjá ára-
tugi, og fyrir leikinn í gær var
áhugavert að sjá hvort hið unga lið
úr Kópavogi næði að halda þeim
góða dampi sem það hefur haft í
sumar. Það tókst leikmönnum
Breiðabliks svo sannarlega. Leikur
liðsins í gær einkenndist af miklu
sjálfstrausti frá fyrstu mínútu til
hinnar síðustu. Elsti maður byrj-
unarliðsins í gær er fæddur árið
1982, en langflestir leikmanna eru
fæddir í kringum byrjun tíunda ára-
tugar síðustu aldar.
Kristinn Steindórsson sem hefur
verið sterkur fyrir Breiðablik í sum-
ar náði sér ekki almennilega á strik í
gær og var skipt út af um miðjan
fyrri hálfleik. Það virtist ekki hafa
nein áhrif á Blikana, því í staðinn
mætti Alfreð nokkur Finnbogason
og átti mjög góða frammistöðu.
Skoraði þrjú fyrstu mörkin og lagði
það fjórða upp.
Blikar eru markaskoraraliðið í
deildinni, en þeir hafa nú skorað 26
mörk í fyrstu 11 leikjunum. Talna-
glöggir sjá að það eru tæp 2,4 mörk
í leik, sem verður að teljast meira en
ásættanlegt. Breiðablik ber að taka
alvarlega sem meistaraefni í ár. Þó
eru knattspyrnuáhugamenn eflaust
minnugir frammistöðu Þróttar í
efstu deild fyrir fáum árum, en þá
voru þeir í toppbaráttu þegar Ís-
landsmótið var hálfnað, en féllu síð-
an í fyrstu deild þegar mótinu lauk
að hausti. Það er þó líklega ekki
nokkur ástæða til að óttast sam-
bærileg örlög Breiðabliksliðsins í ár.
Gengi Stjörnunnar hefur verið
nokkuð sveiflukennt það sem af er
sumri. Liðið hefur unnið stóra sigra
og að sama skapi tapað stórt, líkt og
í gær. Annað verður þó ekki sagt um
Stjörnuna en að það sé skemmtilegt
lið – fyrir umferðina í gær höfðu
þeir skorað næstflest mörk á eftir
Breiðabliki, þannig að fyrirfram
bjuggust margir allt eins og við að
Garðbæingarnir myndu skora fleiri
en eitt mark á Blikana. Þeim varð
þó ekki kápan úr því klæðinu. Það
verður skemmtilegt að fylgjast með
Stjörnunni áfram í sumar, hingað til
hefur verið hægt að treysta því að
sjá mörk í leikjum þess liðs, á öðrum
hvorum vallarhelmingi.
Við þessu má bæta að Blikar
bjóða fjölmiðlamönnum upp á ljúf-
fengar veitingar, en slíkt er yfirleitt
merki um mikla fagmennsku og
metnað íþróttafélaga til að standa
vel að málum. Í gær var boðið upp á
vínarbrauð, smurð rúnnstykki og
appelsínusafa, en þetta rann allt
saman ljúflega niður.
Morgunblaðið/Eggert
Skilinn eftir Guðmundur Kristjánsson miðjumaður Blika geysist áfram en Stjörnumaðurinn Dennis Danry liggur eftir í grasinu á Kópavogsvelli.
Stemningin er í Kópavogi
Blikar héldu toppsætinu með sannfærandi sigri á Stjörnunni Alfreð Finn-
bogason orðinn markahæstur með 8 mörk Sveiflukennt gengi Stjörnunnar
Kópavogsvöllur, Pepsi-deild karla, 11.
umferð, fimmtudag 8. júlí 2010.
Skilyrði: Hægviðri. Sólskin og ágæt-
lega hlýtt. Kjöraðstæður.
Skot: Breið. 18 (12) – Stjarn. 6 (3).
Horn: Breiðablik 7 – Stjarnan 2.
Lið Breiðabliks: (4-4-2) Mark: Ingv-
ar Þór Kale. Vörn: Arnór Aðal-
steinsson, Finnur Orri Margeirsson,
Kári Ársælsson, Kristinn Jónsson.
Miðja: Guðmundur Kristjánsson, Al-
freð Finnbogason, Jökull I. Elísabet-
arson, Olgeir Sigurgeirsson (Árni
Kristinn Gunnarsson 78.). Sókn:
Kristinn Steindórsson (Andri Rafn
Yeoman 68.), Guðmundur Pétursson
(Haukur Baldvinsson 82.).
Lið Stjörnunnar: (4-4-2) Mark:
Bjarni Þórður Halldórsson. Vörn:
Bjarki Páll Eysteinsson, Daníel Lax-
dal, Tryggvi S. Bjarnason, Jóhann
Laxdal. Miðja: Dennis Danry (Björn
Pálsson 66.), Atli Jóhannsson (Arnar
M. Björgvinsson 78.), Steinþór Freyr
Þorsteinsson, Halldór Orri Björns-
son. Sókn: Þorvaldur Árnason, Ellert
Hreinsson (Hilmar Þór Hilmarsson
37.)
Dómari: Kristinn Jakobsson – 4.
Áhorfendur: 1.230.
Breiðablik – Stjarnan 4:0
Alfreð Finnbogason var óneitanlega maður
leiksins í gær, en hann skoraði þrennu og lagði
síðan upp síðasta markið fyrir Hauk Baldvins-
son. „Það er ekkert annað hægt en að vera
hæstánægður eftir svona leik. Það gekk allt
upp hjá okkur og við vorum með yfirburði frá
fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Þegar við
komum út í seinni hálfleik héldum við bara
áfram að keyra á þá, því við vissum að markið
eða mörkin myndu koma að lokum. Síðan kom
eitt núll, síðan tvö, þrjú og fjögur,“ segir Al-
freð. Þegar um það bil 15 mínútur voru liðnar
af leiknum átti Alfreð laglegt skot utan af velli
í þverslána sem virtist enda í markinu, en bolt-
inn skoppaði aftur út og Kristinn Jakobsson
dæmdi ekki mark. Alfreð er þó hinn rólegasti
yfir því: „Ég sá allan tímann að hann var inni,
en það er auðvitað erfitt fyrir línuvörðinn að
sjá þetta þar sem hann þarf að halda línu við
vörnina,“ segir Alfreð, sem
tók þó skýrt fram í samtali
við Morgunblaðið í gær að
hann styddi heilshugar að
nýta sér marklínutækni til
að skera úr um vafaatriði
líkt og í gær.
Eftir leikina í gær er Al-
freð orðinn markahæstur í
efstu deild í ár með átta
mörk. Inntur eftir því hvort
markakóngstitillinn sé orð-
ið persónulegt markmið svaraði hann þessu til:
„Það er náttúrlega bara gamla klisjan, á með-
an liðið vinnur er ég sáttur. En ég er auðvitað
með persónuleg markmið eins og liðsmarkmið.
En í kvöld sendum við skýr skilaboð til hinna
liðanna í deildinni um að okkur er alvara og við
höfum hvergi nærri lokið okkur af.“ thg@mbl.is
„Yfirburðir frá fyrstu mínútu“
Alfreð
Finnbogason
Bjarki Páll Eysteinsson, leikmaður Stjörn-
unnar, var allt annað en kátur eftir tap
sinna manna. „Það er náttúrlega alltaf
erfitt að spila á útivelli þegar andstæðing-
urinn fær tvö mörk í forgjöf. Mér fannst
þeir skora fullmikið af mörkum. Bjarki
segist vera þeirrar skoðunar að fyrra víti
Blika hafi verið verðskuldað, en hann er
ekki sömu skoðunar um seinna markið:
„Mér fannst seinna vítið vera dýfa,“ segir
hann.
„Í fyrri hálfleik tókst það sem við ætl-
uðum okkar að gera. Við ætluðum að loka
á bakverðina þeirra svo þeir kæmust ekki
upp, það gekk upp fyrstu 45 mínúturnar.
Mér fannst við alveg vera inni í leiknum
þar til fyrra vítið kom, höfðum fengið
mjög fín færi. Vendipunktar leiksins voru
auðvitað þessi tvö víti sem þeir fengu á
stuttum kafla. Það er
erfitt að spila á Kópa-
vogsvelli tveimur mörk-
um undir, Blikarnir eru
mjög góðir í því að halda
boltanum.“
Þegar leið á fyrri hálf-
leikinn færðu Stjörnu-
menn lið sitt ofar á völl-
inn og reyndu að blása
til sóknar. Bjarki segir
það hafa komið beint í
hausinn á þeim: „Svo fengum við á okkur
þriðja markið þegar við reyndum að
sækja, þá opnaðist allt hjá okkur baka til.
Við náðum ekki að setja boltann inn hjá
þeim, stundum gerast hlutirnir þannig,“
sagði Bjarki Páll Eysteinsson.
thg@mbl.is
„Fannst seinna vítið vera dýfa“
Bjarki Páll
Eysteinsson
1:0 47. Strax í upphafi síðarihálfleiks felldi Dennis
Danry Alfreð Finnbogason í teign-
um, sem tók sjálfur vítið og skor-
aði.
2:0 55. Skömmu síðar brautDennis Danry aftur á Al-
freð Finnbogasyni inni í teig, sem
tók vítið aftur sjálfur og nýtti það
til hins ýtrasta.
3:0 76. Boltinn barst upphægra megin á Alfreð
Finnbogason sem lék á aftasta
varnarmann og kláraði færið glæsi-
lega framhjá Bjarna Þórði í mark-
inu. Þrennan fullkomnuð og nóg
eftir af leiknum.
4:0 83. Enn og aftur var Al-freð Finnbogason að gera
sig gildandi í sóknarleik Blika.
Kom hratt upp hægri kantinn og
sendi flotta sendingu inn í teig, sem
Haukur Baldvinsson var ekki í
miklum vandræðum með að klára á
tómt markið. Fyrsta snerting
Hauks í leiknum sem hafði komið
inn á örfáum mínútum fyrr.
I Gul spjöld:Daníel (Stjörnunni) 37.
(brot), Danry (Stjörnunni) 54.
(brot), Guðmundur (Breiðabliki) 58.
(brot), Jökull (Breiðabliki) 63.
(brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Alfreð Finnbogason (Breiðabliki).
M
Kristinn Jónsson (Breiðablik)
Kári Ársælsson (Breiðablik)
Guðmundur Kristjánss. (Breiðab.)
Steinþór F. Þorsteinsson (Stjörn.)
Halldór Orri Björnsson (Stjörn.).
Alfreð Finnbogason er með
þrennunni orðinn fjórði marka-
hæsti leikmaður Breiðabliks í efstu
deild frá upphafi með 22 mörk.
Fyrir ofan hann eru Sigurður
Grétarsson með 31 mark, Marel
Baldvinsson og Þór Hreiðarsson
með 23 mörk hvor.
Alfreð Finnbogason hefði mögu-
lega átt að fá mark skráð á sig á 15.
mínútu þegar hann tók skot utan af
velli sem hafnaði í þverslánni og
boltinn skoppaði niður og út úr
markinu. Öllum nema Kristni Jak-
obssyni dómara sýndist boltinn
fara inn. Minnti óneitanlega á
draugamark Franks Lampards á
móti Þjóðverjum í 16-liða úrslitum
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu ekki alls fyrir löngu.
Kári Ársælsson og Ellert
Hreinsson lentu í harkalegu sam-
stuði í fyrri hálfleik þegar höfuð
þeirra skullu saman. Reglum sam-
kvæmt fóru þeir báðir af velli til að
fá aðhlynningu. Kári sneri fljótlega
aftur inn á, en Ellert þurfti hins
vegar að fá skiptingu og virtist hafa
komið öllu verr út úr viðskiptunum.
Morgunblaðið gefur leikmönnum
einkunn fyrir frammistöðu sína.
Eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir
mjög góðan leik og þrjú M fyrir
frábæran leik.
Þetta gerðist á
Kópavogsvelli