Morgunblaðið - 09.07.2010, Síða 5
Gestirnir náðu hinsvegar að jafna
metin á 41. mínútu. Þá skoraði Júrí
Ostroukh beint úr aukaspyrnu sem
dæmd var hæpnum forsendum rétt ut-
an vítateigs Fylkis. Ostroukh skaut
hnitmiðuðu skoti ofarlega í markhorn-
ið.
Á fyrstu 20 mínútum síðari hálfleiks
freistuðu Fylkismenn þess að bæta við
marki. Þegar það tókst ekki þrátt fyr-
ir nokkrar vænlegar sóknir kallaði
Ólafur Þórðarson, þjálfari, Kjartan
Ágúst Breiðdal og Albert Brynjar
Ingason af leikvelli þegar 20 mínútur
voru til leiksloka.
Eftir skiptingarnar héldu Fylkis-
menn um stund áfram að sækja. Síð-
ustu tíu mínúturnar virtist leikurinn
vera að fjara smátt og smátt út. Þá lá-
deyðu nýttu leikmenn FC Torpedo til
þess að tryggja sér sigurinn. Fyrst
braut Andri Hermannsson klaufalega
af sér og vítaspyrna var dæmd. Úr
henni skoraði Igor Krivobok af öryggi.
Hann fylgdi markinu eftir með öðru
marki með langskoti á 88. mínútu.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Fylkis í baráttu við tvo leikmenn Torpedo.
það lögðum við áherslu á að halda
vörninni. Það tókst vel, Lars varði
markið með miklum sóma og við feng-
um sjálfir nokkur færi til að skora,“
sagði Logi.
Hann kvaðst ekkert hafa velt næstu
mótherjum fyrir sér. „Nei, við
ákváðum að láta það alveg eiga sig
fyrr en þetta væri í höfn. Það er ljóst
að við mætum sterku liði, en þannig
var þetta líka hjá okkur í 2. umferð-
inni í fyrra og þá fórum við áfram.
Það er í það minnsta ekkert tapað fyr-
irfram í þessu,“ sagði Logi Ólafsson.
Ljósmynd/Russell Pritchard/Presseye
ann Glentoran, í leiknum í Belfast í gærkvöld.
tök á þessu
ni færri í 35 mínútur gerði KR 2:2 jafntefli
Úkraínu í 2. umferð Evrópudeildar UEFA
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Formlega hef-ur verið
gengið frá því að
Geir Sveinsson,
fyrrverandi
landsliðsfyrirliði
Íslands í hand-
knattleik, þjálfi 1.
deildarlið karla
hjá Gróttu á kom-
andi keppnistímabili. Geir tók við
liðinu af Halldóri Ingólfssyni seint á
síðasta vetri en það féll úr úrvals-
deildinni í vor eftir eins árs dvöl þar.
Konrad Tota, Kanadamaður meðpólskt vegabréf, hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Þórs í
körfuknattleik fyrir næsta tímabil
og hann mun jafnframt spila með lið-
inu. Þórsarar þekkja vel til Tota því
hann lék með þeim í úrvalsdeildinni
seinni hluta tímabilsins 2008-09, og
síðasta vetur var hann andstæðingur
þeirra sem spilandi þjálfari Skalla-
gríms úr Borgarnesi.
Miroslav Klose framherji Þjóð-verja á það á hættu að missa
af leik sinna manna gegn Úrú-
gvæjum en þjóðirnar eigast við í leik
um þriðja sætið á HM annað kvöld.
Meiðsli í baki eru að angra Klose.
Hann á möguleika á að slá marka-
met Brasilíumannsins Ronaldos í úr-
slitakeppni HM. Ronaldo skoraði 15
mörk en Klose, sem hefur skorað
fjögur mörk í Suður-Afríku, hefur
skorað 14 mörk, jafnmörg og goð-
sögnin Gerd Müller.
Englendingurinn Howard Webbmun dæma úrslitaleikinn á
milli Spánverja og Hollendinga á
heimsmeistaramótinu í knattspyrnu
sem fram fer á Soccer City-vellinum
í Jóhannesarborg á sunnudaginn.
Englendingur hefur ekki dæmt úr-
slitaleik á HM síðan 1974.
Fólk sport@mbl.is
The Oval, Belfast, forkeppni Evrópu-
deildar UEFA, 1. umferð, síðari leikur,
fimmtudag 8. júlí 2010.
Skot: Glentoran 12 (7) – KR 9 (7).
Horn: Glentoran 8 – KR 5.
Lið Glentoran: Elliott Morris – Colin
Nixon, Johnny Black, Richard Clarke,
Sean Ward, Andrew Waterworth, Gary
Hamilton, Neal Gawley, James Callacher
(Daryl Fordyce 75.), Jamie McGovern,
Grant Gardiner (Ciaran Martyn 56.)
Lið KR: (4-5-1) Mark: Lars Ivar Mold-
skred. Vörn: Skúli Jón Friðgeirsson,
Grétar S. Sigurðarson, Mark Rutgers,
Guðmundur R. Gunnarsson (Gunnar Örn
Jónsson 79.) Miðja: Kjartan H. Finn-
bogason, Baldur Sigurðsson, Viktor
Bjarki Arnarsson (Eggert Rafn Einarsson
56.), Bjarni Guðjónsson, Óskar Örn
Hauksson. Sókn: Björgólfur Takefusa
(Jordao Diogo 66.)
Dómari: Marios Panayi – Kýpur.
Glentoran – KR 2:2
Á VELLINUM
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Þórsarar ráða ríkjum á Akureyri
eftir sigur á KA, 2:0, í hörkuleik ná-
grannaliðanna í 1. deildinni í knatt-
spyrnu á Akureyrarvellinum í gær-
kvöld.
Þór lyfti sér upp í 3. sætið með
þessum sigri en KA er hættulega ná-
lægt botninum, situr eftir í þriðja
neðsta sætinu.
Leikurinn varð aldrei sú skemmt-
un sem menn vonuðust eftir, barátta
í fyrirrúmi og mjög lítið að gerast
lengstum. KA byrjaði leikinn ágæt-
lega en Þór var svo sterkara liðið
síðasta klukkutímann. Jóhann Helgi
Hannesson skoraði bæði mörk leiks-
ins á sjö mínútna kafla í seinni hálf-
leiknum. Það fyrra fékk hann að láni
hjá Carles Puyol en seinna markið
skoraði hann með hnitmiðuðu skoti
sem fór í stöng og inn.
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs,
naut þess eftir leik að hlusta á
kampakáta Mjölnismenn kyrja sig-
ursöngva. Mjölnismenn voru afar líf-
legir fyrir leik og meðan á honum
stóð og segja má að Þór hafi sigrað í
stúkunni líka þar sem Vinir Sagga
voru ekki alveg jafn hressir.
Hjartað er að springa
Páll var stoltur með feng dagsins.
„Hjartað er að springa. Ég hafði
bara áhyggjur af því í dag en engar
áhyggjur af fótboltanum. Við vorum
búnir að kortleggja þá og vissum
hvar við þyrftum að mæta þeim.
Þessir gaurar í liðinu sem hafa lengi
verið kallaðir stráklingar eru bara
orðnir fullvaxta og jafnvel sumir
komnir með bringuhár. Nú eru þrír
leikir framundan næstu vikuna, á
laugardag, miðvikudag og sunnudag
og við getum bara fagnað í kvöld og
förum svo að hugsa um næsta leik.
Við erum við toppinn og nálgumst
markmið okkar. Það er bara að
halda áfram á þessari braut,“ sagði
Páll að lokum.
Ólíkt hlutskipti liðanna
Hlutskipti Akureyrarliðanna er
nú ansi ólíkt en miðað við þennan
leik kemur staða liðanna ekki á
óvart. Þórsarar voru töluvert beitt-
ari í leiknum, sköpuðu slatta af fær-
um á meðan KA-liðið fékk kannski
eitt hálffæri allan leikinn. Óánægju-
raddir meðal stuðningsmanna KA
verða æ háværari og þeir sex „út-
lendingar“ sem byrjuðu leikinn eru
ekki allir jafn vinsælir. Sóknarleikur
liðsins hefur stundum verið góður og
stundum slakur í sumar en í þessum
leik var hann vart sjáanlegur.
Þór hinsvegar hefur mann í sínum
röðum sem skilar alltaf mörkum. Sá
maður afgreiddi nágranna sína í
þessum leik og virðist gulls ígildi.
Var hann hylltur með söng löngu
eftir leik. „Jóhann Helgi skorar allt-
af mörk, skorar alltaf mörk, skorar
alltaf mörk,“ en pilturinn hefur nú
skorað sex mörk fyrir Þórsara í 1.
deildinni í sumar.
„Strákarnir
komnir með
bringuhár“
Þórsarar drottna á Akureyri eftir 2:0
sigur á KA Jóhann Helgi með bæði
mörkin Komnir í þriðja sætið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sönn gleði! Jóhann Helgi Hannesson fagnar seinna marki sínu gegn KA í
gærkvöldi ásamt Gísla Páli Helgasyni. Í baksýn er Sveinn Elías Jónsson.
KNATTSPYRNA
Evrópudeild UEFA
Forkeppni, 1. umferð, seinni leikir:
Fylkir – Torpedo Zhodino...................... 1:3
Pape Mamadou Faye 32. (víti) – Ígor
Krivobok 85. (víti), 88., Júrí Ostroukh 41.
Torpedo áfram, 6:1 samanlagt, og mætir
OFK Belgrad frá Serbíu.
Glentoran – KR ........................................ 2:2
Jimmy Callacher 22., Gary Hamilton 55.
(víti) – Kjartan H. Finnbogason 44.,
Johnny Black 54. (sjálfsm.) Rautt spjald:
Skúli Jón Friðgeirsson (KR) 55.
KR áfram, 5:2 samanlagt, og mætir Kar-
paty Lviv frá Úkraínu.
Önnur helstu úrslit:
Dudelange (Lúx) – Randers (Dan) ......... 2:1
Randers áfram, 7:3 samanlagt, og mætir
Gorica frá Slóveníu.
Gefle (Sví) – NSÍ Runavík (Fær)............ 2:1
Gefle áfram, 4:1 samanlagt, og mætir Di-
namo Tbilisi frá Georgíu.
Port Talbot (Wal) – TPS (Finn) .............. 0:4
TPS áfram, 7:1 samanlagt, og mætir
Cercle Brugge frá Belgíu.
Dundalk (Írl) – Grevenmacher (Lúx)..... 2:1
Dundalk áfram, 5:4 samanlagt, og mætir
Levski frá Búlgaríu.
EB/Streymur (Fær) – Kalmar (Sví)....... 0:3
Kalmar áfram, 4:0 samanlagt, og mætir
Dacia frá Moldóvu.
HANDKNATTLEIKUR
Opið Evrópumót U18 kvenna
Leikið í Gautaborg:
Ísland – Finnland ................................. 23:30
Ísland – Slóvakía .................................. 22:23
í kvöld
KNATTSPYRNA
VISA-bikar kvenna, 8-liða úrslit:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Haukar................. 16
Fylkisvöllur: Fylkir – Valur ................ 19.15
Kaplakriki: FH – Þór/KA .................... 19.15
Stjörnuvöllur: Stjarnan – Grindavík .. 19.15
1. deild karla:
Akranesvöllur: ÍA – ÍR ............................. 20
Valbjarnarvöllur: Þróttur R. – Grótta..... 20
Njarðtaksvöllur: Njarðvík – Fjölnir........ 20
2. deild karla:
Hveragerði: Hamar – KS/Leiftur............ 20
3. deild karla:
Hrafnagilsvöllur: Samherjar – Huginn... 19
Fáskrúðsfjörður: Leiknir F. – Draupnir 20
1. deild kvenna:
Sparisjóðsv.: Keflavík – Tind/Neisti........ 20
Norðfjarðarv: Fjarð/Leikn. – Selfoss...... 20