Morgunblaðið - 30.07.2010, Side 1
KR er eina liðið í úrvalsdeild karla í körfu-
knattleik sem á eftir að ráða þjálfara fyrir
næstu leiktíð. Morgunblaðið sló á þráðinn til
Böðvars Guðjónssonar formanns körfuknatt-
leiksdeildar KR í gær sem var bjartsýnn á
að KR-ingar myndu ganga frá ráðningu nýs
þjálfara á næstunni. „Þetta er búið að vera í
farvegi í allt sumar. Victor Finora sem var
með yngri flokkana hjá okkur í fyrra ætlaði
að koma og taka við meistaraflokknum.
Hann dró okkur allt of lengi á svari og svo
kom í ljós að hann gat ekki tekið þetta að
sér,“ sagði Böðvar við Morgunblaðið. Eig-
inkona hans, Jenny Pheiffer-Finora fékk
þjálfarastöðu erlendis og það spilaði sjálf-
sagt inn í ákvörðunina hjá Finora.
„Það gekk því miður ekki upp eins og gef-
ur að skilja og við þurftum þá að byrja aftur
á byrjunarreit,“ sagði Böðvar ennfremur og
vildi ekki láta neitt hafa eftir sér um þær
viðræður sem væru í gangi en ítrekaði að
KR-ingar reiknuðu með að ráða þjálfara á
næstunni.
Páll Kolbeinsson þjálfaði KR á síðustu
leiktíð en hafði aldrei hugsað sér að þjálfa
liðið lengur en í eitt ár. Fjögur önnur félög
skipta um þjálfara. Helgi Jónas Guðfinnsson
tekur við Grindavík af Friðriki Ragnarssyni.
Borce Ilievski tekur við Tindastóli af Karli
Jónssyni, Tómas Holton tekur við Fjölni af
Bárði Eyþórssyni og Bob Jerome Aldridge
tekur við KFÍ af Borce Ilievski. Önnur félög
verða áfram með sömu þjálfara. Þeir eru eft-
irtaldir:
Snæfell: Ingi Þór Steinþórsson
Keflavík: Guðjón Skúlason
Stjarnan: Teitur Örlygsson
Njarðvík: Sigurður Ingimundarson
ÍR: Gunnar Sverrisson
Hamar: Ágúst Björgvinsson
Haukar: Pétur Ingvarsson
kris@mbl.is
KR er eina félagið sem á eftir að ráða þjálfara
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, vonar að málin skýrist um helgina
Morgunblaðið/Kristinn
Hættur Páll Kolbeinsson stjórnaði KR á síð-
ustu leiktíð. Liðið leitar að eftirmanni hans.
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
íþróttir
EM í frjálsum Þrír Íslendingar keppa á EM í frjálsíþróttum í Barcelona í dag. Helga Margrét
Þorsteinsdóttir hefur keppni í sjöþraut. Óðinn kastar kúlu og Þorsteinn keppir í langstökki. 2
Íþróttir
mbl.is
Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni er á
meðal tíu bestu spjótkastara í Evr-
ópu en hún hafnaði í 10. sæti á Evr-
ópumeistaramótinu í Barcelona í
gærkvöldi. Spjótið flaug þó ekki eins
langt hjá Ásdísi á Ólympíuleikvang-
inum eins og það hefur gert á Dem-
antamótum undanfarið. Ásdís kast-
aði lengst 54,32 metra en hefur
kastað í kringum 60 metrana á síð-
ustu tveimur demantamótum. Ís-
landsmet hennar frá því í fyrra er
61,32 metrar. Kastið er hins vegar
álíka langt og það kast sem kom
henni upp úr undankeppninni og í úr-
slitin á dögunum.
12 keppendur unnu sér sæti í úr-
slitunum og stóð Linda Stahl frá
Þýskalandi uppi sem sigurvegari.
Hún náði sínum besta árangri í gær-
kvöldi og grýtti spjótinu 66,81 metra.
Landa hennar Christina Öbergföll
varð önnur með 65,58 metra og
heimsmethafinn Barbora Spotákova
frá Tékklandi varð þriðja.
„Hún átti að kasta lengra“
„Ég er ekki ánægður. Hún átti að
kasta lengra að okkur báðum
fannst,“ sagði Stefán Jóhannsson
þjálfari Ásdísar þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gærkvöldi. Þó
Stefán hafi ekki verið ánægður með
frammistöðuna í úrslitunum var hann
á hinn bóginn bærilega sáttur við 10.
sætið í keppninni. „Ég er náttúrlega
mjög ánægður með að hún hafi kom-
ist í úrslit og þá var síðasta kastið
sérstaklega gott því hún sýndi þar
keppnishörku. Við þurfum bara að
skoða og kryfja til mergjar hvað kom
upp á í dag. Eins og ég hef sagt þá er
Ásdís í mjög góðu formi og ætti að
geta kastað lengra,“ sagði Stefán
ennfremur. Þar sem þessi árangur er
nokkuð úr takti við þau köst sem Ás-
dís hefur náð á Demantamótum und-
anfarið benti Stefán á að spjótkastið
er íþróttagrein þar sem sveiflurnar
eru miklar. „Það verða alltaf nokkrir
keppendur sem detta út. 10. sætið er
náttúrlega mjög góð niðurstaða og
hún hefði ekki þurft mikið til þess að
komast nálægt efstu sætunum. Hitt
er annað að spjótkastið er þannig að
það er svolítið upp og niður. 10 metr-
ar til eða frá eru bara sjálfsagður
hlutur þegar komið er inn á svona
leikvang. Það getur farið bæði upp
eða niður en gekk ekki hjá okkur í
dag,“ sagði Stefán.
Spurður hvernig aðstæður voru á
Ólympíuleikvanginum sagði Stefán
þær hafa verið fínar. „Aðstæður voru
miklu betri núna en í undanúrslit-
unum. Þá var hringvindur og það gat
farið hvernig sem var. Það var ekkert
svoleiðis í gangi núna en það rigndi
hins vegar heil ósköp í upphituninni.
Ásdís fór þá út á braut og kastaði og
flaug á hausinn. Ég óttaðist að hún
hefði slasað sig það mikið að hún yrði
ekki með en ég held nú samt að það
hafi ekki skipt neinu máli þegar upp
var staðið,“ sagði Stefán. kris@mbl.is
Á meðal 10
bestu í Evrópu
Ásdís og Stefán þjálfari þó ekki
ánægð með köstin í úrslitunum
EM í Barcelona
» Ásdís Hjálmsdóttir úr Ár-
manni hafnaði í 10. sæti í
spjótkasti á EM í frjálsum
íþróttum í Barcelona í gær-
kvöldi.
» Ásdís kastaði spjótinu 54,32
metra sem Stefán Jóhannsson
þjálfari hennar sagðist þó ekki
vera ánægður með enda hefur
hún kastað lengra undanfarið.
KR-ingar fögnuðu af mikilli innlifun eftir að hafa gjör-
sigrað Framara á heimavelli sínum í Frostaskjólinu í
gær, 4:0. Þar með tryggðu þeir sér rétt til að leika bik-
arúrslitaleik við FH laugardaginn 14. ágúst næstkom-
andi. Framarar léku án fyrirliða síns í klukkutíma í
gær eftir að hann fékk að líta rauða spjaldið. »4
KR-ingar í bikarúrslitaleikinn
Morgunblaðið/Ómar