Morgunblaðið - 30.07.2010, Side 4

Morgunblaðið - 30.07.2010, Side 4
Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Guðlaugur Victor Pálsson er á lista 30 leikmanna sem knatt- spyrnustjórinn Roy Hodgson hefur sett saman til að geta valið úr fyrir leiki Liverpool í Evrópudeild UEFA í knatt- spyrnu á þessari leiktíð. Níu þessara leikmanna tilheyra reyndar B-hópi, sem hægt er að nota ef forföll eru í A-hópnum, en Guðlaugur er einn af 21 leikmanni í síðarnefnda hópnum. Hann var þó ekki í leikmannahópnum gegn makedóníska liðinu Rabotnicki í gær eins og lesa má um í opnu íþróttablaðsins. Valið á listann þýðir hins vegar að Guðlaugi hefur nú verið úthlutað treyjunúmeri hjá aðalliði Liverpool í fyrsta sinn, en hann lék fyrstu tvo leiki sína með því í æf- inga- og keppnisferðalagi liðsins til Sviss sem nú er nýlokið. „Ég var valinn í þennan hóp og fékk því þetta númer, 44. Það er fínt númer, fjarkinn er góður,“ sagði Guðlaugur léttur í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er alveg frábært og vonandi byrj- unin á einhverju góðu,“ bætti hann við. Núgildandi samningur Guðlaugs Victors, sem er 19 ára gamall, við Liverpool rennur út eftir komandi leiktíð. Viðræður um nýjan samning eru nú í gangi og á viðkvæmu stigi, en valið á Guðlaugi í Evrópudeildar-hópinn gefur góð fyrirheit. „Þetta sýnir það að menn vilja hafa mig áfram en ég veit ekkert hvað er að fara að gerast varðandi samningamál. Umboðsmaður minn er að ræða framhaldið við Liverpool og þetta skýrist von- andi fljótlega. Við höfum rætt um það að ég verði kannski lánaður en við þurfum að byrja á að sjá hvort ég fæ nýjan samning,“ sagði Guðlaugur sem naut þess vel að spila sína fyrstu leiki, gegn Grasshoppers og Kais- erslautern. Vill ólmur spila fyrir U21-landsliðið „Þetta var alveg rosaleg upplifun. Ég fékk 20 mínútur í fyrri leiknum og 15 í þeim seinni og get eiginlega ekki beðið um það betra. Þetta var alveg æðislegt. Leikurinn við Kaiserslautern var sérstaklega skemmtilegur því þar var gríðarleg stemning og um 25.000 áhorfendur,“ sagði Guðlaugur sem var mið- vörður í báðum leikjum. „Ég hef yfirleitt verið á miðjunni en var miðvörður meira og minna alla síðustu leiktíð með varaliðinu. Ég kann rosalega vel við mig þar og finnst þessi staða virkilega skemmti- leg.“ Guðlaugur Victor er sennilega einn efnileg- asti leikmaður landsins en hann hefur ekki spilað með U21-landsliði Íslands, sem leikur undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar, í síðustu leikjum. Liðið leikur næst 11. ágúst afar mik- ilvægan leik gegn Þýskalandi í undankeppni Evrópumótsins 2011. „Ég var valinn í fyrra fyrir leik gegn Tékk- um og Norður-Írlandi en síðan þá hefur Eyj- ólfur ekki valið mig. Ég veit ekki hvernig það verður núna en ég hef rosalegan áhuga á að spila fyrir þjóð mína og finnst ekkert skemmtilegra. Ég vona innilega að ég fái aft- ur kall inní 21-árs hópinn en maður þarf bara að bíða og sjá hvað Eyjólfur gerir,“ sagði Guðlaugur. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Í sumum greinum frjálsra íþrótta skilja oft aðeins sentímetrar á milli sigurvegarans og þeirra sem á eftir lenda í röðinni. Þetta er óalgengara í knattspyrnu en var svo sannarlega raunin þegar KR og Fram áttust við í undanúrslitaleik VISA-bikars karla í gær þrátt fyrir þá staðreynd að KR-ingar skyldu vinna þrælö- ruggan sigur, 4:0. Það munaði nefnilega aðeins nokkrum sentímetrum, nokkrum dýrmætum sentímetrum, að fyr- irliði Framara Kristján Hauksson næði að renna sér og sparka í bolt- ann til að stöðva skyndisókn KR- inga eftir tæplega hálftíma leik. Í staðinn sparkaði hann í Guðjón Baldvinsson sem var að sleppa í dauðafæri, einn gegn markverði, og Kristján fékk því að líta rauða spjaldið. Óhætt er að tala um vendi- punkt hvað þetta atriði varðar. Framarar höfðu verið betri fyrstu mínútur leiksins og mikið jafnræði var með liðunum þegar rauða spjaldið fór, svona líka rétti- lega, á loft. Eftir það voru KR- ingar hins vegar mun betri, eins og eðlilegt má telja. Mörg lið hefðu þó ekki nýtt sér umræddan vendipunkt eins vel og KR í gær. Þetta lið, sem hefur vald- ið stuðningsmönnum sínum sárum vonbrigðum í úrvalsdeildinni í sum- ar, sýndi hins vegar að það er kom- ið almennilega í gang. Óskar Örn Hauksson var frábær og átti sinn þátt í þremur fyrstu mörkunum, og Björgólfur Takefusa sá um að gera algjörlega út um leikinn með tveim- ur mörkum í seinni hálfleiknum. Áður en þriðja markið kom voru Framarar farnir að gera sig líklega til að minnka muninn, og fyrr í sumar hefði það örugglega gerst en það er eins og KR-ingar séu búnir að taka sig saman í andlitinu. Þar munar held ég meira um það að Guðjón Baldvinsson er byrjaður að spila eftir langvarandi meiðsli heldur en þjálfaraskiptin sem urðu fyrir skömmu. Guðjón er ein- staklega duglegur og baráttufullur framherji og gerði gæfumuninn með því að fiska Kristján útaf eins og áður segir. KR hefndi með sigrinum grimmi- lega tapsins gegn Fram í undan- úrslitum bikarsins í fyrra. Nú blasir við liðinu það verkefni að leika við FH í úrslitaleik 14. ágúst. Framarar eru eflaust afar svekktir með að hafa fallið úr leik en framkoma þeirra eftir leik er þeim til minnkunar. Enginn þeirra gaf kost á sér í viðtöl eftir leik fyrr en seint og um síðir sem hentar illa fyrir sjónvarpsútsendingar og út- gáfu blaða. Hegðunin jaðrar við að vera smásálarleg en Framarar kunna kannski á þessu betri skýr- ingar. Morgunblaðið/Ómar Fögnuður Það skein gleði úr hverju andliti á meðal KR-inga í fagnaðarlátum þeirra í Frostaskjólinu í gær eftir stórsigur á Frömurum. Dýrmætir sentímetrar  KR í úrslit eftir stórsigur á Fram  Framarar sterkari þar til fyrirliðinn sá rautt  Björgólfur gerði út um leikinn með tveimur mörkum  Smásálir hjá Fram? KR-völlur, VISA-bikar karla, undan- úrslit, fimmtudag 29. júlí 2010. Skilyrði: Hæg gola og skýjað en þurrt veður. Völlurinn ágætur. Skot: KR 18 (6) – Fram 4 (2). Horn: KR 5 – Fram 3. Lið KR: (4-4-2) Mark: Lars Ivar Moldskred. Vörn: Skúli Jón Frið- geirsson, Grétar Sigfinnur Sigurð- arson, Mark Rutgers, Guðmundur Reynir Gunnarsson (Hróar Sigurðs- son 83.). Miðja: Viktor Bjarki Arn- arsson (Kjartan Henry Finnbogason 61.), Bjarni Guðjónsson, Baldur Sig- urðsson, Óskar Örn Hauksson. Sókn: Björgólfur Takefusa, Guðjón Baldvinsson (Egill Jónsson 77.). Lið Fram: (4-3-3) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Daði Guð- mundsson, Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Samuel Tillen (Jón Orri Ólafsson 10.). Miðja: Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Ey- steinsson, Almarr Ormarsson. Sókn: Joseph Tillen, Hjálmar Þór- arinsson (Ívar Björnsson 62.), Tóm- as Leifsson (Guðmundur Magn- ússon 78.). Dómari: Gunnar Jarl Jónsson. Áhorfendur: 1.408. KR – Fram 4:0 1:0 40. Skúli Jón sendi fastasendingu fyrir markið úr vítateignum hægra megin á Óskar Örn Hauksson sem skaut boltanum í hægra markhornið. 2:0 58. Óskar Örn tók horn-spyrnu frá hægri og sendi boltann á Grétar Sigfinn Sigurð- arson sem skoraði með hörkuskalla. 3:0 71. KR fékk aukaspyrnusem Óskar Örn tók rétt ut- an vítateigsins hægra megin. Hann sendi stutta sendingu aftur fyrir sig á Björgólf Takefusa sem þrumaði boltanum í gegnum varnarvegginn og í vinstra markhornið. 4:0 80. Baldur Sigurðsson léklaglega á Joe Tillen hægra megin í vítateignum og var við enda- mörkin þegar hann sendi boltann fyrir markið á Björgólf Takefusa sem skoraði af stuttu færi. I Gul spjöld:Viktor Bjarki (KR) 51. (brot), Guðjón (KR) 53. (brot), Rut- gers (KR) 56. (brot), Jón Gunnar (Fram) 70. (brot), Ívar (Fram) 79. (brot). I Rauð spjöld: Ívar (Fram) 79. (brot).  Jordao Diogo gat ekki leikið með KR-ingum í gær vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Sel- fossi í síðustu umferð Pepsídeild- arinnar.  Samuel Tillen, leikmaður Fram, fór af velli eftir aðeins tæplega tíu mínútna leik vegna meiðsla.  Annar Framari, Hjálmar Þór- arinsson, var aðeins farinn að haltra við þegar honum var skipt af leik- velli í seinni hálfleiknum.  Hróar Sigurðsson kom inná í liði KR á 83. mínútu í sínum fyrsta leik í meistaraflokki en Hróar er fæddur árið 1992. Þetta gerðist á KR-vellinum „Mér fannst vera gríðarlegt sjálfs- traust í liðinu og við höfðum gaman af þessu, og sýnd- um þeim fulla virðingu þó að þeir væru orðnir 10. Það færði okk- ur þennan sigur,“ sagði Björgólfur Takefusa sem skoraði tvö síðustu mörk KR gegn Fram í gær og sá um að gera út um leikinn, en það hefur vantað hjá liðinu í sumar: „Mér finnst þetta hafa vantað í sumar. Við eigum ekki að fara í að verjast heldur setja bringuna út í svona stöðu og mæta andstæðingn- um framar. 2:0 forysta er ekkert örugg og við urðum að skora þetta „þriðja mark“, sem oft er talað um.“ sindris@mbl.is Eigum að setja bringuna út í svona stöðu Björgólfur Takefusa 4 Íþróttir „Vonandi byrjunin á einhverju góðu“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.