Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 20.12.1958, Blaðsíða 2

Framsóknarblaðið - 20.12.1958, Blaðsíða 2
2 jólablaö framsóknarblaðsins Bókaskápurinn og heimilið GÓÐ BÓK ER GULLI BETRI Ýmsir útlendir íerðalangar, sem lagt lraía leið sína um byggðir lands okkar, liafa síðar haft á orði eða getið þess í ferða bókum, hversu stórir og fanga- góðir bókaskápar íslenzka heim ilisföðurins (bóndans) hafa ver- ið eða eru. Margir telja bóka- skáp heimilisins óbrigðult tákn þeirrar menningar, er þar ríkir, a. m. k. andlegrar menningar. Nokkur útgáfufélög eru starf rækt hjá okkur og markmið þeirra allra er eitt og hið sama að gefa út góðar bækur, flestar „gulli betri“ til þess að auka menningu þjóðarinnar, fræða hana, — glæða þekkingarþrá og auka henni víðsýni. Jafnframt eru bækur ýmissa þessara útgáfu félaga bráðskemmtilegar aflestr ar svo að unun er að lesa. Yf- irleitt á þjóðin kost á að eign- ast bækur þessar við vægu verði eftir því sem allt kostar nú í landi voru. Hin almennu kaup heimilanna á bókum þessum valda lækkuðu verði. Hér langar mig að þessu sinni til að geta um bækur Menningarsjóðs og Þjóðvinafé- lagsins, sent út hafa komið í ár, þar sem mér er kunnugt um, að til er fólk, sem ekki þekkir þessar bækur. Þá er fyrst að geta ALMA- NAKS Hins íslenzka Þjóðvina- félags fyrir árið 1959. Lað er 85. árgangur. Þessi litla bók er góður gestur á heimilið hvert ár. Ekki vildi ég án hennar vera; svo mikinn fróðleik ber hún í skauti sínu. Fyrir utan almanakið sjálft er þennan fróðleik þar helztan að finna: Töflur um flóð og fjöru, og klukkuna, íslenzkan miðtíma, fræðslu um gang tungls og sól- ar, reikistjörnurnar, gervitungl o. fl. o. fl. Þá er nú í bók þess- ari mjög fróðleg grein um seg- ulmagn jarðar og annarra him- inhnatta. Þarna eru myndir til skýringar. Höfundur greinar þessarar er dr. Trausti Einars- son, sem er að nokkru leyti Vest mannaeyingur. í almanaki Þjóð vinafélagsins birtist hvert ár erein, sem nefnd er Arbók Is- lands. Þar er getið um árferði, atvinnuvegina, embættaveiting- ar ríkisins, heilbrigðismál, lielztu bruna, sem átt hafa sér stað, fulitrúa erlendra ríkja, í- próttakeppni Islendinga við aðrar þjóðir, skákkeppni, em- bættispróf við Háskóla Islands, samgóngur o gferðalög o. fl. o. fl. Einna merkasti þátturinn í fróðleikskafla þessum og sá lengsti lieitir Mannalát. Þar er getið flestra íslendinga, sem iátizt liafa á árinu, fæðingardags þeirra og dánardægurs. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins gefur út tímaritið ANDVARA. í ár er það 83. árgangur tímaritsins. Að þessu sinni flytur tímaritið okkur skrá yfir efni tímaritsins og höfúnda, sem í það hafa skrifað á árúnum 1915—1958. Án efa hefur ekkert 'tímarit ís- lendinga verið skrifað af jafn færum mönnum um fróðleik og ritleikni sem Andvari frá upp- liafi. Þar skína við auga fjöldi af nöfnum þekktustu og beztu sona þjóðarinnar. Skrá þessi ber það gleggst með ,sér hvílík fróð- leiksnáma Andvari er og hefur ætíð verið í höndum hinna á- gætu fræðimanna, sem þar hafa annazt starf eða stýrt penna. Venjulegast flytur Andvari okkur ævisögu einhvers lands- kunns forustu- og framfara- manns. Að þessli sinni er það ævisaga Guðmundar prófessors Hannessonar læknis skrifuð af Niels Dungal prófessor. í fyrra birtist í Andvara grein sem lieitir Brot úr verzlunar- sögu, eftir Þorkel prófessor Jó- liannesson. Þar er rætt um fyrstu viðleitni íslendinga til þess að heimta í sínar hendur umráð yfir innlendu verzluninni. í þessu liefti Andvara birtist framliald þeirrar greinar, þrung ið fróðleik. Senn kemur að sjálf úm Eyjunum í ritgerð þessari. Ef til vill næsta ár. Á undanförnum árum hefur Menningarsjóður og Þjóðvina- félagið gefið út bók hvert ár, er kallast Lönd og lýðir. Það er landfræði færð í alþýðlegan búning og stíllinn sambland af fræðistíl og sögustíl. Margar þessar bækur eru skemmtilegar aflestrar og allar námur a ðfróð- leik. Að jiessu sinni fjallar bók- in Lönd og lýðir um Vestur- Asíu og Norður-Afríku, ein- mitt helztu róstusvæðin nú og liefur Ólafur Ólafsson skrifað bókina. Ejórða bókin, sem félagsmenn Menningarsjóðs og Þjóðvinafé- lagsins fá fyrir ársgjaldið,, kr. 150,00, að þessu sinni, er safn ljóðmæla eftir 43 höfunda. Þar er valið úr yngri skáldun- um. Ef atomfólkið er talið með skáldunum, þá munu mennirn- ir, sem völdu þessi ljóð, liafa haft úr að velja kvæði á annað hundrað ungra skálda, sem svo eru kölluð. En mörg þau „skáld“ eru vissulega hálfgerðir og algerðir Æru-Tobbar. Um þessa ljóðabók Menningarsjóðs skal ég ekkert segja að svo stöddu. Mér hefur ekki gefizt tími til að lesa liana neitt að ráði. En ég hefi gripið niður í liana og hitt þar á nokkur vel kveðin ljóð og hugnæm. Þessir menn völdu ljóðin: Gils Guð- mundsson, Guðmundur G. Hagalín og Þórarinn Guðnason. En ekki lief ég enn Lalið allt, sem við fáum af bókum Mcnn ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins fyrir þessar kr. 150,00. Við meg- um velja tvær af eftirtöldum bókum: TVENNIR TÍMAR, skáld- saga eftir Knud Hamsun, nób- elsverðlaunaskáldið norska. HESTTR, litmyndabók af íslenzkum hestum, fögur, lieill andi. Eigir þú kæran kunn- ingja eða vin erlendis, þá sendu honum þessa bók. Hún er þess verð. SNÆBJÖRN GALTI, skáldsaga eftir Sigurjón Jónsson. EYJAN GÓÐA, myndskreytt ferðabók frá Suðurhafseyjum. UNDIRHEIMUR DÝRANNA, I eftir Mauric Burton, alþýðlegt fræðslu- og skemmtirit um nátt úrufræðileg efni. Ýmsar af liinum svokölluðu aukabókum Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins eru perlur í íslenzkum bókmenntum, enda margar skrifaðar af okkar lærð- ustu og liæfustu mönnum. Þar langar mig að nefna þessar t. d.: FRÁ ÓBYGGÐUM, eftir Pálma Hannesson, hinn látna rektor. Eáir íslendingar skrifa jafnfag- urt mál sem það, er hann reit bækur sínar á. Erá óbyggðum er fagur óður til íslands. SAGA ÍSLENDINGA IX. bindi eítir Magnús Jónsson. ÞJÓÐHÁTÍÐIN 1874, eftir Brynleif Tobíasson. HÖFUDUR NJÁLU, eítir Barða Guðmundsson, hinn látna þjóðskjalavörð. Satt að segja liefi ég lesið þessa bók með mestri undrun. Skarpskýggni höfundar og lærdómur í þeim þáttum íslenzkrar sögu, sem á- vallt hefur heillað mið mest, er mér bæði gleði og undrunar efni. Þarna færir höfundurinn skarpleg og að virðist óyggjandi rök fyrir því, að Þorvaldur Þór- arinsson, höfðingi á Sturlunga- öld, hafi skrifað Njálu. Af öðrum valbókum Menn- ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins má nefna kennslubók í skák, eftir Friðrik Ólafsson, tvö leik- rit eftir Loft Guðmundsson og síðasta bindi af kvæðasafni Stefáns G. Stefánssonar, And- vökum. Það er 4. bindið. Það væri ánægjulegt til þess að hugsa, ef unglingar, sem mjög margir liafa oft mikil aura ráð, notuðu eitthvað af krónum sínum til þess að kaupa sér góð- ar bækur. Það eru vinir, sem aldrei bregðast, kunningjar, sem gott er að skipta geði við. Góð bók í eigu unglings er vísir að menningartákni heimilis. Ef til vil 1 ættum við foreldrarnir að hafa það fasta venju að gefa börnum okkar eða unglingum slíkar jólagjafir. Tveir umboðsmenn dreifa hér bókum Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Það eru þeir Sveinn Guðmundsson og Þor- steinn Johnson. Þ. Þ. V. GLEÐILEG JOL! Farsælt komandi ár! FRAMSÓKNARBLAÐIÐ

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.