Nýr Stormur


Nýr Stormur - 22.12.1967, Qupperneq 9

Nýr Stormur - 22.12.1967, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 22. DES. 1967. 9 "fSWRMUR Viðtal við Gunnar \ Frai\)h. af bls. 7. lenzkar bækur einnig. Gengis- lækkunin verður tæplega vatn á myllu íslenzku bókaútgáf- unnar og er þá að geta hinnar slæmu vígstöðu íslenzkra bókagerðarmanna í sam- keppninni við erlenda stéttar- bræður. Enginn tunur er á bókum, sem unnar eru fyrir íslenzkan markað erlendis, hvorki á efni eða öðru. íslenzkir bókagerðar menn verða hinsvegar að greiða toll af öllu efni til bóka gerðar og er þessi tollur hár. Þetta er eilífðarvanda'mál, sem engin leið er að fá íslenzk yfirvöld til að taka til greina. Ég tel að íslenzk bókaútgáfa og bóklestur sé svo samtvinn- að íslenzku þjóðlifi, að þar hljóti hvorttveggja að lifa eða deyja — hljóta sömu örlög. — Vilt þú að lokum segja okkur eittlivað um þínar eigin útgáfubækur? — Að sjálfsögðu verður mað ur alltaf að fara varega í slíkt í almennu blaðaviðtali til að móðga ekki keppinautana. Ég vil þó ekki láta hjá líða að minnast á nokkrar vaf mínum íslenzku bókum, fyrst ég er spurður. Ég gef út frásagnaþætti eftir þá Kristleif á Stóra- Kroppi; „bréf úr Borgarfirði" — Finnboga Guðmundsson landsbókavörð, sem heita „Að heiman og vestan" og eru báð ar þessar bækur tengdar Vest urheimi og landnámi íslend- inga þar. Þessum bókum hefir verið mjög vel tekið. „Af sjón- arhói“ heitir bók, sem nú er að verða uppseld og er eftir Kristján Jónsson frá Garðs- stöðum. Kristján var um 40 ára skeið erindreki Fiskifélags ins á Vestfjörðum og kann frá mörgu fróðlegu og athyglis- verðu að segja. „Fimmtán íþróttastjörnur“ er tillegg Kristjáns Jóhannssonar til að skrá íþróttasögu þjóðarinnar og er tímabær bók, því að íþróttamenn okkar hafa vissu lega lagt fram sinn skerf til uppbyggingar þjóðlífsins inn á við, og aukið hróður hennar út á við. Jóhann Eiríksson er með mikið rit, „Fremra-Háls ætt“ og er hann orðinn mikilvirkur ættfræðingur. Það vinnst ekki tími, skilst mér til að telj a upp alla höfunda mína að þessu sinni eh gjarnan vildi ég nefna kvenrithöfundana, þær Guðrúnu vinkonu frá Lundi, sem nú er meö stóra bók, sem heitir „Náttmálaskin". Guð- rúnu þarf ekki að kynna. Hún er löngu orðin einn mest lesni rithöfundur okkar. Oddný Guömundsdóttir gefur nú út skáldsögu sem heitir „Skuld“ og Hugrún skáldkona er með bók, sem heitir „Perlubandið“ og er safn ellefu smásagna. Til stóð að Sigurbjörn í Vísi yrði með bók sína „Ekki svíkur Bjössi“ nú á jólamarkaði, en sú bók varð of síðbúin og kem ur út á næsta ári. Vegna mik- illar eftirspurnar hefi ég látið útbúa gjafakort fyrir þeifri bók, svo að viöskiptamenn mínir geti tryggt sér hana sem jólagjöf í ár. Þaö verður auðsjáanlega allt of langt mál,:að telja allar bækur Gunnars upp, sem nú eru á markaði, en þær eru milli 30 og 40, því að Leiftur gefur einnig út fjölda barna- bóka að vanda. Ekki verður þó hjá því kom ist að minna á myndabók Gunnars, frá íslandi. Gunnar er brautryðjandi í gerð slíkra myndabóka á síðari árum. Fyrsta veigamikla bókin, sem gefin var út af þeirri gerð, var „ísland í myndurn" sem ísa- fold gaf út á sínum tíma, með an Gunnar var forstjóri þar. Síðan hafa verið gefnar út V margar fallegar og myndarleg ar bækur af þeirri tegund og er þessi nýja bók Leifturs þeirra ekki sízt. Við kveðjum nú Gunnar bónda í Leiftri. Hann ætlar ekki að láta deigan síga í starf semi sinni þótt árin færist yf- ir. Það eru allir velkomnir í skúrinn til Gunnars við hlið- ina á stórhýsi hans — nema Elli kerling. Hún er þó ekki í neinum vandræðum um vini þótt hjá yngri mönnum sé. Gunnari er þó ekki fremur en öðrum um vinskap hennar við ýmsa af æðstu mönnum þjóð- arinnar, sem nú virðast henni handgengir, ef dæma má af þróttleysi því, er nú einkennir störf þeirra er móta eiga líf hennar og starf á næstunni. Kvikmyndasýniug Laugardaginn 25. þ.m. buSu LoftleiSir starfsmönnum félags ins og fréttamönnum blacSanna á sýningu kynningarmynda. Fór sýningin fram í Nýja bíói og tók um eina klukkustund. Fyrri myndin var frá Lux- emburg og hefur félagiS látiS gera hana. Flöfundur myndar- innar er kvikmyndatökumaS- urinn William A. Keith, sami maSur og gerSi myndina „Dis- cover Iceland“, en sú kvik- mynd hefur undanfarin þrjú ár veriS sýnd á vegum LoftleiSa víSsvegar um heim. Seinni myndin er af ferSa- mannaleiSum í Bandaríkjum NorSur-Ameríku og á félagiS eitt eintak hennar. BáSar eru þessar myndir fræSandi og skemmtilegar, annars vegar mild litadýrS Luxemborgar og hins vegar stórbrotiS, hrikafagurt lands- lag NorSur-Ameríku, Helzt maetti finna aS því, aS kaflinn um Island hefSi mátt vera lengri. fr.m. Karlmannaskór - Franskir - Enskir Stórglæsilegt úrval! Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100 — Kjörgarði Stefkrókur Brasilíufarar Hvað er í fréttum, fínu menn, af ferðum ykkar til Ríó? Fara’ ekki’ að koma fregnir senn um fjármuni, kárlik og bíó? Fenguð þið ekki flottan túr? Voru fíkjurnar rammar og berin súr? Var gjaldeyrisbankanum læst með lás? Var lítið um monning þar syðra? Var rödd ykkar kannski klakahás úr kuldanum hérna nyrðra? og ámátleg bænin urri lík hjá agentasnobbum úr Reykjavík? Var lánstraustið þorrið og lukkan strand og lítið ,,gratís“ að finna? Og Frónið útlægt sem ölmusuland með umsýn til fyrri kynna? Hver fórnar legi á lekahrip? Mun lánast veðtak á reisa grip? Var ekki gaman, miklu menn, að manga til við þá stóru? Uppskerubresturinn batnar senn, það blikar í vonarglóru! Koma dagar og koma ráð, — þið krjúpið áfram í von um náð! Grímarr LESENDUM Það er flestra foreldra vissa, að skólinn veiti börnunum þá fræðslu, sem heimilin van- rækja. Börnin læra siðterðis- reglur og kurteisi fyrst f for- eldrahúsum og síðan í skólun- um. Ekki er nóg að kenna þessa grein mannlífsfágunar í ræðuformi. En hvenær er hún þá kennd, þegar börnin eru látin atast úti f frítfmum sínum án þess að eftir þeim sé litið. Ég geng framhjá barnaskóla einum oft á dag og aldrei sé ég kennara eða eftirlitsmenn í leikjum með börnunum. Það er aldrei betra að siða og áminna börnin en einmitt að vera með þeim í leikjunum. Enda er Ijótt ástand á leiksvið- inu í skólunum stundum. Þá heyrast köll: Haltu kjafti. Éttu skít. Ég skal drepa þig. Svo er slegist. Þau, sem veikari eru, lyppast undan og fara frá í flæmingi. Ég hef oft beðið stærri drengina að vægja hin- um veikari og fengið svar: Þetta er nógu gott fyrir hann. í mínu ungdæmi voru kenn- ararnir alltaf með okkur í leikj um í frítímunum. Nú eru barnakennaramir svo miklu kulsæknari og þola ekki að vera úti með bömunum f frí- tfmunum. Reyndar hef ég heyrt aðra á- stæðu, sem er sú, að þeir vilja fá extra kaup fyrir að vera í leikjum með börnunum. Kennari, sem hugsar þannig, er að mínu áliti ekki hæfur til að gegna svo þýðingarmiklu starfi, sem barnafræðsla er. Vildi ég þá spyrja: Hvenær hefur kennarinr betra tækifærí til að þjálfa með þeim sið- fræði og kurteisi. Ég held, að óhætt sé að und- irstrika það, að kennsla sumra kennara er nokkuð mikil sýnd- armennska. Sér í lagi þar sem skólastjórarnir era meira og minna fullir í tímunum. Faðir.

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.