Nýr Stormur - 22.12.1967, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 22. DES. 1967.
^ll^RMUR
(D
Emmess ís á jólaborðið
ÍSTERTUR
VANILLUÍS
NOUGATÍS
JARDABERJAÍS
SÚKKULAÐIÍS
Mjólkursamsalan
- ;u /j
Eg er settur....
Framhald af bls. 3.
í vasa hennar í kosningasjóSi
í tvö til þrjú ár og nú ætlar
hann að sýna henni vald sitt.
Á næstunni eru forsetakosn
ingar. Það er vitað að eitt for-
setaefni hefir átt miklu fylgi
að fagna meðal verzlunarstétt
arinnar og væntir sér trausts
og halds úr þeirri átt.
Nú ætlar Bjarni formaður,
við gætum nefnt hann „sól-
formanninn“ að nota kverka-
takið á verzlunarstéttinni til
þess að kúga hana undir vilja
sinn í því máli.
Völd þessa manns byggjast,
eins og allra annara einræð-
isherra, á ótta en ekki hylli.
Nánustu samstarfsmennirn-
ir ÞORA ekki að ýta honum til
hliðar af ótta við að honum
takist samt sem áður að halda
völdum og þá vita þeir að
hefndin verður grimmileg.
Það verður því ekki fyrr en
fólkið fær tækifæri til að til-
kynna honum, svo ekki verður
um villzt, að ríkið er ekki
HANN, heldur ÞAÐ.
Sólkonungurinn dó áður en
hann gerði sér þetta Ijóst —
við skulum vona að sömu ör-
lög bíði ekki „sólformannsins“
og íslenzku þjóðarinnar!
«ílB1ISI|g|[SilSI|gl|g|ISliaHligiígll5IISll81l«1151|g|giiaHI|g|lgl|g||gKllg||giiaig!|gHgll8Hg'i|g|SlBliai5i]|g|g|BBlBBÍIg|gll8H|g||gll8iaBIIBBI|gW|g1glWglMllg|giaiglgl|l
11
JÓLIN
Framhald af bls. 1.
Kenningar hans hafa ver
ið gerðar eins þægilegar í
meðförum og hentar hverju
sinni værukærum söfnuð-
um og einstaklingum.
Það eru aðeins sárafáar
undantekningar, sem í
raun og veru trúa og vilja
eitthvað á sig leggja fyrir
trú sína. Hitt er miklu
þægilegra að hafa á sér yfir
skin trúrækninnar og af-
neita krafti hennar. Flestir
afneita þó þessari stað-
reynd, en gæta þess ekki,
að einmitt á þessum tíma
árs, siðast í desember á
hverju ári, sanna þeir með
gjörðum sínum, fremur en
nokkur hávíSindaleg rit-
gerð gæti gert, að guðrækn
in er yfirskin eitt, notuð til
að gera sér dagamun.
Menn éta og drekka sér
til óbóta í Jesú nafni. Þeir
skreyta sig og heimili sín i
Jesú nafni. Verzlun og við-
skipti ná hámarki sínu rétt
fyrir jólin, í Jesú nafni.
Alir þurfa að kaupa eitt-
hvað, nauðsynlegt og ónauð
synlegt — í Jesú nafni.
Börnin fá allskonar leik-
föng svo sem byssur, skrið-
dreka, hernaðarflugvélar o.
s. frv. — í Jesú nafni.
Vegna þess að Jesú á af-
mæli, eru unglingum gefn-
ar byssusögur og frásagnir
af ömurlegustu atburðum
sögunnar — þar sem þús-
undura og hundruðum þús-
unda mannslífa er fórnað
— í Jesú nafni.
Þannig mætti lengi telja
og eftir því sem upptalning
in er lengri, er hún hinum
menntaða nútímamanni til
meiri skammar.
Þótt íslendingar séu ekki
sekir um það ódæði, að fara
í kirkju og'tilbiðja Jesú, áð
ur en þeir fara út að drepa
menn, þá er trúleysi þeirra
og siðleysi allt að einu nóg.
Þjóð Hahgríms Pétursson
ar og Jóns Vídalíns trúir
ekki á annað en stokka og
steina.
Prestarnir tala í mann-
lausum kirkjum, enda mun
vald meistarans frá Nasa-
ret yfir þeim, mörgum
hverjum, ná skammt, ef
hyllir undir hátignina
Mammon.
Jesú braut niður kenning
una: auga fyrir auga og
tönn fyrir tönn. Það er þó
þessi kenning sem í dag er
hið ráðandi afl, þrátt fyrir
að menn telja sig kristna.
Það er með þcnnan boð-
skap í huga, sem menn
halda upp á afmæli meist-
arans. Þverbrot á öllum
hans kenningurp er mottó-
ið, sem prúðbúnir kirkju-
gestir jólanna bera í barm-
inum í skreyttum kirkjum
á þessum jólum.
Jólin eru markaðshátíð.
Það eru skransalarnir sem
fyllast fögnuði á þessum
árstíma.
Flestallir aðrir eru hálf-
ærðir, úttaugaðir eftir um-
stangið og börnin fá varla
að vita af hverju þetta til-
stand er. Jóla söngvarnir
hafa engan tilgang og ekk-
ert innihald lengur.
Sögurnar af fæðingu
Jesú fagnaðarerindið er
bara grín, sem fullorðna
fólkið er að finna upp á, því
m S Í9QQQQBB
að börnin trúa ekki þvi,
sem þau finna að foreldr-
arnir trúa ekki á.
Það er á valdi hvers og
eins að draga úr óskapnað-
inum. Hér verður ekki sak-
ast við yfirvöld, eða neina
aðra en fólkið sjálft. Það er
fullorðna fólkið, sem er
staðið að því, að vera að
gleðja sig sjálft undir þvi
yfirskini að það sé að gleðja
börnin.
Börnin í dag bíða skaða
af jólunum víðast hvar.
Kenningin um Jesúbamið
og fagnaðarboðskapurinn
kemst ekki að.
Þetta er höfuðsynd „krist
inna“ manna á jólum í dag.
i«iigiMigixiigiM>ti«igigiigiigigigigiigiigig<gteigigigi«igiíi<i»migm»gimimgigrai»igixiBiiKiiHBig
StœiSEÍGÍSlSISFaf