Framsóknarblaðið - 16.05.1968, Side 6
6
an
FRAMSÖKNARBLAÐIÐ
Landakirkja.
Ferming: Sunnudag kl. 10 í. h.
og kl. 2 e. h.
Uppstigningardag. Ferming kl. 10
f. h. og kl. 2 e. h.
Málverkasýning.
Sveinn Björnsson, listmálari opn
ar málverkasýningu í Akógeshús-
inu n. k. föstudagskvöld kl. 8.
Á sýningunni eru 30 olíumálverk
sem Sveinn hefur mláað undanfar-
in 5—6 ár. Sveinn er, eins og flest-
um er kunnugt, Vestmannaeyingur,
og hefur hann haft hér nokkrar
sýningar, síðast fyrir 5 rum. Sýn-
ingin verður opin yfir næstu helgi.
Iðmfiólflnum slítið
Iðnskóla Vestmannaeyja var slit-
ið föstudaginn 3. maí sl. í skólann
voru skráðir að þessu sinni 90 nem
ar, 85 piltar og 5 stúlkur.
Skólinn starfaði nú eins og áður
í tveim áföngum, fyrri hluta vetr-
ar voru 3. og 4. bekkur við nám,
samtals 51 nemi, síðari hluta vetrar
1. og 2. bekkur með samtals 39
nema. — í skólanum voru 53 iðn-
nemar og 37 almennir nemar.
Skólinn brautskráði að þessu
sinni 23 iðnnema, þar af 5 húsa-
smíðanema, 5 rafvirkja, 2 múrara-
nema og samtals 6 í eftirtöldum
iðngreinum: bakaraiðn, húsgagna-
iðnaði, málaraiðn, hórgreiðslu.
Auk skólastjóra var ráðinn fastur
kennari að hálfu, en þar að auki
voru starfandi við skólann 4 stunda
og sérkennarar.
Horfur með skólann næsta ár eru
að 4. bekkur er alveg fullsetinn og
3. bekkur að mestu. Þar verður
hægt að bæta inn um það bil 5 nýj
um nemum. Þá verður hægt að
bæta um 10 nemum í 2. bekk. —
Um 1. bekk er það að segja að í
hann hafa ekki borizt enn neinar
umsóknir.
Æskilegt er, að þeir sem hyggja
á nám í Iðnskóla Vestmannaeyja
næsta vetur, sæki um það sem
fyrst. Þess skal getið, að í vetur
voru um 11 utanbæjarmenn í skól-
anum og hafa aldrei verið svo
margir áður.
Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum var slitið laugardag-
inn 11. maí s. 1.
Útskrifuðust 8 stýrimenn með
fiskimannapi’óf 2. stigs, sem veit-
ir skipstjórnarréttindi á fiskiskip
af hvaða stærð sem er og flutninga
skip allt að 400 smálestir.
Stýrimenn, sem útskrifuðust
voru:
Bragi Guðmundsson, Vestmanna
eyjum.
Friðrik Már Sigurðsson, Vest-
mannaeyjum.
Gunnar Árnason, Akranesi.
Gunnlaugur Ólafsson, ísafirði.
Kristján Sigurður Kristjánsson,
Vestmannaeyjum.
Leifur Gunnarsson, Vestmanna-
eyjum.
Ólafur Eggertsson, Vestmanna-
eyjum.
Sigmar Magnússon, Vestmanna-
eyjum.
Allir nemendur hlutu 1. einkunn
eða yfir 6 í meðaleinkunn, hæst er
gefið 8.
Hæstu einkunn hlutu: Sigmar
Magnússon, 1701/3 stig eða 7,41, á-
gætiseinkunn; Friðrik Már Sig-
urðsson 169Vs stig eða 7,36, ágæt-
iseinkunn; Bragi Guðmundsson
168% stig eða 733, ágætiseinkunn;
Gunnlaugur Ólafsson I68V3 stig
eða 7,32, ágætiseinkunn.
Ágætiseinkunn telst yfir 7,25.
Þetta eru því ákaflega jafnar eink
unnir og munar aðeins 0,09 á 1. og
4. manni. Meðaleinkunn bekkjarins
var 6,88.
Prófdómarar í siglingafræðifög-
um voru Róbert Dan Jensson, stýri
maður, Reykjavík, og Angantýr
Elíasson, hafnsögumaður. Formað-
ur prófnefndar var Jón Hjaltason,
hrl.
Við skólaslit bárust skólanum
stórgjafir. Björn Guðmundsson út-
gerðarmaður afhenti skólastjóra
sparisjóðsbók með 50 þús .kr., sem
hann og Tryggvi bróðir hans gefa
skólanum til minningar um for-
s _________„_______„________...
j'
i Framsóknar-
blaðið
Rhnefnd:
Sigurgeir Kristjánsson,
Jóhann Björnsson, áb.
Afgreiðslu annast:
Sveinn Guðmundsson.
Gjaldkeri:
Hermann Einarsson.
eldra sína, hjónin Guðmund Eyj-
ólfsson og Áslaugu Eyjólfsdóttur.
Er ætlunin að stofna styrktarsjóð
fyrir efnalitla sjómenn og styrkja
þá til náms við Stýrimannaskólann
í Vestmannaeyjum. Þá gaf Frið-
finnur Finnsson framkvæmdastjóri
kr. 2.500,00 í verðlaunasjóð, sem
ber nafn hans og konu hans, Ástu
Sigurðardóttur. Hefur Friðfinnur
gefið fé í sjóð þennan á hverju
ári. Við skólaslitin voru veitt ýms
verðlaun, Finnbogi Friðfinnsson
veitti hæsta nemanda bréfapressu
Sjóvátryggingafélags íslands, auk
þess veitti skólinn bókaverðlaun
og tveir nemendur fengu bókaverð
laun úr sjóði Friðfinnsfyrir ástund
un og reglusemi við námið.
Á sjómannadaginn verða Sigmari
Magnússyni, sem hlaut hæstu eink
unn, afhent verðlaun Skipstjóra og
stýrimannafélagsins VERÐANDA,
vandað armbandsúr, áletrað „Verð
anda-úrið 1968“.
Auk ofantaldra gjafa hafa skól-
anum borizt margar nytsamar gjaf
ir, má nefna staðarvísi frá Angan-
tý Elíassyni, töflubækur frá Sígur-
birni Guðmundssyni, plottskífu frá
Rafni Sigurðssyni, landbréfabók
frá Guðjóni Ólafssyni og Antoni
Bjarnasen.
Einar Gíslason gaf skólanum
vandaða biblíu.
Við skólaslitin gáfu nemendur
skólans’ sl. vetur fallegt líkan af
áraskipi með Eyjalagi.
Fyrsti bekkur lauk prófum í
endaðan marz og útskrifuðust þá
8 nemendur með fiskimannaprófi
1. stigs, sem veitir 120 tonna rétt-
indi. Hæstu einkunn við það próf
hlaut Sigurður Helgi Sigurðsson
frá Siglufirði, 7,60, þá Kristinn Sig
urðsson, Vestmannaeyjum með 7,40,
Axel Ágústsson, Seyðisfirði með
7,29, allt ágætiseinkunnir. Eiríkur
H. Sigurgeirsson, 7,23, aðrir, sem
luku 1. stigs prófi voru: Bjarni
Kjartansson, Súðavík, Finnbogi
Finnbogason, Vestmeyjum, Haukur
Böðvarsson, ísafirði, Logi Snædal
Jónsson, Vestmannaeyjum.
Við þessi skólaslit hefur Stýri-
mannaskólinn hér útskrifað 50
skipstjórnarmenn, 41 með hið meira
fiskimannpróf og 9 með fiskimanna
próf 1. stigs (120 tonna réttindi).
Liðinn vetur var kennaraliðið
að mestu óbreytt frá því sem ver-
ið hefur.
Áhöfn m/b Sæbjargar, Hilmar Rósmundsson annar frá vinstri.
Á myndina vantar Má Guðmundsson.
Fiskikóngur á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum 1968 varð Hilmar
Rósmundsson, skipstjóri á m/b Sæbjörgu VE 56. _ Er þetta í annað sinn,
sem Hilmar er fiskikóngur.
Afli Sæbjargar frá áramótum til 15. maí varð 1190 tonn.
Þess má geta, að Hilmar hefur haft nær sömu áhöfn undanfarnar ver-
tíðir.--Blaðið óskar Hilmari og áhöfn hans til hamingju með afla-
magnið og sæmdarheitið.
Skólastjóri.