Framsóknarblaðið - 30.05.1968, Síða 3
FRAMSÖKNARBLAÐIÐ
3
ÞJÓÐHÁTÍÐIN
Framhald af 2. síðu.
inn hefur komið. Eg tel að með
því að miða skemmtiatriðin við
að, að hehnafólk sæki Þjóðhátíð-
ina, og sérstaklega ef þess er gætt
að nota heimafengna skemmti-
krafta, þá gæti Þjóðhátíðin oðið í-
þróttahreyfingunni meiri lyfti-
stöng en nú er.
Ef til vill heldur einhver því
fram, að hér séu ekki fáanlegir
frambærilegir skemmtikraftar hér
innanbæjar.
Eg held, að lítið hafi á þetta
reynt, heimamenn eru aldrei beðn
ir að skemmta á Þjóðhátíð, fyrr
en aðrir skemmtikraftar bregðazt,
og þá ef til vnl með viku eða hálfs
mánaðar fyrirvara.
Viðkomandi íþróttafélag hefur
heilt ár og jafnvel tvö, til að und-
irbúa Þjóðhátíðina og útvega
skemmtikrafta, og ég trúi því ekki
að ekki fengjust skemmtikraftar
innanbæjar, ef eftir þeim væri leit
að með nægum fyrirvara, t.d.
strax á haustin.
Auðvitað þarf að borga innan-
bæjar skemmtikröftum, en ekkert
í samanburði við þann fjáraustur,
sem fer í „vafasama” skemmti-
krafta, sem fengnir eru að. Og svo
sparaðizt uppihald o.s.frv..
Eg bið viðkomandi íþróttafélag,
stjórn þess og nefndir, að athuga
þetta mál vel, Þessar athugasemd-
ir eru bornar fram af góðum hug.
Eg er einn af þeim, sem ekki
vilja leggja Þjóðhátíðina niður, en
gera hana í þess stað að hátíð bæj
arbúa sjálfra. þessu verður ekki
kippt öllu í lag á einu ári, en heill
sé stjórn þess félags, sem hefur
kjark til þess að takazt á við þetta
vandamál
j. B.
Fró Krabbavörn
3. maí s.l. kom frú Guðríður
Ólafsdóttir, Heimagötu 20 hér í
bæ, til mín með kr. 3000.00 — þrjú
þúsund krónur — sem hún gaf til
„Krabbavarnar” í Vestmannaeyj-
um. Þessi gjöf er í minningu um
stjúpömmu hennar Guðrúnu Jóns-
dóttur, húsfreyju í Fagradal, Mýr-
dal, en þennan dag hefði hún orð-
ið hundrað ára, ef lifað hefði. Auk
þess var þessi gjöf gefin í minn-
ingu afa hennar og manns Guð-
rúnar, Jakobs Þorsteinssonar,
bónda í Fagradal, sem dó 93-ggja
ára gamall, og í minningu um
Guðmund Jónsson, bróður Guðrún
ar, sem bjó hér í Lambhaga og
Nýjahúsi. Hann dó í september
1948, um áttrætt.
Með þökkum móttekið.
form. „Krabbavarnar”.
Einar Guttormsson,
Húsbyggjendur
Munið hinar vönduðu innihurðir frá
Sigurði Elíassyni h. f., Kópavogi.
Afrgeiðslufrestur 4 til 5 vikur.
Óbreytt verð.
TRÉVERK S.F.
Flötum 18. — Sími 2228.
STUÐNINGSMANNA KRISTJÁNS ELDJARN
Höfum opnað skrifstofu í Víðidal (Vest-
mannabraut 33). Fyrst um sinn verður að-
t
eins opið á kvöldin.
Starfsmaður skrifstofunnar er Lýður Brynj-
ólfsson, skólastjóri.
Allt stuðningsfólk Kristjáns Eldjárn er
vinsamlega beðið að hafa samband við
skrifstofuna. — Síminn er 1060.
NEFNDIN.
Kosningaskrifstofa
stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens við
í hönd farandi forseta kosningar er í húsi
Drífanda við Bárustíg.
Skrifstofan er opin daglega kl. 14—18,30
Síminn er 1080.
Stuðningsmenn Gunnars Toroddsen
eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna
sem fyrst.
Flogið verður á Skógasand n. k. þriðju-
dagskvöld, 4. júní.
Vinsamlega hafið samband við skrif-
stofuna sem fyrst.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS.
Fasteignamarkað-
urinn
er í fullum gangi. Síðustu daga
daglegar sölur.
Hefi nú til sölu m.a.
EINBÝLISHÚS:
Ný og glæsileg við Heiðaveg,
Höfðaveg, Nýjabæjarbraut og
Strembugötu.
Eldri einbýlishús, en í ágætu
standi:
Við Brekastíg, Faxastíg, Heima-
götu, Landagötu, Njarðarstíg, Urð-
arveg, Vestmannabraut og Vestur-
veg.
fbúðir: 2 herbergi og eldhús:
Við Kirkjuveg, eldri íbúð við Há-
steinsveg, íbúð í steinhúsi, nýleg.
3 herbergi og eldhús: Við Ása-
veg í elda húsi, Brekastíg, Faxa-
stíg, Heiðaveg, Herjólfsgötu og
Skólaveg.
4 herbergi og eldhús: Við Fífil-
götu, Vestmannabraut og Vestur-
veg.
5 herbergja nýleg íbúð við Birki-
hlíð, kostakjör.
Líklegast má ná góðum kaupum,
meðan úrvalið er mest. Vinsamleg
ast lítið inn og kynnið yður verð
og skilmála, og ef að er gáð fer
vala hjá því, að eitthvað sé við
flestra hæfi. Kaupendur bíða eftir
hentugum smábátum, jafnvel trill-
um.
JÓN HJALTASON. hrl.
Skrifstofa: Drífanda við Bárugötu,
Viðtalstími: kl. 4,30 — 6 virka daga
nema laugardaga kl. 11 — 12 f.h.
Sími 1847.
Til sölu.
er húslóð á góðum stað við III-
ugagötu, ásamt teikningu af hent
ugu einbýlishúsi.
Upplýsingar gefnar í síma 1729.
Bifreið fil sölu.
Jeppabifreiðin V-83 er til sölu.
Upplýsingar í sírna 1343 eftir kl. 7
á kvöldin.
MÓTORHJÓL
Nýlegt, 16 ha. Honda-mótorhjól
til sölu. Selst ódýrt. Upplýsingar
í síma 1136.
Bifreið fil sölu.
FIAT 850 S. árgerð 1966. — Upp-
lýsingar í síma 1240.