Framsóknarblaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 2
2
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
í síðasta Framsóknarblaði ritar
J. B. um Þjóðhátíð Vestmannaeyja
og fer þar nokkrum ábendingarorð
um um það, sem betur maetti fara
í framkvæmd og tilhögun hátíðar-
haldanna.
Af eðlilegum átsæðum gætir þar
nokkurs misskilnings, þar sem
greinarhöfund skortir frekari kunn
ugleika á aðdraganda og fram-
kvæmd Þjóðhátíðar.
Vil ég í þessum línum leitast
við að skýra málið nokkuð nánar.
Eitt, sem hann minnist á er, að
allt of lítið sé gert af því að fá
„innlenda“ skemmtikrafta (þ. e.
heimamenn) og er ég honum þar
sammála, en af kynnum mínum
undanfarin ár af þessu atriði, verð
ég því miður að segja, að nær ó-
mögulegt er að fá frambærilegt
efni flutt af heimamönnum (með
örfáum undantekningum þó), jafn
vel hefur það verið svo slæmt, að
afsökun sumra aðila t. d. kóra hef
ur verið sú, að umræddur flokk-
ur væri í sumarfríi.
Það, sem hefur ráðið úrslitum
um gerð dagskrár og val skemmti
krafta hefur ávallt verið þetta, að
ég bezt veit:
A. Uppbygging dagskrár þjóni
hefðbundinni venju, svo sem ræðu
höld, Guðsþjónusta, lúðrablástur,
íþróttir, bjargsig, kvöldvaka, dans
að ógleymdri brennunni og flug-
eldasýningu.
B. Við val skemmtikrafta hefur
'þess verið gætt að þeir stæðust
það bezta, er gætti hverju sinni og
þar skiptist á skop og alvara.
Eitt höfuðvandamál undanfarin
ár hefur, eins og greinarhöfundur
minnist réttilega á, verið neyzla á-
fengis og þá sérstaklega áberandi
meðal ungmenna.
Frá fornu fari hefur neyzla á-
fengra di’ykkja verið fylgifiskur
Þjóðhátíðarinnar og verður við
ramman reip að draga að gera þar
byltingu.
íþróttafélögin hafa þó reynt sitt
I---------------------------
I Framsóknar-
| blaðið
í Ritnefnd:
= Sigurgeir Kristjánsson,
I Jóhann Björnsson, áb.
Afgreiðslu annast:
Sveinn Guðmundsson.
Gjaldkeri:
Hermann Einarsson.
til að breyta þessu m.a. með auk-
inni gæzlu og margreynt að fá því
framgengt, að lögreglan leitaði í
farangri fólks á Reykjavíkurflug-
velli (áþekkt og gert er í hverjum
bíl inn við Elliðaár, er fólk hópast
úr höfuðborginni) og geri óeðlileg
ar birgðir víns upptækar, svo og
það magn, er finnst í fórum ung-
linga.
Þessari beiðni íþróttafélaganna
hefur ávallt verið synjað af ráð-
andi aðilum og virðist þar ákveðin
meðaumkvun gagnvart þeim, er
annast þessa flutninga, svo og að
það muni verða til tafa. Ef íþrótta
félögin fengju þessu frmgengt, er
ég næsta viss um, að strax sæist
bót til hins betra.
Það er öllum ljóst, að Þjóðhátíð-
in verður seint bindindishátíð, en
aftur á móti má öllu ofgera of ó-
neitanlega er það grætilegt að
horfa upp á, að ungmenni geti ó-
G.V- 30 ára
Á þessu ári verður Golfklúbbur
Vestmannaeyja 30 ára. Hefur starf
klúbbsins verið óslitið frá stofnun
hans 1938, Ýmsir mætir menn hafa
komið þar við sögu, en upphafs-
maður íþróttarinnar hér er talinn
vera Þórhallur heitinn Gunnlaugs-
son.
Klúbburinn hefur jafnan haft á
að skipa færum leikmönnum og
tvisvar sinnum hlotnazt Islands-
meistaratitillirm fyrir tilverknað
Sveins heitins Ársælssonar. í sum-
ar er mjög mikið líf í þessari í-
þróttagrein og hafa fleiri stundað
hana en oft áður, ungir sem aldn-
ir, konur og karlar.
Um hvítasunnuhelgina var háð
hér minningarmót Sveins Ársæls-
sonar, var það opin keppni og
mættu meðal annarra keppendur
úr Reykjavík, en þó færri en áætl
að hafði verið, þar eð tók fyrir
flug.
Sigurvegari án forgjafar varð
Atli Aðalsteinsson með 162 högg.
2. varð Haraldur Júlíusson með
163 högg.
Sigurvegai’i með forgjöf varð
Magnús Magnússon með 138 högg.
í öðru sæti voru tveir jafnir,
Haraldur Júlíusson og Hallgrímur
Þorgrímsson með 139 högg.
íslandsmeistarmótið í ár verður
haldið hér 8. — 13. júlí og er bú-
ist við mikilli þátttöku eða um og
yfir 100 manns. Hafa Eyjamenn
æft vel af undanförnu og verður
án efa gaman að fylgjast með
þeim, þá er einnig unnið að stækk-
un Golfskálans í Herjólfsdal.
hindrað komið fljúgandi hingað til
Vestmannaeyja, t. d. tvö saman
með 12 flöskur af Cenever (1
kassa) ásamt 2 kössum af Coca
Cola, án alls anars faranugrs,
hvorki tjald, svefnpokar eða mat-
ur og hafa svo hvergi inni og enda
oft og tíðum í steininum ýmist fyr
ir ofurölvun eða þjófnað á mat úr
tjöldum.
Þetta geta íþröttafélöögin því
miður ekki stöðvað og ekki hægt
við þau að sakast þó stundum
keyri um þverbak í þessum efn-
um.
Það er mikill misskilningur að
halda því fram, að hagnaður af
Þjóðhátíð muni minnka, ef drægi
úr neyzlu áfengis, það er jafn-
framt mikill misskilningur að
ætla að draga úr auglýsingu á há-
tíðarhöldunum, pví að hátíðin er
nú einu sinni aðaltekjulind félag-
anna, og því einnig mikill mis-
skilningur að halda því fram, að
dýrir en jafnframt viðurkenndir
skemmtikraftar séu óhagkvæmir.
Það er orðin mjög hörð samkeppni
milli margra félaga hér í þessu
landi um að halda sem fjölmenn-
astar og glæsilegastar skemmtan-
ir, því sannleikurinn er nú einu
sinni sá, að umrædd hátíðarhöld
eru undirstaða rekstrargrundvölls
íþróttafélaganna. Hvort hagnaður
af einni þjóðhátíð er 30% eða
meira skiptir í sjálfu sér ekki öllu
heldur hitt, að hagnaður undan-
farinna þjóðhátíða hefur haldið
félögunum gangandi.
Það hafa stundum heyrzt radd-
ir um það, að Þjóðhátíð sé okkur
Vestmannaeyingum dýrt fyrirtæki
og ætti jafnvel að leggja niður
sem slíka, eða halda t. d. á fimm
ára fresti.
Að mínu viti á skilyrðislaust að
halda þessari fornu hefð og vanda
til að venju, en óneitanlega yrði
það ánægjulegt, ef viðkomndi yfir
völd gætu stuðlað að því, að ósk-
um íþróttafélaganna um eftirlit
með vínbirgðum yrði komið í
framkvæmd.
H. E.
ÍÞRÓTTIR
Framliald af 2. síðu.
Ekki amalegt fyrir ÍBV að losna
nú við allan höfuðverk við að
koma liðinu til leiks í tæka tíð og
losna við að fara sólarhring fyrir
leik, jafnvel með bát til Þorláks-
hafnar. Bara bíða og taka sein-
ustu áætlun fyrir leik og ef ófært
er senda skeyti til Árna og fresta
um óákveðinn tíma.
LEIKIR YNGRI FLOKKA.
S. 1. þriðjudag voru leiknir 3
leikir í yngri flokkum Týs og Þórs
fóru allir leikirnir fram á malar-
vellinum.
Úrslit urðu sem hér segir:
5. fl. a.: Týr — Þór 5—0.
5. fl. b). Týr _ Þór 0—0.
3. fl. Týr _ Þór 2 — 4.
ÍBV — KEFLAVÍK.
Næstkomandi laugardag verður
leikinn hér leikur í 1. deild milli
ÍBK og ,ÍBV. Má geta þess til gam
an, að bæði Akureyringar og Val-
ur hafa sigrað ÍBK og gegn Svart-
Weiss töpuðu þeir með 4 gegn 1.
Verður þessi leikur án efa mjög
spennandi og ætti hann að geta
skýrt mjög styrkleika liðanna í 1.
deild.
GRASVÖLLURINN GIRTUR.
Til þess að létta innheimtu hef-
ur verið komið upp bráðabirgða-
girðingu kringum grasvöllinn inn
við Hástein, en sem kunnugt er
krefst þátttaka í 1. deild mikils
fjármagns og er þess að vænta að
venju, að menn bregðist drengilega
við og reyni að hafa andvirði mið-
ans tilbúið til að flýta fyrir allri
innheimtu.
Reiðhestur
til sölu.
Upplýsingar í síma 1001.
MUNIÐ — kærufrestur til skatts
og útsvars rennur út kl. 12 á mið-
nætti annað kvöld, 14 .júní.
Lóðahreinsun
Hér með er skorað á húseigend-
ur að hreinsa lóðir sínar og lendur
sem allra fyrst.
BÆJARSTJÓRI.
NÝKOMIÐ!
Gardínustengur og hringir.
Guðmundur Böðvarsson & Co. hf.
Sími 2061