Framsóknarblaðið - 28.01.1985, Page 1
MÁLGAGN FRAMSÓKNAR-
OG SAMVINNUMANNA 1
VESTMANNAEYJUM
1. tölublað
44. árgangur
Vestmannaeyjum,
28.janúar 1985
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFÉLAG
VESTMANNAEYJA
VIRÐING
BÆJARSTJÓRNAR
Meöal fyrirheita núverandi
bæjarstjórnarmeirihluta var aö
stórauka virðingu bæjarstjórn-
ar hér í Vestmannaeyjum. beir
sögöust ætla að stjórna sjálfir
og breyta til hins betra. Þeir
lofuðu að létta álögum á bæjar-
búum og hneyksluðust á verði
heita vatnsins. Þeir lofuðu líka
að spara á öllum sviðum bæjar-
rekstursins, þannig að vaxandi
fjármagn kæmi til fram-
kvæmda, þar með skyldu þeir
ljúka við að malbika gatnakerfi
bæjarins á kjörtímabilinu. Og
átthagaástin Ijómaði eins og
morgunroði á vordegi, það átti
að græða upp fjöllin og gera
Vestmannaeyjar að nýju og
betra Gósenlandi þar sem
smjör drypi af hverju strái.
Málflutningur núverandi
meirihluta var fyrir kosning-
arnar einbeittur og hiklaus,
enda varð þeim, sem að honum
stóðu að ósk sinni, þeir unnu
kosningarnar, og fengu það
sem þeir kölluðu samhentan og
sterkan meirihluta í bæjar-
stjórninni, sex bæjarfulltrúa.
Orð skulu standa
Nú um áramótin, þegar fer
að síga á kjörtímabilið, er
nokkur reynsla komin til sög-
unnar. Því verður þess vart, að
bæjarbúar eru farnir að bera
saman framvindu bæjarmál-
anna við fyrirheitin fyrir síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar.
Bæjarfélagið hefur mikil við-
skipti við bæjarbúa, og þar
gildir sú almenna regla, ætli
menn að halda trausti, að
standa við orð sín. Nú er þess
skemmst að minnast, að á árinu
sem var að kveðja, voru Vest-
mannaeyingar krafðir um þau
hæstu útsvör, sem um var að
ræða hérlendis, eða alveg í
toppnum á því sem lög leyfa.
Heita vatnið hafa sömu
hækkað um hátt í 200%, svo
allir finna fyrir því, að þeim
varð hált á hneykslunarhell-
unni. Þannig eru nú efndirnar á
loforðunum um stórlækkaðar
álögur á bæjarbúa. Og vissu-
lega örlar nú víða á vonbrigð-
um og sársauka hjá því fólki,
sem í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum kaus Sjálfstæðis-
flokkinn í þeirri trú, að meira fé
vrði eftir í buddunni. Og slíkt
framferði, að lofa stórlækkuð-
um álögum, en standa ekki við
það, nema síður væri, erekki til
að auka hróður bæjarstjórnar.
Spurningarmerki
Fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar kom það skýrt fram, að
höfuðbaráttumál sjálfstæðis-
manna var að „hreinsa” til í
Ráðhúsinu. Þar var fyrst og
fremst um að ræða bæjarstjóra
og skrifstofustjóra þó fleiri
væru nefndir. Þeir voru kallaðir
Ráðhúskarlar, og taldir óhaf-
andi. Og það mega þeir eiga,
sjálfstæðisfulltrúarnir í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja, að þetta
kosningafyrirheit stóðu þeir
við. Sem varúðarráðstöfun var
forseti bæjarstjórnar settur inn
á bæjarskrifstofurnar til að
fylgjast með Páli þessa daga,
sem hann átti eftir að gegna
bæjarstjórastarfinu. Þar að auki
kom það fram, að bæjar-
stjórnarmeirihlutinn vildi ekki
nvta starfskrafta Páls til
annarra verka, sem hann var
bundinn við bæjarfélagið.
Hvernig hægt er að koma þessu
athæfi heima og saman við
samsæti og heiðursgjöf. sem
sömu menn veittu honum í
þakklætisskyni fvrir vel unnin
störf fyrir bæjarfélagið er
spurningarmerki.
Sigurður ætlaði sér
sætið hans Páls
Sigurður Jónsson krafðist
þess að verða bæjarstjóri, en þá
strax kom brestur í samfrost
hins sterka meirihluta, svo
hann fékk ekki sætið. Það var
ráðinn efnismaður með góða
menntun í bæjarstjórasætið. En
böggull fylgdi skammrifi, Sig-
urður Jónsson komst inn á
bæjarskrifstofurnar, með held-
ur betur starfslýsingu, sem
beinlínis er gerð til að skerða
svið bæjarstjórans. Þar með var
verið að staðfesta marggefnar
yfirlýsingar um að þeir „ætluðu
að stjórna sjálfir". Nú er bæjar-
félagiö að verulegu leyti eins og
Framhald á 3. síðu
Sjálfumglaðir
sjálfstæðismenn
AII undarlegur málflutning-
ur hefur verið viðhafður af full-
trúum sjálfstæðismanna á
síðum Fylkis nýlega. Ber þar að
sjálfsögðu hæst talsmann meiri-
hlutans í bæjarstjórn. Enda-
laust tal um eigið ágæti og á hve
frábæran hátt núverandi meiri-
hluti hafi stjórnað bænum og
síðast en ekki síst, hve ótrúleg
afrek þeir hafi unnið við aö
lækka álögur á íbúa í þessum
bæ.
Lítið fer fyrir tali
um hitaveitu-
hækkanir
Aftur á móti hef ég hvergi
rekist á sjálfumglaðar frásögur
af lækkunum á hitaveitunni. í
þeim málaflokki hafa sjálf-
stæðismenn hljótt um sig og
undrar mig ekki á því.
Rafveitan
Það hlýtur að vera hverjum
bæjarfulltrúa ánægjulegt að
geta tekið þátt í að heildsölu-
verðshækkanir á rafmagni
komi ekki að fullu til kaupenda
hér, eins og reyndin var á fyrir
skömmu síöan. Allt aðrir menn
gerðu þær ráðstafanir og tóku
þær ákvarðanir sem þurftu á
viðkvæmum tíma eftir gos,
ákvarðanir sem hafa dugað og
þeim var fvlgt eftir. Það kemur
nú í hlut þeirra nýsestu að taka
viö svo góðu. Það er bara að
hafa þetta á hreinu.
Útsvarið
Skollaleikur sem settur er á
svið nú út af útsvarsprósent-
unni er slíkur að ekki er hægt
annað en benda á nokkur
atriði. þannig að heiðarlegt fólk
geti sæmilega áttað sig á hvers
lags apa- og slönguleikur er hér
á ferðinni.
A síðasta ári var hæst leyfi-
lega útsvarsálagning 11%. Á
síðasta ári nýttu sjálfstæðis-
menn sér að leggja á hæsta
leyfilega útsvar hér eða 1 1%.
Nokkur önnur sveitarfélög sem
við höfum gjarnan borið okkur
saman við voru í fvrra með
lægri álagningu. frá 10.5% upp
í 10,8%, en svo voru önnur sem
lögöu á með fullum þunga eða
I f%.
Allflest sveitartelög eru og
Að mestu úr NT:
Barist á Gauknum
Eiður Guðnason var nokkuö
skemmtilegur á opnum fundi
sem haldinn var á ölstofunni
Gauk á Stöng nýlega. Það er
ágætis nvmæli hjá þeim sem
eiga Gaukinn að halda svona
fundi á sunnudögum því að fátt
er betra í mátulegri þynnku en
að hlýða á væg skemmtiatriði.
Fyrir utan það að stjórnmála-
menn eru jafnvel skemmtilegri
á slíkum stundum en öðrum.
Eiður gerði laun þingmánna
m.a. að umtalsefni og sagði þá
drjúga að ná sér í aukatekjur.
t.d. hefði einn þingmaður
komið fram í stöhvarpinu fyrir
skömmu og auglýst eitthvert
vöðvastyrkjandi efni. Það hefði
revndar verið sá þingmaður
sem minnst þyrfti á slíkri styrk-
ingu að halda skv. reynslunni.
(Innskot Árni Johnsen). Að
auki auglýsti hann vöru sem
sem væri í harðri samkeppni við
lýsisframleiðendur í Eyjum.
Eiður benti á að formaður
Sjálfstæðisflokksins gæti t.d.
auglýst stóla með góðum ár-
angri og þriðji þingmaður
flokksins á Suðurlandi Eggert á
Bergþórshvoli hlvti að vera
kjörinn í það að auglýsa
slökkvitæki (var þá hvíslað í
salnum að sá maður gæti vænt-
anlega einnig auglýst hross).
Á fundinum kom fram gagn-
rvni frá Kvennaframboðinu á
Bandalag jafnaðarmanna. Þær
Framhald á 4. síðu
413941
i ‘,t i' m ;; b
hafa verið að lækka álagning-
una á þessu ári, og er það
eðlileg þróun því hagur sveitar-
félaga batnaði verulega á síð-
asta ári, þó því miður hafi ekki
miðað nógu vel hér.
Ihaldinu í óhag
Þar sem fyrrnefndur tals-
maður meirihlutans hefur
gaman af því að rugla með
tölur, er rétt að benda honum á
ákveðna staðreynd: í tíð fyrr-
verandi meirihluta var hæsta
leyfilega útsvarsálagning
12,1 % en ekki var lagt á nema
11.55% sem eru 94,5% af þá-
verandi hæstu útsvarsprósentu.
Nú aítur á móti. þrátt fyrir allt
sjálfshólið, lögðu sjálfstæðis-
menn útsvar á í fvrra með
fullum leyfilegum þunga, eða
100%. Hærra er ekki hægt að
komast. í ár aftur á móti lækkar
álagningin örlítið og fer í
10,8% sem er 98,18% af hæstu
leyfilegri álagningu. 95,45% í
tíð vinstri manna en 98,18%
nú. Það þarf ekkert að ræða
þetta meir.
Fasteignagjöldin
Fátt hefur glatt þá sjálf-
stæðismenn eins og fasteigna-
gjöldin. Rróðlegt er að bera
saman í forsendum tjárhags-
áætlunar fyrir árið í fyrra
hækkanir á fasteignagjöldum
og launum. Það er best að
klippa það bara beint út svo
allir geti séð.
Hér á oftir fyltjir greinargerð vegna gerðar fjárhagsáætlunar 1984.
Verða hér á eftir raktar helstu 'forsendur og gerð grein fyrir ákveðnuin
iióum.
Re’knað er með _15i hækkun á laun frá niðurstöðu ársins 1983.
Reiknað er með 25% hækkun á rekstrarliðum milli ára.
Fasteignagjöld hækka um 47%.
Launatengd gjöld eru 12,5% af launum.
Að öðru leyti verður fjallað um forsendur fyrir hvorum lið innan
málaflokksins.
Þannig var það nú í pottinn búið
Enn frekari
lækkanir
í blöðum sjálfstæðismanna
er miklu plássi eytt í að revna
að koma fólki í trú um að hér
hafi verið um einhverjar veru-
legar lækkanir á íbúa í bænum
eftir að þeir tóku til við að
stjórna. Hitaveitan, blessaður,
við minnunrst bara ekki á hana,
stöðugar hækkanir sem eru
stærstu kosningasvik sem vitað
erum hér í Evjum. Hvað meö
lækkun á dagvistunargjöldum?
Aldrei heyrt á þær minnst, enda
alltaf verið að hækka. Svona
væri hægt að þylja áfram.
En. ánægjulegt væri þó ef
sjálfumglaðir sjálfstæðismenn
tækju sig til á þessu ári og
lækkuðu vfirdráttinn á hlaupa-
reikningi bæjarsjóðs í bankan-
um. Það nvtu sjálfsagt margir
góðs af þeim peningum sem
þannig kæmu til umráða
bankans aftur. —A.