Hamar - 08.06.1946, Side 2
2
H A M Á R
Prestaskipti vid
Fríkirkjuna
VETTVANGUR
HAMAR
Útgefandi: Sjálfstæðisflokkuiinn
i Hafnarfirði.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Þorleifur
Jónsson (Símar: 9099 og 9228).
Afgr. í Sjálfstæðishúsinu, Strand-
götu 29, kl. 2—5 e. h. Sími 9228.
Hamar kemur út einu sinni í viku.
Áskriftarverð lcr. 25,00 á ári
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
30. júní
Sunnudaginn 30. júní eíga
að fara fram í landinu fyrstu
alþingiskosningarnar eftir að
ísland endurlieimti frelsi sitt
til fulls og gjörðist lýðveldi.
Það er margt sem bendir
til þess, að meginþorri þjóð-
arinnar muni ganga til þess-
ara kosninga undir merki
þeirrar þjóðmálastefnu, sem
ætíð bar liæst í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar, —
þeirrar stefnu, sem ein var
þess megnug að sameina
vilja allrar þjóðarinnar til
lokaátaksins í þeirri baráttu
fyx-ir tveimur árum, — þeirr
ar stefnu, sem síðan hefir
haft forystuna um það, að
treysta meginstoðir efnaliags
legs sjálfstæðis þjóðarinnar
með margföldun framleiðslu
tækjanna og eflingu atvinnu
lífsins, — og þessi stefna er
sjálfstœ'öisstefnan.
Sjálfstæðisflokkurinn er
eini flokkurinn í landinu,
sem nú gengur lieill og ó-
skiptur til þeirrar kosninga-
baráttu, sem framundan er.
Hann er eini flokkurinrt,
sem skilur til hlítar, liversu
lífsnauðsynlegt það er binu
unga lýðveldi, að frjálsir og
framtakssamir einstaklingar
séu studdir og livattir af í'ík-
isvaldinu til starfs og at-
liafna til ávinnings fyrir
þjóðarheildina, en ekki þok-
að til bliðar vegna íhlutun
arsemi ríkisins. —
Hinir stjórnmálaflokkarn-
ir liafa ekki þessi sjónarmið
sem heild, en vissulega eru
í þeim ýmsir menn, fleiri
eða færri, sem viðurkenna í
lijarta sínu stefnu sjálfstæð-
rnanna í framfaramálum
þjóðai'innar, og er núvei-andi
stjórnarsamvinna gleggst
vitni um þetta.
En þessir menn í hinum
flokkunum verða venjulega
að láta í minni pokann fyr-
ir þjóðnýtingarpostulnm og
einræðisseggjum flokka
sinna.
Og þess vegna er það, að
þessir flokkar ganga nú til
kosninga meira og minna
sjálfum sér sundurþykkir, og
Nýlega hafa orðið presta-
skipti við Fríkirkjuna hér í
bænuin.
Séra Jón Auðuns lét af störf-
um eftir 16 ára þjónustu við
kirkjuna, en við starfinu tók
cand. theol. ICristinn Stefáns-
son, og var liann vígöur til
kirkjunnar þann 22. apríl s. 1.
Séra Jón Auðuns flutti fyrstu
messu sína í kirkjunni þ. 27.
apríl 1930, en vígðist til safnað-
arins þ. 17. ág. sama ár. Hann
kvaddi söfnuðinn með guðs-
þjónustu í kirkjunni þann 28.
apríl s. 1. Hann var kosinn dóm-
kirkjuprestur í Reykjavík á
síðaslliðnum vetri, þegar séra
Friðrik Hallgrímsson dómpró-
fastur lét þar af störfum fyrir
aldurs sakir, eftir langa þjón-
ustu.
Séra Jón Auðuns ávann sér
miklar vinsældir og virðingu
hvers manns, meðan hann
dvaldi og starfaði hér í hæn-
um, bæði sem prestur innan
kirkju og utan og einnig vegna
sérstakrar prúðmennsku í öllu
dagfari, alúðar og hlýju í við-
móti við hvern sem í hlut átti,
háan sem lágan.
Um störf hans sem prests
og kennimanns skal ekki fjöl-
yrt hér, enda óþarfi, þar sem
liann er þegar víðrómaður sem
einn af glæsilegustu prestum
landsins, bæði sökum afburða
ræðumennsku og kreddulausrar
víðsýni í andlegum málum.
Miðvikudagskvöldið fyrir
Uppstigningardag liélt fri-
kirkjufólk og nokkrir aðrir
hæjarhúar séra Jóni og konu
hans kveðjusamsæti að hótel
„Þresti“.
Var samkvæmi þetta fjöl-
mennt og rnargar ræður fluttar,
séra Jóni þökkuð störf lians
hér í bænum á liðnum 16 ár-
um og honum og konu lians
árnað allra heilla og blessunar
í framtíðinni.
Komu greinilega í ljós í þessu
samkvæmi þær einlægu og al-
mennu vinsældir, sem séra Jón
Auðuns nýtur lijá Hafnfirðing-
um.
Við þetta sama tækifæri var
hinn nýi prestur Fríkirkjunn-
ar, séra ICristinn Stefánsson,
boðinn velkominn til starfsins,
en ltann og kona hans voru
gestir samkvæmisins.
einn þeirra — Fraxnsóknar-
flokkurinn — beinlínis klof-
inn í tvo flokka, númer eitt
og númer tvö.
Það virðist því ekki þurfa
neina spádómsgáfu til þess
að sjá fyrir, hver vei'ði veg-
ur þessara flokka að kosn-
ingum loknum, enda er vit-
að, að þeir liafa búið sig
undir það að tapa.
Hinsvegar gengur Sjálf-
stæðisflokkurinn ótrauður,
heill og sjálfum sér samþykk-
ur til baráttunnar.
Þess vegna mun ltann
vinna.
Séra Kristinn liefir ekki veriö
þjónandi prestur áður. Hann
lauk guðfræðiprófi með hárri
einkunn árið 1928 og stundaði
síðan framhaldsnám í Þýzka-
landi. Eftir það veitti liann for-
stöðu um nokkurt árabil Reyk-
holtsskóla í Borgarfirði, en varð
að hætta því starfi sökum
lieilsubrests. Síðustu árin liefur
liann gegnt störfum hjá Kirkju-
málaráðuneytinu og mun halda
þeim störfum áfram ásaxnt
prestsstarfinu.
Séra Kristinn liefur í lengri
tíð tekið mikinn og virkan þátt
í starfi Góðtemplarareglunnar
og liefur nú um nokkurra ára
skeið gegnt embætti Stórtempl-
ars. Nýtur hann mjög mikils
trausts og almennra vinsælda
innan' Reglunnar. —
Séra Kriatinn er gáfaður mað-
ur, víðsýnn og velviljaður, og
vænta menn sér alls hins bezla
af honum sem presti í Frí-
kirkjusöfnuðinum.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafn-
arfirði liefur nú starfað í 33 ár,
var stofnaður 18. apríl 1913. —
Söfnuðurinn er ekki ýkja fjöl-
mennur, en innan hans ríkir
mikil samheldni og samstarf.
Innan safnaðarins starfa tvö
félög, kvenfélag og hræðrafélag,
sem livoru tveggja vinna ötul-
lega að liag og heill kirkjunnar
og eflingu safnaðai-lífsins í livi-
vetna. Þ. J.
Tilgangur þessa þáttar.
Ætlast er til, að þessi þáttur, vett-
vangur vikuunar, koiui reglulega út
í liverju 6137(1, og er h'ugmyndin, að
hann flytji lesendum sínum ýmislegl
úr daglegu lífi hæjarhúa. — Jú, og
við hverju má þá hijast? Verður það
ekki efst á baugi að nöldra, nöldra
yfir því, sem aflaga fer lijá einstak-
lingum og hjá bæjarfélaginu í heild?
Jú, vafalaust verður það. Við erum
nú einu siniii svo gerð, að okkur
þykir gaman að narta svolilið í ná-
ungann, halda á loft því, sem miður
er. En þessháttar hvíslmn við bara
að hezlu vinum okkar í fyllsta trún-
aði, því að við viljum ómögulega að
eitthvað ljótt urn þennan eða hinn,
þessa eða hina, sé haft'eftir okkur.
Munurn þa'S, sem vel er gert.
En jafn minnug og eftirtektarsöm
og við erum á misgjörðir náungans,
þá erum við gleymin og blind fyrir
því, sem gott er í fari hans og hann
hefur vel unnið. Það verður því
einnig tilgangur þessa þáttar, að gela
góðra verka, sem eru til sóma þeim,
sem unnið liafa og öðruin til gagns.
Alit lesandans.
Þó að ég vilji e. t. v. hafa orðið
að inestu leyti og láta ljós mitt skína,
er mjög nauðsynlegt, að lesendurnir
sjálfir fái að koma fram með álit sitt,
aðfinnslur sínar á því, scm aflaga
fer og þakkir sínar fyrir það, sem
vel er gert.
Hugmyndin er því sú, að í þessum
þælti fái bæjarbúar að ræða um
VIKUNNAR
ýmis ábugamól sín, og verða birt
bréf, kaflar úr þcim eða efni þeirra
að einhverju lcyli, ef þau þykja eiga
erindi til lesenda blaðsins.
Bærinn okkar.
Okkur þykir öllum vænt um bre-
inn okkar, enda viljum við, að hann
líti sein bezt út, sé hreinn og snyrti-
legur, eftir því sem liægt er. Noklc-
ur áherzla verður því lögð á, að þessi
þáttur veiti almenningi rúm til að
ræða uin á livern hátt sé hezt og
ódýrast að fegra bæinn og bæta úr
því, Sem aflaga fer, enda er nauð-
synlegt að raunhæfur árangur náist
í þessum efnum.
Fólk jœr aö svara fyrir sig.
Vel getur verið, að eitllivað hirtist
í vettvangi vikunnar, sent er þess
eðlis, að einstaklingum eða stofn-
unum þylci nærri sér höggvið, af
mér eða öð'rurn, og mundi þá lilut-
aðeigandi fá rúm í þessum þætti til
að bera hönd fyrir höfuð sér. Enda
verður kappkostað, að málin liggi
sem ljósust fyrir og það eitt haft,
sem réttast reynist.
Nöjn.
Ég vil vekja athygli þeirra, sem
koma til með að senda þessum þætti
bréf, sem þeir vilja fá birt að ein-
hverju eða öllu leyti á því að þeir
verða að láta fylgja fullt nafn og
heimilisfang, þó að það komi ckki
fyrir augu ahuennings. Bréf, sent
send verða þessum þætti, skal skrifa
utan á til blaðsins og merkja þau
vettvangi vikunnar.
V eSrið.
Það er gamall og nýr siður hjá
okkur íslendingtim að tala um veðr-
ið, þegar við hittumst á förnum vegi.
Ég held því að það ætti ekki að
hneyksla neinn, þótt ég minntist á
þá veðurblíðu, sem verið liefur und-
anfarna daga og vikur. Ég hitti ný-
lega mann norðan úr landi, og sagði
hann að enginn í sinni sveit teldi
sig muna jafnmikinn gróður í maí-
lok eins og nú í vor. Við erum og
megum líka vera þakklát fyrir að vcl
vori, þeim mun auðveldara eigum við
með að lirista af okkur skammdegis-
drungann og ganga að vinnu glöð,
hraust og iðandi af lífsfjöri og starfs-
löngun.
En jlest dregur dilk á eftir sér.
Þótt við fyllumst fögnuði, þegar
veðurhlíðan er inest og sólin skín
skærast, þó fylgir hvimleiður dilk-
ur, göturykið, sem fyllir skilninga-
vit okkar og er á margan hátt til
ama og óþæginda. — Er það sér3íak-
lega tilfinnanlegt í hæ eins og Hafn-
arfirði, sein hefur aðeins nokkurn
hluta af einni götu steyptan og enga
götu malbikaða.
Barnaleikvellir.
En þótt illt sé fyrir fullor&ið fólk
að þola göturykið, þá er það miklu
verra fyrir börnin, en þau hafa litið
annað en götuna að leika sér á, fari
þau út fyrir húsdyr. Barnaleikvellir
eru engir til hér í bæ, eins og er,
þó er hafin bygging á einum leik-
velli, en það er mjög lítil úrbót. —
Bæjaryfirvöldin verða að sjá sóma
sinn í því, og sýna það í verki, að
þau virði betur hér eftir en liingað
til þarfir og tilverurétt minnstu borg-
ara þessa bæjar.
VILLI VILBERGS.
Illllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Grðsending til
sjálfstæðisfólks
\
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksiiis í Hafnarfirði beinir
eftirfarandi til kjósenda flokksins og annarra sluðnings-
manna í bænum:
1. Gerið skrifstofunni sem allra fyrst aðvart urn þá
sjálfstæðiskjósendur, sem þið vitið að muni dvelja
utanbæjar á kjöi'degi.
2. Kjósendur flokksins, sem fara úr bænum fyrir kjör-
dag, eru minntir á að kjósa hjá bæjarfógeta áður
en þeir fara.
Skiúfstofa bæjarfógeta er opin alla virka daga frá
kl. 10—12 f. h. og 1—4 e. h.
3. Kosningaskrifstofa flokksins er í Sjálfstæðislnisinu
og er opin alla daga. — Sími 9228. — Þar eru
gefnar allar leiðbeiningar og upplýsingar varðandi
alþingiskosningarnar.
4. Komið á skrifstofuna til skrafs og ráðagerða.
Stuðlið að því, með starfi ykkar, að öll atkvæði,
sem sjálfstæðisstefnan á í bænum, komi til skila.
5. Munið, að framgangur Sjálfstæðisflokksins tryggir
framtíð livers þjóðfélagsþegns, og um leið andlegt og
efnalegt sjálfstæði þjóðarinnar í heild.
6. Gleymið aldrei, að sigur sjálfstæðisstefnunnar er
einnig sigur þjóðarinnar.
Heil til starfa í krafti þeirrar staðreyndar!
FULLTRÚ ARÁÐIÐ.
iiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin