Hamar - 29.03.1947, Page 2

Hamar - 29.03.1947, Page 2
2 HAMAR Vettvangur vikunnar. HAMAR Útgefandi: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði. Ritstjóri og óbyrgðann.: Þorleif- ur Jónsson (Simi 9152—9228). Afgr. í Sjálfstæðishúsinu, Strand- götu 29, kl. 5-7 e.h. Simi 9228. Hamar kemur út einu sinni í viku. — Áskriftarverð kr. 25,00 á ári. Prentsmiðja Hafnarf jarðar h.f. Flotinn eykst - en öryggiö ekki Bátaflotinn í HafnarfirSi hef ir farið ört vaxandi síðustu tvö árin og útgerð héðan á vetrarvertíð hefir aukizt að sama skapi, og þó heldur bet- ur, því að margir utanbæj- arbátar hafa stundað veiðar héðan. Á þessari vertið ganga héð- an til veiða 20 vélbátar, þar af 7 aðkomubátar og hefir sjó- sókn héðan á slíkum fleytum aldrei verið meiri en nú. — Auk þessara háta eru heim- ilisfastir hér í bænum 4 stórir vélbátar, sem undanfarin ár hafa stundað fiskflutninga á vetrum og síldveiðar á sumr- um, einn 60 lesta • bátur, sem nú stundar botnvörpuveiðar frá Reykjavík og eitt línuveiða- gufuskip, sem stundað hefir síldveiðar á 'sumrum og fisk- flutninga á vetrum. Verið er nú að byggja tvo vélbáta í skipasmíðastöðvum bæjarins, væntanlega báða fyrir Hafn- firðinga; bendir það og ýmis- legt fleira til þess, að báta- flotinn hér í bænum fari enn stækkandi á nálægum tímum. Togaraflotinn í bænum hef- ir ekki enn vaxið að sama skapi; ganga nú héðan 9 tog- arar, þar af einn, sem skrá- settur er utan bæjarins. En að því er bezt er vitað munu 6 nýir togarar bætast við þenn- an flota á yfirstandandi ári. Eru því allar líkur til þess, að þeir bátar og skip, sem þurfa að athafna sig hér í höfninni á næsta ári, verði á milli 40 og 50 að tölu, og er það enginn smáræðis floti hjá ekki stærri bæ en Hafnarfjörður er. Vafalaust er það öllum góð- um Hafnfirðingum hið mesta gleðiefni, hversu þessum mál- um er nú komið hér í bænum, því að það getur enginn, sem til þekkir, gengið þess dulinn, að útgerðin og það, sem af henni flýtur, hefir verið, er og verður jafnan aðallífæð bæj- arins. Vöxtur hennar og þeirra athafna, sem henni fylgja, þýð ir vöxt og viðgang bæjarfélags- ins. Það er útgerðin, sem að langsamlega mestu léyti brauð- fæðir og klæðir Hafnfirðinga, og rennir stoðunum undir það menningarlíf, sem hér þróast á hverjum tíma. Stækkun veiði skipaflotans og vöxtur útgerð- arinnar er því, eins og áður er sagt, hið mesta ánægjuefni. En hér ber þó einn skugga á, og hann stóran og dimm- an — en það er öryggisleysið og skorturinn á hæfilegri að- búð fyrir þennan stóra flota. Það er hvorttveggja, að hafn armálið, þ. e. bygging vamar- garða fyrir höfnina og þau mannvirki innan hennar, sem skipin verða að athafna sig við, átti lengi vel erfitt uppdráttar vegna rangsnúinnar andstöðu viljaleysis og þverúðar Alþýðu- flokksmeirihlutans í bænum, enda hafa framkvæmdimar, eftir að loks var hafist handa, orðið eftir því, undir hand- leiðslu sama meiri hluta og þeirra aðilja annara, sem sjálf- kjörnir hafa þótt till að hafa yfirstjórn þessara mála með höndum. Gangur þessa máls skal ekki frekar rakinn hér að þessu sinni enda tæplega þörf, þar sem hann er flestum næsta kunnur af ræðum og ritum Sjálfstæðismanna og annarra, sem um langt árabil hafa þrot- laust unnið að því, að þetta mál yrði giftusamlega fram- kvæmt. En um það, hversu þungur sá róður hefir verið, ber gleggstan vottinn garðstúf- urinn að norðanverðu við höfnina, sem er sá eini sjáan- legi árangur af aðgjörðum meiri hluta mannanna í hafn- armálinu. Þessi garðbútur, sem er talið að kosta muni hátt á fjórðu milljón króna, er þó hvorki fugl né fiskur og veitir. því- hvorki skipum né mannvirkj- um í höfninni neitt skjól svo teljandi sé. Gleggsta sönnunin fyrir þessu og sú, sem skemmst er að minnast, er. þegar vél- bátinn „Ásbjörgu“ sleit upp frá bólinu á höfninni s. 1. mánudagsnótt og rak upp í stór grýtið fyrir framan Hamarinn, og stórskemmdist, ef ekki eyði- lagðist alveg. Um þennan atburð segist framkvæmdarstjóra félagsins, sem á bátinn, Jóni Halldórs- syni skipstjóra, svo frá í viðtali við „Morgunblaðið“ 25. þ. m.: „Siðari hluta sunnudagsins var orðið allhvasst á norð-vestan í Hafnarfirði og spáð var áfram- haldandi hvassviðri og sjóa- samt við bryggjurnar. Voru því allir bátar, er múrningar áttu í höfninni, fluttir að þeim, þar eð bátaeigendur töldu það tryggara en að þeir lægju við bryggju“. (Allar leturbr. gjörðar hér). Þessi athyglisverðu ummæli hins glögga og reynda sjó- manns og útgerðarmanns, þarfnast engra skýringa. Svo lítils virði er það skjól, sem hafnargarðsstúfurinn veit- ir bryggjunum, ef hann gerir norðvestan gerru, að bátarnir hafa þar ekkert friðland og eigendur þeirra telja það tryggara, að flytja þá þaðan’ út á höfn, þar sem þeir hljóta að verða leiksoppar hafsjó- anna, sem veltast nær óbrotn- ir inn yfir höfnina í þessari veðurátt. Þetta er þá allt öryggið, sem fiskimannabærinn Hafnarfjörð ur getur, eins og sakir standa, veitt hinum stóra og enn vax- andi skipaflota sínum. — Á sama tíma geta smáveiðistöðv- ar með nokkur hundruð íbúa og lítinn skipaflota miðað við Hafnarfjörð, státað af því og það með réttu, að hafa komið sér upp öruggri höfn með góð- um skilyrðum til athafna. Það ætti nú að vera orðið öllum Hafnfirðingum ljóst, að lengur má ekki svona til ganga í hafnarmálum bæjarins. Sinnuleysið, sleifarlagið og vetl ingatökin í því máli mega ekki lengur líðast. Hefjast verður þegar handa um að ljúka við hafnargarð- inn að norðanverðu og sam- tímis búa sig undir að hefja byggingu suðurgarðs og út- byggingu hafnarinnar að sunn anverðu. Þessu verki verður svo að hraða eftir því sem föng eru á. örugg, lokuð höfn, og at- hafnaskilyrði og aðbúð sam- kvæmt kröfum tímans fyrir skipaflotann innan hafnarinn- ar, er það, sem bezt tryggir afkomu, vöxt og viðgang Hafn- arfjarðar, — og þetta hvort- tveggja verður að koma hið bráðasta. Aöalfundur Iðnaðarmanna- félagsins. Iðnaðarmannafélagið í Hafn arfirði hélt aðalfund sinn fimmtudaginn 27. febrúar s. 1. Formaður félagsins Guðjón Magnússon gaf yfirlit yfir starf félagsins síðastliðið ár, sem var með sama hætti og áður. Fundir voru haldnir mán aðarlega, vetrarmánuðina, og voru á þeim flestum fluttir fræðandi fyrirlestrar um iðn- aðarmál og fleira. Árshátíð og jólatrésskemmtun hélt félagið og tókst hvorttveggja mjög vel. Margir nýir félagar bættust við á árinu og er nú tala fé- lagsmanna 106. Stjómin var öll endurkosin, að undanskildum varafor- manni, er baðst undan endur- kosningu. Stjórnina skipa nú: Form. Guðjón Magnússon skó- smíðameistari, varaf. Kristinn J. Magnússon málarameistari, ritari Þóroddur Hreinsson hús- gagnasmíðameistari, gjaldkeri Ásgeir G. Stefánsson bygginga- meistari, fjármálaritari Magn- ús Kjartansson málarameistari. BREYTENG TIL BÓTA? Sú breyting hefur orðið, að póststjórnin hefur tekið í sínar hendur fólksflutningana milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Þó verður ekki annað sagt en sumir aðilar, og þó sérstaklega Á. B. H. hafi stundað þá flutn- inga með afbrigðum vel. Má vel fara, ef Hafnfirðingar hafa ekki ástæðu til að harma, að þessi breyting varð. „VALDIÐ OG BlLARNIR“ Það er ekki laust við það, að fólk sé farið að verða vart við það hver hefur „valdið og bílana“ á þessari sérleyfisleið. 1 gær, þriðjudaginn 25. marz, skeði sú nýlunda að strætis- vagnamir fóm ekki nema suð- ur að Illubrekku, fjómm „stoppi“-stöðvum var sleppt, þar mátti fólkið bíða og bíða án þess að hinn voldugi sér- leyfishafi léti sig það nokkuð skipta, hve miklum óþægind- um og tjóni það yrði fyrir. SLÆMAR GÖTUR Hvers vegna er þetta gert? Jú, svar er á reiðum höndum, vegurinn er svo slæmur að hætta er á að bílamir skemm- ist, ef reynt er að fara hann. Satt er það, að ekki em fyrir- myndar götur hér í bæ, en þær em hvorki betri né verri en þær voru áður en þessi sér- leyfishafi tók við, bílamir em þeir sömu og áður, hvað er það þá. Er það eins og sumir segja, að fólkið sé ver sett réttarlega gagnvart þessum nýja aðila, heldur en hinum eldri? VERUM ÞAKKLÁT Þegar talað var um vonda veginn var átt við nokkrar hol- ur í götunni á móti Suðurgötu 59, og var það látið fylgja. að það.fengist ekki lagað, sem er ósatt. Að vísu bað sérleyf- ishafinn um að það yrði lag- fært s. 1. laugardag og var það gert þá, en síðan var ekki minnst á að vegurinn hefði spillst aftur, heldur bara hætt að fara alla leið. En þegar þess var látið getið, að vegur- inn væri þó vel fær suður að Jófríðarstaðavegi, ja, þá var svo vont að snúa við þar, að ekki voru tök á því. Já, mikið Eins og að undanförnu rek- ur fél. Iðnskólann og em nú um 100 nemendur í honum. Skólastjóri er nú Bergur Vig- fússon, en skólanefndárformað- ur er Emil Jónsson, samgöngu- málaráðherra. Formaður iðn- ráðs er Vigfús Sigurðsson, húsa smíðameistari. Félagið vinnur aðallega að hagsmunamálum stéttarinnar og menntun, en lætur sér þó við koma ýms menningar- og mannúðarmál. megum við vera þakklát, að þessi nýi sérleyfishafi skuli yf- irleitt taka okkur með, þegar honum þóknast að fara að ein- hverju leyti um bæinn. HVlTIR KLÚTAR En verður það ekki svo einn góðan veðurdag, að bílarnir fari að snúa við hjá Tungu? Það hefur stundum komið fyr- ir, að Reykjavíkurvegurinn hef ur orðið holóttur, einkum ofan til, já, svo holóttur, að hætta gæti verið á, að vagnamir skemmdust á því að aka hann. Þá væri ekki úr vegi, að sér- leyfis'hafinn tæki ofan merkin á „stoppi“-stöðvunum eða hengdi á þau hvíta klúta, sem mundu þá tákna það, að veg- farandinn geti staðið þar í friði fyrir áætlunarbílunum. VATNSSKORTURINN Um fátt er talað hér í bæ meira en vatnið, eða réttara sagt vatnsleysið og er það að vonum. Er ekkert hægt að gera til að bæta úr þessum vand- ræðum? Er ekki hægt að minka vatnið til lágbæjarins, eða loka alveg fyrir það ein- hvem tíma á hverjum degi, t. d. kl. 9—12 á kvöldin, ef það gerði öðmm, sem e. t. v. fá aldrei vatn í hús sín, mögu- legt að geta safnað vatni til riæsta dags. ÞAÐ VERÐUR AÐ SPARA VATNIÐ Fólk, einkum í lágbænum, þarf líka að gæta þess mjög vel að láta ekki sírenna, slíkt verður til þess, að fleiri hús verða vatnslaus en ella. Það hefur jafnvel heyrst, að það sé látið sírenna á nýju bryggj- unni af ótta við að frjósi í leiðslunum á smá kafla, þar sem verið er að grafa fyrir vigt. Slíkt er ófyrirgefanlegt, ef satt er, sem vonandi reyn- ist ekki. MJÓLKIN Vegna snjóa og annarra at- vika hefur stundum verið lítið um mjólk hér í bænum. Það vill þá brenna við, að þvi litla sem kemur er mjög einkenni- lega skipt niður. Það er alls ekki dregið af fólki hlutfalls- lega miðað við venjuleg mjólk- urkaup, heldur virðist vera lát- inn einhver handahófsskammt- ur á heimili, hvort sem þar em margir eða fáir, fullorðnir eða börn, og svo er það misjafnt eftir því í hvaða búð það er. Það er hægt að koma með ýms dæmi. T. d. stóðu tveir menn hlið við hlið í mjólkurbúð, annar sótti fyrir tvo og átti að fá tvo litra fyrir hvom, jú, hann fékk tvo fyrir annan og einn fyrir hinn. Hinn maður- inn átti að fá eins og venjulega Frh. á 3. síðu

x

Hamar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.