Hamar - 29.03.1947, Side 3

Hamar - 29.03.1947, Side 3
HAMAR 3 Klæðum landið. Á Sunnudaginn kemur, þ. 30. þ. m., heldur Skógræktar- félag Hafnarfjarðar sinn fyrsta aðalfund, shr. auglýsingu á öðr um stað í blaðinu. Nokkrir Hafnfirðingar, sem sýnt höfðu áhuga fyrir skóg- rækt og landgræðslu, og skilið höfðu hina miklu þýðingu þess fyrir land og þjóð, höfðu áður gerst meðlimir Skógrækt- arfélags Islands, en þegar „sam hand skógræktarfélaga lands- ins“ var stofnað á s. 1. hausti, var Skógræktarfélagi íslands breytt í sambandsfélag, en hér- aðsfélög stofnuð bæði í Reykja- vík og Hafnarfirði. Skógræktarfélag Hafnarf jarð ar var síðan stofnað á s. 1. hausti með rúmlega 150 með- limum, er flestir höfðu áður verið í Skógræktarfélagi ís- lands, en fyrir ötult starf ein- ástakra meðlima, er meðlima- talan nú þegar orðin'mn 500 eða þar yfir, og fjölgar óðum. Væri æskilegast, að sem allra flestir Hafnfirðingar gerðust meðlimir félagsins, og er það ósk félagsins, að bæði ungir og gamlir leggi hér hönd á plóg- inn. Félagið hefur þegar fengið hagkvæmt land til umráða, og allmikla fjárupphæð til girð- ingarefniskaupa, hjá bæjarsjóði og þar sem það hefur yfir að ráða miklu magni af plöntum, getur starfið hafizt af fullum krafti, þegar á þessu vori, og komandi sumri, ef aðeins nægi- legur vinnukraftur er fyrir hendi. Mikill meðlimafjöldi er því mikill styrkur fyrir félagið, bæði sem vinnukraftur, og fjár hagslegur grundvöllur, því að þó að hver meðlimur vinni að- eins fáeinar klukkustundir í fé- lagsins þarfir, og þó að hver meðlimur greiði aðeins kr. 10 á ári, þá skulum við minnast þess, að „margar hendur vinna létt verk“, og að „komið fyllir mælirinn". Það þarf ekki að taka það fram, því að öllum er það ljóst, hversu heilnæmt, nytsamt og þroskandi það er, að vinna að skógrækt og landgræðslu, það vita þeir bezt, sem reynt hafa, fyrir svo utan allt gagnið og fegurðaraukann, sem af því starfi leiðir síðar, bæði öldnum og óbormnn til gagns og ynd- isauka. Hafnfirðingar, gefið þessu máli gaum, takið þátt í starf- inu, gerist meðlimir félagsins, og komið á fundinn á sunnu- daginn kemur. Hafnarfirði 27. marz 1947. Þorv. Árnason Afli Hafnarfjarðarbáta. I síðasta blaði var birt skýrsla um afla bátanna til síð- ustu mánaðamóta og var þá miðað við lifrarmagn hvers um sig en það hefir blaðinu ekki tekist að fá uppgefið fyrir skemmri tíma en einn mánuð í senn. — Verður það birt í næsta blaði fjnir marzmánuð. Hér á eftir verður hins vegar birt skýrsla um róðra- fjölda og fiskafla bátanna til 23. þ. m. og er aflinn þar tal- inn í kílóum, miðað við slægðan fisk með haus. Upplýsingar þessar hefir blaðið fengið hjá Jóni Sveinssyni bryggjuverði og tekur hann það fram, að vel geti verið, að einhverju skakki rnn kílóatöluna hjá einhverjum af bátunum, en það muni þó ekki vera stórvægilegt. — Fer skýrsla þessi hér á eftir: Bátanöfn * Róðrafjöldi Aflaniagn r Stefnir 60 402.510 kg. Björg 47- 401.900 — Hafbjörg 58 385.050 — Fram 54 367.000 — Guðbjörg 60 364.335 — Þráinn 44 362.465 — Fiskaklettur 53 347.860 — Hafdís 50 314.890 — Dröfn 40 303.820 — Draupnir 42 283.765 — Ásbjörg 48 253.258 — Ásdís 50 257.950 — Auður 46 233.290 — Hafnfirðingur 28 226.100 — Auðbjörg 41 224.675 — Hallveig (Valur) 40 194.000 — Valþór 21 164.430 — Vörður 19 161.120 — Emir 19 95.680 — Sædís 20 90.020 — FERÐAPISTLAR Frh. af 1. síðu sinnum minni heldur en með baráttu norska frelsishersins, sem taldi hlutverki sínu lokið, strax og lögleg stjórn landsins gat tekið réttarfarið í sínar hendur og hegnt böðlum þjóð- arinnar ssamkvæmt landslög- um. s, vemison Klæðaverzlun og saumastofa Strandgötu 29 — Sími 9363. Tilkynning FRÁ Tryggingarstofnun ríkisins. Þeir, sem telja sig öðlast rétt til bóta sam- kvæmt lögum um almannatryggingar, eru hérmeð áminntir um að senda umsóknir tafarlaust, er þeir uppfylla skilyrði til bótanna. Eftir lok marzmánaðar verður lífeyrir ekki reiknaður lengra aftur í tímann en frá fyrsta degi þess mánaðar, sem Tryggingastofnunin eða umboðs- maður hennar fær umsóknina, nema alveg sérstak- lega standi á. Reykjavík 14. marz 1947. TRYGGINGASTOFNUN RlKISINS Það var ekki meiningin að ræða hér um frelsisbaráttu Dana, eða annarra þjóða, til þess skortir mig alla þekkingu. En það er trú mín, að vegna ýmissra óhæfuverka og mis- taka þá muni allteins mikið verða gert af Dana hálfu til þess að halda leyndri sögú síns frelsishers, eins og til þess að gera hana heyrum kunna. Á þriðja degi vorum við ferð búnir. Það mun hafa verið laust upp úr hádeginu að við vorum staddir hjá ekkjufrú N. í österbrogade og vorum í óða önn að vígbúast, ef svo mætti að orði komast. Við vörpuðum nú af okkur hversdagslörfun- um og klæddumst nokkurskon- ar einkennisbúningum, sem vafalaust hafa átt að þjóna því göfuga hlutverki að greina okkur vendilega frá hinum svörtu sauðum handan dönsku landamæranna. Upp á vasann bárum við heilan stafla af reisupössum, stimpluðum pappírslöppum, frá fjórum eða fimm þjóðum, og átti þessi ófögnuður að verða þess megnugur að lyfta fyrir okkur hulu leyndardóms- ins frá fordyri alsleysisins inn- an þýzku landamæranna. Eg gat ekki varizt þeirri hugsun, að mikið hefði mátt gera þetta allt saman einfaldara fyrir ferðamenn, aðeins ef þessir passaséffar vildu lofa ofurlítilli glætu heilbrigðar skynsemi að rúmast í höfði sínu, gefa upp þesSa vanþakklátu atvinnu sína og lofa öllum hindrunar- laust að reisa hvar sem þeim svo sýndist. En þetta er nú eini sinni hluti af refskák stjórnmálanna, sem nauðsyn- legt telst að hafa í heiðri, og þessvegna máttum við semja okkur að því, hversu illa sem okkur líkaði. Klukkan þrjú um daginn vor um við ferðbúnir að öðru leyti en því, að við áttum eftir að taka nokkra Rauðakross-böggla, sem voru á skrifstofu sendi- ráðsins. Þangað hugðumst við nú halda. En . . . enginn skyldi lofa dag fyrr en að kveldi. Þegar við áttum okkur sízt ills von, þá uppgötvuðum við að Helgi nokkur Hjörvar hafði af frábærri þefvísi fréttamanns ins runnið á slóðina, og nú skaut honum upp á meðal okk- ar skyndilega og óvænt, eins og illgresi í vel hirtum aldingarði. Eg vil svo ekki eyða áhrifun- um af græskulausu gamni hans um fund okkar í Kaup- mannahöfn, í hinum frægu „frúarbréfum“ sínum, heldur leyfa honum óáreittum að hleypa fák gamanseminnar í sölum útvarpsins, alþjóð til á- nægju og skemmtunar. Að skammri stundu liðinni hvarf svo Hjörvar í mannhafið jafn skyndilega og honum skaut upp á meðal okkar, en við ókum til skrifstofu sendi- ráðsins og hlóðum farangrin- um á bifreiðarnar. Það var komið nokkuð fram yfir miðjan dag, þegar við loks- ins höfðum gengið frá öllum okkar sökum. Dimmt var í lofti og þegar farið að rigna, en þó ekki mikið. Við kvöddum nú Kaupmannahöfn að sinni og ókum sem leið liggur yfir að stóra belti til Korsö. Ráðstaf- anir höfðu þegar verið . gerð- ar til þess að við þyrftum ekki að bíða eftir því að fá bílana ferjaða yfir. Ekki kom þó til þess að við þyrftum að notfæra okkur þessi forréttindi, þar eð nóg rúm var fyrir all- ar þær bifreiðar, er þar biðu. Ferjur þessar eru mjög merki- leg farartæki. Þær flytja heil- ar jámbrautalestir milli dönsku eyjanna, svo og bifreið- ar og fólk. Messa verður í fríkirkjunni á morgun, sunnudag, kl. 2 e. h. séra Kristinn Stefánsson. Framhalds aðalfundur safn- aðarins verður haldinn í kirkj- unni að aflokinni messu. flWP-- TIL LESENDÁ Næsta blað HAMARS kem- ur ekki út fyrr en eftir páska. hefir fermingar töskurnar. VETTVANGUR Frh. af 2. síðu. 5 lítra, hann átti helzt ekki að fá nema tvo, en fékk þó þrjá. Sama stúlkan afgreiddi þetta, en eftir hvaða reglu? Geti mjólkurbússtjórinn ekki gefið fyrirmæli til mjólkurbúð- anna um það, hve mikinn hluta kaupandinn á réttu lagi að fá af því magni, sem hann tekur venjulega, þá verða bæj- aryfirvöldin að taka í taum- ana og tryggja það, að barna- heimilin séu ekki harðast úti, eins og virðist vera með þeirri óstjórn, sem nú er á þessum málum. 26. marz 1947. Villi Vilbergs

x

Hamar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.