Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010 SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS ÍSLENSKA/SIA .I S/ FL U 51 58 8 09 /1 0 FLUGFELAG.IS íþróttir England Meistaralið Chelsea með fjögurra stiga forystu eftir sigur í stórleiknum gegn Arsenal. Didier Drogba skoraði sitt þrettánda mark í þrettán leikjum gegn Arsenal. 7 Íþróttir mbl.is Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Þegar ég tók við hjá Breiðabliki ár- ið 2006 höfðum við fimm ára plan og núna er kannski búið að ná ákveðnum markmiðum af því,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Ís- landsmeistara Breiðabliks í knatt- spyrnu karla, við Morgunblaðið í gær en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið um helgina. „Menn vildu setja sér ný markmið og lengja í þessu hjá okkur. Það voru tvö ár eftir af samningnum sem ég var með og stjórnin vildi lengja í honum. Það er horft til lengri fram- tíðar og mitt hlutverk verður kannski aðeins meira en bara þjálf- un. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra það en það er framhald á því sem við höfum verið að gera, fara dýpra inn í klúbbinn. Ekki nóg að vera með mikil efni Það er talað mikið um að það sé mikill efniviður í Breiðabliki og það er ekki nóg að vera með mikil efni, það þarf að taka á þessu og vinna með þann efnivið,“ sagði Ólafur. Það er ekki óalgengt að menn ætli að byggja upp til lengri tíma og menn séu ráðnir sem þjálfarar til slíks, en svo virðist þolinmæði stjórnarmanna vera mismikil. „Já, það er alveg rétt. Það verður að segja stjórninni hjá Breiðabliki til hróss að hún hefur ekki rekið mig á meðan ég hef verið að vinna þó svo einhverjum hafi kannski þótt ástæða til þess. En stjórnin hélt sig við þau plön sem gerð voru og ég hef fengið góðan frið til að vinna og í þessu felst yf- irlýsing um að það verði áfram. Það eru svo margir þættir, sem eru ekki endilega uppi á yfirborðinu, en þarf að vinna í. Menn geta unnið mót en við höfum sýnt að það er meira um að vera hjá okkur og við erum að skila betri einstaklingum inn í yngri landsliðin þannig að mér finnst það ánægjulegt að ná árangri, eins og hann er skilgreindur, og að leik- menn hjá okkur eru stöðugt að verða betri. Það er kannski þar sem þessi leyndi árangur er sem við viljum styrkja. Það eru strákar í yngri flokkunum sem þurfa að fá meiri áskorun og með það ætlum við að vinna og finna út hverjir eru fram- tíðar-músíkantarnir hjá félaginu,“ sagði Ólafur. Hann sagði hluta af starfinu vera að vinna með leikstíl meistaraflokks niður í yngri flokka. „Það er hluti af starfinu að gera yngri stráka tilbúna að koma í eldri flokka þannig að þeir hafi hæfileika og getu til að koma inn í þann leikstíl sem við notum. Það eru það margar aðrar breytur, eins og líkamsstyrkur, hraði og annað, sem er alveg nóg fyrir strákana að eiga við þó svo þeir þurfi ekki líka að kljást við að skilja til dæmis þjálf- arann þegar hann er að tala um ákveðna hluti,“ sagði Ólafur. Hef fengið frið til að vinna  Ólafur gerði fimm ára samning við Breiðablik  Horft til lengri framtíðar Ólafur H. Kristjánsson Bandaríska kvennalandsliðið í körfuknattleik tryggði sér í gær heimsmeistaratitilinn er liðið lagði Tékka 89:69 í úrslitaleik HM. Spán- verjar urðu í þriðja sæti eftir 77:68- sigur á Hvít-Rússum. Bandaríska liðið tapaði ekki leik í mótinu, en alls lék það níu leiki. Tékkar sigruðu í sex leikjum en töpuðu þremur á meðan Spánn vann sjö og tapaði tveimur. Hana Horakova frá Tékklandi var valin mikilvægasti leikmað- urinn, en hún var með 12,1 stig að meðaltali, 5,5 fráköst og 3,8 stoð- sendingar. Hún var valin í úrvalslið keppninnar ásamt einni banda- rískri stúlku, Diönu Taurasi, Evu Viteckovu frá Tékklandi, Sancho Lyttle frá Spáni og Jelenu Lec- hanka frá Hvíta-Rússlandi. Alþjóðakörfuknattleiks- sambandið, FIBA, tilkynnti í gær að til stæði að lækka körfuhringinn hjá konunum. Þetta var niðurstaða fundar stjórnarmanna, þjálfara og leikmanna. Þetta verður prófað á næstu árum í ákveðnum löndum og í ákveðnum mótum og „ef þetta gefst vel verður reglunum vænt- anlega breytt“, sagði talsmaður FIBA. skuli@mbl.is Þær banda- rísku urðu meistarar Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eiður Smári Guðjohnsen kemur inn í íslenska landsliðið í knattspyrnu á nýjan leik fyrir leikinn gegn Portú- gal. Landsliðshópurinn verður til- kynntur í dag en sem kunnugt er verða sjö leikmenn A-landsliðsins fjarri góðu gamni þar sem þeir munu spila með 21-árs landsliðinu gegn Skotum á fimmtudag og mánu- dag, samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ. Eiður Smári var ekki valinn í landsliðið fyrir leikina gegn Noregi og Danmörku í byrjun september þar sem hann var ekki í góðri æfingu um það leyti. Nú hefur Eiður hins- vegar æft af fullum krafti með Stoke City í mánuð og tekið þátt í tveimur leikjum í úrvalsdeildinni. Hann kom reyndar ekkert við sögu á laugar- daginn þegar Stoke lagði Blackburn, 1:0. Sölvi og Brynjar meiddir Leikurinn við Portúgal fer fram á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn í næstu viku, 12. október. Auk sjö- menninganna sem ekki verða með vantar þá Sölva Geir Ottesen fyr- irliða og Brynjar Björn Gunnarsson, sem eru meiddir, og þá er Hermann Hreiðarsson að sjálfsögðu fjarri góðu gamni sem fyrr af sömu ástæð- um. Það eru því alls tíu af bestu leik- mönnum Íslands fjarverandi fyrir þessa viðureign gegn einu af bestu landsliðum Evrópu sem verður með kappa á borð við Cristiano Ronaldo og Nani innbyrðis. Eiður er með gegn Portúgal Morgunblaðið/Ómar Tilbúinn Eiður Smári Guðjohnsen verður með landsliðinu þegar Ronaldo og félagar mæta á Laugardalsvöllinn á þriðjudaginn í næstu viku.  Tíu sterka leikmenn vantar í lands- liðið fyrir leikinn á Laugardalsvellinum Sif Atladóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í Þýskalandi í gær. Lið hennar, Saarbrücken, vann þá Her- forder, 2:1, á úti- velli og Sif skor- aði fyrra mark liðsins eftir 50 mínútna leik. Þetta var dýrmætur sigur fyrir Saarbrücken sem þar með komst úr næstneðsta sæti deildarinnar og í 9. sætið af tólf liðum. Liðið er nú með 9 stig eftir 8 umferðir en fyrir neð- an eru Jena með 8 stig, Leverkusen með 7 stig og Herforder sem er enn án stiga. vs@mbl.is Sif skoraði fyrsta markið Sif Atladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.