Morgunblaðið - 04.10.2010, Síða 3

Morgunblaðið - 04.10.2010, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010 NÝTT! MARGFALDUR ÁVINNINGUR ÞEGAR ÞÚ SPILAR GOLF HÉR HEIMA OG ERLENDIS Korthafar Premium Icelandair American Express greiða ekkert árgjald í Icelandair Golfers. SLÁÐU HOLU Í HÖGGI! Þú getur sótt um Premium Icelandair American Express á icelandairgolfers.is Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Lið Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi náði heldur betur að rétta sinn hlut í gær þegar þriðja umferð keppninnar fór fram. Staðan fyrir síðasta daginn, þegar leiknir verða tólf tvímenningar, er 9½ vinningur Evrópu á móti 6½ vinningi Bandaríkjanna. Fyrir gærdaginn var staðan 4-6 fyrir Bandaríkin en með frábærri spilamennsku í gær náði lið Evrópu að krækja sér í 5½ vinning en Banda- ríkjamenn aðeins hálfan. Bræðurnir stóðu fyrir sínu Um tíma leit út fyrir að strákunum hans Colins Montgomeries, fyrirliða Evrópuliðsins, tækist að sigra í öllum sex leikjunum, en það hefur ekki gerst síðan Evrópa vann fjórleikinn 4-0 einn daginn á Belfry árið 1989. Íölsku bræðurnir Francesco og Edo- ardo Molinari virtust vera að tapa sínum leik á móti Stewart Cink og Matt Kuchar, en bræðurnir börðust eins og ljón og tókst í tvígang að jafna metin á síðari níu holunum, þar með talið á 18. og síðustu holunni þegar Francesco setti niður stutt pútt, nokkuð sem hann gerði ekki mikið af í gær. Þessum hálfa vinningi fögnuðu leikmenn Evrópu vel enda sannkall- aður varnarsigur, eða varnarstig, og þessi hálfi vinningur gæti komið sér vel í dag þegar síðasta umferðin er leikin, tólf tvímenningar. Rigninginn setti svip á gærdaginn eins og hún hefur gert alla keppn- isdagana. Í dag er hins vegar spáð góðu veðri þannig að menn ættu að ná að klára alla leiki og mótið, en þetta er í fyrsta sinn í 83 ára sögu keppninnar sem færa þarf lokahring- inn yfir á mánudag. Westwood mikill leiðtogi Lee Westwood hefur verið mikill leiðtogi í liði Evrópu í keppninni og unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli og hann ríður á vaðið í dag í tvímenn- ingnum. Raunar má segja að allt liðið hafi leikið vel í gær, liðsandinn var gríðarlega góður og menn fögnuðu innilega þegar vel gekk og áhorf- endur voru einnig vel með á nót- unum. Westwood og Luke Donald voru ekkert að hangsa við hlutina í gær og gerðu sér lítið fyrir og unnu þá Steve Stricker og Tiger Woods 6/5, sem er stærsti sigur í keppninni í ár og stærsta tap Tigers Woods í Ry- der frá því hann byrjaði að keppa þar. Bandaríkjamönnum hefur ekki gengið vel og má sem dæmi nefna að Phil Mickelson hefur ekki náð í eitt einasta stig og krækti sér því um helgina í þann vafasama titil að vera sá bandaríski keppandi sem tapað hefur flestum leikjum í Ryder en hann er nú með í áttunda sinn. Eftir flottan dag í gær þarf Evr- ópuliðið nú að landa fimm stigum af tólf í dag til að sigra en Bandaríkja- menn þurfa 7,5 stig til að jafna og halda þar með verðlaunastyttunni. Frábær árangur hjá strákunum „Þetta var alveg frábær árangur hjá strákunum í dag. Það er oft þann- ig að ef tónninn er gefinn þá fylgja aðrir á eftir og þeir Lee og Luke gáfu svo sannarlega tóninn á móti Tiger og Steve – frábær leikur hjá þeim,“ sagði Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópuliðsins, eftir gærdaginn. „Ég hafði vonast eftir að ná að hafa jafnt, 8-8, fyrir lokadaginn. Nú þarf ég að breyta niðurröðuninni fyrir tví- menninginn,“ sagði Montgomerie og leiddist greinilega ekkert að þurfa að leggjast yfir niðurröðunina fyrir dag- inn í dag. Ekkert í húsi enn Bandaríkjamenn hafa stundum náð frábærum árangri á lokadegi Ry- der og má sem dæmi nefna að árið 1999 var Evrópa 10-6 yfir fyrir síð- asta daginn í Boston en Bandaríkja- menn náðu að sigra. Þá voru áhorf- endur eðlilega á þeirra bandi, en slíku er ekki fyrir að fara núna. „Við spiluðum mjög vel,“ sagði Westwood kátur eftir sigurinn á Tig- er Woods og Steve Stricker, en Westwood hefur sigrað Woods í sex af sjö leikjum sem þeir hafa mæst í og virðist hafa gott tak á besta kylfingi heims. „Woods og Stricker eru taldir sterkasta parið, en við erum með ótrúlega jafnt og sterkt lið og það gerði gæfumuninn í dag,“ sagði Westwood hæglátur að vanda. „Við náðum draumadegi í dag, en því miður kemur mánudagur á eftir sunnudegi,“ sagði Padraig Harr- ington sposkur og sagði að það hefði verið draumasunnudagur ef þetta hefði verið síðasti hringurinn í keppn- inni. Ótrúlegur dagur hjá Evrópuliðinu Reuters Gleði Ross Fisher og Padraig Harrington fagna sigri sínum í gær.  Fengu nærri fullt hús stiga  Mick- elson hefur tapað flestum leikjum RYDER-BIKARINN Evrópa – Bandaríkin Leikið á Celtic Manor vennlinum í Newport í Wales, par 71. Dagur 1: Fjórbolti Lee Westwood/Martin Kaymer – Phil Mickelson/Dustin Johnson ....3/2 Rory McIlroy/Graeme McDowell – Stewart Cink/Matt Kuchar ........jafnt Ian Poulter/Ross Fisher – Steve Stricker/Tiger Woods..........0/2 Luke Donald/Padraig Harrington – Bubba Watson/Jeff Overton..........2/3 Staðan: 1,5 – 2,5 Dagur 2: Fjórmenningur Francesco/Eduardo Molinari – Johnson/Hunter Mahan.................0/2 Westwood/Kaymer – Jim Furyk/Rickie Fowler...........jafnt Harrington/Ross Fisher – Mickelson/Johnson.........................3/2 Miguel Jimenez/Peter Hanson – Woods/Stricker...............................3/4 Poulter/Donald – Watson/Overton..............................2/1 McDowell/McIlroy – Cink/Kuchar....................................0:1 Staðan: 4 – 6 Dagur 3: Fjórmenningur Donald/Westwood – Stricker/Woods...............................6/5 McDowell/McIlroy – Johnson/Mahan ..............................3/1 Fjórbolti Harrington/Fisher – Furyk/Johnson ...............................2/1 Hanson/Jimenez – Watson/Overton..............................2/0 Molinari/Molinari – Cink/Kuchar ................................jafnt Poulter/Kaymer – Mickelson/Fowler...........................2/1 Staðan: 9,5 – 6,5 Tvímenningurinn í dag Það er jafnan spennandi að sjá hvernig fyrirliðarnir taða upp líði sínu fyrir síðasta daginn þegar leikn- ir eru 12 tvímenningar og barist er um einn vinning í hverri rimmu. Þessi mætast í tvímenningi í dag, en leikur hefst klukkan átta árdegis: Lee Westwood – Steve Stricker Rory McLlroy – Stewart Cink Luke Donald – Jim Furyk Martin Kaymer – Dustin Johnson Ian Poulter – Matt Kuchar Ross Fisher – Jeff Overton Miguel Jiménez – Bobba Watson Francesco Molinari – Tiger Woods Edoardo Molinari – Rickie Fowler Peter Hanson – Phil Mickelson Patraig Harrington – Zach Johnson Graeme McDowell – Hunter Mahan GOLF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.