Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 5
AaB
lits-
u.
rk-
gi-
ra
n-
nd-
rða
m við
ð
t
afa
tir,
lf-
ð
rum
l,
ð
g
um
ár-
sig.
Við
ið
pila
olli
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010
Á VELLINUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslands- og bikarmeistarar Hauka
í handknattleik karla eru komnir
áfram í 32-liða úrslit EHF-
bikarsins. Haukar slógu ítalska lið-
ið Conversano út úr keppninni um
helgina þegar liðin mættust tvíveg-
is á Ásvöllum í Hafnarfirði. Hauk-
ar unnu fyrri leikinn 33:30 á laug-
ardaginn en í gærkvöldi reyndust
Ítalirnir lítil fyrirstaða fyrir Hafn-
firðinga sem unnu 40:27.
Þrátt fyrir að Haukar séu án
Gunnars Bergs Viktorssonar, sem
glímir við meiðsli, tókst þeim engu
að síður að spila öflugan varnarleik
í gær og refsuðu Ítölunum mis-
kunnarlaust með mörkum úr
hraðaupphlaupum í síðari hálfleik.
Miðað við leikina tvo um helgina
má búast við því að yngri leikmenn
á borð við Guðmund Árna Ólafs-
son, Þórð Rafn Guðmundsson,
Tjörva Þorgeirsson, Heimi Óla
Heimisson og Stefán Rafn Sig-
urmannsson verði meira áberandi í
sóknarleik Hauka en á síðustu
leiktíð. Auk þess mun mikið mæða
á Björgvini Hólmgeirssyni en
Haukar hafa sem kunnugt er misst
bæði Sigurberg Sveinsson og Elías
Má Halldórsson sem oft á tíðum
voru atkvæðamiklir í marka-
skorun. Stefán Rafn spilaði tals-
vert í skyttustöðunni vinstra meg-
in um helgina og var ansi drjúgur
en hann spilaði fyrst og fremst í
horninu í fyrra. Guðmundur fékk
að leika lausum hala í hægra horn-
inu í gær og skoraði þá 12 mörk og
var markahæstur Hafnfirðinga.
Ungu mennirnir munu þurfa að
láta til sín taka í sókninni hjá
Haukum á þessari leiktíð en hvað
varnarleikinn varðar eru hinir
eldri og reyndari algerlega nauð-
synlegir. Freyr Brynjarsson og
Einar Örn Jónsson munu verða
mjög mikilvægir fyrir varnarleik-
inn og voru það í leikjunum gegn
Conversano. Merkilegt má telja
hve vel Haukunum gekk að eiga
við stóra og stæðilega leikmenn
Conversano í vörninni án Gunnars,
en með því að mæta Ítölunum
framarlega tókst Haukum að setja
gestina í vandræði. Líkamlegir
burðir þeirra ítölsku gagnvart
þeim íslensku nýttust vel í stöð-
unni maður á móti manni en Ítal-
irnir virðast bara ekki vera til-
búnir til þess að takast á við
nútímahandknattleik þar sem
keyrslan er mikil. Conversano
mætti með þrettán leikmenn til
landsins, þar af þrjá markmenn, og
leikmenn liðsins sprungu einfald-
lega í síðari hálfleiknum í gær.
Fram að því, eða í um 90 mínútur,
var þokkaleg spenna í rimmunni
enda voru forsendur til þess miðað
við úrslitin í fyrri leiknum.
Morgunblaðið/Golli
Sigur Haukamaðurinn Freyr Brynjarsson sækir hér að marki Ítalanna úr horninu, en Haukar komust örugglega áfram í EHF-bikarnum.
Ítalirnir númeri of litlir
Haukar komnir í 32-liða úrslit EHF bikarsins Keyrðu yfir þunga Ítalina
Ungu mennirnir voru áberandi í sókninni en hinir eldri í vörninni
Gangur leiksins: 1:0, 2:4, 3:4, 5:5,
7:6, 7:7, 9:7, 9:9, 10:10, 12:10, 14:12,
15:13, 17:14, 17:15, 18:16, 20:16,
21:18, 27:18, 28:22, 35:25, 40:27.
Mörk Hauka: Guðmundur Árni
Ólafsson 12/2, Stefán Rafn Sig-
urmannsson 5, Þórður Rafn Guð-
mundsson 5, Freyr Brynjarsson 4,
Heimir Óli Heimisson 3, Björgvin
Hólmgeirsson 3, Tjörvi Þorgeirsson
3, Einar Örn Jónsson 2, Einar Pét-
ursson 2, Jónatan Ingi Jónsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 9,
(þar af 3 aftur til mótherja), Birkir Ív-
ar Guðmundsson 8 (þar af 3 aftur til
mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Conversano: Pasquale Maione
8, Demis Radovcic 7/1, Pablo Ma-
rocchi 5, Igor Radjenovic 3, Aless-
andro Tarafino 3, Giuseppe Lovecc-
hio 1.
Varin skot: Konstantinos Tsilimparis
9, (þar af 3 aftur til mótherja), Fran-
cesco Di Ceglie 4.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Havard Kleven og Christi-
an Ramberg frá Noregi. Ágætir.
Áhorfendur: Um 400 þegar mest
var.
Haukar – Conversano 40:27
„Við reiknuðum með hörkuleik. Eftir
fyrri leikinn sáum við að okkar tækifæri
fælist í því að keyra upp hraðann. Þeir
eru seinir aftur og því var mikilvægt
fyrir okkur að ná hraðaupphlaupunum.
Það tókst nokkuð vel og Ítalirnir voru
dálítið fljótir að gefast upp eftir að við
náðum forystu í leiknum,“ sagði Halldór
Ingólfsson, þjálfari Hauka eftir leikinn.
Hann sagði Hauka hafa nýtt sér vel
hversu þunnskipaður leikmannahópur
Conversano var. „Þeir mættu bara með
tíu útileikmenn í tvo leiki. Við náðum að
skipta nokkuð vel og náðum að keyra yf-
ir þá í seinni hálfleik í kvöld. Í því lá
munurinn á liðunum,“ sagði Halldór.
„Leikurinn í kvöld var auðveldari en
ég reiknaði með, þeir gáfust upp eftir að
við náðum fimm marka forskoti. Þá
hættu þeir bara og
hvað þeirra styrk
varðar held ég að lítið
sé að marka síðustu
tuttugu mínúturnar.
Ég held að leikurinn í
gær hafi verið miklu
nær því en heilt yfir
átti ég von á erfiðari
leikjum,“ sagði Einar
Örn Jónsson við
Morgunblaðið og
segist ekki eiga sér óskamótherja í
næstu umferð keppninnar. „Nei nei, í
sjálfu sér ekki. Eigum við ekki að segja
að við vonumst eftir því að fá mótherja
sem trekkir áhorfendur að og verði jafn-
framt skemmtilegt ferðalag fyrir okk-
ur." kris@mbl.is
Reiknaði með hörkuleik
Halldór
Ingólfsson
Stefán Rafn Sigurmannsson lét til sín taka í skyttu-
stöðunni vinstra megin í leikjunum tveimur. Stefán
kom við sögu hjá Haukum í fyrra en var ekki í stóru
hlutverki og lék þá í horninu. Gera má ráð fyrir að
talsvert muni mæða á honum í sóknarleik Hauka í
vetur en á hann von á því að spila í skyttustöðunni?
„Ætli ég verði til jafns í skyttunni og í horninu.
Ég hef fengið að spila fyrir utan upp á síðkastið og
hef að mínu mati nýtt tækifærið mjög vel. Vonandi
næ ég að blómstra í vetur. Mér finnst bæði gaman
að spila í skyttunni og í horninu en auðvitað er gam-
an að fá að vera fyrir utan og skjóta á markið eftir
að hafa leikið lengi í horninu. Ég var oft í skyttunni
þegar ég var yngri og þess vegna hef ég haft gaman
af því að fá aftur tækifæri í þeirri stöðu,“ sagði Stef-
án í samtali við Morgunblaðið að leiknum loknum í
gær.
Honum fannst vera talsverður munur á leik
Hauka í leikjunum tveimur. „Þetta gekk miklu bet-
ur upp hjá okkur í kvöld en í gær
(á laugardag). Við vorum nokkuð
þungir framan af fyrri leiknum
en við vorum mun betur stemmd-
ir að þessu sinni. Vörnin var
kannski ekki nægilega góð í fyrri
hálfleik en hún gekk mun betur í
þeim síðari. Leikmenn Convers-
ano eru þungir, 110 kg menn
margir hverjir, og þess vegna
keyrðum við á þá enda eru þeir
lengi að keyra til baka í vörnina.
Guðmundur Árni stóð sig vel og skoraði mikið úr
hraðaupphlaupum auk þess sem Birkir var traustur
í markinu í síðari hálfleik. Þegar þessi atriði fóru að
ganga upp hjá okkur þá rúlluðum við yfir þá. Við
lentum helst í vandræðum gegn þeim í stöðunni
maður á móti manni en ef við vorum tveir og tveir
saman þá áttu þeir ekki möguleika. “ kris@mbl.is
„Vonandi fæ ég að blómstra“
Stefán Rafn
Sigurmannsson
Haukar unnufyrri leikinn
gegn Conversano
á Ásvöllum á
laugardaginn,
33:30, eftir að
hafa verið yfir í
hálfleik, 16:13. Ít-
arlega var fjallað
um þann leik á
mbl.is. Mörk
Hauka gerðu
Björgvin Hólmgeirsson 8, Stefán
Rafn Sigurmannsson 7, Freyr
Brynjarsson 7, Guðmundur Árni
Ólafsson 7/1, Þórður Rafn Guð-
mundsson 2, Heimir Óli Heimisson
1 og Jónatan Ingi Jónsson 1. Birkir
Ívar Guðmundsson varði 12 skot og
Aron Rafn Eðvarðsson eitt. Pablo
Marrochi skoraði 10 mörk fyrir Con-
versano og Igor Radjenovic 9.
Svíinn Sven-Göran Eriks-
son hefur verið
ráðinn knatt-
spyrnustjóri
enska fyrstu-
deildarliðsins
Leicester. Hann
var síðast þjálfari
landsliðs Fíla-
beinsstrandarinnar en tekur við
starfinu af Paulo Sousa sem var rek-
inn á föstudaginn.
ÍR hefur fengið til liðs við sig Kar-olis Marcinkevicius, körfuknatt-
leiksmann frá Litháen. Hann er 27
ára leikstjórnandi og skotbakvörður
sem lék í 2. deild í heimalandi sínu í
fyrra. Nokkrir lykilmenn í ÍR eru
meiddir og er von Breiðhyltinga að
Litháinn styrki liðið og leik-
mannahópinn og jafnframt að lyk-
ilmennirnir nái sér sem fyrst af
meiðslum sínum.
HK sigraði um helgina í haust-móti Blaksambandsins, bæði í
karla- og kvennaflokki. Sextán lið
mættu til leiks á Jaðarsbökkum á
Akranesi og hafði HK mikla yf-
irburði í kvennaflokki og tapaði ekki
hrinu. Meira jafnræði var í karla-
flokki þar sem HK lagði Þrótt úr
Reykjavík í úrslitaleik. Í 2. deild
kvenna sigraði Fylkir.
Framherjinnungi Kol-
beinn Sigþórs-
son skoraði fyrra
mark AZ Alkma-
ar þegar liðið
vann 2:1-sigur á
Heracles í hol-
lensku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær. Kolbeinn skoraði
skömmu fyrir leikhlé en var svo tek-
inn af leikvelli til hvíldar en hann var
einnig á skotskónum á fimmtudag-
inn þegar hann skoraði í Evr-
ópudeildinni gegn BATE í Hvíta-
Rússlandi. Jóhann Berg Guðmunds-
son lék allan leikinn fyrir AZ.
Fólk sport@mbl.is