Morgunblaðið - 14.10.2010, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 4. O K T Ó B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 240. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
DRAUMURINN
AÐ KOMAST Í
JUILLIARD
BANKARNIR SITJA
Á FYRIRTÆKJUM
HANNAR OG
PRJÓNAR
PEYSUJAKKA
VIÐSKIPTABLAÐIÐ ANNA MARÍA Á AKUREYRI 10LEIKUR Í ÓRÓA 34
Fréttaskýring eftir Bjarna Ólafsson
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Fjárfesting FL Group í fjórum fasteignaþróunar-
verkefnum í Bandaríkjunum í maí 2007 er sögð
hluti fjársvikamáls stjórnenda bandaríska félagsins
Bayrock LLC. Í tilkynningu FL til kauphallarinnar
22. maí 2007 er meðal annars haft eftir Tevfik Arif,
stjórnarformanni Bayrock LLC, að mikil tilhlökk-
un sé fyrir hendi hjá forsvarsmönnum bandaríska
félagsins að starfa með FL. Sá hinn sami Arif var
handtekinn fyrir um tveimur vikum í Tyrklandi og
ákærður fyrir aðild að rekstri alþjóðlegra vændis-
og mansalshringja. Arif hefur neitað sök í yfir-
heyrslum vegna málsins.
Fyrrverandi starfsmaður Bayrock segir í stefnu
á hendur fyrrverandi stjórnendum sínum að fimm-
tíu milljóna dollara fjárfesting FL hafi verið ráð-
stafað að minnsta kosti að helmingi í persónulega
þágu stjórnenda bandaríska félagsins. Jafnframt
hafi eignir að andvirði 140 milljónir dollara horfið af
efnahagsreikningi þeirra félaga sem FL fjárfesti í
og komið inn í reikninga móðurfélagsins. Minni
hluthafar Bayrock og kröfuhafar hafi með þessu
verið hlunnfarnir.
Donald Trump með í för
Fimmtíu milljóna dollara greiðsla FL hafi jafn-
framt verið skráð sem lán, auk þess sem íslenska fé-
lagið hafi ekki verið skráður eigandi þeirra verk-
efna sem fjárfestingin sneri að, en lögmenn
stefnanda telja þá staðreynd til marks um að að-
koma FL hafi verið grunsamleg.
Tvö af verkefnunum sem FL fjárfesti í fólust í
uppbyggingu tveggja lúxushótela í New York og
Fort Lauderdale. Auðkýfingurinn Donald Trump
hafði samþykkt að ljá þeim nafn sitt og sjá um
reksturinn. Bygging og þróun fasteignanna var þó
alfarið á ábyrgð Bayrock. Í íslenskri fjölmiðlaum-
fjöllun þess tíma sem FL tilkynnti fjárfestinguna
var haft eftir starfsmönnum FL að bandaríska fé-
lagið hefði átt frumkvæði að samstarfinu.
Hugsanleg fjársvik
Aðkoma FL Group að fasteignaþróunarverkefnum vestanhafs í maí 2007 sögð
hluti fjársvikamáls stjórnenda bandarísks fyrirtækis Málaferli þegar hafin
MFasteignaverkefni FL »Viðskipti
Unnið var við að ná síðustu námumönnunum upp
úr San José-námunni í Síle í gærkvöldi þar sem
þeir hafa mátt dúsa á 620 metra dýpi í um sjötíu
daga.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun hafði 28 af
33 námumönnum verði bjargað og var búist við
að þeir síðustu kæmust upp á yfirborðið sl. nótt.
Við björgunina var notast við björgunarhylkið
Fenix en í því voru þeir hífðir, einn af öðrum.
Ljósið við enda ganganna – og andlit björgunar-
manna – hefur vafalaust verið þeim kærkomin
sjón eftir þrekraunina. »17
Reuters
Á leiðinni
upp í ljósið
„Mér finnst þetta líkast því sem það
komi fram í dagsljósið áður óbirt
ljóð eftir einhver góðskáldanna,“
segir Jónas Ingimundarson píanó-
leikari um fjölda áður óútgefinna
sönglaga eftir Árna Thorsteinsson
(1870-1962). Sönglögin, fyrir ein-
söngvara og kóra, fundust í kassa
með pappírum sem erfingjar Árna
fengu Tónlistarsafni Íslands til
skoðunar.
Á morgun eru 140 ár frá fæðingu
Árna, sem er eitt ástsælasta tón-
skáld þjóðarinnar, höfundur söng-
laga á borð við Nótt, Rósin og Fögur
sem forðum. Í tilefni afmælisins
flytja Jónas og söngvararnir Gunnar
Guðbjörnsson og Ólafur Kjartan
Sigurðarson sum af þekktustu lög-
um hans, og að auki tólf af þessum
nýfundnu, á tónleikum í Salnum
annað kvöld.
„Þessi „nýju“ lög bera öll höfund-
areinkenni Árna og eru alls ekki
síðri en þau sem hafa þegar verið
gefin út,“ segir Jónas.
Nýfundnu lögin er sum samin við
ljóð eftir Steingrím Thorsteinsson,
frænda Árna, en einnig við ljóð eftir
skáld á borð við Hannes Hafstein og
Þorstein Erlingsson.
„Þessi lög eru algjörar perlur,“
segir Jónas. »32
„Þessi lög eru algjörar perlur“
Fjöldi óútgefinna sönglaga eftir Árna Thorsteinsson kemur í leitirnar
Tónskáldið Árni Thorsteinsson.
Niðurstöður rannsókna á DNA-
sýnum af skóm Gunnars Rúnars Sig-
urþórssonar sem játað hefur að hafa
orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana
15. ágúst., tengja hann ekki við morð-
ið, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Leifar af blóði fundust á
skónum en ekki í nægjanlegu magni
til að hægt væri að fá óyggjandi nið-
urstöðu úr lífsýnarannsókn. Áður
hefur komið fram að Gunnar hafi
hreinsað skó sína.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir-
maður rannsóknardeildar lögreglu
höfuðborgarsvæðisins, segir að ekk-
ert verði gefið upp um niðurstöður
lífsýnarannsóknanna. „En ég hef sagt
það að úrslit málsins velta ekki á nið-
urstöðum sýna. Játning liggur fyrir
sem er studd gögnum sem við höf-
um.“ Meðal gagna má nefna skófar á
vettvangi morðsins.
Geðrannsókn hefur þegar farið
fram á Gunnari Rúnari en skýrsla um
sakhæfi hans ekki enn verið send lög-
reglu. Friðrik Smári segir að ekkert
verði gefið upp um niðurstöður þeirr-
ar skýrslu heldur fylgi hún öðrum
gögnum málsins fyrir dóm. Hann
segir ekki langt að bíða þar til málið
verður sent ríkissaksóknara, alla
vega ekki margar vikur. andri@mbl.is
„Veltur ekki
á niður-
stöðunum“
Vettvangur Tæknimenn lögregl-
unnar á vettvangi í Hafnarfirði.
Blóð á skóm ekki
í nægjanlegu magni
Morgunblaðið/Jakob Fannar