Morgunblaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 35
AF GAMANMÁLUM Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Frímann Gunnarsson er kostu-legur karakter en ekki allra.Frímann er heimsborgari, eða heldur a.m.k. að hann sé heims- borgari. Honum finnst allt mest og best í Englandi, telur þar vöggu sið- menningarinnar að finna og m.a. besta húmorinn. En smekkur Frí- manns fyrir húmor er ekki betri en svo að hann telur Carry On mynd- irnar og Benny Hill einhver mestu afreksverk Breta á sviði gaman- mála. Ég verð að viðurkenna að fyrst þegar ég sá Frímann á skjánum þótti mér hann lítið meira en ágæt- ur. Það mátti hafa gaman af hé- gómagirndinni í honum en oftar en ekki gafst maður upp, þegar lopinn tók að teygjast fullmikið.    En nú er ég orðinn aðdáandieftir að hafa horft á nýja þætti Frímanns, Mér er gamanmál, sem sýndir eru á Stöð 2. Í þáttunum sæk- ir Frímann heim grínista sem hann telur fremsta í faginu í sínum föður- löndum. Frímann leggur í mikið ferðalag í leit sinni að svarinu við því hvað sé húmor og þá góður húmor. Honum er mál, gamanmál. Menn- irnir sem Frímann heimsækir (allir karlmenn reyndar) eiga það sameig- inlegt að vita öðrum betur hvað fyndni er, eða kímnigáfa. En grín- istar þessir eru hver öðrum óút- reiknanlegri og Frímann kemst oft- ar en ekki í hann krappan í samskiptum sínum við þá, er m.a. plataður til þess að hlaupa nakinn um norskan skóg og sænga hjá karl- manni í kvenmannsgervi. Tilraunir Frímanns fara meira eða minna út um þúfur, en alltaf stendur hann eft- ir jafn jákvæður og bjartsýnn og tel- ur sig hafa komist nær kjarna gríns- ins. Frímann er sakleysingi, alltaf jafn bláeygður og auðginntur, virð- ist lítið læra af bellibrögðum við- mælenda sinna.    Leikarinn Gunnar Hanssonleikur Frímann, maðurinn sem bjó persónuna til. Gunnar er enginn eftirbátur norrænna og enskra koll- ega sinna, karlanna sem hann tekur fyrir í Mér er gamanmál. Gunnari hefur tekist stórvel að vinna með þeim og ber þá sérstaklega að nefna danska grínistann Frank Hvam úr gamanþáttunum Klovn. Í gam- anmálaþætti Frímanns er Frank enn siðlausari en sá Frank sem Íslend- ingum er orðinn að góðu kunnur úr Klovn, Trúði, spaugið er ekki síður svart en í þeim stórkostlegu þáttum. Frank kemur hér fyrir sem kynóður siðleysingi með stjörnustæla sem hefur m.a. hannað sjálfsfróunarvél sem hann geymir úti í skúr heima hjá sér. Og gamanið kárnar þegar Frímann ákveður að prófa vélina með kostulegum afleiðingum. Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, er fyrsti grínistinn sem Frí- mann heimsækir í þáttunum og hef- ur hann m.a. fundið hina fullkomnu lækningu við þunglyndi en hún felst í því að segja fólki einfaldlega að hætta að vera þunglynt! Jón er hald- in ranghugmyndum um eigið ágæti í þáttunum, telur Frímanni m.a. trú um að hann sé að fara að leika í kvikmynd með heimsfrægum kvik- myndastjörnum. Undir lok þáttar er Jón kominn í svaðið en málin redd- ast þó þegar honum býðst að gerast borgarstjóri, nema hvað. Þættir Gunnars eru bæði vel skrifaðir og heppnaðir og hann var klókur að fá þessa grínista frá ná- grannalöndunum í lið með sér. Með því ætti að opnast markaður fyrir þættina í þeim löndum, þ.e. Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Eng- landi og auðvitað Íslandi. Grínist- arnir eru vinsælir í sínum heima- löndum (eða það skyldi maður halda) og Frímann Gunnarsson orð- inn útflutningsvara. Og athyglin sem hann mun fá út á þættina mun án efa stíga honum til höfuðs. Ann- ars væri hann ekki Frímann Gunn- arsson, lífskúnstner. Illa farið með Frímann » Frank kemur hérfyrir sem kynóður siðleysingi með stjörnu- stæla sem hefur m.a. hannað sjálfsfróunarvél sem hann geymir úti í skúr heima hjá sér. Frímann Heimsborgarinn fer á kostum í Mér er gamanmál. Morgunblaðið/Eggert MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010 ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 SÍMI 564 0000 14 14 L L 16 L L L SÍMI 462 3500 L 14 L BRIM kl. 5.30-10.30 THEAMERICAN kl. 8-10 EATPRAYLOVE kl.5.30-8 SÍMI 530 1919 12 12 16 L L GREENBERG kl.8-10.20 BRIM kl.6-8-10 R kl.6-10 EATPRAYLOVE kl.6-9 SUMARLANDIÐ kl. 6-8 THEAMERICAN kl.5.40-8-10.20 BRIM kl.4-6-8 -10 EATPRAYLOVE kl.5-8-10.45 EATPRAYLOVELÚXUS kl.8-10.45 PIRANHA3D kl. 10.45 WALLSTREET2 kl. 8 AULINN ÉG 3D kl. 3.40-5.50 AULINN ÉG 2D kl. 3.40 .com/smarabio -H.G., MBL NÝTT Í BÍÓ! „Óhætt er að mæla með The American. Þetta er vönduð mynd... Áhrifamikil saga“ -B.B., MBL ÍSLENSKT TAL STEVE CARELL Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS Sýnd kl. 6 - 3D íslenskt talSýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 Forsýnd kl. 8 og 10:30 FORSÝNINGAR -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is − bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.