Hamar - 25.08.1950, Side 1
IV. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 25. ÁG. 1950 19. TÖLUBLAÐ
Skemmdir á trjáplöntum og girð-
ingum Skógræktarfélags Hafnarfj.
Eins og bæjarbúum er kunnugt; að þessi litli reitur fengi ekki að
hefur Skógæktarfélag Hafnarfj.! vera í friði fyrir fólki, svo að þeir,
fengið land til umráða og hafið sem að honum hafa hlúð fái að
skógrækt í Lækjarbotnum. Land-! sjá sem mestan árangur af þeim
ið hefur verið girt og niður hafa frístundum, sem þeir hafa lagt
Þessi mtjnd er af skógræktarfólki í Lækjarbotnum. Nú hafa mörg
handtök þess við að klæða landið verið eijðilögð af fólki, sem
farið hefur í óleyfi inn í girðingarnar til berjatínslu.r
verið settar samtals yfir 30 þús.
trjáplöntur. Verður ekki annað
sagt en þær dafni vonum framar
vel.
í þetta starf allt hefur verið
lögð geysimikil vinna bæði við
friðun landsins, svo og við gróð-
ursetningu, sem eingöngu hefur
verið unnin í sjálfboðaliðsvinnu,
þó að þar hafi of fáir lagt hönd
á plóginn, heldur hafi það starf
lent að stórum hluta á örfáum
áhugamönnum, sem jafnframt
hafa miklum störfum öðrum að
gegna fyrir félagið.
Nú hefur það skeð, að veru-
legum skemmdum hefur verið
valdið bæði á girðingum og trjá-
plöntum við það að fólk hefur
gert mikið að því að undanförnu
að leggja leið sína inn í skógrækt-
argirðingarnar til berjatínslu.
Það þarf ekki að taka það fram,
að slíkar ferðir eru í algeru leyfis-
leysi, enda hliðin læst með lásum,
en fólk hefur þá gert sér lítið fyrir
og gengið sjö strengja girðingar
eins og stiga til að komast yfir
þær. Það ætti þó að vera hverjum
manni ljóst að slíkt stórskemmir
girðingarnar og leiðir til þess,
að það verður að strengja þær
upp að meira eða minna leyti til
þess að sauðfé smjúgi þær ekki.
Enda voru girðingarnar fyrst og
fremst settar upp til að verjast
búpeningi, því ekki var búizt við,
fram til þess að klæða landið
sitt og í góðri trú á, að það megi
takast.
Eins og fram er tekið hér að of-;
an þá er fólki vorkunnarlaust að
sjá, hvernig það fer með girðing-
arnar, en öðru máli er að gegna
með plönturnar, sem gróður-
settar hafa verið. Þó að fólk sé
allt af vilja gert með að forðast
skemmdir á þeim þá getur það
verið búið að stóreyðileggja áð-
ur en það hefur hugmynd um,
því að plönturnar margar hverj-
ar eru svo smáar að þær hverfa
alveg í grasið fyrstu árin.
Það er ekki nema eðlilegt og
sjálfsagt, að fólk reyni að afla
sér berja, en í þeim efnum þarf
að sýna háttvísi og góða um-
gengni eins og öllum öðrum. Og
að fara í annarra lönd, afgirt og
harðlæst eins og hér hefur verið
gert sýnir í meira lagi skort á al-
mennri kurteisi og virðingu fyrir
því, sem annarra er.
Því miður munu bæjarbúar
hafa verið hér að verki, en þó
hafa þeir fengið nokkra aðstoð
frá Reykjavík. Hefði það þó held
ur átt að vera þegjandi samkomu-
lag allra Hafnfirðinga að mynda
skjaldborg til að verja þennan
stað fyrir ágangi óviðkomandi
en taka sjálfir þátt í að særa hann
stórum sárum.
Það dugir ekki að sakast um
Afsakanir Álþýðuflokksmeirihlutans
Það lítur út fyrir, ef dæma má
af síðasta tölublaði Alþýðublaðs
Hafnarfjarðar, að Alþýðuflokks-
meirihlutinn sé hræddur við sjálf
an sig fyrir frammistöðuna við
byggingu nýju vatnsveitunnar,
enda má hann vera það því yrði
sú saga öll rakin þá kæmi áþreif-
anlega í ljós hve seinlætið og
tómlætið í því máli hefur verið á
háu stigi.
Út af því að vinna var fyrirvara
! laust stöðvuð eftir sumarfríin
þykir nauðsynlegt að tefla þeim
báðum fram, Emil Jónssyni og
Helga Hannessyni til að afsaka
fyrir bæjarbúum úrræðaleysi og
aumingjaskap bæjarstjórnarmeiri
hlutans í málinu. Því það er svo
augljóst mál að hægt var að sam-
þykkja í bæjarstjórn að bjóða út
skuldabréfalán fyrir vatnsveit-
una einni eða tveimur vikuin fyrr
en slík samþ. og sú fjárvon sem
hún gefur virðist hafa nægt til að
koma verkinu af stað aftur. Á
það var bent í síðasta blaði Ham-
ars, að útilokað væri að bæjar-
stjóri og bæjarráð eða að minnsta
kosti meirihluti þess hafi ekki séð
hvert stefndi í málinu fyrir það
löngu ,að tími væri til að gera
í þær ráðstafanir, að ekki þyrfti að
koma til stöðvunar á framkvæmd
um á þeim tíma, sem beztur er
til að vinna verkið. Fátt sýnir bet-
ur hvern hug Alþýðuflokksfor-
kólfarnir bera í raun og veru til
þessa máls, þó að hins vegar þyki
heppilegra að nota fögur orð í
Alþýðubl. Hfj. en þar segir Emil
í upphafi greinar sinnar: „Eitt
mesta nauðsynjaverk, þar sem
fólk býr í þéttbýli, er að gera
góða vatnsveitu. Frá lélegum
vatnsveitum stafar óþrifnaður og
sýkingarhætta, auk margra ann-
arra óþæginda.“ Þetta er rétt og
á það hefur verið bent í mörg
ár og áratugi af Sjálfstæðisflokkn
um þótt Emil Jónsson og hans
orðinn hlut, en það ættu allir
Hafnfirðingar að geta orðið sam-
mála um, að verja þetta skógrækt
arsvæði sitt og hlú að því á allan
hátt. Það ætti fólk að hafa í huga
næsta vor, þega farið verður að
gróðursetja og þá ekki sízt, að
það fólk, sem spjöllunum hefur
valdið nú, taki sig á og bæti fyrir
brot sitt með því að verða virkir
þátttakendur í uppbyggingar-
starfi Skógræktarfélags Hafnar-
fjarðar.
meðráðamenn í bæjarstj. reyndu
að skella við því skollaeyrunum
svo lengi, sem þeir þorðu fyrir
almenningsálitinu í bænum. Og
það var ekki fyrr en á fjárhags-
áætlun fyrir árið 1948 að upp
var tekinn sá liður að áætla sér-
staklega til nýrrar vatnsveitu kr.
300 þús. Þessar krónur virðast
nú vera týndar í eitthvað annað,
en vatnsveituna, ef dæma má af
grein bæjarstjórans því þar • er
ekki minnst einu orði á þessar
krónur. Hefði þó mátt ætla eftir
grein Emils, að þetta, „eitt mesta
nauðsynjaverk," hefði ekki svo
algerlega gleymst í framkvæmd
bæjarstjórnarmeirihlutans, að fé,
sem til þess var af bæjarbúum
tekið yrði eytt í annað.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var talið bæði af Emil Jónssyni
formanni bæjarráðs og Helga
Hannessyni bæjarstjóra, að nauð
synlegt væri að halda sig við f jár-
hagsáætlunina með þá ýmsu liði,
sem fé er veitt til. Væri ánægju-
legt að slíkt yrði ávallt gert, enda
hefur Sjálfstæðisflokkurinn á
það bent oft og mörgum sinnum.
Hitt vita svo allir, að slíkt hefur
ekki verið gert á undanförnum
árum, heldur hefur verið eytt
stórfé framyfir á sumum liðum
fjárhagsáætlunarinnar en aðrir
eru óunnir, sem þó hafa verið
teknir á áætlun ár eftir ár. Þó
mun þess mjög hafa verið gætt
að ekki færi eyrir umfram til hafn
argerðar og nú virðist eiga að
gæta þess sama hvað vatnsveit-
una snertir, enda á það ekki að
vera og færi vel, ef þeirri reglu
yrði fylgt með alla aðra liði fjár-
hagsáætlunarinnar.
En eins og áður er minnst á
þá nefnir bæjarstjóri ekki á nafn
þær kr. 300 þús., sem áætlaðar
voru til vatnsveitunnar 1948 held
ur minnist hann aðeins á það sem
áætlað var 1949 kr. 500 þús. svo
og það sem áætlað var í ár kr.
1200 þús. sameiginlega til vatns-
veitunnar og innanbæjarvinnu.
Hvað snertir þennan lið í ár þá
báru Sjálfstæðismenn fram þá til-
lögu að kr. 700 þús. yrði varið til
vatnsveitbyggingarinnar og kr.
500 þús. til innanbæjarvinnu.
Rökin fyrir þessari tillögu voru
þau að nauðsynlegt væri að hraða
vatnsveitubyggingunni sem mest
enda þótt draga yrði úr innan-
bæjarvinnunni samsvarandi. En
bæjarstjórnarmeirihlutinn var
ekki alveg á því, að bæjarstjórn
fengi þannig að segja til um það,
hvernig þessum kr. 1200 þús.
yrði skipt það átti að verða eftir
hentisemi meirihlutans, og mun
hugmyndin hafa verið sú að slá
sem mest lán út á vatnsveituna,
svo að þeir gætu haft sem frjáls-
astar hendur til að ráðstafa fénu.
Og hvernig er því svo skipt? Jú,
bæjarstjóri segir orðrétt í grein
sinni: „Bæjarsjóður hefur nú
þegar innt sínar greiðslur af
höndum til vatnsveitufram-
kvæmdanna í ár. Framhald verks
ins byggist því einvörðungu á
því að takast megi að fá nægjan-
legt lánsfé til þess.“ Og hvað er
bæjarsjóðurinn búinn að greiða
mikið til vatnsveituframkvæmd-
anna? Samkv. upplýsingum bæj-
arstjórans var útlagður kostnað-
ur við vatnsveituna 2.214.656,43
kr. og af því er lánsfé kr. 1.034,-
000,00, svo að bæjarsjóður hefur
lagt fram kr. 1.180.656,43. En til
vatnsveitunnar hefur verið áætl-
að kr. 300 þús. 1948, kr. 500 þús.
1949 eða samtals kr. 800 þús. eftir
því virðist skerfurinn í ár eiga að
vera kr. 400 þús. tæpar, og svo
mikið kapp er lagt á að það fari
ekki fram úr þeirri upphæð að
vinna við framkvæmdirnar er
stöðvuð fyrirvaralaust. Og þetta
er það, sem bæjarstjóri segir í
grein sinni, „að bæjarsjóður hafi
þegar greitt sitt til vatnsveitu-
framkvæmdanna samkvæmt fjár
hagsáætlun bæjarins og vel það.“
Annars virðist það vera ætlun
bæjarstjórans og þá sennilega
meirihlutans, að þessar kr. 300
þús., sem voru á áætlun 1948
komi ekki meira fram í dagsljósið
Framhald á bls. 2
--------------•-----
Um 80 manns lóku þált
í berjaferð Sjálf-
slæðisfélaganna
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði
efndu til berjaferðar s.l. sunnu-
dag. Farið var upp í Kjós í land
Grjóteyrar og Flekkudals. Berja-
land var þar ágætt og útsýni fag-
urt. Fólkið tíndi mikið af berjum
og var hið ánægðasta með ferð-
ina, enda gekk hún vel í alla
staði.
Um 80 manns tóku þátt í för-
inni.