Hamar - 25.08.1952, Síða 2
2
HAMAR
HAMAR
ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Ilafnarfirði.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Páll V. Daníelsson.
(Símar 9228 — 9394).
AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29.
HAMAR kemur út annan hvern mánudag.
PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU PIAFNARFJARÐAR H.F.
Smáíbúðarbyggingarnar
Byggingti smáíbúðarhúsanna hér í bæ miðar vel áfram og
mun vera hafin bygging á um 30 slíkra húsa. Eru þau komin
misjafnlega langt áleiðis eða allt frá því að verið ér að grafa
fyrir grunni og að þau eru orðin fokheld. Hefur verið unnið
þar geysimikið í tómstundavinnu af þeim, sem eru að byggja
og hjálpsamir ættingjar og kunningjar leggja hönd á plóginn við
að koma húsunum upp.
Það virðist vera, að mikil nauðsyn hafi verið á því, að leyfa
byggingu slíkra smáíbúðarhúsa, þar sem að öðrum kosti hefði
ekki verið mögulegt fyrir margt af því fólki, sem nú byggir að
koma upp þaki yfir höfuðið. En með þessu fyrirkomulagi hefur
margur eignast möguleikann til þess og hann er ekki látinn ónot-
aður.
I þessu sambandi hefur verið á það bent, að það sé kostnaðar-
samt fyrir bæinn, að þessi smáíbúðarhús séu byggð, þar sem hann
þenjist svo ört út,. gatnagerð, vatns- og holræsalögn verði hlut-
fallslega dýr miðað við íbúðarfjölda. Þetta er að sumu leyti rétt
en ekki að öllu leyti. Lóðir undir smáíbúðarhús þurfa ekki að
v.era eins stórar og undir fjölbýlishús og séu smáíbúðarhverfin
skipulögð þannig, að lengd lóðar með götu sé höfð sem stytzt en
hún aftur á móti heldur dýpri gæti það unnizt nokkuð upp, auk
þess mega einnar hæða hús vera þéttari en há hús hvað það
snertir að það njóti vel sólar. Þá hafa einnar hæðar hús alla
jafna marga kosti umfram hús upp á fleiri hæðir og er nokkuð
gefandi fyrir það.
Þegar litið er á þær byggingar, sem framkvæmdar hafa verið
hér í bæ að undanförnu þá er nú svo að mikið eru um hús, sem
eru ein hæð og kjallari, kjallarinn að vísu það hátt úr jörðu að
komið hefur verið fyrir íbúð í nokkrum hluta hans. Slíkar íbúð-
ir geta verið þokkalegar en það fer að sjálfsögðu nokkuð eftir
staðháttum, en niðurgrafnar kjallaraíbúðir verða þó aldrei það,
sem er eftirsóknarvert í því að koma upp íbúðum. Hefur því
byggingarmátinn verið sá, að mikið hefur verið byggt af húsum
í bænum með einni góðri íbúð, enda þótt komið hafi verið
fyrir smáíbúðum í kjöllurum eða risi. Auk þess hefur verið byggt
nokkuð af einbýlishúsum, þó að þau séu upp á tvær eða fleiri
hæðir. Hér er því ekki verið að tak neytt nýtt upp í sambandi
við smáíbúðarhúsin, nema ef vera skyldi það, að útiloka bygg-
ingú vafasamra íbúða frá heilbrigðislegu sjónarmiði.
Þegar um þessi mál var rætt á bæjarstjórnarfundi lagði Stefán
Jónsson áherzlu á það, að bærinn veitti smáíbúðarhúsa-
byggjendum þá fyrirgreiðslu, sem í hans valdi stæði, þannig að
auðvelda þeim sem mest að koma húsunum upp. Formaður
bæjarráðs, Emil Jónsson taldi hinsvegar vafasamt, að það hefði
verið farið út á rétta braut með smáíbúðarbyggingum, heldur
hefði átt að auka byggingu verkamannabústaða. Um þetta má
nokkuð deila,. en þó er það þannig, að þó að hagkvæmt sé að
njóta þeirra kjara, sem fólk hefur í Byggingafélagi Alþýðu, þá
verður fólk að greiða hvert einasta handtak, sem þar er unnið.
En með byggingu smáíbúðarhúsanna vinnst það, að þeir sem
byggja geta unnið svo eða svo mikið að byggingunni sjálfir og
með hjálp ættingja sinna og vina. Þannig getur heilu húsunum
verið komið upp að langmestu leyti í tómstundavinnu og eru
þær stundir að meira eða minna leyti fundið fé fyrir viðkom-
andi aðila. Auk þess er slík tómstundavinna, sem fer beint til
þess að auka þjóðarauðinn ómetanlega mikils virði frá þjóð-
hagslegu sjónarmiði. Og það er fullvíst, að mörgum finnst það
miklu ánægjulegra að geta farið út að kvöldi og lagt hönd að því
að byggja sitt eigið hús, heldur en að geta aðeins litið á það,
hvernig öðrum gengur að byggja það. Sjálfsbjargarviðleitnin
verður löngum það rík í fólki, að það vill ekki að stakkurinn sé
sniðinn svo þröngur að erfitt sé um vik að hreyfa sig. Þessvegna
Citt c(f amaí ■* ->
%
;•
LOFORÐIN UM „GÓÐA OG
ÓMENGAÐA MJÓLK“.
Eitt af þeim loforðum, sem
AB-menn gáfu fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar var
svohljóðandi:
„Komið verði upp kúabúi
í Krýsuvík og Iokið nú á
þessu ári (þ. e. 1950) þeim
undirbúningi, sem þarf til að
Hafnfirðingar fái góða og
ómengaða mjólk strax næsta
vetur. 0(1 takmarkið með kúa
búinu í Krýsuvík er, að Hafn-
firðingar geti fengið alla sína
mjólk frá búinu í Krýsuvík,
því „hollur er heimafenginn
baggi“.“ (Leturbr. Hamars).
Fullt útlit er fyrir það, að
þetta loforð sé hægt að
prenta orðrétt upp í næstu
kosningaloforðum AB-manna
]oví að þrátt fyrir mikla sóun
á fé til Krýsuvíkur síðan, þá
er mikil undirbúningsvinna
eftir til þess að koma upp
kúabúi í Krýsuvík.
ÞRÁTT FYRIR ÖLL STÓRU
ÖRÐIN.
Það vill nú verða stundum
svo að það er hægara að
segja hlutina heldur en fram-
kvæma þá og þannig hefur
farið fyrir AB-mönnum hvað
snertir Krýsuvíkurfram-
kvæmdirnar. Þrátt fyrir öll
skrifin og stóru orðin, spá-
dómana og loforðin hefur lít-
ið miðað áfram, nema í því
að sóa fé bæjarbúa. E. t. v.
man fólk eftir sumum skrif-
um AB-manna fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar, t. d.
eins og grein, sem birtist í
Alþbl. Hafnarfjarðar 27. jan.
1950. Þar mátti líta eftirfar-
andi fyrirsögn yfir þvera
fremstu síðu blaðsins: „Átak-
ið mikla. Landnámið í Krýsu-
\ ík, merkilegasti þátturinn í
þróunarsögu Hafnarfjarðar."
Minna mátti nú ekki gagn
gera. Af öllum þeim þáttum,
sem spunnizt hafa í þróunar-
sögu Hafnarfjarðar, var sá
merkilegastur að fá Jens
Hólmgeirsson fyrrverandi bú
stjóra hjá AB-mönnum vest-
ur á Isafirði og senda hann
til Krýsuvíkur með nokkrar
milljónir til að reyna að koma
þar upp kúabúi!!!
SPÁDÓMARNIR.
Í þessari merkilegu grein
eru tveir athyglisverðir spá-
dómar. Annar er sá, að „þar
sem tækni og nýting hvers-
konar jarðargæða er komin
á fyllsta stig, þá er óhætt að
fullyrða, að Krýsuvíkin gæti
fætt okkur Hafnfirðinga, að
verulegu leyti.“ Verður ekki
annað sagt en allþéttbvlt
mætti verða í góðsveitum
þessa lands, ef fimm þúsund
manna bær ætti að hafa fæði
að verulegu leyti af þeim
hluta Krýsuvíkurlandsins, er
Hafnarfjarðarbær á. Fer þó
varla hjá því, að áður en það
yrði þá þyrfti þeim, sem við
gróðurhúsin vinna að takast
að rækta að minnsta kosti
fyrir kaupinu sínu svo og
nauðsynlegustu útgjöldum
vegna þeirrar ræktunar einn-
ar. Nema þá að AB-menn
hafi hugsað sér að fara þá
leiðina að herða svo sultar-
ólina að Hafnfirðingum, að
þeir gerðust svo neyzlugrann
ir, að Krýsuvíkin gæti fætt
þá, að minnsta kosti gæti að-
gerðarleysi þeirra í atvinnu-
málunum bent til þess.
HIÐ HLÝJA TÍMABIL.
Hinn spádómurinn í áður-
nefndri grein var sá, að hér
á landi væri að skapast nýtt
hitatímabil og er því fært til
sönnunar, að bær Kára Söl-
mundarsonar, Breiðamörk, sé
að gægjast undan jökulrönd-
inni á Breiðamerkurfjalli. —
Verður ekki annað sagt en
að langsótt sé orðið í rökin
fyrir því að réttlæta búskap-
arbröltið í Krýsuvík. En þrátt
fyrir alla þessa hugaróra AB-
manna um möguleikana í
Krýsuvík, þá hefur þeim
sjálfum ekki tekizt að gera
þá að neinu, þrátt fyrir allan
fjárausturinn til ^ð nytja þá.
Og það eitt er víst, að þrátt
fyrir það, að forystumenn
AB-flokksins telji þetta
„merkilegasta þáttinn“ og
vilji öllu ráða þá hefur eng-
inn þeirra haft hug til að
manna sig upp í það, að
fórna stöðu sinni og fara til
Krýsuvíkur og hefja búskap-
inn til vegs. Hvers vegna
gera þeir það ekki?
BÚSTJÓRINN lagði á flótta.
En þó að maður þjálfaður
frá AB-mönnum á ísafirði
tæki að sér að stjóma bú-
rekstrinum í Krýsuvík, fór
svo að hann toldi ekki við
það. er það hálf ömurlegt
fyrir bæinn, þar sem búið var
að senda hann til útlanda til
að kynna sér rekstur kúabúa
þar. Missir bærinn nú af
þeim fræðum öllum, sem
hann aflaði þar, því ekki var
svo langt komið undirbúningi
kúabúsins að búið hafi verið
að koma öllum fræðunum
fyrir þar. Getur farið svo, að
gera verði út nýjan leiðangur
til að afla frekari fræða í þess
um efnum erlendis, því ekk-
ert á að vera í Krýsuvík ann-
an en það bezta á heimsmark
aðnum!
Dreng:|a-
meimtara mót
Island§
Drengjameistaramót Islands í
frjálsum íþróttum fer fram hér
í bæ dagana 4.—7. september
n. k.
Drengir 18 ára og yngri taka
þátt í mótinu.
Keppt verður 1 eftirtöldum
greinum 80 m. hlaupi, 300 m.
hlaupi, 1000 m. hlaupi, 4x100
m. boðhlaupi, 110 m. grinda-
hlaupi (lágar), kúluvarpi,
kringlukasti, spjótkasti, há-
stökki, stangarstökki og lang-
stökki. Þátttökutilkynningar eiga
að vera komnar til formanns
ÍBH, Jóns Magnússonar, fyrir
30. þ. m.
hefur fólk almennt fagnað því að viðjamar voru leystar af smá-
íbúðarbyggingunum og sá fögnuður hefur ekki aðeins verið í
orði heldur einnig í ríkum mæli í verki.
En því miður hefur ekki gengið eins og skyldi af hálfu bæjar-
ins að greiða fyrir byggingu smáíbúðarhúsanna. Að vísu hafa
verið lagðar götuslóðar þar sem göturnar eiga að koma svo að
hægt hefur verið að koma bílum að lóðunum á meðan þurt er
um. En það hefur ekkert verið gert að því að ganga þar frá
gatnagerð. Það er ekki farið að leggja vatn eða holræsi í þessar
'götur og það lítur ekki út fyrir, að það eigi að gerast á næst-
unni því að mönnum hefur verið sagt upp í bæjarvinnunni.
Væri ekki nema rétt eftir öðru í stjórn þeirra mála hér í bæ, að
það y.-ði látið dragast til stórra óþæginda fyrir þá, sem eru að
byggja og jafnvel farið í það verk.þegar klaki er kominn í jörð,svo
að það verði að nota loftpressu við gröftinn þar sem annars mundi
henta bezt að hafa skurðgröfu. Að minnsta kosti er hægt að eiga
von á hverju sem er í þeim efnum af hálfu ráðamanna þessara
mála.
En hvað sem þessu öllu líður þá ber að fagna því mikla átaki,
sem gert hefur verið í byggingarframkvæmdum hér í bænum með
byggingu smáíbúðarhúsanna og þá fyrst og fremst að fagna yfir
atorku og dugnaði þess unga fólks, sem nú í stórum stíl eyðir
frístundum sínum til að byggja og skapa þannig sjálfu sér, bæn-
um og þjóðinni allri auknar tekur og verðmæti.