Hamar - 25.08.1952, Qupperneq 3

Hamar - 25.08.1952, Qupperneq 3
HAMAR 3 Manðsjn á bættri stjórn Atvinnumálin - - - (Framh. af hls. 1) I innanbæjar kr. 905.960.77. Á þessu ári voru greidd vinnulaun kr. 996.214.90 á liðnum í heild og greitt fyrir bifreiðaakstur kr. 376.106.87. Samtals eru þetta kr. 1.372.321.77 og skiptist í hlut- föllum þannig, að vinnulaun eru 72,6% og akstur 27,4%. Árið 1951 urðu vinnulaun á sömu liðum kr. 951.934.60 og akstur kr. 340.954.33 eða sam- tals kr. 1.292.888.93. Hlutföllin það ár eru því: Vinnulaun 73,63% og akstur 26,37%. Athyglisverðar tölur. Tölur þessar éru þess virði að þeim sé veitt athygli, þar sem af þeim mætti nokkuð ráða hve mikill hluti þess fjár, sem varið yrði til atvinnuaukningar á þess- um lið kæmi til með að verða til raunverulegrar vinnuaukning ar. Að vísu er nauðsynlegt að taka efniskaup einnig til athug- unar þó að það væri ekki gert af hálfu nefndarinnar, þar sem efniskaup þessi ár voru óvenju- lega mikil vegna byggingar nýju vatnsveitunnar. En hlut- fallið á milli vinnulauna og akst urs er mjög svipað bæði árin og gefa það til kynna að rúmlega fjórða hver króna fer í bifreiða- kostnað, þó eru í hinum greiddu vinnulaunum laun verkstjór- anna, sem er fastur liður hvort sem mikið eða lítið er unnið eins og nú háttar bæjarvinn- unni. Kemur það eftir því ver út, sem færri vinna. Það er því nauðsynlegt að gefa þessu máli meiri gaum en nú er gert, ekki sízt þegar tillit er tekið til þess, að hjá því get- ur ekki farið að róttækar ráð- stafanir verði að gera til að draga úr sárasta atvinnuleysinu,. sem nú herjar á verkamenn í þessum bæ. Slíkar ráðstafanir verður að linitmiða við það, að þær komi að sem beztu gagni bæði fyrir þá, sem vinnunnar þurfa, svo og vinnuveitandann. Framan greindar tölur geta gef ið nokkrar upplýsingar í þessu efni hvað bæjarvinnuna snertir, en þó þarf að gera miklu ná- kvæmari athuganir í því sam- bandi, enda ætti það ekki 'að vera svo mikið verk. Nauðsyn á góðum undirbúningi einstakra verka. Nefndin benti m. a. á það, að nauðsynlegt væri að verk þau, sem bærinn léti vinna væru vel undirbúin, þannig, að í upphafi væri búið að gera sér fullu grein fyrir því, hvernig framkvæmd þeirra yrði hagað. Gæti það komið í veg fyrir vinnutafir og tvíverknað, sem stundum vill verða. Með því mundi verkið geta gengið eðlilega áfram og orðið miklu ódýrara en ella. Það mun oft vilja brenna við, að verk þau, sem vinna skal eru harla lítið og stundum ekki neitt undirbúin áður en framkvæmd þeirra er hafin. Verður það oft I til þess, að verkin ganga miklu verr en skyldi og óeðlilegar vinnutafir verða. Stundum geng ur það svo langt að lítillega er byrjað á verkinu og svo er hlaup ið frá því með öllu um lengri tíma. Eru t. d. ekki líkur til, kr., sem komnar eru í húsmæðra skólabygginguna hér í bæ, þeg- ar til þess var hlaupið að gera smá jarðrask upp á Hamrinum til þess að geta sagt frá því í fréttum, að bygging húsmæðra- skóla í Hafnarfirði væri hafin. Margt virðist benda til þess, að svipuð saga sé að hefjast með byggingu bókasafnsins, að minnsta kosti verður ekki vart við það, að þar sé neitt áfram- hald ennþá. Þannig mætti telja vms fleiri verk. sem bærinn hef- ur látið vinna bæði fyrr og síð- ar. Útboð á einstökum verkum. Þá benti nefndin á það hvort ekki gæti verið rétt að athuga með að bjóða út í ákvæðisvinnu einstök verk í bæjarvinnunni. Að vísu yrði það að vera mats- atriði hjá bæjarráði hverju sinni, hvort það mundi þykja hag- kvæmt eða ekki, þar sem ýms atriði fleiri koma til greina held- ur en það, bver kostnaður verks- ins verður í krónutölu. Hér er um að ræða ábendingu, sem ætti að taka til athugunar. Það gæti verið mjög gott fyrir bæ- inn að bjóða út einstök verk bæði vegna þess, að þau yrðu ódýrari en ella svo og vegna þess, að gott er fyrir bæjaryfir- völdin að fá eðlilegan saman- burð á því hvort hagkvæmara yrði. Hins vegar verður aftur að líta á þá hlið málsins, að bær inn verður oft að sjá mönnum fyrir vinnu, sem hefðu ekki að- stöðu til að komast að hjá slík- um verktökum. Það hefði t. d. verið mjög eðlilegt að bjóða út byggingu vatnsveitunnar og nánast sagt hefði það verið skylda bæjar- stjórnar, að gera það, ef það mætti verða til þess, að verkið yrði verulega ódýrara. Ef aftur á móti, að bærinn, sem að sjálf- sögðu hefði látið sinn verkfræð- ing gera nákvæma kostnaðará- ætlun um verkið, vildi, gat hann byggt vatnsveituna sjálfur, ef það reyndist hagkvæmara. Það sem hefði unnist við útboð- ið er það tvennt, að samanburð- ur hefði fengizt við aðra aðila svo og hitt, að stjórnendur bæj- arins hefðu gert sér ennþá nán- ari grein fyrir ýmsum smáatrið- um í sambandi við framkvæmd verksins, sem hefði getað orðið til þess, að verkið hefði unnizt betur. Komið verði í veg fyrir að sama verk sé unnið tvisvar. Þá lagði nefndin áherzlu á það, áð náin samvinna yrði höfð á milli bæjarsjóðs, rafveitu og síma um þær framkvæmdir, sem eru svipaðar eins og t. d. gröft I í götum. Gæti slíkt sparað þess- um aðilum öllum nokkurt fé. Á þessu hefur alltaf viljað vera nokkur misbrestur, en þó hefur slík samvinna verði stundum. Er ákaflega leiðinlegt að sjá þau vinnubrögð, að fyrst komi bæjarsjóður og grafi upp götuna fyrir vatns- og holræsalögn, svo komi rafveitan og grafi fyrir raftaugum og að síðustu komi síminn og grafi fyrir sínum lín- um. Mundi þetta koma miklu minna fyrir, ef gengið væri í það að leggja götur og þeim lokið heldur en eins og nú er, þegar svo má segja að gatnagerðin hér í bæ sé þannig að byrjað sé að gera krákustíg heim að hverri lóð, fyrst þegar byrjað er að byggja á henni og svo er verið er að tengja eitt og eitt hús í vatns- og holræsasamband með ærnum kostnaði og það stundum bráðabirgðalagnir. En þannig ganga hlutirnir til hér í bæ og það því miður alltof oft. Þarf að vera vel stjómað. Málum þessum þarf að vera vel stjórnað til þess að ekki verði sóað miklu meira fé en góðu hófi gegnir og bæjarbúar fái sem mest út úr liðnum bæði hvað framkvæmdirnar sjálfar snertir og frá atvinnulegu sjón- armiði. Um það hefur ekki verið hugsað eins og skyldi heldur hefur allt verið látið reka á reið anum, hlaupið úr einu í annað og tiltölulega fátt klárað. Marg oft er hlaupið í sömu verkin og hætt við þau áður en þeim er lokið og lítið er hugsað um að haga verkum eftir því sem hag- kvæmast er að vinna þau eftir árstíðum. Þannig getur alveg eins verið unnið að því að sprengja klappir á sumrin og svo verið með loftpressu í því að ná upp mold að vetrinum. Það verður því ekki annað sagt en að áfram er vaðið af lítilli fvrirsýn og ekki hugsað um hag bæjarbúa í þessum efnum. Væri ekki vanþörf á að gerðar væru breytingar á stjórn þessara mála og fá þannig úr því skorið, hvort ekki væri hægt að kippa þeim úr því ófremdarástandi, sem nú er og hefur verið undanfarin ár. Getur Brunabóta- félagið lækkað iðgjöldin? (Framh. af bls. 1) og vinna oð því að bærinn fái fullt valfrelsi um það að bjóða tryggingarnar út svo að hægt væri að taka lægsta tilboði og fá þannig hagkvæmasta samninga í þessum efnum. Þegar Sjálfstæð ismenn í bæjarstjórn báru fram tillögu um það, að skora á þing- mann kjördæmisins að beita sér fyrir því á Alþingi, að Hafnar- fjarðarbær fengi fullt valfrelsi um það hvar hann tryggði var (Framh. af hls. 1) legt, að bæjarvinnan skuli hafa verið lögð niður, þegar verka- menn hafa ekki að neinni ann arri vinnu að hverfa. Fundurinn skorar því á bæjarstjórn Hafnar- fjarðar að hefja bæjarvinnu þeg- ar að nýju og þeir verði fyrst teknir í hana, sem skráðir voru atvinnulausir, enda hafi þeir hennar mesta þörf öðrum frem- um, og sjái vinnumiðlunarstjórn um þá úthlutun, jafnframt geri bæjarstjórn sérstakar ráðstafan- ir til að tryggja framhaldandi bæjarvinnu þar sem útlit er fyr- ir um að mikið atvinnuleysi verði í bænum á komandi hausti nema alveg sérstakar ráðstafan- ir komi til.“ Tillaga til ríkisstjómarinnar. „Til þess að bæta úr þeim vandræðum, sem langvinnandi atvinnuleysi hefur skapað fjöl- mörgum verkamannaheimilum í Hafnarfirði, skorar fundurinn á ríkisstjórnina að veita Hafnar- fjarðarbæ fé til atvinnubóta, en Hafnarfjarðarbær hefir ekki orð ið neins aðnjótandi af því fé, sem síðasta alþingi samþykkti að veita til atvinnuaukningar vegna atvinnuleysis, eii atvinnu- leysi hefur verið næstum stöð- ugt hjá mörgum verkamönnum í bænum frá því á s. 1. hausti, því á vertíðinni höfðu margir menn sáralitla vinnu. Nú er hins vegar svo komið, eftir að togar- arnir hættu að landa afla sínum á land til verkunar, að verra at- vinnuástand hefur skapast með- al verkamanna hér í bænum. Fundurinn skorar því á ríkis- stjórnina, að hún hlutist til um það, að annar háttur verði á hafður um veiði skipanna, að aflinn verði ekki fluttur óverk- aður úr landi á sama tíma, sem fjöldi vinnufúsra manna bíður eftir að fá vinnu við framleiðslu- störf, en aðra vinnu er ekki að hafa.“ Gremja út af bæjarvinnunni. Það kom mjög fram á fundin- um óánægja yfir því að bæjar- vinnan skyldi vera með öllu lögð niður um hábjargræðistím- ann, þegar svo árar, að allveru- legt atvinnuleysi er í bænum. það fellt af AB-mönnum, þeir vildu ekki frelsið hvort sem það hefur verið af því, að þeir hafi ekki treyst sér til að fara með það eða ekki skal ósagt látið. En vel má vera, að bærinn sé orðin svo fjárhagslega bundinn Brunabótafélaginu, að hann geti í hvorugan fótinn stígið, enda ympraði bæjarstjórinn á því, að bærinn hefði tekið lán hjá félag- inu. Vonandi vitkast AB-menn svo í þessu máli, að bæjarbúar bíði ekki stærra tjón en nauðsynlegt er, því varla er hægt að búast við meiru úr þeirri átt eftir því sem til hefur gengið að undan- förnu. Verður sú afstaða bæjarstj. lítt skiljanleg. Fer ekki hjá því, að bæjarstjómin verður að gera ein hverjar ráðstafanir í þessum efn um og það án tafar. Fer nú að verða aumlegt ástand í stjórn bæjarmálanna, ef það eru efni á því, að láta menn ganga at- vinnulausa um lengri tíma á þeirri árstíð, þegar bezt er að að vinna öll útiverk, og ekki verður það sagt, að verkefnin vanti. Vonandi breytist hér til batn- aðar og bæjarstjórnar meirihlut- inn dragi sig út úr hjúp uppgjaf- ar, aðgerðarleysis og sinnu leysis um afkomu bæjarbúa og fari að gera einhverja þarfa hluti í þessum málum eða þá að hann gefist hreinlega upp og gangi frá því að stjórna bænum, því annaðhvort er, að það er búið að sökkva bæjarfélaginu svo í óreiðuskuldir, að það get- ur enga hjálp veitt eða þá, að AB-menn eru á engan hátt fær- ir um að mæta erfiðleikum, nema þá að hvorttveggja sé, sem er einna líklegast. Vonandi ræt- ist betur úr en á horfir. Er haustar Sumarið er nú senn á enda og má að ýmsu kalla gott fyrir okkur er höfum dvalið hér sunn anlands. Sérstaklega hefur ágúst mánuður verið sólríkur, svo að segja má að hvert andlit hafi verið brúnt og hraustlegt. Börnin, þau er í bænum hafa verið hafa hraustlegt og gott út- lit eftir sumarið og öll vonum við, að þau, sem í sveitinni hafa dvalið komi þaðan í haust sól- brún og hressileg, til þess að hefja starfið á ný á skólabekkj- unum. Skólinn tekur huga þeirra fanginn, fyrst í stað, að minnsta kosti, svo að foreldrarn- ir þurfa litlar áhyggjur að hafa. En er frá líður og mesti glans- inn fer af skólalífinu, eins og gengur. aukast áhyggjur margra foreldra. Skemmtanalíf og sjoppusetur setur svip sinn á margan unglinginn. Hér er um vandamál að ræða, sem erfitt virðist að leysa. — Margt hefur verið rætt og rit- að um þessi mál, en lausn virð- ist ekki hafa fengist og 'margir foreldrar eiga í þessu sambandi við margvíslega erfiðleika að etja. Tómstundir og tómstunda- heimili eru orð, sem flestir þekkja úr ræðu og riti. En hvað um framkvæmdirnar? Ef til vill er hér grundvöllur til frekari umræðna — umræðna, sem leitt gætu til góðs fyrir æskulýðinn. Hvernig væri að fá eitthvað að heyra um þessi mál frá skóla- mönnum okkar bæjarfélags? AUGLÝSIÐ í HAMRI

x

Hamar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.