Morgunblaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 3
VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Íþróttaáhugamenn á Íslandi hafa líklega tekið eftir því að snjallasti körfuknattleiksmaður landsins, Jón Arnór Stefánsson, hafði frekar hægt um sig í fyrstu leikjum Granada í spænsku úrvalsdeildinni í haust. Jón var kominn í stórt hlutverk hjá lið- inu á síðustu leiktíð en þá var Gra- nada ekki langt frá því að komast í úrslitakeppnina í spænsku deildinni sem er iðulega talin sú sterkasta í Evrópu. Æfði einu sinni fyrir stórleik Í haust varð Jón fyrir því óláni að veikjast hastarlega þegar deilda- keppnin var nýhafin. „Ég fékk ein- hvern magavírus og var með mikinn hita og allt sem því fylgir. Eftir að hafa verið frekar veikburða í viku, þá fór ég loksins á spítala og fékk fúkalyf og vökva í æð. Ég hafði enga matarlyst og missti mörg kíló. Ég spilaði veikur gegn Valencia og var í kjölfarið veikur í viku. Ég tók eina æfingu fyrir næsta leik á eftir sem var gegn Barcelona og spilaði samt sem áður heilmikið í þeim leik. Þetta var ekkert dramatískt, og ég var ekki dauðvona, en það er ekki gott að missa svona mörg kíló þegar maður er atvinnumaður í íþróttum. Það er ekkert grín,“ sagði Jón Arn- ór í samtali við Morgunblaðið. Veikindin eru nú að baki og Jón er byrjaður að láta til sín taka á vellinum á ný. Granada veitir ekki af því þar sem liðið mætti erfiðum andstæðingum í upphafi deild- arinnar og stendur illa að vígi í 14.- 17. sæti af 18 liðum. „Ég vil ekki kenna einhverjum veikindum um slæmt gengi. Það var auðvitað hundleiðinlegt að standa í þessu í upphafi tímabilsins en ég er orðinn góður,“ benti Jón á og var afar ósáttur við tapið gegn Menkorka 57:60 um síðustu helgi. „Við áttum að vinna þennan leik en klúðruðum síðustu tveimur sókn- um okkar í leiknum. Það má segja að við séum miðlungslið þegar kem- ur að því að klára leiki með sigri, gegn andstæðingum sem við eigum að vinna. Við eigum erfitt með það en á móti kemur að við náum upp stemningu á móti stóru liðunum sem er skiljanlegt.“ Hefur spilað vel að undanförnu Jón segist vera í svipuðu hlut- verki hjá liðinu og á síðustu leiktíð en hann hefur spilað æ betur að undanförnu og skoraði 11 af 58 stig- um Granada í síðasta leik. „Mitt hlutverk er mjög svipað. Ég hef loksins verið að finna mig í síðustu þremur leikjum og okkur líður vel hérna. Ég hef ofsalega gaman af þessu en það var smá leiði í mér á undirbúningstímabilinu. Þá vorum við líka slakir og okkur vantaði marga leikmenn. Ég geri mér grein fyrir því að við erum með mjög hæfileikaríkt lið. Þó við séum reynd- ar reynslulitlir þá erum við með lið sem getur keppt við hvern sem er. Ég er sannfærður um að okkar leik- ur mun batna þegar líður á vet- urinn,“ sagði Jón ennfremur við Morgunblaðið. Ljósmynd/Ville Vuorinen Bestur Jón Arnór Stefánsson hefur náð lengst íslenskra körfuboltamanna og leikur með Granada á Spáni í sterkustu deild í Evrópu. Ekkert grín að missa mörg kíló  Jón Arnór er kominn á fulla ferð ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2010 Helgi Magn-ússon skoraði tíu stig fyrir Uppsala þegar liðið tap- aði á útivelli fyr- ir Södertälje, 91:83 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Helgi lék í tæpar 29 mínútur. Afleit byrjun leikmanna Uppsala í leiknum reynist liðinu erfið en það tapaði fyrsta leik- hluta, 25:4.    Logi Gunnarsson var heldur ekki ísigurliði í gærkvöldi í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Lið hans Solna, tapaði fyrir Borås, 81:69, á útivelli. Logi gerði 8 stig. Solna er í sjötta sæti með 6 stig eftir sjö leiki.    Kristján Andrésson, þjálfari Guif,stýrði sínum mönnum til sigurs á H43, 29:20, á á útivelli í sænsku úr- valsdeildinni í handknattleik í gær- kvöldi. Með sigrinum tyllti Guif sér í efsta sæti úrvalsdeildarinnar. Hauk- ur, bróðir Kristjáns, skoraði tvö af mörkum Guif sem hefur 18 stig að loknum 11 leikjum. Såvehof hefur einu stigi færra.    Gylfi Gylfason skoraði þrjú mörkfyrir GWD Minden þegar liðið vann Dessau, 35:24, í norðurriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gærkvöldi. Minden-liðið er efst í riðlinum með 18 stig að loknum 10 leikjum.    Birgir LeifurHafþórs- son réð vel við erfiðar aðstæður þegar Opna Condado mótið hófst í gær á HI5 sem er lítil mótaröð at- vinnukylfinga á Spáni. Mikið hvassviðri gerði kylfingum erfitt fyrir og ekki síður mótshöldurum sem urðu að fresta leik þar til á morgun vegna þess að golfboltarnir héldust ekki á flötunum. Birgir Leifur var á höggi undir pari eftir átta holur. Hann er því á meðal efstu manna en eftir því sem næst verður komist var enginn á lægra skori en tveimur und- ir pari. Tveir aðrir íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda. Arnar Snær Hákonarson er á fjórum höggum yfir pari eftir níu holur og félagi hans úr GR Þórður Snær Gissurarson er á fimm höggum yfir pari. Keppni held- ur væntanlega áfram með morgni ef veður leyfir.    KristjánFinn- bogason hefur verið ráðinn að- stoðarþjálfari meistaraflokks Gróttu í knatt- spyrnu karla. Hann verður hægri hönd Sig- urðar Helgason sem tók við þjálfun liðsins í 1. deild þegar talsvert var liðið keppn- istímabilið í sumar. Kristján mun jafnframt leika í marki Gróttu áfram eins og hann hefur gert síðustu tvö ár. Gróttumönnum tókst með naum- indum að halda sér í 1. deildinni í haust eftir að hafa verið í fallsæti lengst af leiktíðar.    Úrvalsdeildarlið ÍR í körfuknatt-leik hefur skipt um útlending. Breiðhyltingar hafa losað sig við Kar- olis Marcinkevicius og hafa fengið Matic Rubic sem þeir ætla að skoða næstu dagana. Marcinkevicius skor- aði 8,2 stig að meðaltali í leik með ÍR- ingum. Rubic er leikstjórnandi sem lék í 2. deildinni í Austurríki á síðustu leiktíð. Karfan.is greindi frá þessu. Fólk sport@mbl.is Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Heiðar Helguson framherji enska 1. deildarliðs- ins QPR glímir við hálsmeiðsli en hann hefur ekkert leikið með Lundúnaliðinu síðan hann þurfti að fara af velli um miðjan seinni hálfleik í leik gegn Bristol City þann 22. október. Heiðar lenti illa á öxlinni og fékk svo í kjölfarið högg aftan á hálsinn. Hann er enn ekki orðinn leikfær og þurfti að gefa Ólafi Jóhannessyni landsliðs- þjálfara afsvar þegar hann boðaði hann í lands- leikinn gegn Ísrael sem fram fer í Tel Aviv í næstu viku. „Ég er enn aumur í hálsinum og ég hreinlega veit ekki hvenær ég get byrjað að spila aftur. Ég fór í sprautu í síðustu viku og ég er svona að vonast til að geta byrjað að æfa í næstu viku. Ég verð samt bara að gefa þessu tíma,“ sagði Heið- ar við Morgunblaðið í gær. Heiðar hefur átt góðu gengi að fagna með Lundúnaliðinu á leiktíðinni og hefur skorað 5 mörk í 13 leikjum liðsins en QPR trónir í topp- sæti deildarinnar. „Þetta er búið að ganga bara ansi vel hjá okk- ur en það er mikið eftir og þessi deild er ansi snúin,“ sagði Heiðar. Spurður hvort QPR sé með nógu gott lið til að komast upp í úrvalsdeildina sagði Heiðar; „Alveg eins og einhver önnur lið. Við erum búnir að spila við 15 lið í deildinni og ég hef ekki séð neitt af þeim liðum betra heldur en okkar.“ Heiðar er 33 ára gamall og hefur verið í at- vinnumennsku frá því hann gekk til liðs við Lilleström í Noregi árið 1998. Samningur hans við QPR rennur út eftir tímabilið. Spurður hvort hann sé byrjaður að ræða við forráðamenn QPR um nýjan samning sagði Heiðar: Þá kemur maður bara heim í stórveldið „Það er svona aðeins búið að minnast á þessi mál en það er ekkert komið á hreint. Ef við för- um upp og í boði verður nýr samningur þá mun ég taka því boði. Ef ekki reyni ég að finna eitt- hvað annað en ef það gengur ekki þá kemur maður heim í stórveldið í Laugardalnum. Ég vonast til að geta tekið eitt ár til viðbótar í at- vinnumennskunni,“ sagði Heiðar. Heiðar: Vonandi eitt ár í viðbót Tottenham til að skora í fyrstu 5 heimaleikjum sínum, og bætti um betur með leiknum í gær, en auk þess að skora í úrvalsdeild- inni hefur hann nefnilega skorað 3 mörk í 2 heimaleikjum í Meist- aradeildinni. Þær 8 milljónir punda, um 1,4 milljarðar króna, sem Tottenham greiddi Real Ma- drid fyrir kappann virðast ansi lág upphæð í þessu sambandi. Í hinum leiknum í gærkvöldi vann Stoke góðan 3:2 sigur á Birmingham. Eiður Smári Guðjohnsen var á ný í leikmannahópi Stoke en kom ekkert við sögu. sindris@mbl.is rt skoraði í sjötta ð Tottenham í röð Rafael van der Vaart Ole Gunnar Solskjær var í gær ráðinn þjálfari norska knattspyrnuliðsins Molde en 14 ár eru liðin frá því hann yfirgaf félagið þegar Molde seldi hann til Manchester United fyrir litlar 1,5 milljónir punda. Solskjær verður ekki á neinum sultarlaunum hjá Molde, hann kemur til með að fá 2,4 milljónir norskra króna í árslaun en það jafngildir nálægt 50 milljónum króna. Solskjær hefur frá árinu 2008 stýrt varaliðinu Manchester United en eftir að þessi mikli marka- skorari neyddist til að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla fyrir þremur árum fékk Sir Alex Ferguson hann inn í þjálfarateymi félagsins og hef- ur farið gott orð af Norðmanninum á þeim vett- vangi. „Ole hefur átt góðan tíma með varalið okkar sem hefur gefið honum góðan grunn til að byrja þjálfun á öðrum vettvangi. Hann hefur reynst Manchester United frábær og ég er sannfærður um að honum á eftir að vegna vel,“ sagði Sir Alex Ferguson en Sol- skjær skoraði 126 mörk í 366 leikjum með félaginu. Solskjær tekur við liði Molde af Þjóðverjunum Uwe Rösler, fyrrum leikmanni Manchester City, en undir hans stjórn hafnaði liðið í 11. sæti á nýafstöðnu tímabili. gummih@mbl.is Solskjær fær 50 milljónir í árslaun hjá norska úrvalsdeildarliðinu Molde Ole Gunnar Solskjær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.