Hamar - 22.12.1956, Side 5

Hamar - 22.12.1956, Side 5
22. desember 1956 HAMAR 5 Fólk það, sem vel man síðustu aldamót, einkum þó það, sem komið var á starfsárin, mun jafn- vel vera langminnugast á það, að þá var ekki um neina atvinnu að ræða fyrir allan fjöldann af fólki, sem í kauptúnum og sjáv- arþorpum bjó, frá haustnóttum til jafndægra á vori, eða þar til síðari hluta marzmánaðar, að menn fóru að hugsa til sjóróðra, þeir sem það gerðu og gátu. — Frá þessu var aðeins um sárfá- ar undantekningar að gera, og voru það helzt nokkrir menn, sem eitthvert vinnusnatt höfðu við verzlanirnar, utan þeirra föstu starfsmanna, og var vinna þessi svo lítil margan daginn, að ekki þótti ómaksvert að bókfæra hana, né heldur það, sem fyrir hana var greitt. Var þá gjarnað- arlegast látið duga að stinga að mönnum þessum einhverju smá- legu, svo sem rulluspotta, þ. e. munntóbak, kandísmola eða öðru því um líku, en allt var hey í þeim harðindum. Þeir, sem svona langt muna, eru nú daglega minntir á þann reginmun, sem hér er fyrir löngu á orðinn, og má segja, að þetta fólk hafi lifað tvenna tímana í þessu efni, sem flestu öðru. All- ir þeir, sem síðar komu, hafa ekkert af þessu að segja, nema ef væri af sögusögn, og taka þá margir þær sögur ekki jafnalvar- lega sem þær voru þeim, sem þetta reyndu. Það, sem ég liér að framan sagði um hið mikla vinnuleysi, átti ég þar vitanlega við vinnu utan heimilanna. — Þetta vinnu- leysi manna stafaði þó ekki af því, að fólkið vildi ekki vinna, ef um vinnu hefði verið að ræða, það var bara ekkert til að vinna, eða svo var það á þessum tíma í Hafnarfirði, þar sem ég var kunnugastur , og svipað mun á- standið hafa verið í öðrum kaup- túnum og sjávarþorpum, að Reykjavík kannske undanskil- inni, og er þó efamál, hvort á- standið hefur verið hlutfallslega nokkru betra þar, en á öðrum stöðum. Allt fram á síðustu aldamót var það svo í Hafnarfirði, að eft- ir að fiskur sá var farinn út á haustin, sem verkaður var þar yfir sumarið, var helzt ekki von í handarviki, nema þá helzt þeg- ar póstskipið kom með smávöru- slatta, einu sinni til tvisvalr á vetri, og var venjulega sú vinna pöntuð löngu fyrir fram af miklu fleirum en liægt var að koma að þeirri vinnu, sem þó varaði venjulegast ekki nema fáar klukkustundir. Ef einhver, sök- um fjarveru eða annarrar slysni missti af þessum klukkustunduin, sem hann var búinn að fá ádrátt fyrir, þótti það fráleitt óhapp, sem ekki fékkst uppbætt, senni- lega vetrarlangt. Já, svona var lífið þá. Eg vil þó geta þess hér, að með tuttugustu öldinni sást bjarma fyrir nýjum og bjartari degi í atbafna- og atvinnulífi Hafnarfjarðar. Þá var farið að fréttast um jafnvel farið að bóla á stórauknum og nýjum fram- kvæmdum í þilskipaútgerð, sem þrjú stór verzlunarfvrirtæki stóðu að, sem voru Ágúst Flyg- enring, síðar verzlunin Edinborg, J. P. J. Bryde í Reykjavík og Pétur J. Thorsteinsson á Bíldu- dal. Við þessar fréttir og fram- kvæmdir léttist brún á mörgum Hafnfirðingi og líka rættist fyrir kauptúnið í heild, og má segja, að síðan hafi hver stórviðburð- urinn rekið annan í Hafnarfirði. Áhrifa þessara stórfyrirtækja var þó lítið eða ekki farið að gæta, þegar saga sú, sem ég segi liér frá, gerðist, en þá ríkti svo að segja algjört vinnuleysi vetrar- langt. Það var því ekki að undra, þar sem svona var ástatt, þótt fólk það, sem þarfnaðist vinnu og þekkti ekki annað en vinnu og bjaka eitthvað fyrir sig og sína, gripi hvert tækifæri, sem gafst til að afla sér nokkurra aura, því að þá var oftast lengi verið að vinna fyrir krónunni, eða frá 5 og allt upp í 10 klukku- stundir. — Með þessa staðreynd í huga fyrst og fremst verður það skiljanlegt, að Hafnfirðingar slepptu ekki fram hjá sér happi því, sem gaf tilefni til þessarar frásagnar, og í annan stað voru þeir menn, sem töldu sjálfsagt að bjarga verðmætum, sem í ein- hverri hættu voru, hver sem í hlut átti. Að bjarga sér og bjarga öðru var þeim lögmál. Tildrög sögu minnar, eða þess happs, sem ég minntist á, sem að vísu í þetta skipti var ekki af öllum litið á sem happ, sem þó var óvenju- legt, þegar um einhvert bjarg- ræði var að ræða, var sem nú skal frá sagt. í blaðinu ísafold frá 28. des. 1901 birtist svolátandi frétt, und- ir fyrirsögninni „Siglingar": „Hingað kom 24. þ. m. gufu- skip Hekla (314, Al. skipstjóri Nygaard) frá Trepani með salt- farm til fyrirhugaðrar þilskipa- útgerðar J. P. T. Bryde í Hafn- arfirði. Skipið rak sig á flúð und- an Álftanesi og varð lekt til muna.“ Næst skulum við heyra, hvað lögregluréttarbók Gullbringu- og Kjósarsýslu segir hér um. Þar segir svo í megindráttum frá ferð skjpsins: „Þann 2. janúar 1902 var sett- ur lögregluréttur af sýslumann- inum i Gullbringu- og Kjósar- sýslu, Páli Einarssyni. Var þar tekið fyrir að láta fara fram sjó- próf í tilefni af, að gufuskipið Hekla frá Bergen hafði rekizt á sker út af Hafnarfirði. — fyrir réttinum var mættur skipstjór- inn M. Nygaard, 47 ára gamall. Þegar hann hafði skýrt frá ferð- inni, sem hófst þ. 20. nóvember í Trepani á Italíu, þegar skipið lagði þaðan með saltfarm, sem átti að fara til íslands, kom í Ijós við þá skýrslu, að skipið hafði hreppt vond veður. Einkum var það þann 30. nóvember ,að það fékk á sig marga brotsjói, og ollu þeir nokkrum skaða ofandekks. Segir svo ekki af ferð skipsins fyrr en klukkan 4 að morgni þess 24. desember, að skipsmenn sjá Garðskagavita, í suðvestur til suðurs. Vindur var hvass austan og sjór úfinn. Eftir tvo tíma, eða klukkan 6, sjá þeir Akranesvita og Gróttuvita og draga þá mjög úr gangi skipsins. Klukkan 8 um morguninn tók skipið niðri, en var þá á mjög hægri ferð. Strax var vél skipsins látin taka aftur á af öllu afli, og losnaði skipið þá þegar. Þegar skipið tók aftur á bak, flæktist lengdarmælir skipsins með línunni í skrúfu þess, og tapaðist hvort tveggja þar með. Þegar þetta skeði, hafði stýrimaður vöku, þar eð skip- stjórinn fór af vöku ld. 3 um morguninn. Við rannsókn á lest- um skipsins kom í ljós, að all- mikill sjó var kominn í skipið og hækkaði óðfluga. Dælur voru allar settar af stað og stefna tek- in á Reykjavík." Þegar fullljóst var af degi, kom í ljós ,að viti sá, sem þeir tóku fyrir Gróttuvita, var Garða- viti, en sá sem þeir héldu Akra- nesvita var Gróttuvitiinn. Allir þessir vitar voru með fastaljósum þá og sýndu því enga blossa. Klukkan 11 f. h. var akkerum varpað á Reykjavíkurhöfn. Skip- ið var mjög lekt, en með því að hafa allar dælur stöðugt í gangi var hægt að halda því á floti. Það kom síðar í ljós, hvað það var, sem einkum mun hafa bjarg- að því, að skipið sökk ekki fljót- lega eftir áreksturinn, og mun vikið að því síðar. Sýnilegt var, að sjór var kominn í lestar skips- ins. — Þegar skipstjóri hafði haft tal af þeim, sem átti að taka á móti saltinu ,sagði hann skip- stjóra að sigla skipinu til Hafn- arfjarðar, þar eð ekkert húsrúm væri fyrir farminn í Reykjavík. Klukkan 2,30 kom hafnsögumað- ur út í skipið, og þá samstundis lagt af stað til Hafnarfjarðar. — Það tókst að lialda lekanum í skefjum með því að gefa aldrei eftir á dælunum. Klukkan 5,15 var akkerum varpað á Hafnar- firði. Hér lief ég rakið nokkuð til- drög þess, að íbúar Hafnarfjarð- ar voru flestum þar að óvörum og síðar á alleftirminnilegan hátt truflaðir af óvæntri skipskomu, og það í þann mund, sem jólahá- tíðin var að ganga í garð, í þessu þá fámenna og friðsæla kaup- túni, — í þann mund, sem þeir, er síðast luku störfum þann dag, og aðrir þeir, sem úti við höfðu verið, voru að ganga til heimila sinna, einhverjir með það síð- asta, sem dregið var að fyrir há- tíðina. Fyrir rösklega hálfri öld var skipakoma til Hafnarfjarðar að vetrinum til talin til fátíðari við- burða. Það var því ekki að undra þótt Hafnfirðingar þeir, sem þetta kvöld paufuðust um ó- greiðar götur og krókótta troðn- inga milli hárra hraundranga eða djúpra hraunkvosa í sortamyrkri heim að heimilum sínum til að njóta helgi og tilbreytni, sem jólahátíðin setti þá á hvert heim- ili, stönzuðu og litu undrandi til sjávar, því að þaðan barst þeim skerandi hljóð frá eimflautu, sem rauf þögn hins hljóða umhverfis. (Framhald á bls. 7) Mynd þessi sýnir vel troðninga þá, er lágu liér milli húsa áður fyrr. Stóra húsið á myndinni var kallað Smith-hús, en til hægri er bærinn, sem Matthías Á Mathiesen, skósmiður, átti heima t. — Myndin er tekin í kringum 1905. X V SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í IIAFNARFIRÐI % óska öllum Hafnfirðingum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs, með beztu þökkum fijrir ánægfulegt samstarf á líðandi ári. Ólafur porvaldsson, þingvörður: Þegnr jólin hurfu Hnfnfirðingum

x

Hamar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.