Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 2
2 2. desember 2010finnur.is
VILT ÞÚ
VITA HVERS
VIRI EIGNIN
ÞÍN ER Í DAG?
PANTAU FRÍTT
SÖLUVERMAT ÁN
SKULDBINDINGA!
HRINGDU NÚNA
Bær820 8081
Sylvia Walthers // best@remax.is
Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
Jóna Svava Sigurðardóttir lærði senni-lega að prjóna áður en hún lærði sta-rófið. Frá fimm ára aldri hefur húnvarla lagt frá sér prjónana, og er alls
ekki ein um að vera með mikla prjónadellu ef
marka má vinsældir prjónaáhugahóps hennar á
Facebook. „Þegar ég setti hópinn á laggirnar
árið 2008 voru fljótt komnir 500 manns, en
núna erum við yfir 10.000,“ segir hún en á Fa-
cebook-svæðinu skiptast meðlimir m.a. á upp-
skriftum og sýna myndir af sköpunarverkum
sínum. „Það er mikið um að vera og sem dæmi
eru komnar um 4.700 myndir á svæði þessa
klúbbs.“
Félagsskapurinn fékk nafnið að láni frá Jónu
og geta áhugasamir slegið inn í leitargluggann
„Prjóna Jóna“ til að gerast meðlimir.
Gott að prjóna í kreppu
Vinsældir hópsins segir Jóna til marks um
það að prónalistin sé vinsælli en margan grun-
ar og hafi ekki síst blómstrað eftir hrun bank-
anna. „Ég man að fyrir þetta 15 árum eða svo,
þegar ég var sjálf í kringum hálfþrítugt, hvað
mörgum þótti undarlegt að ég væri að prjóna á
þessum aldri. Núna er viðhorfið gjörbreytt og
allt niður í 10 ára strákar eru duglegir að
prjóna fallega hluti. Einn vinur sonar míns veit
ég t.d. að útvegar sér vasapening með því að
prjóna og selja föt á dúkkur.“
Nú er svo komið að finna má allgóðan fjölda
íslenskra prónahópa á Facebook, þó að enginn
þeirra nái reyndar þeirri miklu stærð sem hóp-
urinn hennar Jónu hefur náð. „Kannski þykir
fólki gott að leita í þetta eftir allt sem gengið
hefur á í samfélaginu. Að sitja og prjóna er jú
mjög róandi og líka gaman að sjá hvernig
sköpunarverkið tekur smám saman á sig mynd.
Svo eru prjónuð föt komin aftur í tísku og
mjög fallegt að vera t.d. í flottri handgerðri ull-
arpeysu,“ segir Jóna en prjónafólkið lætur ekki
duga að prjóna hvað í sínu horni og er klúbb-
urinn duglegur að hittast. „Fyrsta miðvikudag
hvers mánaðar hittumst við í Okkar bakaríi í
Garðabæ, og yfirleitt á blinu 40 til 80 manns
sem koma í hvert skipti.“
ai@mbl.is
Yfir 10.000 meðlmir í hópi Prjóna-Jónu og á bilinu 40 til 80 hittast í mánuði hverjum.
Morgunblaðið/Golli
„Kannski þykir fólki gott að leita í þetta eftir allt sem gengið hefur á í samfélaginu. Að sitja og
prjóna er jú mjög róandi,“ segir Jóna Svava Sigurðardóttir, eða Prjóna-Jóna.
Stærsti prjónahópur
landsins er á Facebook
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími
5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannes-
sen Umsjón Birta Björnsdóttir birta@mbl.is Bílar
Sigurður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@ mbl.is Blaða-
menn Ásgeir Ingvarsson, Finnur Thorlacius. Auglýsingar
finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf.
Allir þekkja hörðu
karamellurnar, Wert-
her’s Original, sem
kalla fram í hugann
sælustundir með
skeggjuðum þýskum
afa sem maður aldr-
ei átti. Margt fleira
kemur samt af færi-
bandinu hjá Werther
gamla og mjúku
karamellurnar, Clas-
sic Creamy Tofees,
skilja þessar hörðu hreinlega eftir í rykinu.
Karamellurnar eru alveg eins og nafnið lofar:
alveg ekta mjúk og seig gullin karamella, og
minnir á ferhyrndu karamellurnar sem ein-
hverra hluta vegna hafa horfið úr Quality
Street-boxunum (og voru örugglega með
fyrstu bitunum til að klárast á flestum heim-
ilum).
En ógæfu Íslands verður allt að vopni. Þessi
tiltekna karamella er ekki til sölu á Íslandi, þó
að innflytjandinn segist reyndar vera að skoða
málið. Sennilega yrði bitinn svolítið dýr eftir að
klínt hefur verið á sykursköttum og tollum sem
minna óþægilega á kaupauðgisstefnu 17. ald-
ar.
ai@mbl.is
Hefurðu smakkað … Werther’s
mjúku karamellurnar?
Alveg ekta yndislegar
Aðdáendur Friends-
þáttanna kannast eflaust
við brandarann um að
maður verði að sofa jafnt
á báðum hliðum yfir nótt-
ina til að eyrun standi
ekki mislangt út. Lækna-
vísindin virðast núna
benda til þess að það
skipti í alvöru máli á
hvorri hliðinni sofið er, þó
að það hafi ekki að gera
með ásýnd eyrnanna.
New York Times birti á
dögunum grein þar sem raktar eru nokkrar
rannsóknir sem leitt hafa í ljós jákvæð áhrif
þess að sofa á vinstri hliðinni, a.m.k. ef mað-
ur á við vélindabakflæði (þ.e. brjóstsviða) að
stríða.
Hvað veldur þessu er ekki með öllu ljóst.
Annars vegar er sú tilgáta að það að liggja
á hægri hliðinni slaki meira á lokunni milli
maga og vélinda, svo magasýrurnar leki frek-
ar út og valdi brunatilfinningunni. Hin er sú að
með því að liggja á vinstri hliðinni liggi inni-
hald magans þannig að það nær ekki að lok-
unni að vélindanu, og flæði því síður upp.
ai@mbl.is
Heilsuráð vikunnar
Betra að sofa á
vinstri?
Sjálf kveðst Jóna ekki ná að prjóna eins
mikið og hún vildi. Barnauppeldi og heim-
ilisrekstur kalli á mikla vinnu og þá fer
mikill tími í að undirbúa prjónauppskriftir
fyrir vefinn. „En það eru samt prjónar og
garn inni í öllum skúmaskotum og skáp-
um og stundum grípur maður í prjóna-
skapinn á meðan suðan kemur upp á kart-
öflunum.“
Prjónað yfir
pottunum