Morgunblaðið - 02.12.2010, Qupperneq 4
fasteignir
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík, s: 522 4500 www.ILVA.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30, laugardag 10-20 sunnudag 12-20
40%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM JÓLALJÓSUM
TIL JÓLA
Sex manns starfa hjá Eldhúsvali, allt þaulvanir menn í hverskonar innréttingasmíði. Eig-
endur eru Haraldur Jónsson og Þórarinn G. Valgeirsson sem er til hægri á myndinni.
Ístað þess að rifa seglin ákváðum að horfa fram á veginn og vinna nýlönd. Og þegar allt kemur til alls eru mörg sóknarfæri enda talsverðumsvif í byggingariðnaðinum. Margir eru að dytta að heima hjá sér ogtelja að besti tíminn sé til þess einmitt nú. Sú sókn sem við blésum til
var í raun atvinnuskapandi verkefni,“ segir Þórarinn G. Valgeirsson, annar af
eigendum Eldhúsvals við Sóltún í Reykjavík.
Mikilvæg lýsing
Þar á bæ var nýlega opnaður glæsilegur sýningarsalur þar sem er fjölbreytt
úrval af hvers konar innréttingum til dæmis fyrir eldhús, svefnherbergi, for-
stofur, bað og svo framvegis. Í tímans rás hafa eigendur Eldhúsvals, þeir Þór-
arinn og Haraldur Jónsson, starfað með fjölmörgum hönnuðum. Við uppsetn-
ingu sýningarsalarins nú völdu þeir samstarf við Valgerði Á. Sveinsdóttir
innanhúsarkitekt sem þeir hafa raunar talsvert starfað með áður.
„Í sýningarsalnum lagði hönnuðurinn áherslu á að skapa hlýlegan svip. Mik-
ilvægi lýsingar var haft í huga viðhönnun innréttinganna og var sérstaklega
hugsað um góða vinnulýsingu, lýsingu á innréttingar og yfir matborði,“ segir
Þórarinn.
Í innréttingarnar var valinn mjög vandaður búnaður sem auðveldar alla um-
gengni og skipulag. Má þar nefna skúffubrautir með dempurum sem má draga
út að fullu. Boðið er upp á margar lausnir varðandi nýtingu á skúffunum. Með-
al lausna má nefna rekka fyrir krydd, hnífaparabakka, skilrúm í skúffur og
áhaldahólf. Einnig er boðið upp á nokkrar tegundir af ruslafötum og góðar
lausnir fyrir búrskápa sem þykja ómissandi í hverri eldhúsinnrétt-
ingu. Í sýningarsalnum má einnig sjá mismunandi útfærslur á efri
skápum. Þar má nefna nútímalega og létta slíka skápa, t.d. í eldhúsi
og anddyri.
Mannskapurinn okkar auður
Eldhúsval er gamalgróið fyrirtæki og þar hafa menn, eins og nafn-
ið ber með sér, talsvert sinnt smíði eldhúsinnréttinga. „Hér erum við
með sex menn í vinnu og sumir hafa verið hjá okkur í meira en tutt-
ugu ár. Þessi mannskapur og reynsla hans er okkar auður og tölum
við það betri kost að gera okkur sýnilegri, setja hér upp sýningarsal
og draga að okkur fólk eins og sannarlega hefur orðið raunin. Og nú
er verkefnastaðan hjá okkur nokkuð góð og við horfum því bjartsýn-
ir fram á veginn.
sbs@mbl.is
Eldhúsval við Sóltún í Reykjavík opnar nýjan sýningarsal
Innréttingar
með hlýum svip
Morgunblaðið/Golli
Lýsing ræður miklu um hver heildarsvipur innréttinga t.d. í eldhúsi verður.
Sýningarsalurinn er býsna snotur og er hannaður af Valgerði Á. Sveinsdóttur innanhúsarkitekt.
Sóknarfæri
enda talsverð
umsvif í bygg-
ingariðn-
aðinum. Margir
eru að dytta að
heima hjá sér
og telja að
besti tíminn sé
til þess einmitt
nú. Sú sókn
sem við blésum
til var í raun at-
vinnuskapandi
verkefni
Lækjargata 4 er fyrsta tvílyfta
íbúðarhúsið í Reykjavík, byggt að
stofni til árið 1852 en var seinna
stækkað. Verslunarmannafélag
Reykjavíkur var stofnað í húsinu
og þar var seinna verslun Hag-
kaupa. Húsið var flutt á Árbæj-
arsafn árið 1988.
Íslensk hús
Lækjargata 4
Virðisaukaskattur vegna vinnu við endurbætur
húsnæðis fæst endurgreiddur til loka næsta
árs, skv. frumvarpi fjármálaráðherra sem nú
liggur fyrir á Alþingi. Upphaflega gilti heimildin
til nk. áramóta. „Talið hefur verið að þessi end-
urgreiðsla hafi reynst mjög vel, haft verulega
jákvæð áhrif til aukinnar atvinnu og jafnframt
þjónað þeim tilgangi að koma viðskiptum bet-
ur upp á yfirborðið,“ sagði fjármálaráðherra á
Alþingi á dögunum. Nefndi hann þar m.a.
átakið Allir vinna sem aðilar vinnumarkaðarins
og fleiri stóðu fyrir sl. sumar.
sbs@mbl.is
Hagsbætur fyrir húseigendur
Morgunblaðið/Ernir
Vaskurinn fæst
áfram til baka
Börnum fjölgar áfram í yngsta aldurshópnum í
Reykjavík, þó einna minnst í Grafarvogi og Ár-
bæjarhverfi, þar sem fjölgunin er 2-7%. Í öðr-
um hverfum er fjölgun allt að 30%. Þetta kem-
ur fram í greinargerð með fjárhagsáætlun
næsta árs. Þetta þýðir að fjölga þarf leik-
skólaplássum í borginni. Dregið verður mjög
verulega úr gatnaframkvæmdum í Reykjavík á
næsta ári en í staðinn eiga að koma áherslur á
endurnýjun eldri hverfa, segir Dagur B. Egg-
ertsson, formaður borgarráðs.
Ný sýn í fjárhagsáætlun Reykjavíkur
Börnum fjölgar og
stefnu borgar breytt