Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 14
bílar Askja kynnir á föstudag og laugardag nýjan KIA Sportage íhöfuðstöðvum sínum við Krókháls í Reykjavík og hjá um-boðsfyrirtækjum á Akranesi, Akureyri, Selfossi og í Reykja-nesbæ. Nýr Sportage frá Kia, sem kynntur var síðla sum-ars, hefur hlotið lofsamlegar umsagnir og framleiðsla á
bílnum hefur verið aukin. Öryggisbúnaður er rómaður.
Bílasýning hjá Öskju
Kynnir KIA Sportage
Ráðamenn í Lundúnaborg hafa ákveðið að
setja upp með vorinu kerfi rafhleðslustaura
vítt og breitt um borgina. Þegar kerfið verður
að fullu komið upp verða hleðslustöðvarnar
1.300, tvöfalt fleiri en bensínstöðvarnar.
Til að hafa hlutina sem einfaldasta verður
eitt félag um kerfið, Source London. Aðgang
að hleðslukerfinu fá bíleigendur með áskrift
sem mun kosta að hámarki 100 sterlings-
pund, 18 þús. ísl. krónum. Gegn því gjaldi get-
ur eigandi rafbíls hlaðið hann að vild í eitt ár
án frekari gjaldtöku.
agas@mbl.is
Breytingar í Lundúnaborg
Fleiri hleðslustaurar
en bensínstöðvar
Gríðarleg sala á bílum undanfarna mánuði í
Kína gæti komið heildarsölunni yfir átján
milljón bíla. Það er 30% aukning frá fyrra ári.
Það toppar þó ekki vöxtinn milli áranna 2008
og 2009 sem var 50%. Þessi sala er fast að
helmingi meiri en verður á árinu í Bandaríkj-
unum. Er Kína með mikla yfirburði yfir önnur
lönd heimsins í bílasölu. Ekki er búist við álíka
vexti í sölu á næsta ári, en um áramót rennur
út eftirgjöf ríkisins á sölusköttum á nýjum bíl-
um.
finnur@reykjavikbags.is
Mikil sala bíla í austrinu
Bílasala í Kína fer
yfir 18 milljónir
Með þessum fyrirætlunum eykstþungi í skattheimtu að mun ogmér segist svo hugur um aðeinhverjir þyrftu hreinlega að
hætta í jeppamennskunni. Það þýðir ein-
faldlega minni tekjur fyrir ríkið í stað þess
að ef skattheimtan væri hófleg þá væru
menn tilbúnir að mæta slíku,“ segir Svein-
björn Halldórsson, formaður Ferðaklúbbs-
ins 4x4.
Flotinn mun eldast
Algengar tegundir bíla munu hækka tals-
vert í verði og sumar mik-
ið verði frumvarp til laga
um breytingu á vörugjöld-
um af ökutækjum að lög-
um. Pallbílar og algengir
jeppar munu hækka mikið
í verði.
Líklegt er að fyrirhuguð
breyting taki fyrir inn-
flutning á öllum algeng-
ustu bílum frá Bandaríkj-
unum. Þá munu algengir
jeppar hækka umtalsvert í verði í verði.
Kemur fram í vörugjaldafrumvarpi fjár-
málaráðherra að Toyota Land Cruiser muni
að óbreyttu hækka í verði um 400 þúsund
kr. og Mitsubishi Pajero um 750 þús. kr.
„Ríkið fær minni tekjur af vörugjöldum
dragist innflutningur meira saman,“ segir
Sveinbjörn.
Getur fjölgað slysum
Félag íslenskra bifreiðaeigenda er ekki
sátt við lagafrumvarpið. „Við áteljum að
leggja eigi 45%, 55%, 60% og 65% vörugjald
á miðlungsstórar og stærri bifreiðar. Í þess-
um flokkum eru oft bifreiðar sem fyrst
koma með betri öryggisbúnað inn á mark-
aðinn og ökutæki sem geta verið nauðsyn-
leg öryggistæki,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB.
Hann bendir á alls verði sextán gerðir
ökutækja undanþegnar vörugjöldum og níu
gerðir ökutækja sem bera annaðhvort 13%
eða 30% vörugjald.
„Verði smábifreiðar vinsælastar eftir
mögulega kerfisbreytingu er það hluti af
eðlisfræði að minni bifreið fer gjarnan hall-
oka í árekstri við þyngri og stærri ökutæki.
Þessi staðreynd getur fjölgað slysum í um-
ferðinni,“ segir Runólfur.
sbs@mbl.is
Fyrirhuguð hækkun á vörugjöldum á bíla mælist illa fyrir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílamenningin mun breytast með hærri vörugjöldum á eyðsluþyngri bíla. Jepparnirnir verða gullkista
fyrir ríkið eins og samnefndur stapi ofan við Laugarvatn sem hér er í baksýn lestar frá Bílabúð Benna.
Hætta í jeppamennsku
og öryggið verður minna
Sveinbjörn
Halldórsson
Óvíst er hvert sænsku bílsmiðjurnar Volvo stefna í framtíðinni. Ágreiningur er sagður
ríkja um það milli stjórnenda fyrirtækisins og yfirmanna kínverska bílaframleiðandans
Geely, sem keypti Volvo fyrr á árinu. Li Shifu, stjórnarformaður Geely, játaði þessu á ráð-
stefnu kínverskrar útgáfu viðskiptablaðsins Financial Times. Hann lýsti þar þeirri skoðun
Geely, að Volvo ætti að þróa stærri fólksbíla fyrir kínverskan markað. Stjórnendur Volvo
vilja fremur leggja áherslu á smíði sparneytinna og vistvænna smærri bíla, að sögn Li.
Þegar kaup Geely á Volvo af Ford voru um garð gengin sagðist Li áforma að Volvo
legði aukna áherslu á stærri og dýrari bíla sem keppa myndu við s-gerðir Mercedes og
7-seríuna frá BMW. Stefan Jacoby, forstjóri Volvo,
telur það ótímabært enda hafi fyrirtækið einsett
sér að selja 800 þúsund bíla á ári eftir ára-
tug en það er tvöfalt meiri sala
en í dag. Til að ná settu
marki þurfi Volvo að ein-
beita sér að smærri og
sparneytnari bílum; huga
að sérlegum gæðum og
hætta að herma eftir þýsk-
um bílsmiðum.
agas@mbl.is
Ágreiningur um stefnuna hjá Volvo
Stjórnendur vilja vistvæna bíla
Volvo er fasteign á
hjólum eins og eitt
sinn var auglýst.