Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 15
2. desember 2010 15 bílar
Spurt: Bíllinn er Volvo XC70 af ár
gerð 2004 ekinn einungis 65 þús. km.
Fyrir skömmu tók bilunarljósið að
lýsa í tíma og ótíma án þess að hægt
væri að merkja gangtruflun eða bilun
í bílnum. Kóðalestur á verkstæði gaf
til kynna sogleka. Vandinn er bara sá
að þótt leitað hafi verið dyrum og
dyngjum finnst enginn sogleki í vél-
arrúminu. Er þetta eitthvað sem er
þekkt í þessum bílum?
Svar: Eldsneytiskerfið í nýlegri bíl-
um á að vera algjörlega þétt. Til að
útiloka sogleka þarf einnig að sog-
prófa eldsneytislögnina aftur í bens-
íngeymi. Þekkt orsök sogleka í þessu
kerfi er óþétt bensínlok. Skoðaðu
þéttinguna innan á lokinu. Séu sjáan-
legar sprungur í henni er lokið óþétt
og orsök þess að „Check engine-
ljósið“ lýsir. Nýtt lok færðu í umboð-
inu. Í nýlegri Ford, Lincoln og Volvo
kviknar bilunarljósið sé dælt elds-
neyti á geyminn með vélina í gangi
(sem á að sjálfsögðu aldrei að gera –
hver sem bíllinn er)!
Spurt: Ég er að velta fyrir mér kaup-
um á Ford Explorer V6 árg. 2005-
2006, eknum 58 þús. km. Er þetta
eitthvað sem þú myndir skoða? Er
þetta góður bíll? Eyðir þessi meira
en Pajero Sportarinn minn? Stærri
vél í þessum en hjá mér sem líklega
myndi kalla á meiri eyðslu að ég held.
Annað. Myndir þú ryðverja und-
irvagn 2003 árgerð af Pajero Sport
ek. 97 þús. km? Það er aðeins að
byrja ryð undir stigbrettum á hon-
um. Ég hef einnig skoðað Ford F-250
með 6 lítra Dieselvél. Eru þær, eins
og mér hefur verið sagt, bil-
anagjarnar og dýrar í rekstri?
Svar: Explorer eyðir í þéttbýli um
17-20 lítrum. V6-vélarnar í Explorer
2005 og yngri eru gallagripir (4 tíma-
keðjur) sem fyrr eða síðar rasa niður
með skelfilegum kostnaði. 6 lítra
Ford V8 Diesel-vélin (í Ford-
pallbílunum) hefur reynst bil-
anagjörn óheillakráka en nú virðist
komið í ljós að uppspretta allra vand-
ræða í þeim vélum eru lélegir hedd-
boltar. Við álag umfram vanalegt
halda þeir heddpakkningum ekki
þéttum. Þá byrjar pústþjappan að
fyllast af sóti, síðan EGR-hringrásin
og fyrr en síðar hrynur vélin. Með
sterkari heddboltum frá ARP (IB á
Selfossi) hefur reynst unnt að laga
þetta þannig að vélin verði til friðs
(sjá grein í Brotajárni 35 á Vefsíðu
Leós). Ég myndi engan undirvagn
ryðverja með kvoðu – hún eyðileggur
jeppagrindur á 10 árum. Rífðu þetta
upp og hreinsaðu með vírbursta eða
rokk og úðaðu yfir með keðjufeiti
(ysta lag hennar storknar).
Spurt: Ég er með Pajero ’98, ekinn
198 þús. þegar honum hefur verið
bakkað smáspöl í R eða látinn renna
heyrist „glussavæl“ eða hvinur og er
stöðugt þar til stöðvað er. Hljóðið
heyrist ekki þegar ekið er áfram.
Hvað getur þetta verið?
Svar: Bilunum sem lýst er með hljóði
er oft erfiðast að átta sig á. Tillaga:
Mældu vökvastöðuna á skiptingunni
með heita vél í lausagangi, stöðu-
bremsu á og skiptingu í N. Það gæti
vantað vökva á skiptinguna. Sé langt
síðan vökvi og sía voru endurnýjuð
kann að vera kominn tími til. Þú færð
það gert hjá Smurstöðinni Klöpp við
Vegmúla í Reykjavík.
Leó M Jónsson véltæknifræðingur
leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ít-
arlegri svör eru birt á www.leoemm.com)
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Algjörlega þétt
eldsneytiskerfi
Morgunblaðið/Jim Smart
Vélar í Ford Explorer sem eru framleiddir 2005 hafa reynst gallagripir. Upp-
spretta allra vandræða þar eru lélegir heddboltar, segir í bílapistli vikunnar.
Nú er allra veðra von og eins gott að hafa rúðuþurrkurnar í lagi. Mörg-
um hefur blöskrað hátt verð á venjulegum rúðuþurrkum á fólksbíla
og jeppa. Verð er misjafnt eftir bílum en algengt verð á setti (2 stk.) er
um og yfir 5 þús. kr. á bensínstöð. Því var ég fljótur að nýta tækifærið
þegar ég sá að Poulsen í Skeifunni í Reykjavík er með sértilboð á
þurrkublöðum í desember, með ásetningu. Ég fékk settið komið á
minn gamla Opel fyrir 1.390 krónur!
Rúðuþurrkur á tilboðsverði
Ábending
Hvað framtíðin ber í skauti sér veit
enginn en það stöðvar ekki framsýna
bílaframleiðendur eins og hjá Volvo í
að velta spurningunni fyrir sér.
Reyndar telur Volvo sig ef til vill
luma á svarinu, í það minnsta hvað
varðar visthæfa sportbíla framtíð-
arinnar. Volvo sýnir slíkan bíl á bíla-
sýningunni í Los Angeles sem haldin
er þessa dagana. Bíllinn er nokkuð
nýstárlegur og ef allir bílar verða
eins og hugmyndabíllinn, Volvo Air
Motion, þá er engin ástæða til að
hræðast framtíðina.
Volvo Air Motion er fjögurra
manna sportbíll sem er léttari en
Formúlu 1-kappakstursbíll og meng-
ar ekkert þrátt fyrir að vera öflugur,
þar sem hann gengur fyrir þrýsti-
lofti.
Aðeins 450 kíló
Volvo kynnir bílinn á hönn-
unarsamkeppni bílasýningarinnar og
því er um módel af bílnum að ræða í
hlutföllunum 1:4. Ef um fulla stærð
af bíl væri að ræða reiknast Volvo til
að bíllinn yrði undir 450 kílóum á
þyngd sem er með því allra minnsta
sem sést hefur í fjögurra manna bíl.
Til að vega svo lítið þarf að hugsa
smíðina alveg upp á nýtt, og það ger-
ir Volvo einmitt. Einn helsti kostur
bílsins er að hann notast við þrýsti-
loft til að knýja sig áfram og þannig
losnar bíllinn við að bera þungan
brunahreyfil og fjölda annarra stoð-
kerfa sem þurfa bæði vökva, leiðslu
og búnað. Til dæmis má nefna að eðli
þrýstiloftsvélbúnaðar er þannig að
þegar bíllinn nýtir loftorkuna að fullu
þá eykst kæling vélbúnaðarins og því
er engin þörf á þungu og flóknu kæli-
kerfi. Nýjustu og léttustu efni sem
völ er á eru notuð, svo sem sérlega
þunnt en sterkt koltrefjaefni og sér-
hannaðar felgur og dekk sem geta
verið mjög óhefðbundin vegna sér-
kennilegs byggingarlags bílsins.
Volvo-hugmyndabíllinn ætti að
falla vel í kramið í hönnunarkeppn-
inni þar sem þemað var að draga úr
þörf bílaiðnaðarins á orku og efni.
finnur@reykjavikbags.is
Módel af sportbíl framtíðarinnar hjá Volvo sem er frábær bíll í Formúluna.
Framtíðar-Volvo sýndur í Englaborg