Eyjablaðið - 13.05.1954, Side 4
Béjarfréttir
Merkimfmœlu
Magnús Jónsson, Heimagötu
19, er áttræður í dag.
Samningum sagt upp.
Verkalýðsl'élag Vestmanna-
eyja og Verkakvennafélagið
„Snót” hafa bæði sagt upp
samningum sínum við atvinnu-
rekendur frá 1. júní n. k. —
Tilgangurinn með uppsögn
{aessari er að fá uppsagnarfrest
samninganna styttan í einn
mánuð úr sex. Telja verkalýðs-
félögin það nauðsyn til að geta
gert gagnráðstafanir, ef ríkis-
valdið gengi enn á hlut laun-
þeganna t. d. með nýrri geng-
islækkun eða auknum bátagjald
eyri. -
Samninganefnd.
Verkalýðsfélagið kaus á fundi
sínum í gær þessa menn í samn-
ingan'efnd:
Sigurjón V. Guðmundsson,
Karl Guðjónsson,
Pétur Guðjónsson,
Þórarinn Guðmundsson og
Elías Sigfússon.
Nýtt blaö.
Helgi BenediktsSon hefur nú
hafið útgáfu nýs blaðs, er hann
nefnir Framsókn, bajarmála-
blað.
Ekki er vitað, hvort Fram-
sóknarfélagið hér (sé það enn
til) telur hér á ferð sitt mál-
gagn eða það tileinkar sér
Framsóknarblað þeirra Sveins og
Þorsteins. En fundur hefur
'enginn verið í því félagi síðan
árið sem það hélt aðalfundina
tvo.
Enn á veiöum.
Tveir bátar stunda hér enn
netaveiðar. Eru það Sjöfn og
Baldur.
í gær var afli þeirra góður,
fékk Sjöfn 1700 en Baldur
1100.
Salka Valka
í Vestmannaeyjum
Samkvæmt síðuStu fréttum
af kvikmyndun Sölku Völku
verður einn þáttur .kvikmyndar
innar tekinn hér í Eyjum í
í sumar.
Hinir sænsku kvikmynda-
tökumenn eru þegar komnir
til landsins og taka þeir fyrst
til starfa í Grindavík.
Gjaldkeri án ábyrgöar
Unglingur, að nafni Reimar
Charlesson, h'efur verið feng-
inn til þess um stundarsakir að
gegna starfi bæjargjaldkera. En
með því að piltinn skortir fjár-
ræði hefur bæjarstjóri gerzt á-
byrgðarmaður fyrir starfi hans.
EYJABLADIÐ
Auglýsing
um slátrun og kjötsölu.
Að gefnu tilefni aðvarast eigendur hús-
dýra um það að slátra ,ekki gripum, nema
kveðja dýralækni til og afla heilbrigðisvott
orðs, ef selja á kjötið í verzlanir til mann-
eldis.
Jafnframt skal kjötkaupmönnum bent
á að óheimilt er að hafa kjöt á boðstólum
án þess að vottorð dýralæknis fylgi, og eiga
þeir ella á ættu að fyrirvaralaust bann verði
lagt við sölu kjötsins.
Vestmannaeyjum, 20. apríl 1954.
Heilbrigðisnefndin.
AUGLÝSING
Hefi til sölu góöan HRINGNÓTABÁT og
vél í nótabát eöa trillu. Sanngjarnt verð.
JÓHANN SIGFUSSON.
Frá sundiauginni
15. maí hefst samnorræna
sundkeppnin hér í sundlaug-
inni. Verður lögð áherzla á að
öll' sundfær börn syndi fyrstu
daga keppninnar. En vegna
þess, að ekki hefur enn fegizt
full orka til upphitunar laug-
arinnar, og því ekki hægt að
fylla hana af sjó, verður ekki op
ið fyrir almenning fyrr en sund
námi skólanna er lokið. En
þess er óskað, að þeir sem þurfa
að fara úr bænum, en sundfær
ir eru, mæti til keppninnar,
eða hafi samband við starfs-
menn laugarinnar í síma 143.
Vonir standa til, að í júní-
mánuði komi upphitun laugar-
innar í lag. Mun síðar verða frá
því skýrt.
K A U P I Ð
KRAFTSÚ P U R
í KJÖTLEYSI N U
NYTYZKU HUSGOGN
Sóffaborð, margar gerðir
Staflborð (innskotsborð),
Skrifborð,
-Skrifborðsstólar,
Bókaliillur,
Gólfteppi,
Áklæði í fjölbreyttu
úrvali.
Borðstofuborð, 3 gerðir,
Borðstofustólar, 2 gerðir,
Borðstofuskápar, 2 gerðir,
Sóffar albólstraðir, 2 gerðir
Armsóffar, 3 gerðir,
Stólar, albólstraðir,
Armstólar, fjórar gerðir,
Ruggustólar,
SELJUM GEGN AFBORGUNUM!
Ý Húsgagnaverzlun Rxels Eyjólíssoxiar Ý
Ý GRETTISGÖTU fí.-REYKJAVÍK-SÍMI: 80117. Ý