Eyjablaðið - 24.04.1963, Page 4
EYJABLAÐIÐ
Útgefandi: Sósíalistafél. Vestmannaeyja. Áb.: Tryggvi Gunnarsson Prentsm. Eyrún hf
Bjðrgunartækín (ást ekki lolifrjáls
ískyggileg frétt
Er Norðnr- Atlantshafið
jhættulegt íiskum?
í Morgunblaðinu á sunnudaginn birtist ein ískyggileg-
asta frétt, sem við íslendingar höfum séð til þessa. — Ef
sú frétt reynist á rökum reist, boðar hún svo váleg tíðindi
að við eigum erfitt með að hugsa það mál til enda, hver
framtíð bíður okkar þjóðar á sviði efnahags- og heilbrigð-
ismála.
Morgunblaðið birtir fréttina á næst öftustu síðu og ekki
áberandi, svo vera má, að menn hafi ekki veitt henni at-
liygli, þó þeir hafi handleikið blaðið. En fréttin er þannig:
„Moskvu og Portsmouth, New Hampshire, 20. apríl (NTB):
Þekktur rússneskur fiskifræðingur, Georgi Nikolsij, lýsti
því yfir í gær, að allt Norður-Atlantshof yrði hættulegt fisk-
um mörg næstu ór vegna geislunar frá bandaríska kjarn-
orkukafbátnum „Thresher", sem sökk fyrir skömmu.
Bandarískir vísindamenn hafa neitað því, að nokkur telj-
andi hætta stafi af geislun frá kafbátnum.
Réttarhöld vegna „Threshers" fara nú fram, og m. a.
hefur verið haft eftir mönnum, að ýmis útbúnaður báts-
ins hafi oft bilað í fyrri ferðum hans."
í vetur bauð Útvegsbændafé-
lagið hér þingmönnum staðarins
á fund sinn og voru þar rædd
margvísleg hagsmunamál útgerð
arinnar. Nokkrum tilmælum var
til þingmanna beint, varðandi
atriði, sem þeir þóttu líklegir til
að geta beitt áhrifum sínum í til
hagræðis fyrir þennan atvinnu-
veg, sem allir vita, að afkoma
þessa bæjar byggist algerlega á.
Eitt af því, sem þeir voru
beðnir um, var að reyna að fá
niður felldan toll af björgunar-
tækjum.
Við afgreiðslu hinnar nýju
tollskrár á Alþingi flutti Karl
Guðjónsson í samræmi við þessi
tilmæli breytingartillögur við toll
skrárlögin og lagði til að tollur
á slíkurn tækjum yrði afnuminn.
Voru tillögur hans í 4 liðum,
þar eð slík tæki eru í 4 köflum í
hinni nýju tollskrá: Björgunar-
tæki úr plasti, björgunartæki úr
toggúmmíi, björgunartæki úr
korki og björgunarbátar.
Allar voru tillögur Karls felld-
ar af meirihluta Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokksins, en með mjög
litlum atkvæðamun. Guðlaugur
Gíslason sat hjá við afgreiðslu
breytingatillagna Karls.
Björgunartækin, sem nefnd
eru í þrem fyrsttöldu liðunum
eru því með 20% innflutnings-
tolli, en tollurinn á björgunar-
bátunum er 4%.
Þekktir samborgar
fallnir í valinn.
Frá því að Eyjablaðið kom
út síðast hafa ekki færri en
fjórir kunnir borgarar þessa
bæjar verið til moldar bornir,
en hinn fimmti liggur á líkbör-
unum.
Guðjón Jónsson á Heiði lézt
á heimili sínu 22. marz. Hann
var hér um mjög langt skeið
í fremstu röð fengsælla for-
manna á vélbátaflotanum og
dugnaði hans var alla tíð við
brugðið. Hann var fæddur í
Vestur-Eyjafjallahreppi 18. marz
1882 og því áttatíu og eins árs
gamall.
Þórður Bjarnason, skósmiður,
lézt í Landakotsspítala 31. marz
eftir skamma en erfiða sjúkdóms
legu. Hann var fæddur 5. apríl
1905 í Neskaupstað. Þórður var
einstakt Ijúfmenni. Hann rak
hér myndarlegt skósmíðaverk-
stæði um margra ára skeið.
Torfi Jóhannsson, bæjarfó-
geti, andaðist í Landakotssjúkra-
húsi í Reykjavík 10. apríl. Torfi
var Austfirðingur að uppruna,
fæddur að Hólmum í Reyðar-
firði 7. apríl 1906. Hann tók
við bæjarfógetaembættinu hér
árið 1950.
Árni J. Johnsen lézt hér á
sjúkrahúsinu s. I. páskadag, 14.
apríl. Hann hafði strítt við van-
heilsu í vetur. Árni var Vest-
mannaeyingur að uppruna. Um
dagana gekk hann að margvís-
legum störfum t. d. hefur hann
hann bæði verið kaupmaður og
sjómaður, en hin síðustu árin
var hann vigtarmaður við vog-
ina á Básaskersbryggju. Árni var
fæddur 13. okt. 1892 og því sjö-
tugur að aldri.
Friðþjófur G. Johnsen, skatt-
stjóri, varð bráðkvaddur á heim-
ili sínu hinn 18. þessa mánaðar.
Hann var lögfræðingur og hafði
um langt skeið rekið málaflutn-
ingsskrifstofu, en á síðasta ári
var hann skipaður skattstjóri
hér. Hann var fæddur hér í Eyj-
um 21. júlí 1911 og var því á
fimmtugasta og öðru aldursári.
Messur: Á sumardaginn fyrsta
kl. 2. Séra Þorst. L. Jónsson.
N. k. sunnud. kl. 2. Séra Jó-
hann Hlíðar.
Leikfélag Vestmannaeyja hef
ur undanfarið sýnt gamanleik-
inn Kossar og kampavín, eftir
franskan höfund. Fær leikurinn
ágæta dóma áhorfenda. Verður
leiksins nánar getið síðar hér í
blaðinu. Heyrzt hefur, að Leik-
félagið hyggist fara upp á land
og sýna leikinn þar og senni-
lega sýnir félagið einnig í Kópa
vogsbíói.
Til sölu!
Tempo De Lux mótorhjól sem
nýtt og vel með farið, lítið keyrt.
Upplýsingar á Kirkjuvegi 20
frá 7—8 á kvöldin.
Mjólk
seld í lausu máli.
HÓTELBÚÐIN.
TAPAZT
hefur poplín-úlpa tvöföld, gul og
græn.
Vinsamlega skilist að Heiðar-
Frá Kaupfélagi Vestmannaeyja
Okkur vantar ungan og duglegan mann til til afgreiðslu strax.
Kaupfélog Vesfmannaeyja
Yfirlýsing
Alþýðubandalagið annars vegar og Þjóð-
varnarflokkur íslands hins vegar hafa komið
sér saman um samstarf í komandi alþingis-
kosningum, hinn 9. júní næstkomandi, og
munu bera fram og styðja sameiginlega fram-
boðslista í öllum kjördæmum landsins.
Enda þótt Þjóðvarnarflokkur íslands sé ekki
aðili að Alþýðubandalaginu og ekki bundinn
af öðru en þeim atriðum, sem um hefur verið
samið, hafj framangreindir aðilar orðið sam-
mála um, að framboðslistar og kjörgögn skuli
aðeins bera nafn Alþýðubandalagsins.
Samkomulag hefur einnig orðið um stefnu-
skrá í meginmálum kosninganna, og verður
hún birt síðar.
Reykjavík, 16. apríl 1963.
Samninganefnd Alþýðubandalagsins:
Hannibal Valdimarsson, Björn Jónsson,
Kjartan Ólafsson.
Samninganefnd Þjóðvarnarflokksihs:
Gils Guðmundsson, Bergur Sigurbjörnsson,
Hermann Jónsson.
*