Eyjablaðið - 22.05.1963, Side 4
EYJABLADID
Útgefandi: Sósfalistafél. Vestmannaeyja. Áb.: Tryggvi Gunnarsson Prentsm. Eyrún.h*
i
Reykvísku kontóristarnir þrír
l>að hefur vakið sérstaka athygli raeðal okkar Eyjabúa, að
þrír stjórnmálaflokkar brjóða fram þannig, að ef þeir ættu
einhverja von í aukinni þingmannatölu við þær kosningar,
sem nú fara í hönd, þá setja þeir allir þrír sinn kotórmann-
inn úr Reykjavík hver, í vonarsætið.
Kratarnir fengu engan mann kosinn í Suðurlandi síð-
ast. Eina vonarsætið á lista þeirra, sem auðvitað er þó ekki
nema varamannsvonarsæti, er skipað Unnari Stefánssyni
kontórmanni hjá Bjargráðasjóði í Reykjavík..
Framsókn fékk tvo menn kjörna síðast og segist nú hafa
von um, að þeir verði þrír. I þriðja sæti hennar er Helgi
Bergs, kontórmaður frá SÍS í Reykjavík.
Ihaldið fékk þrjá menn kjörna við síðustu kosningar. I
fjórða sæti sitt nú, setur það Ragnar Jónsson (bróður Ing-
ólfs ácHellu), en liann er starfsmaður á kontór Afengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins í Reykjavík.
I harðri baráttu um 6. þingsætið í Suðurlandi bar Al-
þýðubandalagið sigur úr býtum við síðustu kosningar og
lilaut Karl Guðjónsson kosningu. Það er því sæti hans, sem
reykvísku kontóristarnir þrír mæna á og biðja nú hver urn
sig Vestmannaeyinga að eftirláta sér.
En þetta val er okkur Vestmannaeyingum ekki erfitt.
Við v'iljum ekki valda afgreiðslutruflunum á skrifstofum
höfuðborgarinnar.
Við kjósum G,LISTANN og vísum þar með öllum kon*
órmönnum þeirra Reykvíkinga á bug.
Fermingarbörn
í
Kratafandurinn
Á uppstigningardag, 23. maí,
kl. 10,30 f. h.:
Piltar:
Gunnar Christensen, Brimhóla-
braut 2i.
Ólafur Oddgeir Sigurðsson,
Kirkjuvegi 82.
Ómar Kristmannsson, Vallarg 12
Pétur Sævar Kjartansson, Vest-
urvegi 22.
Runólfur Alfreðsson, Heiðav. 66
Sigurður Guðnason, Boðaslóð 2
Sigurður Þórir Jónsson, Hást. 47
Sigurður Weihe Stefánsson,
Vestmannabraut 46A.
Sveinn Pálmason, Heiðarv. 42.
Sæmundur Örn Sigurjónsson,
Hásteinsvegi 32.
■ Tryggvi Gunnarsson, Mið-
hlaðbæ.
Þorvaldur Hermannsson, Há-
steinsvegi 5.
Stúlkur:
Martea Guðlaug Guðmundsdótt-
ir, Kirkjubæjarbraut 12.
Sigrún Sigurjónsdóttir, Land. 5B
Sigurbjörg Pétursdóttir, Helga-
fellsbraut 27.
Stefanía Gústafsdóttir, Hól. 44.
Stefanía Sólveig Þorsteinsdóttir,
Asavegi 14.
Steinunn Bárðardóttir, Aust. 4
Unnur Jónsdóttir, Heimag. 24..
Þorbjörg Sigurfinnsdóttir, Há-
steinsvegi 55.
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir,
Illugagötu 14.
Þyrí Ólafsdóttir, Kirkjub.br. 18.
Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir,
Herjólfsgötu 6.
Margrét Sigurlásdóttir, Reyni-
stað.
Orðsending
Þó að salan gangi nú ört, hefi
ég enn undan að skrifa afsölin.
Vinsamlegast dragið því ekki að
gera kaupin.
Auk óður auglýsts, sem óselt
kann að vera, hefi ég nú m. a.:
Hæð og rishæð við Faxastíg
í nýju húsi.
íbúð neðri hæðar við Fjólu-
götu, 3 herbergi, eldhús, bað.
Sérkynding. Tvöfalt gler í glugg
um. Allt nýtt af nólinni.
Einbýlishús við Heimagötu,
stórtt og vandað hús, vel um
gengið, ósamt lóðarréttindum,
sem henta mjög vel fyrir verzlun
Fasteign er örugg fjórfesting.
JÓN HJALTASON hdl.
Skrifstofa: Drífanda við Bóru-
stíg. Viðtalstími: kl. 4,30 — 6
virka daga nema laugardaga kl
11 — 12 f. h. — Sími 847.
Kratarnir héldu Jund s. 1.
laugardag. Var það bæði dauf-
leg samkoma og fámenn.
Tvennt var það þó, sem
nokkra athygli vakti í sambandi
við íundinn.
Hið fyrra var ræðueini Emils
ráðherra, sem jafnframt er höf-
uð Alþýðuflokksins, þess flokks,
sem á sínum tíma var stofnaður
til að lialda utan að hagsmun-
um daglaunamanna og sjó-
manna.
Hann valdi sér nú að ræðu-
efni, þá niðurrifsstarfsemi, sem
verKalýðsfélögin að hans dómi
höfðu í frammi í fyrra, þegar
þau lögðu til kjarabaráttu og
fengu hækkað tímakaupið um
dálítið brot af þeirri rýrnun,
sem ráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar höfðu þá valdið á kaupmætti
launanna.
Eftir ræðu Emils varð það allt
skiljanlegra, hvert verkefni
flokksmanna hans í verkalýðs-
hreyfingunni er. — Þeir eru þar
ekki til að vinna að bættum
kjörum verkafólks, heldur til að
forða því að „unnin séu skemmd
arverk“ eins og formaður Al-
þýðuflokksins, sem sjálfur situr
elskusáttur í stjórn íhaldsins,
kallar nú allar kauphækkanir
vinnustéttanna.
Það er óumdeilanlega fengur
að því að fá jafnhreinlega yfir-
lýsingu um verkalýðsfjandskap
Gamiir
skömmtunarseðiar.
Það er með ólíkindum, hvað
sakbitnir menn geta sagt fárán-
lega hluti sér til réttlætingar,
þegar þeir finna sig illa stadda
málefnalega.
Eitt gleggsta dæmið um
þetta eru þau viðbrögð íhaldsins
nú í kosningabaráttunni, að
Morgunblaðið hefur dögum sam
an birt myndir af gömlum
skömmtunarmiðum fyrstu eftir-
stríðsáranna, og telur þau sögu-
legu heimildargögn vera vottt
urn það, að hverju andstæðingar
stjórnarinnar stefni.
Það er mikil trú á fáfræðina
að ætla almennu fólki ekki að
skynja neinn mun þeirra tíma,
sem þá voru og nú. Hitt er þó
alveg makalaust, að Sjálfstæðis-
flokkurinn sknli telja þessi
gömlu skömmtunarplögg sér-
staka svívirðu, því sjálfir sátu
þeir í þeirri stjórn ,sem gaf þau
út, og það gerðu kratarnir vin-
ir þeirra líka, en aftur á móti
átti Alþýðubandalagið, sem nú
er sakfellt fyrir skömmtun
þessa, enga aðild að þeirri ríkis-
stjórn, né hel'dur neinir aðilar
þess.
af hálfu krataflokksins og Emil
gaf á fundi þessum, því enn
nal'a sumir flokksmenn iians
verið að telja sjálfum sér og
öðrum trú um, að hið gagn-
stæða væri þeirra tilgangur, Jiótt
flestir þeirra hafi í verki fyrir
löngu tekið að vinna gegn hags-
rriunum verkamanna.
Hitt atriði fundarins, sem at-
hygli vakti var það, að meðan að
Helgi Sæmundsson flutti sína
ræðu, sem var skemmtiatriði
fundarins, kviknaði í húsinu, lík
lega þó fremur út frá rafmagni
en æsingi ræðumanns.
Leystist fundurinn Jiar með
upp.
Tjón varð lítið af eldinum
og ræðumönnum tókst heldur
ekki að valda neinu tjóni á sál-
um fundarmanna.
MUNIÐ
Kosningahappdræt'f-i
G-USTANS
Miðarnir fóst' á kosn-
ingaskrifstofunni,
Básugötu 9-
Takið miða fil sölu!
Kaupið miða!
HÚSEÍGENDUR!
Óska eftir íbúðum og ein-
býlishúsum fil sölu NÚ
ÞEGAR, þar sem nær allt
húsnæcfi, sem ég hef haft
til sölu ex selt, en kaupend-
ur bíða.
KAUPENDUR!
Óráðstafað er: Glæsileg
4ra herb. íbúð við AUST-
URVEG, 2ja herb. íbúð við
HÓLAGÖTU, hálfinnréttað
hús við BREKASTÍG, tilval-
ið sem verkstæði eða til
innréttingar sem íbúð.
BÁTAR af ýmsum stærð
um til sölu svo og BÍLAR,
nýir og aamíir.
BRAGI BJÖRNSSON
lögfræðingur
Viotalstírni kl. 17,30—19,00.
Vestmannabraut 31. Sími 878.