Eyjablaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 3

Eyjablaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 3
EYJABLAöIi) 3 4na ELLILIFEYRIR í almannatryggingalögum nr. 40 frá 1963, sem taka gildi 1. janúar 1964, er ákveðið, að allir, sem eru 67 ára eða eldri þann 1. janúar 1964, eigi rétt til ellilífeyris. Með hliðsjón af ofangreindum breytingum auglýsist eftir umsóknum þeirra, sem kunna að öðlast rétt til ellilífeyris, er ofan- greind lög taka gildi 1 .janúar 1964. í Reykjavík fást umsóknareyðublöð á skrifstofu vorri, Lauga- vegi 114, en utan Reykjavíkur fást þau hjá umboðsmönnum vor- um, sýslumönnum, bæjarfógetum og lögreglustjórum. Óskast þau útfyllt eins og form þeirra segir til um, ef eftir lífeyrinum er óskað ,og send sem fyrst, í Reykjavík til aðalskrifstofunnar, Lauga- vegi 114, en annarsstaðar til umboðsmanna. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. - Lífeyrisdeild. - Fjölskyldubætur Samkvæmt almannatryggingalögum nr. 40 frá 1963, sem taka gildi 1. janúar 1964, skulu fjölskyldubætur greiðast með öllum börnum yngri en ára. Skulu þær að jafnaði greiddar þeim, sem foreldraráðin hafa, eða öðrum þeim, sem annast framfærslu barnanna. Með hliðsjón af ofangreindri breytingu auglýsist eftir um- sóknum þeirra, sem kunna að öðlast rétt til fjölskyldubóta þann 1. janúar 1964. í Reykjavík fást umsóknareyðublöð á skrifstofu vorri, Lauga- vegi 114, en utan Reykjavíkur fást þau hjá umboðsmönnum vor- um, sýslumönnum, bæjarfógetum og lögieglustjórum. Óskast þau útfyllt eins og form þeirra segir til um, ef eftir fjölskyldubótum er óskað, og send sem fyrst, í Reykjavík til aðalskrifstofunnar, Laugavegi 114, en annarsstaðar til umboðsmanna. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. — Lífeyrisdeild. — BARNAVAGN til sölu að Vesturvegi 24. KÍKIR HEFUR TAPAZT. Skilvís finnandi skili honum til Gísla Þor- steinsson, Fiskiðjunni, gegn vundarlaunum. AMERÍSKU GÓLFFLlSARNAR eru komnar. Einniq flísalím. GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON & CO. Nr. 26/1963 TILKYNNING Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á gas- olíu og gildir verðið hvar sem er á landinu: Gasolía, hver lítri ........... kr. 1,55 Heimilt er að reikna 5 aura á líter af gasolíu fyrir útkeyrslu. Heimilt er einnig að reikna 28 aura á líter af gasolíu í afgreiðslu- gjald frá smásöludælu á bifreiðar. Sé gasolía afhent í tunnum, má verðið vera 21/2 eyri hærra hver olíulítri. Ofangieint hámarksverð gildir frá og með 21. október 1963. Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík 19. október 1963. VERÐLAGSSTJ ÓRINN. Nemendur í rennismíði óskast. VÉLSMIÐJAN MAGNI H. F. ' ÚT GERÐARMENN! Þeir útgerðarmenn, sem þurfa að lóta steypa fyrir sig neta- grjót og línu- og netastjóra, vinsamlegast geri pantanir sem fyrst. PÍPU- OG STEINAGERÐIN, Heiðartúni. — Sími 500 — 249. Nr. 25/1963. TII.K YNNING Verðlagsnefnd liefur ákveðið hámarksverð á eftirtöldum unn- um kjötvörum svo sem hér segir: Heildsöluverð: Smásöluverð: Vínarpylsur og kindabjúgu, pr. kg. - 40,00 — 50,00 Kjötfars, pr. kg............. _ 24,50 31,00 Kindakæfa, pr. kg............ _ 62,00 - 82,00 Tilgreint smásöluverð á vínarpylsum gildir jafnt, hvort sem þær eru pakkaðar af framleiðanda eða ekki. Heildsöluverðið er hinsvegar miðað við ópakkaðar pylsur. Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 19. október 1963. VERÐLAGSSTJÓRINN. Nau ðungaruppboð Annað og síðasta uppboð á efri hæð húseignar- innar Vesturvegur 32 í Vestmannaeyjum, þinglesinn- ar eignar Elsu Einarsdóttur, fer fram föstudaginn 22. nóvember 1963, kl. 14,00 í dómssalnum við Hilmis- götu. , Uppboðið var auglsýt í Lögbirtingablaðinu, sem út kom 17., 21. og 26. ágúst 1963 og fór fyrra upp- boðið fram 8. nóvember 1963 og var þá hæsta boð kr. 250,00,00. BÆJARFÓGETINN í VESTMAN NAEYJ UM. ~ —■ 1 S'! f „ f" 1—MllVU, -ll.l

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.