Morgunblaðið - 03.01.2011, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, und-
irstrikaði í lok árs að hann er á meðal
þeirra bestu í Evrópu í sínum aldurs-
flokki. Guðmundur hafnaði þá í 4.-5.
sæti á Junior Orange Bowl Champions-
mótinu á Flórída í Bandaríkjunum.
Ekki er heiglum hent að öðlast þátt-
tökurétt á mótinu en Guðmundur
komst inn í mótið með því að vinna hið
sterka ungmennameistaramót hertog-
ans af York í sumar.
Lykillinn að þessu ævintýri öllu sam-
an hjá Guðmundi var að verða Íslands-
meistari 18 ára og yngri í sumar og
Guðmundur tjáði Morgunblaðinu að sá
sigur hefði ekki verið auðsóttur. „Það
var ævintýralegt að vinna Íslandsmótið
í ljósi þess að ég var fjórum höggum á
eftir Rúnari Arnórssyni þegar sex hol-
ur voru eftir af mótinu. Ætli það hafi
ekki verið örlagaríkasta pútt lífs míns
þegar ég setti niður fyrir fugli af fimm-
tán metra færi á 13. holu. Þar varð fjög-
urra högga sveifla og skyndilega vorum
við orðnir jafnir. Sigurinn á Íslands-
mótinu gaf mér keppnisréttinn á móti
hertogans af York,“ sagði Guðmundur
þegar Morgunblaðið ræddi við hann
um árið sem er nýliðið og því ljóst að
eftir miklu getur verið að slægjast á Ís-
landsmótum í yngri flokkunum.
Ekki alls kostar sáttur
Guðmundur neitar því ekki að hann
átti frábært tímabil í sínum aldurs-
flokki en það sýnir ágætlega metnað
Guðmundar að hann er ekki sáttur við
árangur sinn í fullorðinsflokki.
„Ég var ekkert sérstaklega sáttur
við árangur minn í meistaraflokki. Þeg-
ar upp var staðið voru það þrír slæmir
hringir sem eyðilögðu fyrir mér þrjú
mót. Á Íslandsmótinu í Kiðjabergi var
ég aðeins á einu höggi yfir pari sam-
anlagt þegar fimm holur voru eftir af
þriðja degi. Sá hringur endaði hins veg-
ar afskaplega illa og fjórði hringurinn
var einnig lélegur. Einnig spilaði ég tvo
hringi á 77 höggum á Eimskipsmóta-
röðinni, annan í Leirdalnum og hinn á
Urriðavelli. Unglingagolfið var hins
vegar hrikalega gott. Þar spilaði ég til
dæmis einn hring á 63 höggum sem var
auðvitað mjög ljúft,“ sagði Guðmundur
og vísar þar til vallarmets sem hann
setti á Korpúlfsstaðavelli á unglinga-
mótaröðinni.
Fór utan beint úr prófatörn
Guðmundur er 18 ára gamall og
stundar nám við Menntaskólann við
Sund en hefur sett stefnuna á að fara til
náms í Bandaríkjunum að stúdents-
prófinu loknu árið 2012. Eins og gefur
að skilja var Guðmundur nýbúinn í
prófum í MS þegar hann fór út til
Bandaríkjanna og keppti á tveimur
sterkum unglingamótum á Flórída í
desember. Undirbúningurinn var því
ekki eins og best verður á kosið enda
eru kylfingar á Íslandi í takmarkaðri
leikæfingu í síðasta mánuði ársins.
Guðmundur hafnaði í 26. sæti á US
Junior Masters sem fram fór á TPC
Sawgrass-svæðinu. „Skólinn var svo
sem ekkert að hjálpa til. Ég kom út
þegar ég var nýbúinn í prófum og hafði
ekki æft neitt af viti. Ég var einfaldlega
mjög lélegur í því móti,“ sagði Guð-
mundur en hann sagðist hafa slegið vel
á Junior Orange Bowl Champions-
mótinu. Hann spilaði hins vegar ekki
nægilega vel á flötunum á loka-
hringnum til þess að blanda sér í bar-
áttuna um sigurinn.
„Ég sló rosalega vel en hefði viljað
pútta betur sem er það eina sem ég get
kvartað yfir. Ég hitti í kringum fjórtán
til sextán flatir í tilskildum höggafjölda
og því þurfti ég lítið að beita stutta
spilinu í kringum flatirnar. Ég gat verið
á miklu betra skori eftir fyrstu fimm
holurnar á lokahringnum því þá missti
ég nokkur pútt fyrir fugli. Þegar ég
fékk skramba á 7. holu þá datt ég eig-
inlega út úr baráttunni,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið en
hann lauk leik sex höggum á eftir sig-
urvegara mótsins.
„Líklega örlagarík-
asta pútt lífs míns“
Morgunblaðið/Ómar
Viðburðaríkt ár Guðmundur Ágúst Kristjánsson keppti á golfvöllum víða um heim á nýliðnu ári.
Guðmundur er einn sá besti í Evrópu í sínum aldursflokki
Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og
Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, sigruðu í
karla- og kvennaflokki í 35. Gaml-
árshlaupi ÍR sem fram fór við frábærar
aðstæður í miðbæ Reykjavíkur á síðasta
degi ársins.
Tvö met voru slegin, auk allra þeirra
bætinga á persónulegum árangri sem
hlaupararnir sjálfir hafa séð þegar þeir
komu yfir marklínuna.
Kári bætti sig um 34 sekúndur
Kári Steinn kom í mark á tímanum
30,46 mínútum, sem er bæting um 34 sek-
úndur á hans eigin brautarmeti frá árinu
2009. Stefán Guðmundsson, félagi Kára úr
Breiðabliki, varð í öðru sæti á 32,39 mín-
útum, bætti sig úr 34,26 frá 2009 og Ragn-
ar Guðmundsson úr Ægi varð í þriðja sæti
á 34,05 mínútum.
Sigurtími Arndísar
Ýrar í kvennaflokki var
37,20 mínútur en hún
varð 21. allra í mark
sem er mjög fínn árang-
ur og bæting úr 38,12
mínútum frá árinu 2009.
Íris Anna Skúladóttir,
einnig úr Fjölni, varð í
öðru sæti á 38,08 mín-
útum og 26. allra í mark,
en hún hljóp á 39,42 mínútum í fyrra, og
Birna Varðardóttir varð í þriðja sæti á
39,45 mínútum.
Alls tóku 1.169 manns þátt í hlaupinu og
var mikil aukning frá árinu áður en þá
tóku 892 manns þátt í gamlárshlaupinu.
gummih@mbl.is
Kári Steinn og Arndís Ýr fögnuðu
sigri í 35. Gamlárshlaupi ÍR-inga
Arndís Ýr
Hafþórsdóttir
„Ég vil bara vara fólk við að
snemma,“ sagði Guðmundur
landsliðsþjálfari karla í hand
unblaðið í gær. Landsliðshóp
í dag til æfinga en HM karla
janúar og Ísland á fyrsta leik
Ungverjar fyrstu mótherjar
„Ég er ekki búinn að hitta
ekki annað en allir séu heilir
eftir áramótin. Ég geri í það
því. Það er auðvitað lykilatri
og tilbúnir í þetta. Annars ve
við stöndum fyrr en eftir æfi
verja um helgina,“ sagði Guð
lenska liðið mætir Þjóðverju
inni á föstudaginn og laugar
mætum við alvöruliði og ætt
því að geta séð nokkuð hvar
Guðmundur.
Landsliðs
að fara ofEnglandA-DEILD:
Birmingham – Arsenal ............................0:3
Robin van Persie 11., Samir Nasri 58., Ro-
ger Johnson 65. (sjálfsmark)
Liverpool – Bolton....................................2:1
Fernando Torres 48., Joe Cole 90. – Kevin
Davies 42.
Grétar Rafn Steinsson lék ekki með
Bolton vegna meiðsla.
Man. City – Blackpool ..............................1:0
Adam Johnson 33.
Stoke City – Everton................................2:0
Kenwyne Jones 23. Phil Jagielka 69.
(sjálfsm.)
Eiður Smári Guðjohnsen sat á bekknum
hjá Stoke allan tímann.
Sunderland – Blackburn .........................3:0
Danny Welbeck 11., Darren Bent 19.
Asamoah Gyan 88.
Tottenham – Fulham ...............................1:0
Gareth Bale 41.
West Ham – Wolves ..................................2:0
Roland Zubar 50. (sjálfsm.), Freddie Sears
78.
Hólmar Örn Eyjólfsson hjá West Ham
er frá keppni vegna meiðsla.
WBA – Man. Utd .......................................1:2
James Morrison 13. – Wayne Rooney 3.,
Javier Hernandez 75.
Chelsea – Aston Villa ...............................3:3
Frank Lampard 23. (víti), Didier Drogba
84., John Terry 89. – Ashley Young 41.
(víti), Emile Heskey 47., Ciaran Clark 90.
Wigan – Newcastle...................................0:1
– Shola Ameobi 19.
Staðan:
Man. Utd 19 11 8 0 41:18 41
Man. City 21 12 5 4 33:16 41
Arsenal 20 12 3 5 42:22 39
Tottenham 20 10 6 4 30:23 36
Chelsea 20 10 5 5 36:18 35
Sunderland 21 7 9 5 24:22 30
Bolton 21 7 8 6 33:28 29
Stoke City 20 8 3 9 25:24 27
Liverpool 19 7 4 8 23:24 25
Newcastle 20 7 4 9 29:31 25
Blackpool 18 7 4 7 26:30 25
Blackburn 21 7 4 10 26:34 25
Everton 20 4 10 6 21:24 22
WBA 20 6 4 10 26:36 22
Aston Villa 20 5 6 9 23:37 21
West Ham 21 4 8 9 22:33 20
Wigan 20 4 8 8 17:32 20
Fulham 20 3 10 7 19:24 19
Birmingham 19 3 10 6 18:24 19
Wolves 20 5 3 12 20:34 18
B-DEILD:
Watford – Portsmouth.............................3:0
Hermann Hreiðarsson lék 5 síðustu mín-
úturnar fyrir Portsmouth.
Coventry – Ipswich ..................................1:1
Aron Einar Gunnarsson tók út leikbann í
liði Coventry.
Norwich – QPR.........................................1:0
Heiðar Helguson lék fyrri hálfleikinn
fyrir QPR.
Swansea – Reading ..................................1:0
Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingi-
marsson voru ekki í leikmannahópi Read-
ing.
Bristol City – Cardiff ................................3:0
Burnley – Sheffield United ......................4:2
Doncaster – Scunthorpe...........................3:0
Hull – Leicester.........................................0:1
Nottingham Forest – Barnsley................2:2
Preston – Derby ........................................1:2
Millwall – Crystal Palace..........................3:0
Leeds – Middlesbrough............................1:1
Staðan:
QPR 24 13 8 3 42:15 47
Swansea 25 13 4 8 30:23 43
Norwich 24 12 6 6 40:32 42
Leeds 25 11 8 6 45:41 41
Cardiff 24 12 4 8 38:29 40
Watford 23 10 6 7 45:34 36
Millwall 24 9 8 7 31:23 35
Burnley 23 9 8 6 38:31 35
Coventry 25 10 5 10 30:30 35
Nottingham F. 22 8 10 4 31:21 34
Reading 24 8 10 6 35:26 34
Derby 24 10 3 11 39:35 33
Doncaster 22 9 6 7 36:35 33
Leicester 25 9 5 11 34:42 32
Portsmouth 23 8 6 9 32:34 30
Hull 24 7 9 8 23:27 30
Bristol City 24 8 6 10 29:35 30
Barnsley 23 8 6 9 28:34 30
Ipswich 23 8 4 11 26:31 28
Middlesbro 24 7 4 13 25:34 25
Sheffield Utd 24 7 4 13 23:39 25
Scunthorpe 22 7 2 13 25:38 23
Cr. Palace 24 6 4 14 25:44 22
Preston 23 5 4 14 27:44 19
C-DEILD:
Brentford – Dagenham ...........................2:1
Guðlaugur Victor Pálsson sat á bekknum
hjá Dagenham allan tímann.
Carlisle – Huddersfield............................2:2
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan tím-
ann fyrir Huddersfield.
Hartlepool – Oldham ...............................4:2
Ármann Smári Björnsson lék síðustu sjö
mínúturnar fyrir Hartlepool.
Plymouth – Yeovil ....................................0:0
Kári Árnason lék allan tímann fyrir
Plymouth.
Colchester – Charlton...............................3:3
MK Dons – Bristol Rovers .......................2:0
Rochdale – Tranmere ...............................3:2
Sheffield Wed. – Peterborough ...............0:0
Southampton – Exeter .............................4:0
Swindon – Bournemouth ..........................1:2
Walsall – Notts County.............................0:3
Staðan:
Brighton 21 11 7 3 37:16 40
Southampton 21 10 4 7 34:19 34
Sheffield Wed. 22 10 4 8 34:21 34
Charlton 21 9 7 5 35:29 34
Bournemouth 21 9 6 6 38:24 33
Huddersfield 22 10 3 9 34:28 33
Brentford 20 9 5 6 25:21 32
Hartlepool 20 9 5 6 26:26 32
MK Dons 21 10 2 9 29:32 32
Colchester 20 7 10 3 28:26 31
Peterborough 21 9 4 8 39:41 31
Oldham 19 7 8 4 29:25 29
Exeter 21 8 5 8 32:38 29
Carlisle 20 7 7 6 28:22 28
Plymouth 21 7 6 8 26:30 27
Notts County 20 8 2 10 27:29 26
Rochdale 20 6 7 7 30:28 25
Swindon 21 6 7 8 32:36 25
Orient 20 5 7 8 26:31 22
Tranmere 20 6 4 10 22:31 22
Bristol Rovers 20 5 7 8 23:36 22
Dagenham 20 4 6 10 22:34 18
Yeovil 20 4 5 11 20:36 17
Walsall 20 5 2 13 18:35 17
Spánn
Valencia – Espanyol..................................2:1
Sevilla – Osasuna.......................................1:0
Gijon – Malaga...........................................1:2
Barcelona – Levante .................................2:1
Atletic Bilbao – Deportivo........................1:2
Staðan:
Barcelona 17 15 1 1 53:10 46
Real Madrid 16 13 2 1 39:12 41
Villarreal 16 10 3 3 30:14 33
Valencia 17 9 4 4 26:20 31
Espanyol 17 9 1 7 19:24 28
Atlético Madrid 16 8 2 6 27:19 26
Getafe 16 8 2 6 26:22 26
Athletic Bilbao 17 8 1 8 26:29 25
Sevilla 17 7 2 8 22:27 23
Real Sociedad 16 7 1 8 22:26 22
Real Mallorca 16 6 3 7 16:20 21
Dep. La Coruna 17 5 6 6 15:20 21
Hércules 16 5 4 7 18:22 19
R. Santander 16 5 3 8 13:23 18
Osasuna 17 4 5 8 15:21 17
Málaga 17 5 1 11 22:36 16
Levante 17 4 3 10 19:28 15
Almería 16 2 7 7 15:25 13
Sporting Gijon 17 2 6 9 14:26 12
Zaragoza 16 1 7 8 14:27 10
Skotland
Hearts – Hibernian.................................. 1:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan tím-
ann fyrir Hearts.
Aberdeen – Dundee Utd.......................... 1:1
Hamilton – Motherwell............................ 0:0
St. Johnstone – Inverness ........................1:0
Rangers – Celtic........................................0:2
Staðan: Celtic 45, Rangers 41, Hearts 39,
Kilmarnock 27, Inverness 27, Motherwell
24, Dundee 21, St Johnstone 21, Aberdeen
17, Hibernian 16, St Mirren 16, Hamilton
11.
KNATTSPYRNA
NBA-deildin
Úrslit aðfaranótt gamlársdags:
Dallas - SA Spurs ................................. 93:99
Orlando - New York ......................... 112:104
Portland - Utah................................... 100:89
Úrslit á nýársnótt:
Golden State - Charlotte...................... 96:95
Chicago - Charlotte .............................. 90:81
Indiana - Washington .......................... 95:86
Houston - Toronto ............................ 114:105
Oklahoma - Atlanta ............................ 103:94
LA Lakers - Philadelphia .................. 102:98
Phoenix - Detroit .................................. 92:75
Úrslit í fyrrinótt:
Miami - Golden State ....................... 114:107
Milwaukee - Dallas............................... 99:87
SA Spurs - Oklahoma......................... 101:74
New Orleans - Washington ................. 92:81
Denver - Sacramento ......................... 104:86
Chicago - Cleveland ........................... 100:91
Minnesota - New Jersey.................... 103:88
Utah - Memphis.................................... 98:92
KÖRFUBOLTI
TENNIS
Meistaramót Tennissambands Íslands
hófst í Tennishöll Kópavogs í gær og stend-
ur yfir alla daga út þessa viku.
Í KVÖLD!
Þrátt fyrir mikinn samdrátt í tekjum
þénaði Tiger Woods engu að síður
mest allra kylfinga í heiminum árið
2010 samkvæmt tekjulista tímarits-
ins Golf Digest. Woods tók sér langt
frí frá keppni fyrri hluta árs og tókst
ekki að vinna mót eftir að hann sneri
aftur. Engu að síður önglaði hann
saman 8,5 milljörðum íslenskra
króna árinu. Þess má þó geta að ein-
ungis um 250 milljónir af upphæð-
inni voru verðlaunafé. Tekjur Woods
drógust saman um rúma 5 milljarða
á milli ára. kris@mbl.is
Tiger enn
tekjuhæstur