Morgunblaðið - 10.01.2011, Side 1
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
íþróttir
Umdeilt Vítaspyrna í byrjun leiks og rautt spjald á Steven Gerrard þegar Kenny Dalglish byrj-
aði nýjan feril með Liverpool á bikartapi á Old Trafford. Man. Utd dróst gegn Southampton. 7
Íþróttir
mbl.is
„Ég flýg út í fyrramálið og hitti um-
boðsmanninn þar, og við förum svo
og skrifum undir þessa pappíra. Ég
reikna því með að vera löglegur með
liðinu í næsta leik á föstudaginn,“
sagði Matthías Vilhjálmsson sem var
á þönum í gær að gera allt klárt fyrir
ferð til Englands en hann hefur verið
lánaður frá FH til C-deildarliðsins
Colchester til 1. apríl.
„Ég á að spila einhvern æfingaleik
á þriðjudaginn [á morgun] fyrir lukt-
um dyrum og fæ ekki einu sinni æf-
ingu fyrir það. En það veitir ekki af
að fá leiki til að ná upp leikæfingunni.
Ég var þarna í nóvember og veit al-
veg að hverju ég geng þarna. Ég þarf
kannski tvo eða þrjá leiki til að koma
mér í stand,“ sagði Matthías.
Hann framlengdi samning sinn við
FH til loka árs 2012 áður en hann hélt
út en Colchester getur vitaskuld
keypt Matthías af FH standi hann
undir væntingum.
„Þjálfarinn barðist alla vega fyrir
því að fá mig þangað svo ég er bara
bjartsýnn. Colchester þarf að taka
ákvörðun fyrir 1. apríl en annars fer
ég bara með FH-ingum beint til
Portúgals í æfingaferð 2. apríl. En ég
ætla að standa mig þarna úti og sjá
hverju það skilar,“ sagði knatt-
spyrnukappinn. sindris@mbl.is
„Þjálfarinn barðist fyrir
því að fá mig þangað“
Matthías gæti spilað með Colchester á föstudaginn
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, 13 ára
stúlka úr Firði í Hafnarfirði, hlaut
Sjómannabikarinn fyrir árið 2011.
Hún vann besta afrekið á Nýárs-
sundmóti Íþróttasambands fatlaðra
sem fram fór í Laugardalslauginni í
gær og var haldið í 28. skipti. Þetta
er í fjórða sinn á sex árum sem
sundkona úr Firði fær bikarinn til
varðveislu.
Kolbrún Alda fékk 594 stig fyrir
50 metra skriðsund en hún synti þá
vegalengd á 34,44 sekúndum. Það
eru fötluð ungmenni 17 ára og
yngri sem taka þátt í mótinu. Fjöldi
mynda frá mótinu á eftir að birtast
í Morgunblaðinu innan skamms.
vs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Kolbrún Alda fékk Sjómannabikarinn
Hreiðar Levy Guðmundsson er annar tveggja mark-
varða íslenska landsliðsins í handknattleik sem leik-
ur í úrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar í Svíþjóð
13.-30. janúar.
Hreiðar er þrítugur að aldri, fæddur 29. nóvember
1980. Hann hefur spilað 107 A-landsleiki fyrir Íslands
hönd og skorað í þeim 2 mörk. Hann var í liðinu sem
fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking 2008 og brons-
verðlaunin á EM í Austurríki 2010.
Hreiðar er ÍR-ingur að upplagi og lék með meist-
araflokki ÍR til ársins 2005. Hann var tvö ár norðan heiða og lék þá með
KA fyrra tímabilið og síðan með Akureyri eftir að KA og Þór sameinuðu
lið sín. Þaðan fór hann 2007 til Sävehof í Svíþjóð, og svo sumarið 2009
til Emsdetten í Þýskalandi. Þar var hann í harðri baráttu með liðinu um
sæti í efstu deild síðasta vetur og það er áfram í efri hlutanum í norð-
urriðli B-deildarinnar.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á HM Í SVÍÞJÓÐ ER EFTIR 4 DAGA
Hreiðar Levy Guðmundsson
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Hinn 19 ára gamli knattspyrnumað-
ur Guðlaugur Victor Pálsson er
kominn aftur til Liverpool-borgar og
ætlar sér að vera þar næstu vik-
urnar hið minnsta eftir að hafa verið
á láni hjá C-deildarliðinu Dagenham
& Redbridge fram að áramótum.
„Ég veit ekki alveg hvað er að fara
að gerast hjá mér en eins og staðan
er í dag þá verð ég bara hjá Liver-
pool,“ sagði Guðlaugur Victor í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en nokk-
ur félög hafa borið víurnar í hann
eftir að félagaskiptaglugginn opnaði
um áramótin, meðal annars bik-
armeistarar FH. Hann kom til Liv-
erpool í ársbyrjun 2009 og er með
samning fram á mitt næsta sumar.
„Það voru lið í Englandi og Skand-
inavíu sem vildu fá mig núna í janúar
en ég sagði nei við því öllu. Það getur
hins vegar verið að ég fari aftur á lán
enda er nægur tími til þess og maður
ekki bundinn því að ganga frá slíku
fyrir janúarlok. Ég er búinn að
ákveða að vera í Liverpool út mán-
uðinn og ef ég fæ ekki annan samn-
ing sem mér líst á hjá félaginu ætla
ég bara að láta þennan samning
renna út og finn mér þá annað félag í
sumar,“ sagði Guðlaugur Victor.
Hann lék þrjá leiki fyrir U21-
landslið Íslands í undankeppni Evr-
ópumeistaramótsins sem fram fer í
Danmörku í sumar, og tók þátt í að
tryggja Íslandi sæti á því móti eins
og frægt er orðið. Vísast horfir þessi
fyrrverandi leikmaður Fylkis til
þess að þetta mót er ein besta aug-
lýsing sem hugs-
ast getur fyrir
efnilega knatt-
spyrnumenn.
„EM er í sum-
ar og ég þarf
náttúrulega að fá
að spila því ég
ætla að vera í
mínu besta formi
þar. Ég reikna
með að vera leik-
maður Liverpool fram yfir það mót
en samningurinn rennur út 30. júlí.“
„Þekki Dalglish ágætlega“
Ekki er hægt að sleppa Liverpool-
manninum án þess að spyrja aðeins
út í stöðuna í herbúðum félagsins, en
þar gekk mikið á um helgina. Roy
Hodgson var látinn fara og Kenny
Dalglish hefur nú tekið við. Dalglish
er öllum hnútum kunnugur hjá Liv-
erpool og Guðlaugur kannast vel við
kauða.
„Mér finnst nú stemningin hérna
alltaf vera ágæt, en auðvitað var
Hodgson rekinn í gær og við töp-
uðum í dag [í gær] svo að ég veit ekki
hvernig stemningin á eftir að verða á
morgun. Mér líst ágætlega á þessi
stjóraskipti. Ég þekki Dalglish
ágætlega enda hefur hann verið
starfandi hjá félaginu í þónokkurn
tíma og verið yfir unglingaakademí-
unni. Mér líst vel á þetta, en ég held
að þetta eigi ekki eftir að breyta
miklu varðandi mig persónulega.
Vonandi mun þetta breyta gengi
liðsins. Þetta leit alveg ágætlega út í
þessum bikarleik og verður vonandi
bara betra í komandi leikjum.“
„Finn mér þá
annað félag í
sumar“
Guðlaugur Victor
Pálsson
Guðlaugur neitaði nokkrum félögum