Morgunblaðið - 10.01.2011, Page 4

Morgunblaðið - 10.01.2011, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Ungverjar, fyrstu mótherjar Íslend- inga í heimsmeistarakeppninni í Sví- þjóð næsta föstudag, luku sínum undirbúningi með jafntefli gegn Pól- verjum, 31:31, á laugardaginn. Það var úrslitaleikurinn á æfingamóti í Póllandi og jafnteflið nægði Ung- verjum til sigurs á mótinu, á betri markamun en gestgjafarnir. Bæði lið höfðu áður sigrað bæði Tékkland og Slóvakíu. Leikur liðanna var hnífjafn allan tímann og staðan var 16:16 í hálfleik. Szabolcs Törö frá Szeged og Fe- renc Ilyés frá Lemgo skoruðu fimm mörk hvor fyrir Ungverja og þeir Gyula Gál frá RK Zagreb, Tamás Mocsai frá Flensburg og Kornél Nagy frá Veszprém gerðu fjögur mörk hver. Patryk Kuchczynski skoraði sex mörk fyrir Pólverja, Bartlomiej Tomczak fimm og þeir Marcin Lij- ewski og Bartlomiej Jaszka fjögur mörk hvor. vs@mbl.is Ungverjar unnu mótið í Póllandi Svíar stóðu uppi sem sigurvegarar á fjögurra þjóða handknattleiks- mótinu sem lauk í Herning í Dan- mörku í gær- kvöld. Þeir gerðu jafntefli við Dani á laugardags- kvöldið, 29:29, og þar með réð markatala úrslitum. Svíar skákuðu þar Dönum með því að vinna mjög öruggan sigur á Bras- ilíumönnum, mótherjum Íslendinga á HM í Svíþjóð. Svíar unnu 38:26 eft- ir að staðan var 22:11 í hálfleik. Kim Ekdahl Du Rietz skoraði 12 mörk fyrir Svía í leiknum. Danir mættu Túnis í lokaleiknum í gærkvöld og urðu að vinna með 8-9 marka mun til að fara upp fyrir Svíana. Það tókst ekki, lokatölur urðu 26:20 eftir að staðan var 16:11 í hálfleik. Anders Eggert og hinn íslenski Hans Lindberg skoruðu 6 mörk hvor fyrir Dani í leiknum og Thomas Mo- gensen 5. Stórleikur hjá Sören Rasmussen í markinu gerði útslagið fyrir danska liðið í leiknum. vs@mbl.is Svíar efstir í Herning á markatölu Hans Lindberg Austurríkismenn, sem eru á meðal andstæðinga Íslendinga á heimsmeist- aramótinu í handknattleik í Svíþjóð, fengu mikinn skell í lokaleik sínum fyrir HM á laugardaginn. Þeir sóttu Serba heim til Belgrad og steinlágu þar, 39:27, eftir að Serbar höfðu náð yfirburðastöðu í hálfleik, 23:11. Magnus Andersson, hinn sænski þjálfari Austurríkismanna, sagði eftir leikinn að hann væri gífurlega vonsvikinn með frammistöðu síns liðs. „Ég er geysilega vonsvikinn, í hálfgerðu sjokki, eftir þetta fyrsta tap liðsins und- ir minni stjórn. Þetta voru öflugir andstæðingar en við byrjuðum virkilega illa og fjölmargt var að í okkar leik. Það segir allt sem segja þarf að eftir 18 mínútur mun- aði 12 mörkum á liðunum,“ sagði Andersson á vef austurríska handknattleiks- sambandsins, en staðan á umræddum tímapunkti var 17:5, Serbum í hag. Serbar voru afar ánægðir með sína menn og serbnesk dagblöð notuðu í gær fyr- irsagnir eins og: „ Hefnd fyrir Linz.“ Þar vitnuðu þeir til Evrópukeppninnar í Austurríki í byrjun síðasta árs þar sem Austurríki komst áfram í milliriðil á kostn- að Serba. Roland Schlinger skoraði 6 mörk fyrir Austurríkismenn og Viktor Szilagyi 4 en aðrir minna. Austurríki mætir Brasilíu í fyrsta leik sínum á HM næsta föstudag. Serbar eru líka á leið á HM en þar eru þeir í C-riðli ásamt Danmörku, Króatíu, Rúmeníu, Alsír og Ástralíu. vs@mbl.is Anderson í sjokki eftir stórtap í Serbíu Heiner Brand, hinn gamalreyndi þjálf- ari þýska landsliðsins í handknattleik, sem vann heimsmeistaratitilinn með því fyrir fjórum árum, kvaðst ekki mjög óhress með frammistöðu sinna manna í leikjunum tveimur gegn Ís- lendingum í Laugardalshöllinni. Þrátt fyrir fjögurra marka ósigur í bæði skiptin, 27:23 á föstudagskvöldið og 31:27 á laugardaginn. „Einstaklingsmistök voru okkur dýrkeypt í báðum leikjunum. Við töp- uðum leiknum á laugardag á slæmum kafla í fyrri hálfleik þegar við fengum á okkur mörg mörk úr hraðaupp- hlaupum. Þá lentum við nokkrum mörkum undir og þurftum að berjast við það leikinn á enda,“ sagði Brand við Handball-World. „Það var mjög mikilvægt fyrir mína menn að fá þessa tvo leiki gegn liði í þessum gæðaflokki. Svona mótherja er aðeins hægt að sigra með því að halda algjörri ein- beitingu leikinn á enda. Í heild sinn er ég ekki svo óhress með leikinn en við þurfum að lyfta leik okkar áður en heimsmeistarakeppnin hefst,“ sagði Brand ennfremur. „Við vorum betri en í fyrri leikn- um en fengum of mörg einföld mörk á okkur og verðum að læra að vera grimmari í okkar varnarleik. Við gáfum leikinn of auðveldlega frá okkur og það gengur ekki á móti Íslendingum,“ sagði Michael Kraus, sem var bestur Þjóðverjann og skoraði níu mörk. vs@mbl.is „Sigrum svona lið bara með algjörri einbeitingu“ VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is „Varnarlega spiluðum við alveg gríðarlega vel í þrjá hálfleiki af fjór- um. Fyrri hálfleikurinn í seinni leikn- um var frábær og allur fyrri leikurinn var mjög góður. Það er mjög jákvætt. Markvarslan var mjög góð í fyrri leiknum og vel viðunandi í þeim seinni. Sóknarleikurinn var lengst af mjög góður. Það kom tíu mínútna kafli í fyrri leiknum þar sem hann datt niður og það var einhver stirðleiki í upphafi seinni leiksins. Það lagaðist hins vegar og við sóttum í okkur veðrið. Sókn- arleikurinn var mjög góður á afger- andi kafla þegar við vorum að vinna leikinn. Það var einnig mjög jákvætt. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að þetta voru bara æfingaleikir. Við þurfum að halda einbeitingu og vinna vel í framhaldinu. Við þurfum að átta okkur á því hvar við erum staddir í augnablikinu og bæta okkur á öllum sviðum. Þetta gengur út á það,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Guðmundur Guð- mundsson, þegar Morgunblaðið ræddi við hann eftir síðari vináttuleikinn gegn Þjóðverjum. Íslendingar unnu báða leikina og það hlýtur að þýða að íslenska liðið standi vel að vígi fyrir HM en þetta eru einu leikirnir sem lið- ið spilar í aðdraganda mótsins. Gefur ákveðin fyrirheit „Við stöndum alla vega vel varn- arlega og vorum einnig fínir sókn- arlega. Það er góður heildarbragur á liðinu. Eins og ég segi þá voru þetta æfingaleikir og leikurinn gegn Ung- verjum á föstudaginn er fyrsti leik- urinn sem skiptir máli. Leikirnir á HM eru leikirnir sem við þurfum að vinna. Leikirnir gegn Þjóðverjum gefa ákveðin fyrirheit en meira er það ekki,“ sagði Guðmundur og gat ekki neitað því að það væri annar bragur á leik íslenska liðsins nú en í haust þeg- ar liðið lenti í basli gegn Lettlandi á fjölum Laugardalshallarinnar. Bakslagið var til góðs „Það er verulegur munur á liðinu. Við brenndum okkur illa þar og menn voru bara ekki tilbúnir í það verkefni. Það er hins vegar að baki og nú er það nútíðin og framtíðin sem skiptir máli. Mér sýnist að við höfum lært ákveðna lexíu,“ sagði Guðmundur og var spurð- ur hvort bakslagið í haust hefði þrátt fyrir allt verið til góðs. „Já þegar upp er staðið held ég að það hafi verið til góðs. Við höfum stundum þurft að fá svona aðvörun. Það á ekki að þurfa en þannig er nú bara mannskepnan að það þurfa allir að fá aðvörun af og til.“ Fórum yfir Peking-vörnina Þegar Ísland vann til verðlauna í Kína og í Austurríki þá gekk liðinu hvað best þegar varnarleikurinn var nokkuð villtur, þ.e.a.s. andstæðing- unum var mætt langt úti á velli. Leik- irnir gegn Þjóðverjum báru keim af þessum varnartöktum. „Þetta er það sem við lögðum upp með að þessu sinni. Við ákváðum að fara yfir Pek- ing-vörnina okkar eins og við kjósum að kalla hana. Hún er í grunninn 6-0- vörn en verður svo eitthvað allt annað: 5-1, 3-2-1 eða 3-3. Við fórum yfir þetta á mánudaginn og skoðuðum þá allar mögulegar og ómögulegar stöður sem geta komið upp þegar við spilum á móti liðum með ólíkan leikstíl. Við negldum niður vinnureglur í sambandi við þetta og ég held að það hafi hjálpað alveg gríðarlega að gera það,“ út- skýrði Guðmundur. Heilt yfir segir þjálfarinn að líkamlegt ásigkomulag landsliðsmannanna sé gott og þeir hafa ekki orðið fyrir neinum stórum skakkaföllum. „Ingimundur sneri sig í seinni leiknum og það á eftir að koma betur í ljós hvort það hefur áhrif. Aron sneri sig í fyrri leiknum en hann komst vel í gegnum þann seinni engu að síð- ur. Sverre er slæmur í öxl og olnboga en að öðru leyti er allt í góðu. Guðjón Valur lítur mjög vel út og ekkert yfir því að kvarta,“ sagði Guðmundur og var að endingu spurður hvort hann hefði áhyggjur af einhverju stóru at- riði nú þegar HM er handan við horn- ið. Halda þarf siglingunni áfram „Ég hef helst áhyggjur af því að menn haldi sig ekki á jörðinni og missi einbeitinguna. Ég treysti leikmönnum til þess að koma í veg fyrir slíkt en það verður okkar stærsta vinna núna að fara mjög einbeittir inn í vikuna. Við þurfum að halda áfram okkar siglingu og koma inn í fyrsta leik á föstudaginn á sama hátt og við spiluðum á móti Þjóðverjum,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson í samtali við Morgunblaðið en hann hefur í gegnum tíðina þótt sérstaklega snjall í því að halda sínum mönnum á jörðinni. Morgunblaðið/Kristinn Mættur Guðjón Valur Sigurðsson er kominn aftur í slaginn eftir langa fjarveru. Hér skorar hann gegn Þjóðverjum án þess að Johannes Bitter komi vörnum við. „Góður heildarbragur“  Guðmundur landsliðsþjálfari leggur aðaláherslu á að menn haldi einbeitingunni  Segir liðið hafa spilað gríðarlega vel í þrjá hálfleiki af fjórum gegn Þjóðverjum Norðmenn stóðu uppi sem sigur- vegarar á alþjóð- legu móti í hand- knattleik karla í Sviss þrátt fyrir ósigur, 31:32, gegn Rúmenum í lokaumferðinni í gær. Norðmenn höfðu áður sigr- aði Slóveníu og Sviss og það nægði þeim til að vinna mótið. Mörk Noregs: Espen Lie Hansen 9, Einar Sand Koren 7, Christoffer Rambo 6, Erlend Ma- melund 3, Lars Erik Bjørnsen 2, Håvard Tvedten 2, Thomas Skog- lund 1. Norðmenn mæta Íslendingum í heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð síðar í þessum mánuði en viðureign þjóðanna verður í lokaumferð B-rið- ilsins þann 20. janúar í Linköping. vs@mbl.is Erlend Mamelund Norðmenn unnu þrátt fyrir tap

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.