Morgunblaðið - 10.01.2011, Síða 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
Línumaðurinnöflugi Michael
Knudsen, leik-
maður Flensburg,
verður ekki með
Dönum á HM í Sví-
þjóð, allavega ekki
fyrr en í fyrsta lagi
í milliriðlinum. Ul-
rik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana,
staðfesti þetta á vef danska sam-
bandsins um helgina. Knudsen lék
fyrsta leik Dana á alþjóðlega mótinu
í Herning á föstudag en varð að
sleppa hinum tveimur þar sem
meiðsli í hné hrjá hann talsvert. Wil-
bek verður því aðeins með 15 menn
skráða til leiks í byrjun móts og
heldur einu sæti opnu.
Kyung-Shin Yoon, fyrrverandimargfaldur markakóngur í
þýska handboltanum, er í liði Suður-
Kóreu sem tekur þátt í HM í Sví-
þjóð. Yoon, sem er jafnaldri Ólafs
Stefánssonar, 37 ára gamall, varð
átta sinnum markahæstur í Þýska-
landi en hann flutti heim árið 2008
þar sem hann spilar með Doosan.
Yoon skoraði tvö mörk á laugardag-
inn þegar Suður-Kóreubúar töpuðu
naumlega fyrir Króötum á móti í
París, 24:27. Þeir unnu síðan Arg-
entínu auðveldlega, 32:25, í leik um
þriðja sætið í gær.
Frakkar sigruðuKróata, 28:27,
í hörkuspennandi
úrslitaleik á mótinu
í gærkvöld en það
fór fram í Bercy-
höllinni frægu í út-
jaðri Parísar,
frammi fyrir 14
þúsund áhorf-
endum. Thierry Omeyer markvörður
var eins og oft áður lykilmaður
Frakka en hann varði 19 skot í leikn-
um. Jérome Fernandez var marka-
hæstur í liði Frakka í leiknum með
sjö mörk. Blazenko Lackovic og Ve-
dran Zrnic skoruðu sex mörk hvor
fyrir Króata og Manuel Strlek gerði
fimm mörk.
Claude Onesta, þjálfari Frakka,ætlar að tilkynna 16 manna hóp
sinn fyrir HM í dag. Frakkar, sem
eru heims-, Evrópu- og ólympíu-
meistarar, verða með Íslandi í milli-
riðli á HM ef bæði lið komast á ann-
að borð þangað.
Carlos Pérez, sem verður fertug-ur í haust, hefur verið valinn í
landslið Ungverja í handknattleik
fyrir heimsmeistarakeppnina í Sví-
þjóð. Perez, sem hefur verið um ára-
bil ein besta skytta Ungverja, er
fyrrverandi Kúbumaður sem gekk
til liðs við þá fyrir nokkru. Hann
spilar með Veszprém, hinu sig-
ursæla liði í Ungverjalandi.
Santos, lið Þór-unnar Helgu
Jónsdóttur, vann
Palmeiras, 1:0, í
viðureign bras-
ilísku liðanna á al-
þjóðlega knatt-
spyrnumótinu sem
nú stendur yfir í
Brasilíu. Þórunn Helga kom inn á
sem varamaður hjá Santos, sem
vann Umeå frá Svíþjóð, 4:2, í fyrsta
leiknum og leikur þar með örugg-
lega úrslitaleik mótsins um næstu
helgi. Marta, besta knattspyrnukona
heims undanfarin ár, lagði upp sig-
urmark Santos sem Suzana skoraði.
Knattspyrnumaðurinn Atli Sig-urjónsson, sem er 19 ára gam-
all, var í gær útnefndur íþróttamað-
ur ársins hjá Þór á Akureyri. Atli
var í stóru hlutverki í liði Þórsara
sem hafnaði í öðru sæti 1. deildar
síðasta sumar og tryggði félaginu
sæti í úrvalsdeildinni eftir átta ára
fjarveru þaðan.
Fólk sport@mbl.is
Horst Bredemeier, varaforseti þýska handknattleikssambandsins
og fyrrverandi landsliðsþjálfari, sagði að það væri engin skömm
fyrir Þjóðverja að tapa tvisvar fyrir Íslendingum fyrir fjögurra
marka mun.
„Þetta var leikur tveggja mjög góðra liða. Ísland var á heima-
velli og sýndi styrk sinn maður gegn manni, og það réð úrslitum.
Ég er alls ekki vonsvikinn eftir þessa tvo leiki. Við héldum í við
silfurliðið frá Ólympíuleikunum fram á lokamínúturnar,“ sagði
Bredemeier við Handball-World eftir seinni leikinn í Laugardals-
höllinni á laugardaginn.
Þetta voru síðustu leikir Þjóðverja fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í Svíþjóð. Þeir mæta Egyptum í fyrsta leik sínum í A-riðlinum
á föstudaginn kemur og mæta auk þess Frakklandi, Spáni, Túnis
og Barein.
Miklar líkur eru á að Ísland og Þýskaland mætist í milliriðl-
inum á HM seinna í mánuðinum en þangað fara þrjú efstu lið A-
riðils og þrjú efstu lið B-riðils. Liðin mætast síðan tvívegis í mars-
mánuði, heima og heiman, í undankeppni Evrópumótsins.
vs@mbl.is
Engin skömm að tapa
gegn Íslendingum
ni
n
r
ð
a Morgunblaðið/Kristinn
Áhyggjufullur Heiner Brand fylgist með gangi mála í leiknum á laugardaginn.
Á VELLINUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Að loknum tveimur sigurleikjum
gegn Þjóðverjum þá er ég í bjart-
sýniskasti fyrir heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik í Sví-
þjóð sem hefst á fimmtudaginn.
Allur gangur hefur nú verið á því
hvort ég sé bjartsýnn eða svartsýnn
fyrir mót sem þetta en nú virðast
vera ýmis teikn á lofti þess efnis að
íslenska landsliðið sé enn samkeppn-
ishæft gegn bestu liðum heims.
Fyrirboðinn ljúfi
Merkilegt verður að teljast að Ís-
land hefur ekki tapað fyrir Þýska-
landi, mestu handknattleiksþjóð
heimsins, í síðustu sjö leikjum þjóð-
anna. Einum þeirra lauk með jafn-
tefli en Ísland hefur unnið hina sex
og yfirleitt með fjögurra marka mun.
Það gerðist einmitt að þessu sinni að
Ísland vann báða leikina með fjög-
urra marka mun: 27:23 og 31:27.
Þetta tel ég vera afskaplega góðan
fyrirboða því til eru aldeilis fordæmi
fyrir slíku. Síðustu leikir Íslands fyr-
ir EM í Svíþjóð árið 2002 voru gegn
Þjóðverjum í Laugardalshöllinni. Ís-
land vann þá báða með fjögurra
marka mun og lék um verðlaun í Sví-
þjóð. Í fyrra lék Ísland tvo leiki gegn
Þjóðverjum í Þýskalandi rétt fyrir
EM í Austurríki. Ísland vann báða
leikina og að sjálfsögðu með fjögurra
marka mun. Í kjölfarið vann liðið til
verðlauna á EM.
Varnarleikurinn uppörvandi
Þessar staðreyndir sem hér voru
reifaðar eru afskaplega skemmti-
legar en rétt er að taka skýrt fram
að ekki dugir sagnfræðin ein og sér
til að valda bjartsýniskasti. Leikur
íslenska liðsins gegn Þjóðverjum
gefur einfaldlega tilefni til bjartsýni
og þá sérstaklega þegar haft er í
huga að hópurinn er nánast skipaður
sömu leikmönnum og unnu til verð-
launa fyrir ári. Sérstaklega var upp-
örvandi að sjá varnarleik íslenska
liðsins þar sem stórskyttum Þjóð-
verja var mætt langt úti á velli.
Skipulagt kaos
Minnti þetta mjög á varnarleik Ís-
lands á Ólympíuleikunum í Peking.
Þá virkaði varnarleikur liðsins ansi
villtur en skilaði afskaplega góðum
árangri bæði á móti Þjóðverjum og
Pólverjum. Þegar betur er að gáð er
ákveðin regla á óreiðunni, ekki
ósvipað því sem er heima hjá mér.
Óþjálfað auga gæti talið að þar væri
óreiða en svo kemur í ljós að það er
regla á hlutunum. Svo virðist sem ís-
lensku varnarmennirnir vaði út úr
vörninni upp á von og óvon en á bak
við varnarleikinn liggja vísindi Guð-
mundar Guðmundssonar og með-
hjálparanna tveggja. Skipulagt kaos
eins og Stuðmenn sungu um í meist-
araverkinu Hvítum mávum.
Gallinn við þennan varnarleik er sá
að hann útheimtir mikla orku og því er
ekki hægt að spila með þessum hætti
út allt mótið heldur þarf að velja leiki
og leikkafla. Kostirnir eru meðal ann-
ars þeir að Íslendingar vita nákvæm-
lega hvað þeir ætla að gera en and-
stæðingarnir hafa ekki hugmynd um
hvað bíður þeirra. Stundum fá þeir
einn íslenskan varnarmann út á móti
sér, stundum tvo og stundum þrjá. Ís-
lenska liðið er líka með frábæra
íþróttamenn til þess að rjúka út úr
vörninni. Fyrir hávaxna menn er ekki
góð staða í lífinu að vera með Alexand-
er Petersson, Ingimund Ingimund-
arson og Guðjón Val Sigurðsson í and-
litinu á sér tímunum saman. Ekki er
annað að sjá en sá síðastnefndi geti
beitt sér af fullum þrátt fyrir langa
fjarveru frá keppni. Guðjón er liðinu
gífurlega mikilvægur. Ekki eingöngu
vegna hæfileika sinna og reynslu, held-
ur einnig vegna þess að hann er fag-
maður fram í fingurgóma og einn af
leiðtogum liðsins.
Bjartsýnin á rétt á sér
Teikn á lofti um að íslenska liðið sé enn samkeppnishæft gegn þeim bestu
Uppörvandi að sjá varnarleikinn Regla á óreiðunni og vísindi á bakvið hana
Morgunblaðið/Kristinn
Lykilmaður Alexander Petersson er í stóru hlutverki í hinum „villta“ varnarleik Íslands og skorar fyrir vikið grimmt úr
hraðaupphlaupum. Hann skoraði fjögur mörk á stuttum kafla í fyrri hálfleik og hér er eitt þeirra í uppsiglingu.
Laugardalshöll, vináttulandsleikur
karla, laugardaginn 8. janúar 2011.
Gangur leiksins: 0:2, 2:4, 5:5, 9:7,
12:8, 15:12, 16:13, 18:14, 18:17, 19:19,
24:21, 26:24, 29:26, 31:27.
Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson
7/3, Aron Pálmarsson 6, Snorri
Steinn Guðjónsson 4, Alexander Pet-
ersson 4, Kári Kristján Kristjánsson
3, Guðjón Valur Sigurðsson 2,
Sverre Jakobsson 1, Oddur Gret-
arsson 1, Arnór Atlason 1, Vignir
Svavarsson 1, Róbert Gunnarsson 1.
Varin skot: Hreiðar Levy Guð-
mundsson 11/1 (þar af 3 aftur til
mótherja), Björgvin Páll Gústavsson
7 (þar af 2 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur (Sverre fékk
þrjár brottvísanir og þar með rautt).
Mörk Þýskalands: Michael Kraus
9/3, Uwe Gensheimer 4, Adrian
Pfahl 3, Sebastian Preiss 2, Patrik
Groetzki 2, Holger Glandorf 2, Sven-
Sören Christophersen 1, Jacob Heinl
1, Christian Sprenger 1, Pascal Hens
1, Michael Haass 1.
Varin skot: Johannes Bitter 7 (þar
af 2 aftur til mótherja), Carsten
Lichtlein 4 (þar af 1 aftur til mót-
herja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Kenneth Abrahamsen og
Arne Kristiansen Noregi.
Áhorfendur: 2.700. Fullt hús.
Ísland – Þýskaland 31:27