Morgunblaðið - 10.01.2011, Side 8

Morgunblaðið - 10.01.2011, Side 8
VIÐTAL Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is KR tryggði sér í gær sæti í undanúrslitum Powe- rade-bikarkeppni karla í körfuknattleik. Liðið sigraði Fjölni 82:74 í leik sem varð mjög spenn- andi á lokamínútunum. Fjölnir var í eltingaleik allan tímann og var oftast þetta 10 til 14 stigum á eftir KR. Heimamenn leiddu til að mynda í hálf- leik með 12 stigum. Leikmönnum Fjölnis gekk vel í hraðaupphlaup- unum en vítanýting þeirra í þessum leik var skelfileg en hefði um helmingur þeirra farið ofan í körfuna hefði þetta verið allt annar leikur. Þeir náðu þó að minnka muninn í 5 stig þegar um 50 sekúndur voru eftir. Nær komust þeir ekki og KR-ingar skoruðu síðustu 3 stig leiksins. Vildi að allir gætu fengið jafnmargar mínútur Leikmenn KR komust fljótt í óþarfa villuvand- ræði en gamli ÍR-ingurinn Hreggviður Magn- ússon kom sjóðandi heitur af bekknum og skoraði 9 stig í fyrri hálfleik. Það fór þó minna fyrir hon- um í síðari hálfleik en KR sýndi að breiddin er mikil í herbúðum þeirra. „Þetta er lúxusvandamál fyrir mig, Hreggviður kom mjög sterkur inn og Finnur (Magnússon) leysti hann svo mjög vel af í seinni hálfleik, þá sér- staklega í varnarleiknum en hann náði tveimur mikilvægum boltum þarna á lokamínútunum. Við mætum með 12 leikmenn í hvern einasta leik sem skila góðu fyrir okkur og eru metn- aðarfullir. Ég vildi í raun að ég gæti gefið þeim öll- um jafnmargar mínútur en það gengur ekki alltaf upp.“ 20 ára þurrkur í bikarnum „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að standa okkur í bikarnum. Það er búinn að vera 20 ára þurrkur hjá KR í þessari keppni og okkar markmið er að fara alla leið.“ Hrafni er mikið í mun að fá heimaleik í næstu umferð. „Eigum við ekki að segja að KR – Grinda- vík í DHL-höllinni sé frábær undanúrslitaleikur en auðvitað skiptir það ekki öllu máli hvaða lið það er. Öll liðin í deildinni eru þannig að maður þarf að koma tilbúinn til leiks.“ Stöðugleikinn væntanlegur hjá KR KR hefur vantað stöðugleika það sem af er tímabili en Hrafn telur að margt bendi til þess að hans sé að vænta af liðinu. Við til að mynda höldum Fjölni í 33 stigum í fyrri hálfleik. Ég tel að það eigi eftir að fylgja okkur ákveðinn stöðugleiki seinni hluta tímabilsins. Við erum ekki að bæta við okkur útlendingi eða gera einhverjar aðrar stórkostlegar breytingar.“ „Við tókum mjög vel á því í jólafríinu, við sett- um upp þetta Reykjavíkurmót um hátíðarnar og það hélt mönnum aðeins meira á tánum frekar en að mæta bara á æfingar. Okkur finnst við vera að koma sérstaklega sterkir varnarlega úr því fríi. „Þetta er lúxus vandamál“ Morgunblaðið/Eggert Sterkur Hreggviður Magnússon kom sterkur inní lið KR-inga eftir að hafa byrjað leikinn á vara- mannabekknum og skoraði 13 stig í bikarsigrinum á Fjölni í gær.  Léleg vítanýting reyndist dýrkeypt  Vill fá Grindavík í DHL-höllina  12 metnaðarfullir 8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 KR – Fjölnir 82:74 DHL-höllin, Poweradebikar karlar, 9. jan- úar 2011 Gangur leiksins: 8:2, 18:11, 22:15, 23:20, 30:22, 37:24, 40:28, 45:31, 53:37, 57:41, 64:47, 66:53, 70:58, 73:62, 76:68, 82:74. KR: Brynjar Þór Björnsson 18, Fannar Ólafsson 15/6 fráköst, Marcus Walker 14/6 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 13/5 fráköst, Pavel Ermolinskij 11/11 frá- köst, Finnur Atli Magnússon 7/5 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 3, Jón Orri Kristjánsson 1/5 fráköst. Fráköst: 27 í vörn, 11 í sókn. Fjölnir: Brandon Ja Juan Springer 17, Sindri Kárason 15/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 14/11 fráköst/6 stoðsendingar, Tómas Heiðar Tómasson 8, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 7/5 fráköst, Jón Sverr- isson 7/5 fráköst, Arnþór Freyr Guð- mundsson 2/5 fráköst, Trausti Eiríksson 2, Sigurður Þórarinsson 2. Fráköst: 27 í vörn, 11 í sókn. Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Björgvin Rúnarsson, Jón Guðmundsson. Tindastóll – Skallagrímur 72:48 Sauðárkrókur, Poweradebikar karlar, 9. janúar 2011. Gangur leiksins: 7:5, 9:7, 11:11, 15:13, 27:15, 29:17, 36:19, 40:23, 44:25, 48:27, 53:29, 55:33, 57:36, 61:41, 69:48, 72:48. Tindastóll: Hayward Fain 15, Svavar Atli Birgisson 14/11 fráköst, Dragoljub Kitano- vic 14, Sean Kingsley Cunningham 9/6 frá- köst/5 stoðsendingar, Friðrik Hreinsson 9, Helgi Rafn Viggósson 5/18 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 4, Halldór Halldórsson 2. Fráköst: 32 í vörn, 13 í sókn. Skallagrímur: Darrell Flake 17/11 fráköst, Mateuz Zowa 8/8 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 7, Halldór Gunnar Jónsson 7, Birgir Þór Sverrisson 6, Davíð Guðmunds- son 3. Fráköst: 17 í vörn, 8 í sókn. Dómarar: Davíð Hreiðarsson, Georg And- ersen, Ísak Ernir Kristinsson. Áhorfendur: 320 Haukar – Njarðvík 98:84 Ásvellir, Poweradebikar karlar, 9. janúar 2011. Gangur leiksins: 2:6, 4:10, 11:20, 17:27, 24:29, 35:33, 39:40, 46:43, 53:45, 61:50, 63:53, 66:60, 69:61, 80:67, 92:71, 98:84. Haukar: Gerald Robinson 27/9 fráköst, Se- maj Inge 18/14 fráköst/14 stoðsendingar, Haukur Óskarsson 18, Sævar Ingi Har- aldsson 16, Sveinn Ómar Sveinsson 15/11 fráköst, Örn Sigurðarson 2, Emil Barja 2/6 fráköst. Fráköst: 35 í vörn, 10 í sókn. Njarðvík: Christopher Smith 36/12 frá- köst/4 varin skot, Magnús Þór Gunnarsson 15, Friðrik E. Stefánsson 9/8 fráköst, Rún- ar Ingi Erlingsson 7, Guðmundur Jónsson 6/5 fráköst/6 stoðsendingar/7 stolnir, Jó- hann Árni Ólafsson 4, Egill Jónasson 3, Hjörtur Hrafn Einarsson 2, Lárus Jónsson 2. Fráköst: 21 í vörn, 15 í sókn. Dómarar: Kristinn Óskarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson. Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Keflavík sigraði í gær lið Grindavíkur í sann- kölluðum Suðurnesjaslag þegar liðin áttust við í 8-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni kvenna. KR og Njarðvík höfðu þegar tryggt sæti sitt í undanúrslitum og Keflavík því komin í þann hóp eftir 78:61-sigur. Gestirnir frá Grindavík byrjuði leikinn betur og komust meðal annars í fjögurra stiga for- ustu, 9:13, um miðbik fyrsta leikhluta. Grinda- vík leiddi í hálfleik, 33:31, eftir góðan kafla í lok seinni hálfleiks. Flóðgáttir opnuðust Þegar fjórði leikhluti hófst var staðan jöfn, 48:48, en þá virtist sem allar flóðgáttir opn- uðust í varnarleik Grindvíkinga og Keflavík gekk á lagið, með Jacquline Adamshick fremsta í flokki. Þær breyttu stöðunni úr 58:55 í 65:57 og lögðu þar með grunninn að góðum 17 stiga sigri. Jagquline Adamshick var atkvæðamest heimastúlkna með 34 stig og 15 fráköst. Þá átti Birna Valgarðsdóttir skínandi leik en hún skor- aði 13 stig, tók sjö fráköst og varði fjögur skot. Hjá Grindavík skoraði Agnija Reke flest stig eða 18 en hún var einnig sterk í vörninni og stal átta boltum. Lokatölurnar segja ekki alla söguna en lengst af var leikurinn jafn og spennandi eins og grannaslagur á að vera. Hamar kann ekki að tapa Þá tryggði Hamar sér einnig sæti í undan- úrslitum keppninnar með öruggum 23 stiga sigri á Snæfellingum. Nýkjörinn leikmaður fyrri umferða mótsins, Jaleesa Butler, fór fyrir Hamri í kvöld og skoraði 29 stig auk þess að taka 15 fráköst. Slavica Dimovska var gest- unum einnig mikilvæg í Stykkishólmi í gær. Monique Martin hafði yfirburði yfir leikmenn heimastúlkna og skoraði 36 stig eða um helm- ing stiganna. Það fór allt í gegnum Martin í sóknarleiknum og augljóst að Snæfell þarf að fá fleiri stig fá fleiri leikmönnum ef þær ætla að eiga möguleika í sterkt lið Hamars, sem hef- ur ekki tapað leik á leiktíðinni. Þá er ekki þar með sagt að sóknarleikur Hamars byggist ekki of mikið á Butler. Síður en svo, Butler er algjör lykilmanneskja í liði Hamars en hún hefur þó góðan stuðning frá Slavicu Dimovska, sem átti mjög góðan leik í gær. Butler hefur oft hitt betur en í gær. Af 20 skotum innan teigs setti hún aðeins 11 í körf- una og úr helmingi skota sinna utan 3-stiga lín- unnar. Keflavík vann grannaslaginn Skallagrímur hafði ekki erindi sem erfiði þegar liðið lagði leið sína á Sauðárkrók í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfuknattleik. Heimamenn í Tindastól höfðu auðveldan sigur í gær, 72:48. Skallagrímur, sem spilar í næstefstu deild, skoraði aðeins 23 stig í fyrri hálfleik.Vörn heima- manna var gríðarlega sterk og höfðu þeir mikla yfirburði á öllum sviðum leiksins, hvort sem litið var til sóknar, varnar eða frákasta. Það er varla sanngjarnt að taka neinn leikmann út hjá Tinda- stól en stigaskor dreifðist jafnt á milli manna og leikmenn liðsins verða ekki dæmdir af þessari við- ureign. Darrell Flake var besti maður gestanna úr Borgarnesi en hann skoraði 17 stig og tók 11 fráköst. Sterkari í síðasta leikhlutanum Hún var öllu jafnari, viðureign Hauka og Njarðvíkur en heimamenn höfðu þó að lokum sannfærandi sigur 98:84. Haukar sem eru 4 stig- um ofar en Njarðvík í deildinni höfðu frumkvæðið nær allan leikinn og í 4. leikhluta náðu þeir að slíta sig frá Njarðvíkingum og breyttu stöðunni úr 66:60 í 80:67 með frábærri vörn og sókn. Gerald Robinson fór fyrir liði Hauka og skoraði 27 stig í leiknum. Þá var Haukur Óskarsson einnig góður en hann gerði 18 stig. Hjá Njarðvík var Chri- stopher Smith yfirburðamaður bæði í vörn og sókn. Það verða því Haukar, Tindastóll, KR og ann- aðhvort Grindavík eða Laugdælingar, sem mæt- ast í kvöld, í pottinum þegar dregið verður til und- anúrslita í keppninni. omt@mbl.is Haukar felldu Njarðvík úr bikarnum  Robinson í aðalhlutverki  Tindastóll ekki í vandræðum með Skallagrím KÖRFUBOLTI Bandaríkjamennirnir Steve Strick- er, Jonathan Byrd og Robert Carr- igus voru allir efstir og jafnir fyrir síðasta hringinn á Hyundai-meist- aramótinu sem er hluti af PGA- mótaröðinni í golfi en hann var leik- inn í nótt. Steve Stricker spilaði þriðja dag- inn á 65 höggum og jafnaði með því þá félaga, en þeir eru á 201 höggi eða 18 höggum undir pari vallarins eftir 54 holur. Robert Carrigus átti frá- bæran annan dag þegar hann spilaði völlinn á 63 höggum eða 10 undir pari. Þegar Morgunblaðið fór í prentun voru þeir að hefja síðasta hringinn en Robert Carrigus lét hafa það eftir sér að hann teldi sig hafa forskot á þá félaga því hann er ekki með þeim í síðasta ráshópnum. Hann spilar með Svíanum Carl Pettersson. „Það gæti tekið pressuna af mér. Núna er ég jafn strákunum, þannig að vonandi get ég byrjað vel og náð nokkrum fuglum á upphafsholunum.“ Steve Stricker og Jonathan Byrd voru hins vegar saman í síðasta rás- hópnum þar sem athyglin getur ver- ið mönnum óbærileg. Er þetta í fyrsta skiptið sem þeir félagar ræsa saman á PGA-mótaröðinni og í þriðja skiptið á ferlinum sem þeir eru saman í ráshóp. omt@mbl.is Þrír efstir og jafnir eft- ir þrjá hringi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.