Morgunblaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Nútímamaðurinn er vanur því að fásannleikann matreiddan ofan í sig.Sökudólgurinn finnst að lokum,
hvort sem hann fær makleg málagjöld eða
ekki. Að leikslokum kemur fram hvernig er
í pottinn búið.
Sú er ekki raunin í leikritinu Elsku
barn eftir Dennis Kelly sem nú er sýnt í
Borgarleikhúsinu og fjallar um móður, sem
sett er í fangelsi fyrir að myrða börnin sín
tvö. Í leikritinu er eiginlega farin öfug leið.
Í upphafi virðist allt liggja ljóst fyrir, en eft-
ir því sem á líður er eins og þræðirnir rakni
upp og óvissan eykst um málavöxtu uns allt
verður efanum undirorpið.
Leikritið hefst á stuttum inngangi, sembæði er lesinn og varpað á sviðsmynd-
ina: „Eftirfarandi er tekið orðrétt úr við-
tölum og bréfasamskiptum. Engu hefur
verið bætt við og allt – nema styttingar – er
nákvæm endurritun eftir frásögn viðkom-
andi. Nöfnum hefur ekki verið breytt.“
Inngangurinn er endurtekinn nokkrumsínum í sýningunni, en verður smátt og
smátt brenglaðri þar til á endanum hljómar:
„Tek er og rétt uppfarandi sambré skúrpt-
um er tölum. Engu bæfur hverið vibæt end-
urn ritumen stetting yeft fráarsurgen kom-
andi. Öll böfnu varm bryt.“
Fyrirheitið um að sannleikurinn verðileiddur í ljós er svikið. Áhorfandinn
fær í upphafi á tilfinninguna að hann sé
kominn inn í heimildaverk eða sitji í kvið-
dómi, en áttar sig hins vegar brátt á því að
ekki er allt sem sýnist.
Höfundur beinir spjótum sínum víða íleikritinu. Móður hins meinta barna-
morðingja virðist vera mest í mun að nota
mál hennar sem stökkpall til að komast til
metorða í pólitík. Fræðimaður, sem kemst
að þeirri niðurstöðu að móðirin sé haldin
heilkenni, sem hann hefur sjálfur uppgötv-
að, virðist fórna fræðimennskunni á altari
hégóma og metorðagirndar.
Meira að segja höfundur verksins færsinn skerf þegar lesið er upp bréf til
hans frá föður barnanna: „Ég verð að viður-
kenna að ég er dálítið ringlaður vegna þess
sem þú ert að gera. Ef ég skil það rétt þá er
eins og þú sért að búa til skemmtun úr
mesta harmleik lífs míns,“ segir í bréfi föð-
urins sem lýkur með orðunum: „Ég vona að
ég hafi misskilið og ef svo skyldi vera þá bið
ég þig að fyrirgefa mér, en ef svo er ekki þá
bið ég þig eins og maður við mann: Ekki
gera þetta.“ Áhorfandanum er strax ljóst af
veru sinni í salnum að þessi orð máttu sín
einskis.
Á endanum verður móðirin, sem á aðhafa framið hinn svívirðilega verknað
eins og fórnarlamb. Sú tilfinning magnast
að hún hafi verið höfð fyrir rangri sök, en
einfaldlega neitað að taka þátt í þeim hrás-
kinnaleik, sem hefst þegar ásakanirnar
taka að hrannast upp. Að þessu leyti minnir
hún á aðra persónu, sem nú má sjá hér á
leiksviði, Kordelíu dóttur Lés konungs, sem
neitar að vera með fagurgala þegar faðir
hennar heimtar að hún heiti sér ást sinni
allri, heldur svarar af hreinskilni og upp-
sker útskúfun.
Elsku barn er margslungið verk ogmagnað og uppfærslan í Borgarleik-
húsinu unnin af mikilli list, allt frá sviðs-
mynd Ilmar Stefánsdóttur til leikstjórnar
Jóns Páls Eyjólfssonar. Leikararnir eru
mjög sannfærandi í erfiðum hlutverkum. Í
Elsku barni er ekki verið að rétta yfir
meintum barnamorðingja heldur sannleik-
anum. Eða öllu heldru vrið að réett a rify
snnlakeianum.
Réttað yfir sannleikanum
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Sannleikur? Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur móður sem á að hafa myrt börn sín.
Daníel Bjarnason er í huga margra þekktarifyrir hljómsveitarstjórn en tónsmíðar.Hann stundaði nám í hvorutveggja hér álandi og í Þýskalandi á árunum 2000-2007
og hefur síðan stjórnað í Óperunni í Reykjavík, Sin-
fóníuhljómsveit Íslands auk
þess að vera aðalstjórnandi
kammersveitarinnar Ísafoldar.
Verk hans „All sounds to si-
lence come“ kom út á geisla-
diski Ísafoldar fyrir fáeinum
árum en hér stígur Daníel á
pall eingöngu með eigin verk í
flutningi ýmissa listamanna.
Fyrsta verkið, „Bow to String“, er nær eingöngu
leikið á eitt selló, þar sem ótal raddir eru teknar upp
og síðan hljóðblandað þannig að útkoman er líkt og
kammersveit. Sellóið er með eindæmum fjölhæft
hljóðfæri og í fimum höndum Sæunnar eru litbrigði
þess notuð til hins ýtrasta. Verkið hefst af miklu of-
forsi þar sem tónlistin dansar á milli ómstríðu og
ljóðrænu í sífellu, annar kaflinn hægur og drama-
tískur með plokkuðum strengjarytma og síðasti kafl-
inn enn hægferðugri með langri, dreymandi laglínu,
sem þræðir sig milli hljómanna uns allt fellur í ljúfa
löð í lokin.
Titilverk þessarar útgáfu, „Processions“, hefst á
kröftugum píanóleik Víkings Heiðars, án fyrirvara,
eins og titill fyrsta þáttar gefur til kynna. Líkt og
fyrsta verkið er „Processions“ þrískipt. Í fyrsta kafl-
anum skiptast á kraftmiklir hljómsveitarkaflar og
einleiksstrófur, annar kaflinn er í raun stöðug upp-
bygging að risavöxnum lokahápunkti eftir fallegt
brassupphafsstef og þriðji kaflinn rytmískari úr-
vinnsla með hröðum nótnahlaupum einleikarans. Vík-
ingur Heiðar stendur sig að vanda afbragðsvel ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir styrkri stjórn Daní-
els sjálfs. Diskinum lýkur síðan mjög snoturlega á
verkinu „Skelja“, sem er lágstemmd, innhverf tón-
smíð með hörpuleik og sparlega notuðu slagverki.
Daníel sýnir ótrúlega fjölbreytni í tónsmíðum sínum
og sterk tök á hljómsveitarnotkun. Hann er vissulega
á heimavelli þegar kemur að píanóleik en tónsmíðar
hans fyrir önnur einleikshljóðfæri, sér í lagi sellóið,
sýna mikið innsæi í notkun og möguleika hljóðfær-
anna. Vissulega koma ýmsir áhrifavaldar upp í hug-
ann, Mahler, Björk, Debussy, kvikmyndatónlist á
borð við Matrix og Hringadróttinssögu, en tónlistin
er fyrst og fremst falleg, heilsteypt og persónuleg.
Fallegt,
heilsteypt,
persónulegt
Daníel Bjarnason –
Processionsbbbbn
Sæunn Þorsteinsdóttir selló, Víkingur Heiðar Ólafsson pí-
anó, Katie Buckley harpa, Frank Aarnink slagverk, Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Daníel Bjarnason.
Snorri
Valsson
TÓNLIST
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
SAW 3D Sýnd kl. 8 og 10
THE TOURIST Sýnd kl. 8 og 10:10
ALFA OG ÓMEGA Í 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal
GULLIVER’S TRAVELS 3D Sýnd kl. 6
LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 6 og 8
DEVIL Sýnd kl. 10
HROTTALEG SPENNA Í ÞVÍVÍDD
3D GLERAUGU
SELD SÉR
3D GLERAUGU
SELD SÉR
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Í 3-D OG 2-D
MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D
-H.S, MBL-K.G, FBL
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
BURLESQUE kl. 8 - 10.10
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6
THE TOURIST kl. 10
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 8
LITTLE FOCKERS kl. 6
L
L
12
L
12
Nánar á Miði.is
BURLESQUE kl. 5.20 - 8 - 10.35
BURLESQUE LÚXUS kl. 8 - 5.20 - 10.35
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30
THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
LITTLE FOCKERS Kl. 10.20
GAURAGANGUR KL. 5.50
MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40
NARNIA 3 3D KL. 3.30
L
L
L
12
L
12
7
L
7
BURLESQUE kl. 10.30
THE TOURIST KL. 5.40 - 8 - 10.20
DEVIL KL. 10.20
GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 - 10.10
NARNIA 3 2D KL. 5.30 - 8
L
12
16
7
7
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR