Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 1
Tveir miðlar, ein auglýsing, tvöföld áhrif. Auglýsingin birtist líka á mbl.is27. janúar 2011 SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS ÍS LE N SK A/ SI A. IS /F LU 51 96 3 10 /1 0 FLUGFELAG.IS Unnur Valborg Hilmarsdóttir er meðal leið- beinenda hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Þar er að fara af stað námskeið fyrir fólk með sjúk- legan ræðukvíða. Meðal einkenna hans eru hjartsláttur, vöðvaspenna, munnþurrkur. 10 Tónlistarmaðurinn Pétur Örn Guð- mundsson segist vera í draumastarf- inu sínu og hann saknar þess ekki að leika kántrý-lög í Kringlunni. Hann langar í hvítlaukspressu. 8 Kántrý í Kringlunni KIA Cee’d er framúrskarandi smábíll og skynsamlega verð- lagður. Heildarútlit bílsins er gott og eyðslan hófleg sem breytir ekki því að bíllinn er aflmikill. Sterk tilfinning. 16 Framúrskarandi bíll bílar atvinna Ræðukvíði sigraður Hyundai frumsýndi fyrir skemmstu myndir af nýju flagg- skipi framleiðslu sinnar. i40 nefnist bíllinn góði sem verður í öndvegi á bílasýning- unni í Genf í næsta mánuði. 14 Flaggskip frumsýnt Kirkjan í Skálholti í Bisk- upstungum er sú tíunda í röð- inni sem stendur á þessum forna kirkjustað. Kirkjan var byggð kringum 1960. Hún er fallega skreytt og hýsir ýmsar merkar minjar. 4 Tíunda kirkjan fasteignir Jóhann G. Jóhannsson segir enganvafa leika á því að Íslendingarséu óðir í góða spurningaþætti.„Hver hefur heldur ekki misst sig yfir t.d. spennandi úrslitaþætti af Gettu betur, og hverjum þykir ekki gam- an að geta stundum vitað betur en fólkið á skjánum? Í okkar tilviki ætti það ekki að vera mjög erfitt því gestirnir í þætt- inum eru ekki beinlíns valdir vegna gáfna heldur frekar fyrir hvað þeir eru hnyttnir í tilsvörum.“ Jóhann stýrir nýja spurningaþætt- inum Ha? sem sýndur er á Skjá einum á föstudagskvöldum. „Þættinum er samt eiginlega best lýst sem skemmtiþætti með spunaívafi, sem byggður er upp í kringum spurningar. Ekki er um að ræða hefðbundinn spurningaleik þar sem allt stendur og fellur með því hvort svar- að er rétt eða rangt. Hjá okkur er spurn- ingin frekar einhverskonar upphaf að ferð sem sér ekki endilega fyrir endann á hvert mun leiða okkur. Stig eru svo gefin fyrir áhugaverð innskot og punkta, en ekkert endilega fyrir að koma strax með rétta svarið. Þeir sem eru skemmtilegir fá stig en keppendur sem eru leiðinlegir og leggja bara til málanna eitthvað sem allir vita geta þess vegna vænst þess að missa stig.“ Skemmtileg blanda Formið sækir innblástur til marga af vinsælustu spurningaþáttunum sem sýndir eru úti í heimi. „Við skoðuðum okkur vandlega um áður en farið var af stað með þetta verkfeni. Sjálfur er ég t.d. mikill aðdáandi þess mikla snillings Stephens Fry sem stýrir þáttunum QI á BBC. Svo fáum við sitthvað að láni frá þáttum eins og Have I Got News for You, Whose Line Is It Anyway, Never Mind the Buzzcocks, Hva i Danmark? og Geni- al da Neben,“ útskýrir Jóhann en allt eru þetta léttir og frumlegir spurninga- og sprellþættir. „Við spyrjum m.a. út í at- burði liðinnar viku, leitum fanga á Fa- cebook og í fréttatímum, og skoðum furðulega og athyglisverða hluti.“ Bak við tjöldin er Stefán Pálsson spurningahöfundur og Birna Ósk Hann- esdóttir framleiðandi en með sér á svið- inu, fyrir framan áhorfendur í sjónvarps- sal, hefur Jóhann þau Sólmund Hólm og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur í hlutverki nk. liðsstjóra. „Svo fáum við tvo gesti í hvern þátt, en í fyrsta þættinum fyrir viku létu Guðmundur Pálsson og Karl Sigurðsson úr Baggalúti ljós sitt skína. Í næsta þátt mæta svo Jón Gnarr borg- arstjóri og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Jóhann G. Jóhannsson leikari og nú þáttastjórnandi á Skjá einum. „Gestirnir ekki beinlínis valdir vegna gáfna“ Léttur og nýstárlegur spurningaþáttur er sýndur á Skjá einum á föstudögum. Þeir sem eru skemmtilegir fá stig en keppendur sem eru leiðinlegir og leggja bara til málanna eitthvað sem allir vita geta þess vegna vænst þess að missa stig. finnur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.